Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992 Á LAU GARDAGINN NÆSTA VERÐUR HLAUPIÐ MIKLA Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson KVENNAHLAUPIÐ þar sem vinukonur, systur, mæðgur, mágkonur, svilkonur og frænkur hlaupa saman í flokkum. Morgunblaoið/KGA ÍSLENSKAR KONUR hafa hlaupið meira um ævina en Carl Lewis á öllum sínum ferli eftir Kristínu Marju Baldursdóttur EFTIR brautinni koma þrjú þúsund konur blásandi með þetta blik í augum sem aðeins sést á Olympíuleikum, og axlastaða og fótaburður gefa berlega til kynna að hér er einungis hlaupið til sigurs. Sumar bruna með barna- vagna og kerrur á undan sér þar sem upp úr gægjast lítil eitilhörð snuddu- andlit og aðrar styðjast jafnvel við staf eða hækju. En þær sigra allar í hlaup- inu mikla því þær eru valkyrjur Is- lands. Alltaf fjölgar konum sem taka þátt í Kvennahlaupi ÍSÍ og ef þróunin verður hin sama og hjá Finnum gæti hlaupið jafnvel orðið alþjóðlegur við- burður. Nú er það löngu vitað að konur á íslandi hafa ætíð verið á hlaupum og einkum gerast hlaupin tíð þegar þær fínna upp á því að stofna heimili. Skiptast þá hlaupin reglulega niður á daginn og hefjast strax á morgnana þegar búið er að reima nokkur skópör á litla fætur. Er þá hlaupið út í bíl með börnin, út úr honum aftur og inn á dagheimilið, inn í bílinn aftur og útúr honum við vinnustaðinn, hlaupið milli borða og hæða á vinnustað þar til sama prógrammið hefst aftur að vinnu lokinni, nema nú bætast við hlaup inn og út úr búðum með allt liðið organdi í eftir- dragi og loks er hlaupið inn í eld- húsið heima. Hefjast þar aftur klassísk hlaup milli eldavélar, bað- herbergis og þvottahúss sem end- ast til miðnættis ef tíminn er nýtt- ur vel. Konur á Islandi kunna því vel að hlaupa og hafa sennilega hlaup- ið meira en Carl Lewis á öllum sín- um ferli, nema hvað þær hafa aldr- ei fengið nein verðlaun fyrir sín hlaup. Fyrr en núna. Þær sem hlaupa í Kvennahlaupinu fá allar verðlaunapening sem hægt er að hengja upp í eldhúsinu og líta á sem viðurkenningu fyrir öll fyrri hlaup. FYRSTA KVENNAHLAUPIÐ Upphafið að þessu mikla fjölda- hlaupi kvenna má rekja til Finn- lands, en þar hefur kvennahlaup verið haldið frá 1984 og eftir því sem tölur um fjölda gefa til kynna má ætla að hlaupið þar sé á góðri leið með að verða alþjóðlegt. Margrét Jónsdóttir íþróttakenn- ari á Seltjarnarnesi, sem sér um upphitun fyrir hlaupið í Garðabæ, var stödd á íþróttaráðstefnu í Hels- inki í fyrra og hitti þá frumkvöðul hlaupsins, Maijukka Uusitalo, að máli. „Upphafið að hlaupinu var þannig, að Maijukka og fimm vin- konur hennar fóru til Honolulu til að taka þátt í maraþonhlaupi," seg- ir Margrét. „í Honolulu tóku þær jafnframt þátt í kvennahlaupi og voru svo hrifnar að þær ákváðu á heimleiðinni að stofna til kvenna- hlaups í Helsinki sem þær og gerðu. Fyrsta hlaupið var síðan haldið í maí 1984 og tóku um 300 konur þátt í hlaupinu og þótti það mjög góð þátttaka. í fyrra, sjö árum síð- ar, voru þátttakendur hins vegar orðnir 35 þúsund og segir það allt um vinsældir hlaupsins."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.