Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 23 við Morgunblaðið: „Þetta er ekkert innfjarðargeim lengur.“ Sá sem fyrstur verður á vegi okk- ar á flotbryggjunni á Tálknafiði er Helgi Bergþórsson á trillunni Guð- rúnu Helgu EA. Hann hefur verið sjómaður alla sína tíð, lengst af á togaranum Margréti EA. Árið 1989 keypti hann Guðrúnu Helgu og hefur haft lifibrauð sitt af bátnum að mestu síðan. „Mig langaði til að gerast eig- in herra og það lá beinast við fyrir mig að prófa þetta,“ segir Helgi. Á SKAKIMEÐ TRILLUKÖRLUM FYRIR VESTAN „Þetta hefur gengið svona nokkurn veginn eins og ég átti von á að það gengi en framtíðin er aftur á móti óviss. Ég er á krókaleyfi núna og ég vona að það haldist áfram. í máli Helga kemur fram að hann geti ekki stundað þessa atvinnu sína nema í mesta lagi 5-6 mánuði á ári, það er yfir sumartímann, sökum veðra. Helgi lenti í aflahrotunni sem greint var frá í fjöltniðlum á þessu svæði. „Það var rosalegt að koma hér í höfnina þegar þetta skot var í gangi, en svona vikur eins og þessi koma ekki nema á nokkurra ára fresti. Skakveiðin nú er allajafna ekkert nema púl og miklar yfirlegur ef eitthvað á að fiska,“ segir hann. „Dagsaflinn hjá okkur varð mestur 2,7 tonn og það var mikið líf í sjón- um hér undan og góðar lóðningar á stóru svæði.“ y Háskólastúdent í harkinu Skammt frá Guðrúnu Helgu er sómabáturinn Stefán Ragnar EA. Eigandinn, Stefán Stefánsson, er um borð að gera klárt meðan á brælunni stendur. Hann hefur átt bátinn í tæp fjögur ár og hefur notað skakveiðina til að fjármagna háskólanám sitt. Hann er nú í rekstrarfræði í Sam- vinnuskólanum að Bifröst eftir að hafa numið arkitektúr í Bandaríkjun- um. Stefán er nýkominn til Tálkna- fjarðar eftir að hafa verið að skaka í grennd við Grímsey og Kolbeinsey. „Eg lít á það sem forréttindi að fá að vera á skaki á góðum sumardög- um,“ segir Stefán. „Maður nær ein- hvern veginn svo vel að kúpla sig frá öllu í landi. En þar með er ekki sagt að þetta sér eintómur leikur. í þessari vinnu verða menn fyrst og fremst að geta bjargað sér sjálfir ef eitthvað kemur upp á, eins og til dæmis vélarbilun. Það er ekki hægt að hringja í næsta verkstæði þegar maður er staddur 20-30 mílur út á sjó.“ Stefán segir að hann lifí í þeirri von að geta framfleytt sér á skak- inu, tekjurnar séu það góðar að hann fái ekki námslán. 10 ára skak Guðmundur „Grímseyingur" Har- aldson er að skrúbba trilluna sína, Normu KE, sem hann hefur nýlega fest kaup á. Hann hefur stundað sjó- inn, einn á báti frá 10 ára aldri og alltaf gert út frá Grímsey. Norma er fjórða trillan sem fjölskylda hans eignast. „Það er óhætt að segja að þetta sé ævistarf mitt hingað til að vera á skaki,“ segir Guðmundur. „Það sem mér finnst mest heillandi vð skakið er að maður ræður sér algerlega sjálfur, tekur ekki við skip- unum frá einum eða neinum og er ekki háður einhverri stimpilklukku." Guðmundur er ættaður frá Hval- látrum og þykir fískinn með afbrigð- um. Mest hefur hann náð að afla um 50 tonna á sumri, sem gerir mánað- artekjur upp á ríflega milljón krón- ur. Hann getur ekki hugsað sér ann- að líf en sjómennsku og þegar hann er ekki á skaki er hann á stærri bátum eða millilandaskipum á vetr- um. Hann ætlar sér að taka frí frá sjómennskunni um stund í náinni framtíð til að fara í Stýrimannaskól- ann og afla sér skipstjórnarréttinda. Tómstundagaman í 30 ár Frá Tálknafirði liggur leið okkar á Flateyri en þangað hafa trillur verið að tínast inn í höfnina