Morgunblaðið - 14.06.1992, Page 2
EFIMI
2 FRÉTTIR/INNLENT
eei YAW. .M HJDAaU/r'/AJS GIQ/uIU'/.UOHO!/.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
N-Atlantshafsflugið:
Oljóst hvort
verðstríð
hefur áhrif á
Flugleiðir
EINAR Sigurðsson, blaðafulltrúi
Flugleiða, segir að stjórnendur
fyrirtækisins fylgist nú með
verðstríði bandarískra flugfé-
laga í Norður-Atlantshafsfluginu
en ekki hafi veríð tekin afstaða
til þess hvort það hafi áhrif á
fargjöld Flugleiða.
International Herald Tribune
greinir frá því á fímmtudag að
bandaríska flugfélagið Delta hafí
boðað allt að 45% lækkun á far-
gjöldum á fyrsta farrými (business
class) á leiðinni yfír Atlantshafíð.
Jafnframt kemur fram, að önnur
bandarísk flugfélög hugleiði að
lækka þessi fargjöld sín.
Einar Sigurðsson segir að Flug-
leiðir hafí að undanfömu fylgst með
hörðu verðstríði bandarískra flugfé-
laga, fyrst á heimamarkaði og nú
í Atlantshafsfluginu. Hins vegar
hafí ekki enn verið tekin afstaða
til þess hvort þessar lækkanir muni
hafa áhrif á fargjöld hjá félaginu.
Þess beri að gæta að Flugleiðir
hafí óvenju lítið hlutfall farþega á
fargjöldum af því tagi, sem hér um
ræðir, og einnig hafí þau verið í
lægri kantinum hjá þeim.
Alþýðuflokkurinn:
Þingað fyr-
ir opnum
tjöldum
TILLAGA Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Al-
þýðuflokksins, um að 46. þing
Alþýðflokksins, fari fram fyrir
opnum tjöldum var samþykkt
í gærmorgun. Aður hafði
flokksþingið samþykkt að
hafa almennar umræður á
þinginu lokaðar en sú ákvörð-
un mætti töluverðri óánægju
meðal fulltrúa á flokksþing-
f gærmorgun fóru fram um-
ræður í tveimur nefndum um
sjávarútvegsmál og velferðar-
mái. Ræðumenn voru flestir
þeirrar skoðunar að taka bæri
upp veiðileyfagjald í sjávarútvegi
en ágreiningur ríkti að öðru leyti
um hvort viðhaida bæri kvóta-
kerfínu óbreyttu eða taka upp
að einhveiju leyti sóknarmark
að nýju. Töfðust þingstörf af
þessum sökum og dagskrá gekk
úr skorðum.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Ók á brúarhandrið í Kópavogi
Bifreið var ekið á handrið brúarinnar yfir Kópa- I ið var með ökumann og farþega á slysadeild en
vogslæk um klukkan hálf fimm í fyrrinótt. Far I í gær fengust ekki upplýsingar um líðan þeirra.
Stjórn Samtaka íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja:
Otímabærar og óþarf-
ar yfirlýsingar Softís
STJÓRN Samtaka íslenskra hug-
búnaðarfyrirtækja (SÍH) hefur
sent Jóhanni P. Malmquist,
stjórnarformanni Softis hf., bréf
þar sem segir m.a. að þær yfirlýs-
ingar sem stjórn Softis hafi gefið
fjölmiðlum, t.d. um möguleika á
gjaldeyristekjurh með sölu á hug-
búnaðarkerfinu Louis, séu al-
gjörlega ótímabærar og að öllu
óþarfar. Nægar yfirlýsingar hafi
verið gefnar á undanförnum
árum um að nú séu íslendingar
að fara að græða á hugviti en
því miður hafi það ekki tekist
með neinum verulegum árangri.
í bréfínu segir jafnframt að það
sé eitt af aðalmarkmiðum SÍH að
byggja og efla ímynd hugbúnaðar-
iðnaðar á íslandi. „Ef niðurstaða
verkefnis ykkar verður neikvæð,
sem við hjartanlega óskum að verði
ekki raunin, er engin spuming að
sú neikvæða umræða er mun fylgja
í kjölfarið mun hafa verulega nei-
kvæð áhrif á íslenskan hugbúnaðar-
iðnað. Að sama skapi, eins og nefnt
er hér að ofan, mun ímynd iðnaðar-
ins eflast verulega ef vel fer. Það
sem okkur í stjórn SÍH finnst hvað
alvarlegast við vinnubrögð ykkar,
er tímasetningin. Það er alls ekki
tímabært að gefa slíkar yfírlýsingar
°g leggja með þeim ímynd hugbún-
aðarins, ímynd okkar allra, í slíka
hættu sem nú hefur verið gert. Öll
hugbúnaðarfyrirtæki í landinu geta
orðið fyrir tjóni ef verkefnið tekst
ekki. Það gefur augaleið að Softis
hefði átt að bíða með stórar yfírlýs-
ingar þangað til einn eða fleiri
samningar væru í höfn.“
í bréfínu er þess jafnframt óskað
að stjórn Softis taki ábendingu SÍH
alvarlega og fari varlega með frek-
ari yfírlýsingar varðandi verkefni
fyrirtækisins. í lok þess er Softis
boðið að sækja um aðild að samtök-
unum,'sem í eru 27 hugbúnaðarfyr-
irtæki.
