Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 40
Bögglapóstur
iim flllt Iflnd
X
MORGUNBLADIÐ, AÐALSTRÆTI 6, 101 REYKJAVÍK
StMl 691100, SIMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Fólksbíll út
af í Óshlíð
og hrapaði
um 20 metra
Siglt í Kópavogi
MorgunDlaoiö/övernr
Krakkarnir í Kópavogi gerðu sér glaðan dag í vikunni er leikskóla-
hátíð var haldin í Hlíðargarði og var eldri borgurum í bænum
boðið á samkomuna. Á myndinni eru nokkur ungmennanna um
borð í bát í garðinum og eftirvæntingin leynir sér ekki í svipnum.
Guðni Þórðarson:
Engin von um að fólk fái bætur skili fyrirtækið inn gjald-
þrotabeiðni, segir forstjóri Flugferða-Sólarflugs
GUÐNI Þórðarson, forstjóri
Flugferða-Sólarflugs, segir að
ein af ástæðunum fyrir því hvers
vegna ferðaskrifstofan hætti
starfsemi sé vegna harðrar sam-
keppni við Flugleiðir. Guðni seg-
ir að reynt verði að bæta fólki
það fjárhagslega tjón sem það
hefur orðið og kemur til með
að verða fyrir. „Ef Flugferðir-
Sólarflug skilar inn gjaldþrota-
beiðni er engin von um það að
menn fái bætur þar sem fyrir-
tækið er eignalítið."
sérstöðu og áður. Þau fargjöld hjá
Flugleiðum hafa síðan aftur hækk-
að,“ sagði Guðni.
„Flugferðir-Sólarflug átti
ógreitt frá farþegum í sumaráætl-
uninni meiri fjármuni en þurfti til
þess að allir fengju sínar ferðir
þegar upp er staðið. Hins vegar
FÓLKSBÍLL fór út af Óshlíðar-
vegi við Hvanngjá um miðnætti í
fyrrakvöld og hrapaði niður um
20 metra. Fimm ungmenni frá
ísafírði og Bolungarvík voru í
bflnum. Þau sluppu öll nær ómeidd
og fengu að fara heim eftir skoð-
un á sjúkrahúsinu á ísafirði.
Bílnum var ekið frá Bolungarvík
eftir Óshlíðarvegi þegar ökumaður
missti stjórn á honum með þeim af-
leiðingum að bíllinn endastakkst út
af veginum.
Einn farþeginn í bílnum sagði í
samtali við Morgunblaðið í gærmorg-
un að ökumaður bflsins hafi verið í
öryggisbelti en farþegamir ekki.
„Afturrúðan brotnaði en við héldum
okkur í framsætin á meðan bíllin
endastakkst niður hlíðina," segir
hann.
Hann segir það kraftverki líkast
að þau skyldu sleppa svo lítið meidd
þar sem mjög stórgrýtt sé í hlíðinni,
bíllinn hafi lent á stórum steini og
vísað upp þegar hann stoppaði.
„Við skriðum í snarhasti út úr
bílnum og fundum ekkert til fyrr en
við vorum búin að skríða aftur upp
á veginn,“ sagði farþeginn.
Fargjaldalækkun Flugleiða
mimikíiði sérstöðu Sólarflugs
vantaði okkur rekstrarfé til að
halda fyrirtækinu gangandi. Okkur
tókst það m.a. ekki vegna þess að
rekstraraðilar gefa ferðaskrifstof-
um ekki gjaldfrest,“ sagði Guðni
Þórðarson forstjóri Flugferða-Sól-
arflugs.
Sjá ennfremur bls. 6.
Ólympíuskákmótið:
Islendingar
í 4.-5. sæti
ÍSLENDINGAR unnu Sviss-
lendinga með 3 vinningum
gegn 1 í 5. umferð Ólympíu-
skákmótsins á Filippseyjum í
gær. íslendingar eru nú komn-
ir í hóp efstu á mótinu, með
14 vinninga. Ekki er öllum
skákum lokið í umferðinni en
íslendingar voru í 4.-5. sæti.
í viðureign_ íslands og Sviss
vann Helgi Ólafsson Brunner,
Jóhann Hjartarson gerði jafntefli
við Zuger, Hannes Hlífar Stef-
ánsson vann Franzoni, og Þröst-
ur Þórhallsson og Landerbergue
skildu jafnir.
