Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 2
EFIMI 2 FRÉTTIR/INNLENT eei YAW. .M HJDAaU/r'/AJS GIQ/uIU'/.UOHO!/. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 N-Atlantshafsflugið: Oljóst hvort verðstríð hefur áhrif á Flugleiðir EINAR Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að stjórnendur fyrirtækisins fylgist nú með verðstríði bandarískra flugfé- laga í Norður-Atlantshafsfluginu en ekki hafi veríð tekin afstaða til þess hvort það hafi áhrif á fargjöld Flugleiða. International Herald Tribune greinir frá því á fímmtudag að bandaríska flugfélagið Delta hafí boðað allt að 45% lækkun á far- gjöldum á fyrsta farrými (business class) á leiðinni yfír Atlantshafíð. Jafnframt kemur fram, að önnur bandarísk flugfélög hugleiði að lækka þessi fargjöld sín. Einar Sigurðsson segir að Flug- leiðir hafí að undanfömu fylgst með hörðu verðstríði bandarískra flugfé- laga, fyrst á heimamarkaði og nú í Atlantshafsfluginu. Hins vegar hafí ekki enn verið tekin afstaða til þess hvort þessar lækkanir muni hafa áhrif á fargjöld hjá félaginu. Þess beri að gæta að Flugleiðir hafí óvenju lítið hlutfall farþega á fargjöldum af því tagi, sem hér um ræðir, og einnig hafí þau verið í lægri kantinum hjá þeim. Alþýðuflokkurinn: Þingað fyr- ir opnum tjöldum TILLAGA Jóns Baldvins Hannibalssonar, formanns Al- þýðuflokksins, um að 46. þing Alþýðflokksins, fari fram fyrir opnum tjöldum var samþykkt í gærmorgun. Aður hafði flokksþingið samþykkt að hafa almennar umræður á þinginu lokaðar en sú ákvörð- un mætti töluverðri óánægju meðal fulltrúa á flokksþing- f gærmorgun fóru fram um- ræður í tveimur nefndum um sjávarútvegsmál og velferðar- mái. Ræðumenn voru flestir þeirrar skoðunar að taka bæri upp veiðileyfagjald í sjávarútvegi en ágreiningur ríkti að öðru leyti um hvort viðhaida bæri kvóta- kerfínu óbreyttu eða taka upp að einhveiju leyti sóknarmark að nýju. Töfðust þingstörf af þessum sökum og dagskrá gekk úr skorðum. Morgunblaðið/Jón Stefánsson Ók á brúarhandrið í Kópavogi Bifreið var ekið á handrið brúarinnar yfir Kópa- I ið var með ökumann og farþega á slysadeild en vogslæk um klukkan hálf fimm í fyrrinótt. Far I í gær fengust ekki upplýsingar um líðan þeirra. Stjórn Samtaka íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja: Otímabærar og óþarf- ar yfirlýsingar Softís STJÓRN Samtaka íslenskra hug- búnaðarfyrirtækja (SÍH) hefur sent Jóhanni P. Malmquist, stjórnarformanni Softis hf., bréf þar sem segir m.a. að þær yfirlýs- ingar sem stjórn Softis hafi gefið fjölmiðlum, t.d. um möguleika á gjaldeyristekjurh með sölu á hug- búnaðarkerfinu Louis, séu al- gjörlega ótímabærar og að öllu óþarfar. Nægar yfirlýsingar hafi verið gefnar á undanförnum árum um að nú séu íslendingar að fara að græða á hugviti en því miður hafi það ekki tekist með neinum verulegum árangri. í bréfínu segir jafnframt að það sé eitt af aðalmarkmiðum SÍH að byggja og efla ímynd hugbúnaðar- iðnaðar á íslandi. „Ef niðurstaða verkefnis ykkar verður neikvæð, sem við hjartanlega óskum að verði ekki raunin, er engin spuming að sú neikvæða umræða er mun fylgja í kjölfarið mun hafa verulega nei- kvæð áhrif á íslenskan hugbúnaðar- iðnað. Að sama skapi, eins og nefnt er hér að ofan, mun ímynd iðnaðar- ins eflast verulega ef vel fer. Það sem okkur í stjórn SÍH finnst hvað alvarlegast við vinnubrögð ykkar, er tímasetningin. Það er alls ekki tímabært að gefa slíkar yfírlýsingar °g leggja með þeim ímynd hugbún- aðarins, ímynd okkar allra, í slíka hættu sem nú hefur verið gert. Öll hugbúnaðarfyrirtæki í landinu geta orðið fyrir tjóni ef verkefnið tekst ekki. Það gefur augaleið að Softis hefði átt að bíða með stórar yfírlýs- ingar þangað til einn eða fleiri samningar væru í höfn.