Færri látast ór skorpu-
lifur þrátt fyrir aukna
neyslu áfengra dryklga
DÁNARTÍÐNI af völdum alkóhólskorpulifur fer lækkandi, þrátt
fyrir vaxandi áfengisneyslu. Klínisk tíðni þessarar tegundar
skorpulifur, þ.e. þau tilfelli sem greind eru, er sex sinnum hærri
en dánartíðni. Hvort tveggja bendir til árangursríkra fyrirbyggj-
andi aðgerða gegn áfengissýki og líkamlegum afleiðingum henn-
ar.
Þetta er niðurstaða rannsóknar,
sem læknar við Lyflækningadeild
Landspítalans framkvæmdu og
skýrt er frá í Læknablaðinu. Þar
segir, að tilgangur rannsóknarinn-
ar hafi verið að kanna tíðni
skorpulifrar á íslandi og sérstak-
lega að greina alkóhólskorpulifur
frá öðrum tegundum skorpulifur.
Læknarnir könnuðu tímabilið
1958-1990. Alls dóu á því tíma-
bili 128 úr lifrarskorpnun, þar af
28, eða 22%, úr alkóhólskorpulif-
ur. Hlutfall alkóhólskorpulifur var
33% hjá körlum, en 6% hjá konum.
Hlutfall alkóhólskorpulifur féll úr
38% í 10% frá 1951-55 til
1986-90. Þá reyndist dánartíðni
vegna alkóhólskorpulifur minnk-
Bandarískt fyrirtæki íhug-
ar að setja hér saman tölvur
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ hefur í undirbúningi að veita erlendu
fyrirtæki fríiðnaðarréttindi hér á landi og er ráðgert að starfsemi
þess verði á Keflavíkurflugvelli. Að sögn Þrastar Ólafssonar, aðstoð-
armanns utanríkisráðherra, gæti eitthvað gerst í þessum málum
næsta haust. Að störfum er nefnd sem vinnur að athugun á skatta-
legum þætti slíkrar starfsemi.
Eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst mun hér vera um að
ræða bandaríska tölvufyrirtækið
HTM sem hyggst láta setja saman
tölvur hér á landi fyrir Evrópumark-
að. íslenska fyrirtækið ACO hefur
haft milligöngu um þetta mál og
var því veittur opinber styrkur til
að vinna að undirbúningi þess, að
sögn Björns Friðfínnsonar, ráðu-
neytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu.
Samkvæmt tollalögum frá 1987
er heimilt að setja upp fríiðnað hér
á landi og hefur eitt fyrirtæki, Toll-
vörugeymslan hf., leyfi til slíkrar
starfsemi. Hún felst m.a. í því að
vörur eru fluttar til landsins og úr
landi án tollafgreiðslu. Einnig hefur
Tollvörugeymslan fengist við pökk-
un vöru og aðvinnslu, sem felst
m.a. í því að vinna við vöru þannig
að hún skiptir um tollflokk. Helgi
K. Hjálmsson, forstjóri Tollvöru-
geymslunnar, sagði að fyrirtækinu
hefðu borist nokkrar fyrirspumir
erlendis frá um uppsetningu fríiðn-
aðar í samvinnu við Tollvöru-
geymsluna. Hann sagði að hér væri
nánast um óplægðan akur að ræða,
en þó væri margt óunnið á sviði
skattamála. írsk stjómvöld veittu
t.a.m. fríiðnaðarfyrirtækjum alger
skattfríðindi fyrstu árin og síðan
greiddu fyrirtækin 10% af tekjum
sínum.
andi seinustu 20 ár, en vaxandi
hjá öðrum tegundum vegna lifrar-
skorpnunar síðustu 10 ár.
Á þessu tímabili greindust 130
með skorpulifur, þar af 59 (45%)
karlar. Hlutfall alkóhólskorpulifur
var 31% hjá körlum, en 23% hjá
konum. Tíðni alkóhólskorpulifur
virtist stöðug seinustu 15 ár, en
tíðni annarar tegundar lifrar-
skorpnunar var vaxandi.