Viðureignin á toppnum er á
milli Rússlands og Lettlands, þar
sem Kasparov verst með verra
tafl gegn Sírov.
Aflakvóti geymdur í ráðuneyt-
inu meðan deilt er um eignarhald
Riftunarmál vegna sölu Guöfinnu Steinsdóttur ÁR komiö til Hæstaréttar
DEILUR um kaupsamning á bátnum Steindóri GK, sem fórst við
Krísuvíkurberg í febrúar í fyrra, hafa nú valdið þvi að sjávarútvegs-
ráðuneytið hefur skorizt í leikinn og bannað nýtingu kvóta bátsins.
Kvóti hans var nýttur af kaupendum á síðasta ári, en nú er hann í
vörzlu ráðuneytisins. Deilumálið er hins vegar fyrir Hæstarétti, en
því var áfrýjað af seljanda bátsins eftir að dæmt hafði verið í vil
kaupanda í undirrétti. Mun þetta vera einsdæmi, að kvóti skuli „tek-
inn úr urnferð" vegna deilna um eignarrétt á honum.
Guðni segir tiltölulega lítinn hóp
viðskiptavina Flugferða-Sólarflugs
verða fyrir tjóni vegna starfsloka
ferðaskrifstofunnar. „Það voru
ekki nema liðlega 1.400 farþegar
sem áttu hjá okkur staðfestar og
innborgaðar pantanir það sem af
er sumri en ekki 2.200 farþegar
líkt og haldið hefur verið fram í
fjölmiðlum." Flestir þessara far-
þega staðfestu pantanir sínar með
innborgunum upp á 3.000-8.000
krónur á sæti.
„Ástæðan fyrir því að leiguflug-
ið gekk ekki eins vel og í fyrra var
sú, að Flugleiðir settu í vetur og
vor á markaðinn lág fargjöld í sam-
keppni við okkur á svipuðu verði.
Við höfðum því ekki jafn mikla
Málið snýst um það að Elliði hf.
í Þorlákshöfn seldi Njáli hf. í Garði
bátinn Guðfinnu Steinsdóttur ÁR
um áramótin 1990/91 og afhenti
kaupendum 19. janúar 1991. Skip-
inu var þá gefíð nafnið Steindór
GK og fórst það við Krísuvíkurberg
20. febrúar 1991. Skömmu síðar
fór Hafsteinn Ásgeirsson, fyrir
hönd Elliða hf., í riftunarmál, þar
sem hann taldi vanefndir á kaup-
samningi af hálfu kaupanda. Málið
var tekið fyrir í undirrétti á Sel-
fossi og niðurstaða þar var sú að
vanskil hefðu ekki verið nægileg til
að taka til greina kröfu um riftun
á kaupsamningi. Hafsteinn áfrýjaði
málinu þá til Hæstaréttar.
Hafsteinn sagði í samtali við
Morgunblaðið að kaupandinn hefði
ekki staðið í skilum. Nánast ekkert
hefði verið komið af því sem greiða
átti fyrir afhendingu, þegar skipið
fórst. Svo mikið fé hefði verið úti-
standandi án trygginga að eina Ieið-
in til að leita réttar síns hefði verið
áð fara í riftunarmál. „Þetta hefur
svo orðið afar einkennilegt mál,“
sagði Hafsteinn. „Það hefur aldrei
verið gefið út afsal fyrir sölu báts-
ins og var Elliði því þinglýstur eig-
andi hans. Þrátt fyrir það var Njáli
hf. heimilað að færa kvóta bátsins
yfir á aðra báta í eigu sinni. Trygg-
ingamar greiddu veðhöfum í bátn-
um út það sem þeir áttu áhvflandi
á bátnum en Njáli hf. það sem eft-
ir stóð af tryggingarfénu, þrátt fyr-
ir að hann væri ekki þinglýstur eig-
andi hans. Þetta er erfitt mál, og
ég tel rétt að ráðuneytið geymi
kvótann, en það hefði átt að gerast
strax í fyrra,“ sagði Hafsteinn.
Baldvin Njálsson, framkvæmda-
stjóri Njáls hf., sagðist í samtali
við Morgunblaðið ekki vilja tjá sig
um málið að þessu sinni.