Morgunblaðið - 14.06.1992, Blaðsíða 15
.M,QKGIJNBLAÐJÐ ffUK^ljDAG.UK, H.rijLfWiM»2
M
VACLAV HAVEL, forseti Tékkó-
slóvakíu, heilsar hér Vaclav Klaus,
sem hann veitti umboð til að mynda
nýja stjóm eftir þingkosningarnar.
VLADIMIR MECIAR, leiðtogi
Hreyfingar fyrir lýðræðislegri Slóv-
akíu.
+ ________________________________________________________________
Otryggt samband í 74 ór
SPENNA hefur verið milli Tékka og Slóvaka allt frá því þeir
stofnuðu Tékkóslóvakíu árið 1918. A þeim tíma voru Slóvakar
að mestu bændafólk og stóðu Tékkum langt að baki hvað iðnað
varðar eins og nú.
Um 2000-400 fyrir Krist var svæðið sem nú er Slóvakía einkum
byggt þrakó-kimmerskum þjóðflokkum en eftir það sóttu
Keltar inn á það að vestan og síðan Slavar að norðan. Und-
ir lok 9. aldar lögðu Ungveijar Slóvakíu undir sig og landið heyrði
undir Ungverjaland í um 900 ár, eða þar til Tomas Masaryk og Edu-
ard Benes, stjómmálamenn sem höfðu verið í útlegð, lýstu yfir sjálf-
stæði Tékkóslóvakíu í október 1918 þegar Habsborgar-keisaradæmið
var leyst upp í lok heimsstyijaldarinnar fyrri.
Fyrsti ungverski háskólinn var stofnaður í Bratislava árið 1467 og
borgin var höfuðborg Ungveijalands á meðan Búdapest var í höndum
Tyrkja frá 1541 til 1686. Habsborgar-keisarar, sem voru einnig kon-
ungar Ungveijalands, voru krýndir krúnu Stefáns helga í Martinsdóm-
kirkju í Bratislava til 1830 og ungverska þingið kom þar saman til
1848. Ungverska var ríkismál alls Ungveija-
lands og ekki ætlast til að slóvakíska væri
töluð opinberlega.
Tékkía, tékknesku svæðin í gamla furstadæm-
inu Mæri og konungsríkinu Bæheimi, tilheyrði
Habsborgar-kéisaradæminu í aldaraðir og
þýska var tungumál embættismanna þar.
Móravar, slavneskur þjóðflokkur, settist að í
Mæri á 6. og 7. öld e.Kr. og stofnuðu þar
konungsríki 830. Mæri varð hluti af Bæheimi
1029. Bæheimur var frá um 2000 f.Kr. byggður Keltum en á 1. öld
e.Kr. lögðu Germanar landið undir sig. Um 600 lögðu Tékkar, slavn-
eskur þjóðflokkur, Bæheim undir sig og settust þar að. Á 9. öld var
Bæheimur sameinaður í eitt furstadæmi sem kristnaðist á 10. öld.
Eftir það voru Bæheimskonungar yfirleitt háðir Þýskalandskeisurum.
Hámarki náði veldi Tékka á tímum Ottókars konungs 2. (1253-78)
er ríkti yfír hluta Slóvakíu, Austurríkis og Slóveníu, auk Bæheims
og Mæris. Á 14. og 15. öld var Bæheimur einn mikilvægasti hluti
Þýska keisaradæmisins. Árið 1526 var fursti af habsborgaraætt kjör-
inn konungur Bæheims og landið sameinaðist þannig Austurríki-Ung-
veijalandi.
Spenna var milli Tékka og Slóvaka er Habsborgar-kéisaradæmið var
leyst upp 1918. Tékkar voru ekki aðeins fleiri heldur stóðu þeir einn-
ig fjárhags- og menningarlega framar Slóvökum, sem voru að mestu
bændafólk. í Bæheimi og Mæri voru þrír fjórðu af iðnaði keisara-
dæmisins.
Tékkar og Slóvakar tóku þó höndum saman til að geta styrkt hvorir
aðra í sjálfstæðisbaráttunni og stofnuðu Tékkóslóvakíu árið 1918.
Stóijörðum var skipt og stjórnarskrá, sem kvað á um þingræði og
lýðræði, tók gildi 1920. Tékkar réðu mestu og vakti það óánægju
meðal Slóvaka og Súdeta-Þjóðveija, en þeir síðarnefndu vildu samein-
ast Austurríki eða Þýskalandi.
Tékkar og Slóvakar tóku höndum
saman til að geta styrkt hvorir aðra
í sjálfstæðisbaráttunni og stofnuðu
Tékkóslóvakíu árið 1918.
sig fótunum. Tékkar voru herteknir
af Þjóðveijum í seinna stríðinu og
Eduard Benesch, þáverandi forseti,
flúði land og setti upp útlagastjóm
og tékkneskar hersveitir börðust með
bandamönnum. Dr. Josef Tiso stjórn-
aði hins vegar Slóvakíu með blessun
Hitlers og Þjóðveijar tryggðu landa-
mæri ríkisins, en stríðsárin eru eina
tímabilið sem Slóvakía hefur verið
sjálfstæð. Það kom Slóvökum vel
þegar sambandsríkið sameinaðist
aftur eftir stríðið að bandamenn litu
á Tékkóslóvakíu sem einn af sigur-
vegurunum vegna afstöðu Tékka.