ein af annarri síðústu dagana. Ekki hefur gefið á sjó í tæpa viku og nota menn landleguna til að sitja á Vagninum yfir kaffibolla og ræða spekingslega um lóðningar og lórantölur og gildi þess að hafa bræluskak á nýju DNG- rúllunum. Meðal þeirra sem gera út frá Flateyri er Sigurður Sigurdórsson sem átt hefur bát á staðnum frá 1960 og haft skak sem tómstundaga- man síðan. í fyrra fékk hann sér nýjan bát og nú er ætlunin að reyna að lifa af þessu. „Ég er búinn að gera skak að mínu aðalstarfí og ætla að gera út í sum- ar með dóttur minni,“ segir Sigurður. Eins og flestir aðrir trillukarlar og skakarar nefnir Sigurður sem höfuðkost við þessa atvinnu að hann er algerlega sjálfs síns herra og laus við allan skarkala og læti þegar út á sjó er komið. En honum fínnst framtíð sín sem trillukarls mjög óviss. „Það hefur verið rætt um að þegar krókaleyfínu ljúki verði settur kvóti á þessa báta og það þýðir að við fáum ekki neitt,“ segir Sigurður. „Ég lít þannig á málið að ráðamenn ættu að hugsa vel sinn gang því þessi veiðarfæri sem við notum eru þau sem minnst ganga á fiskistofn- ana. Það vita allir og það eru ekk: handfærin sem eru að ganga að físki- stofnunum dauðum." í máli Sigurðar kemur fram að á síðustu árum hafi menn stöðugt þurft að sækja fískinn lengra á haf út og vera lengur við að físka en áður. „Svo hef ég einnig á tilfinningunni að veðurfar hafí farið versnandi á síðustu árum,“ segir Sigurður. „Hér áður fyrr var oft hægt að sæka á sjó á trillum dögum saman en nú kemur vart sú vika að ekki sé bræla megn- ið af henni og aðeins hægt að fara út dag og dag.“ Sigurður segir að aflabrögðin í maí hafí verið óvenju- góð en það telst ágætt að ná svona 10 tonnum á mánuði á skakinu. Hef það sama og á togara Annar trillukarl á Flateyri, Aðal- steinn Bjarnason, sem stundað hefur skak í fimm ár eða frá 17 ára aldri tekur undir með Sigurði hvað afla- brögðin í ár varðar. Hann segir að hann hafí svipað upp úr skakinu og hann hefur haft á togara. „En það þarf að vera vel við til að ná þessum peningum upp úr skakinu og þetta eru miklar vökur hjá manni þegar gefur á sjó,“ segir Aðalsteinn. „Það er ekkert lengur að hafa á grunnslóð- inni hérna í grennd og sem stendur sæki ég minn fisk um 13 mílur út af Barðanum fyrir utan Dýrafjörð." Aðalsteinn segir að hann ætli sér að stunda skak á sumrin í nánustu framtíð enda sé það hið skemmtileg- asta sem hægt er sé að lenda í á góðum dögum. Lára leggur úr höfn Sjálfur hef ég ekki gert mikið af því að skaka en gefst tækifæri til að sigla einn róður með Birni E. Hafberg á Láru IS, fjögurra tonna Færeyingi frá Flateyri. Bjöm er einn af þessum trillukörlum sem enn sjá skakið í rómantísku ljósi og þegar við komum út á rúmsjó út af Barðan- um fer hann að segja mér á sinn rólega og yfirvegaða hátt hve nánum tengslum sé hægt að ná við náttúr- una á skakinu. A meðan ligg ég yfír borðstokknum og reyni að koma í veg fyrir að innyfli mín komist í þessu nánu tengsl. Um borð í Láru eru þijár skakrúll- ur, tvær rafdrifnar Juksa Robot og ein gömul Elliða snegla. Neðan á lín- unni hangir blýklumpur á þyngd við meðal handlóð og síðan slóði með 5-6 önglum. Juksa Robot rúllan er sjálfvirk þannig að aðeins þarf að ýta á takka og sér hún síðan um að setja færið í botn og skaka því síðan upp og niður þijá faðma frá botnin- um. Þegar bítur á eða þyngsl koma á færi pípir í rúllunni og hún dregur slóðann upp. Á gömlu Elliða-græj- unni þarf maður að skaka sjálfur. Það er ákveðin