Áfengisneysla árin 1951-1955
var 2,3 lítrar á ári af hreinum vín-
anda á hvem íbúa 15 ára og eldri.
Neyslan hafði hins vegar rúmlega
tvöfaldast 1986-1990, þegar hún
var orðin 4,8 Iítrar á mann. Niður-
staða læknanna er því sú, að lækk-
andi dánartíðni af völdum alkóhól-
skorpulifur þrátt fyrir aukna
áfengisneyslu megi rekja tii ár-
angursríkra fyrirbyggjandi að-
gerða gegn áfengissýki og líkam-
legum afleiðingum hennar. Sú
staðreynd, að sexfalt fleiri grein-
ast með alkóhólskorpulifur en lát-
ast úr sjúkdómnum, bendi einnig
til þess sama.
-----------------
Eldur í skúr
við Mýrarg'ötu
SLÖKKVILIÐIÐ í Reykjavík var
laust fyrir klukkan sex í gærmorg-
un kallað að geymsluskúr við
Mýrargötu, en þar var laus eldur.
I skúrnum, sem staðsettur er milli
Slippfélagsins og Stálfélagsins, voru
geymd blöð og tímarit og logaði eld-
ur í þeim. Eldurinn komst einnig í
einangrun í þaki og þurftu slökkvi-
liðsmenn að rífa þakið upp til að
slökkva hann. Ekki er talið að um
verulegt tjón hafí verið að ræða.
AA rsekta málgarðinn
og reyta arfann
►Verið er að safna stofnfé f mál-
ræktarsjóð og af því tilefni ræddi
Morgunblaðið við nokkra málrækt-
armenn./lO
Minnlmáttarkennd
knýr sjálfstæðishreyf-
inguna
►Sigurvegarar kosninganna í
Tékkóslóvakíu semja nú um fram-
tíð sambandsríkisins. Slóvakar
krefíast meira sjálfstæðis og full-
kominn aðskilnaður ríkjanna er
hugsanlegur./14
Konur á hlaupum
►Á laugardaginn næsta verður
hlaupið mikla. /16
Þetta er ekkert inn-
fjarðargeim
►Rætt við nokkra trillukarla fyrir
vestan í tilefni Sjómannadagsins./
22
B
HEIMILI/
FASTEIGNIR
► l-28
íbúðir fyrir eldri félaga
ÍBHM
►Viðtal við Guðmund Kr. Guð-
mundsson arkitekt./14
I bræluskratta á
Breiðafirðinum
►Kallinn á útkikkinu, stormbelj-
andi og gekk á með hríðarkófi út
af Snæfellsnesi. Dæmigerð vetrar-
vertíð með veðri í verri kantinum
þó hjá bátunum úr Ólafsvík. Morg-
unblaðið brá sér í tvo róðra með
vélbátnum Kristni frá Ólafsvík til
þess að fanga á filmu stemmning-
una hjá sjómönnum á litlum neta-
bát, dragróðrabát./l
Stefna stjórnarinnar
►Rætt við Grétar Örvarsson for-
sprakka Stjómarinnar, en hljóm-
sveitin hefur mörg jám í eldinum.
/8
í kuldum eiga menn til
að hella í sig
►Serena Sutcliffe, yfirmaður vín-
deildar Sotheby’s, í viðtali við
Morgunblaðið./lO
Fossvogsdalur
►Svo virðist sem samkomulag
hafi tekist um framtíðarskipulag í
Fossvogsdal eftir deilur, sem risu
milli Reykjavíkurborgar og Kópa-
vogsbæjar á síðasta kjörtimabili.
/14
Af spjöldum glæpa-
sögunnar
►Þegar drukkinn dóni fór að
dylgja um að systir frúarinnar
væri dóttir hennar varð fjandinn
laus. /14
Hriktfr í stoðum hjóna-
bandsins
► Um fátt er nú meira rætt í Bret-
landi en hjónaband þeirra Diönu
prinsessu og Karls Bretaprins./28
FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir 13c
Skoðun 18 Fðlk (fréttum 18c
Leiðari 20 Myndasögur 20c
Helgispjall 20 Brids 20c
Reykjavíkurbréf 20 Stjömuspá 20c
Minningar 25 Skák 20c
fþróttir 35 Bíó/dans 9.9.o
Útvarp/sjðnvarp 36 Bréf til blaðsins 24c
Gárur 39 Velvakandi 24c
Mannlífsstr. 6c Samsafnið 26c
Dægurtónlist 12c
INNLENDAR FRÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉTTIR:
1-4