“ í bréfínu er þess jafnframt óskað að stjórn Softis taki ábendingu SÍH alvarlega og fari varlega með frek- ari yfírlýsingar varðandi verkefni fyrirtækisins. í lok þess er Softis boðið að sækja um aðild að samtök- unum,'sem í eru 27 hugbúnaðarfyr- irtæki. Færri látast ór skorpu- lifur þrátt fyrir aukna neyslu áfengra dryklga DÁNARTÍÐNI af völdum alkóhólskorpulifur fer lækkandi, þrátt fyrir vaxandi áfengisneyslu. Klínisk tíðni þessarar tegundar skorpulifur, þ.e. þau tilfelli sem greind eru, er sex sinnum hærri en dánartíðni. Hvort tveggja bendir til árangursríkra fyrirbyggj- andi aðgerða gegn áfengissýki og líkamlegum afleiðingum henn- ar. Þetta er niðurstaða rannsóknar, sem læknar við Lyflækningadeild Landspítalans framkvæmdu og skýrt er frá í Læknablaðinu. Þar segir, að tilgangur rannsóknarinn- ar hafi verið að kanna tíðni skorpulifrar á íslandi og sérstak- lega að greina alkóhólskorpulifur frá öðrum tegundum skorpulifur. Læknarnir könnuðu tímabilið 1958-1990. Alls dóu á því tíma- bili 128 úr lifrarskorpnun, þar af 28, eða 22%, úr alkóhólskorpulif- ur. Hlutfall alkóhólskorpulifur var 33% hjá körlum, en 6% hjá konum. Hlutfall alkóhólskorpulifur féll úr 38% í 10% frá 1951-55 til 1986-90. Þá reyndist dánartíðni vegna alkóhólskorpulifur minnk- Bandarískt fyrirtæki íhug- ar að setja hér saman tölvur UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur í undirbúningi að veita erlendu fyrirtæki fríiðnaðarréttindi hér á landi og er ráðgert að starfsemi þess verði á Keflavíkurflugvelli. Að sögn Þrastar Ólafssonar, aðstoð- armanns utanríkisráðherra, gæti eitthvað gerst í þessum málum næsta haust. Að störfum er nefnd sem vinnur að athugun á skatta- legum þætti slíkrar starfsemi. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst mun hér vera um að ræða bandaríska tölvufyrirtækið HTM sem hyggst láta setja saman tölvur hér á landi fyrir Evrópumark- að. íslenska fyrirtækið ACO hefur haft milligöngu um þetta mál og var því veittur opinber styrkur til að vinna að undirbúningi þess, að sögn Björns Friðfínnsonar, ráðu- neytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu. Samkvæmt tollalögum frá 1987 er heimilt að setja upp fríiðnað hér á landi og hefur eitt fyrirtæki, Toll- vörugeymslan hf., leyfi til slíkrar starfsemi. Hún felst m.a. í því að vörur eru fluttar til landsins og úr landi án tollafgreiðslu. Einnig hefur Tollvörugeymslan fengist við pökk- un vöru og aðvinnslu, sem felst m.a. í því að vinna við vöru þannig að hún skiptir um tollflokk. Helgi K. Hjálmsson, forstjóri Tollvöru- geymslunnar, sagði að fyrirtækinu hefðu borist nokkrar fyrirspumir erlendis frá um uppsetningu fríiðn- aðar í samvinnu við Tollvöru- geymsluna. Hann sagði að hér væri nánast um óplægðan akur að ræða, en þó væri margt óunnið á sviði skattamála. írsk stjómvöld veittu t.a.m. fríiðnaðarfyrirtækjum alger skattfríðindi fyrstu árin og síðan greiddu fyrirtækin 10% af tekjum sínum. andi seinustu 20 ár, en vaxandi hjá öðrum tegundum vegna lifrar- skorpnunar síðustu 10 ár. Á þessu tímabili greindust 130 með skorpulifur, þar af 59 (45%) karlar. Hlutfall alkóhólskorpulifur var 31% hjá körlum, en 23% hjá konum. Tíðni alkóhólskorpulifur virtist stöðug seinustu 15 ár, en tíðni annarar tegundar lifrar- skorpnunar var vaxandi. Áfengisneysla árin 1951-1955 var 2,3 lítrar á ári af hreinum vín- anda á hvem íbúa 15 ára og eldri. Neyslan hafði hins vegar rúmlega tvöfaldast 1986-1990, þegar hún var orðin 4,8 Iítrar á mann. Niður- staða læknanna er því sú, að lækk- andi dánartíðni af völdum alkóhól- skorpulifur þrátt fyrir aukna áfengisneyslu megi rekja tii ár- angursríkra fyrirbyggjandi að- gerða gegn áfengissýki og líkam- legum afleiðingum hennar. Sú staðreynd, að sexfalt fleiri grein- ast með alkóhólskorpulifur en lát- ast úr sjúkdómnum, bendi einnig til þess sama. ----------------- Eldur í skúr við Mýrarg'ötu SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var laust fyrir klukkan sex í gærmorg- un kallað að geymsluskúr við Mýrargötu, en þar var laus eldur. I skúrnum, sem staðsettur er milli Slippfélagsins og Stálfélagsins, voru geymd blöð og tímarit og logaði eld- ur í þeim. Eldurinn komst einnig í einangrun í þaki og þurftu slökkvi- liðsmenn að rífa þakið upp til að slökkva hann. Ekki er talið að um verulegt tjón hafí verið að ræða. AA rsekta málgarðinn og reyta arfann ►Verið er að safna stofnfé f mál- ræktarsjóð og af því tilefni ræddi Morgunblaðið við nokkra málrækt- armenn./lO Minnlmáttarkennd knýr sjálfstæðishreyf- inguna ►Sigurvegarar kosninganna í Tékkóslóvakíu semja nú um fram- tíð sambandsríkisins. Slóvakar krefíast meira sjálfstæðis og full- kominn aðskilnaður ríkjanna er hugsanlegur./14 Konur á hlaupum ►Á laugardaginn næsta verður hlaupið mikla. /16 Þetta er ekkert inn- fjarðargeim ►Rætt við nokkra trillukarla fyrir vestan í tilefni Sjómannadagsins./ 22 B HEIMILI/ FASTEIGNIR ► l-28 íbúðir fyrir eldri félaga ÍBHM ►Viðtal við Guðmund Kr. Guð- mundsson arkitekt./14 I bræluskratta á Breiðafirðinum ►Kallinn á útkikkinu, stormbelj- andi og gekk á með hríðarkófi út af Snæfellsnesi. Dæmigerð vetrar- vertíð með veðri í verri kantinum þó hjá bátunum úr Ólafsvík. Morg- unblaðið brá sér í tvo róðra með vélbátnum Kristni frá Ólafsvík til þess að fanga á filmu stemmning- una hjá sjómönnum á litlum neta- bát, dragróðrabát./l Stefna stjórnarinnar ►Rætt við Grétar Örvarsson for- sprakka Stjómarinnar, en hljóm- sveitin hefur mörg jám í eldinum. /8 í kuldum eiga menn til að hella í sig ►Serena Sutcliffe, yfirmaður vín- deildar Sotheby’s, í viðtali við Morgunblaðið./lO Fossvogsdalur ►Svo virðist sem samkomulag hafi tekist um framtíðarskipulag í Fossvogsdal eftir deilur, sem risu milli Reykjavíkurborgar og Kópa- vogsbæjar á síðasta kjörtimabili. /14 Af spjöldum glæpa- sögunnar ►Þegar drukkinn dóni fór að dylgja um að systir frúarinnar væri dóttir hennar varð fjandinn laus. /14 Hriktfr í stoðum hjóna- bandsins ► Um fátt er nú meira rætt í Bret- landi en hjónaband þeirra Diönu prinsessu og Karls Bretaprins./28 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 13c Skoðun 18 Fðlk (fréttum 18c Leiðari 20 Myndasögur 20c Helgispjall 20 Brids 20c Reykjavíkurbréf 20 Stjömuspá 20c Minningar 25 Skák 20c fþróttir 35 Bíó/dans 9.9.o Útvarp/sjðnvarp 36 Bréf til blaðsins 24c Gárur 39 Velvakandi 24c Mannlífsstr. 6c Samsafnið 26c Dægurtónlist 12c INNLENDAR FRÉTTIR: 2-6-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1-4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.