spenna fólgin í því fyrir óvanan að heyra fyrst pípið í sjálfvirku rúllunum og sjá síðan þorsk dreginn um borð en það kemst í vana eins og annað. Gert er að aflanum um borð og hann ísaður í kassa. Það tekur okkur hálfan annan sólahring að ná ca. 350 kg af þorski þannig að þetta skaklíf virðist ekki alltaf dans á rósum. En við erum samt léttir í skapi því maður finnur þessa tilfinningu svo glöggt, að vera sinn eigin herra, og út á það gengur jú þetta allt. ______________Brids__________________ Umsjón Arnór G. Ragnarsson 46 pör í sumarbrids sl. fimmtudag Mjög vel var mætt í Sumarbrids í Reykjavík síðasta þriðjudag. 46 pör mættu til leiks í Mitchell-tvíAienning. Úrslit urðu (efstu pör): N/S: Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 535 Hulda Hjálmarsdóttir - Ólína Kjartansdóttir 496 Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn Sigurðsson 485 Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 482 Erla Siguijónsdóttir - Óskar Karlsson 458 A/V: HaukurHarðarson-VignirHauksson 559 GunnarÞórðarson-SigfúsÞórðarson 488 Ragnheiður Nielsen - Sigurður Ólafsson 487 Gísli Sigurkarlsson - Halldór Ármannsson 479 GeorgSverrisson-BemódusKristinsson 476 Öllu rólegra var síðasta fímmtudag, trúlega vegna Evrópumótsins í knatt- spymu. Spilað var í tveimur riðlum, samtals 26 pör. Úrslit urðu (efstu pör): A Hulda Hjálmarsdóttir - Ólína Kjartansdóttir 255 Lárus Hermannsson - Guðlaugur Sveinsson 246 HörðurPálsson-ÞráinnSigurðsson 245 ValtýrPálsson-ÞórðurSigurðsson 224 Guðmundur Samúelss. - Þorsteinn Þorvarðars. 218 FriðrikJónsson-SævarJónsson 213 B Jón Viðar Jónmundss. - Jóhannes Guðmannss. 122 Stefán Ólafsson - Valdimar Elíasson 120 RagnaBriem-ÞórannaPálsdóttir 119 Sigurleifur Guðjónsson - Ólafur Oddsson 111 Staða efstu manna hefur lítið breyst. Þröstur Ingimarsson leiðir enn og næstu menn eru Þórður Björnsson, Lárus Hermannsson og Guðlaugur Sveinsson. Spilað er í Sumarbrids alla mánu- daga og þriðjudaga í Mitchell (spila- mennska hefst kl. 19), fímmtudaga í riðlakeppni (fyrsti riðill fer af stað upp úr kl. 17 og síðasti riðill kl.19) og laugardaga (spilamennska hefst kl. 13.30). Spilaður er Mitchell á laugar- dögum. Spilaáhugafólk er hvatt til að vera ✓ með í Sumarbrids 1992. Ferðafólk á leið um bæinn er sérstaklega boðið velkomið sem og erlendir gestir. Bridsdeild eldri borgara, Kópavogi Sl. þriðjudag mættu 14 pör, og var spilaður Mitchell-tvímenningur, og urðu úrslit þessi: N/S: Einar Elíasson og Gústaf Lárusson 206 Bergsveinn Breið§örð og Eysteinn Einarsson 194 Helga Ámundadóttir og Hermann Finnbogas. 168 A/V: Gísli Sigurtiyggvason og Ámi Jónasson 201 Ingin'ður Jónsdóttir og Helga Helgadóttir 184 Ásta Þorsteinsdóttir og Margrét Sigurðardóttir 175 HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010 llókseatn bætir úr brýrnii þörf Þessi bænabók, sem sr. Karl Sigurbjömsson tók saman, geymir fjölda bæna frá frumkristni til þessa dags. Þar em bænir sem tengjast daglegu lífí, helgum og hátíðum og krossgötum ævinnar. Emnig eru þar stuttar leiðbeiningar um trúarlíf, iðkun og siði, svo og greinarumbæn oglestur Bibhunnar eftir dr. Sigurbjöm Einarsson, biskup. Bókin fæst í Kirkjuhúsinu, Kirkjuhvoli, gegnt Dómkirkjunni, s.21090 og 621581 og er hægt að (á hana senda í póstkröfu, auk þess sem hún fæst í öllum bókaverslunum. IEf PSÖGN A VEGl TRÚARI.ÍFSfNS ““ Skálhöltsútffáfan |S1< ^Útg Skálholtsútgáfan Útgáfufélag þjóðkirkjunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.