Kommúnistastjórnin byggði upp
þungaiðnaðinn í Slóvakíu og hélt
honum gangandi í gegnum þykkt og
þunnt. „Pjöldi Tékka var sendur
þangað til starfa. Slóvakar vissu að
þeir hefðu frekar kosið að starfa í
tékkneska hlutanum. Þeir sem neit-
uðu að ganga í kommúnistaflokkinn
og þeir sem lentu í ónáð af einhveij-
um ástæðum voru gjarnan sendir til
Slóvakíu,“ sagði vinur minn sem
gekk aldrei í flokkinn og starfaði um
tíma í Slóvakíu. „Sumir þessara
manna gerðu sig breiða og Slóvakar
kunnu ekki við þá.“
Alexander Dubcek, formaður
flokksins sem var settur af 1968, og
Gustav Husak, sem missti forseta-
embættið 1989, voru báðir frá Slóv-
akíu. Þeir sáu til þ'ess að Slóvakar
færu ekki halloka í samskiptunum
við Tékka. Sumum Slóvökum finnst
Havel ekki gæta hagsmuna Slóvakíu
eins vel. Meciar, sem 37% Slóvaka
kusu í kosningunum til slóvakíska
þingsins, segir hann forseta Tékka.
Slóvakar hafa aldrei staðið á eigin
fótum nema á stríðsárunum. Þjóð-
ernissinnar vilja nú fá að sýna hvað
í þeim býr. Þeir eru vanþakklátir
fyrir hjálp Tékka í gegnum árin,
segjast vel geta komist af án þeirra
og afskiptasemi sambandsstjórnar-
innar í Prag. „Það er alltaf talað um
Tékka þegar átt er við Tékkósló-
vaka,“ sagði ung kona í Bratislava.
„Við erum orðin þreytt á „Tékkar"
þetta og „Tékkar" hitt. Við viljum
ekki að Slóvakar gleymist lengur.“
hafa farið til Slóvakíu þar sem 33%
þjóðarinnar búa. Slóvakískir þjóðern-
issinnar kenna embættismönnum í
Prag um en líklegra þykir að Þjóð-
veijar, sem standa að baki megin-
parts fjárfestinganna, kjósi Bæheim
og Mæri af því að þau eru nær Þýska-
landi og voru auk þess hluti af þýsku-
mælandi Evrópu í aldaraðir.
Því er stundum haldið fram að
Slóvakar séu slakari vinnukraftur en
Tékkar. Kona sem ég gisti hjá í Brat-
islava var fljót að taka fram að
maðurinn hennar væri „duglegur
Slóvaki" þegar ég spurði hvaðan þau
hjónin væru. „Eg er frá Mæri en
maðurinn minn er héðan," sagði-
hún.„„En hann er duglegur Slóvaki.
Hann vinnur tvöfalda vinnu."
Markaðir Tékkóslóvakíu í Austur-
Evrópu hafa hrunið og það hefur
bitnað illa á Slóvakíu. Þungaiðnaður
og vopnaframleiðsla eru stór hluti
atvinnulífsins þar og hvort tveggja á
í miklum erfiðleikum. Ákvörðun sam-
bandsstjómarinnar að hætta vopna-
framleiðslu hefur verið gagnrýnd
harðlega í Slóvakíu. Einn starfsmað-
ur Þjóðemisflokksins, sem hlaut rúm
9% í kosningunum, sagði að Tékkar
ætluðu alls ekki að hætta framleiðsl-
unni heldur hefðu vélar úr verksmiðj-
um í Slóvakíu verið fluttar til Bæ-
heims og Mæris. Það er væntanlega
vitleysa en margir Slóvakar trúa öllu
illu upp á Tékka. Sambandsstjórnin
vill hætta vopnaframleiðslu bæði af
siðferðis- og efnahagsástæðum. Lög-
leg eftirspum hefur dregist svo sam-
an að framleiðslan borgar sig engan
veginn og ríkisstjóm Tékkóslóvakíu
og Vaclav Havel forseti kæra sig
ekki um að vera bendluð við ólögleg
viðskipti hugsanlegra vopnakaup-
enda.
Innanríkisviðskipti Slóvaka og
Tékka hafa verið Slóvökum í vil.
Tékkar hafa keypt 30 til 40% alls
„útflutnings" þeirra en Slóvakar hafa
aðeins fengið um 5 til 20% „útflutn-
ingsframleiðslu" Tékka. Yfir
300.000 Slóvakar búa í tékkneska
hlutanum og tæp 40.000 til viðbótar
sækja vinnu þangað. Um 3.500
Tékkar sækja vinnu í Slóvakíu. At-
vinnuleysið þar er yfír 15% en aðeins
um 5% í tékkneska hlutanum.
Ástandið mun versna í báðum hlutum
ríkisins ef sambandsríkið klofnar en
þó sérstaklega í Slóvakíu. Klaus, sig-
urvegari kosninganna í Bæheimi og
Mæri, segir að sambandslýðveldin
geti komist af hvort án annars í fram-
tíðinni en það muni taka sinn tíma
fyrir þau að jafna sig eftir aðskilnað-
inn. „Enginn veit hversu langan tíma
það mun taka,“ sagði hann. Flestir
telja víst að Tékkar nái sér á strik
langt á undan Slóvökum.
Vanþakklæti í garð Tékka
Vinafólk mitt á áttræðisaldri sem
ég heimsótti í Prag var ánægt með
úrslitin í tékkneska hlutanum en
hafði áhyggjur af framtíð sambands-
ríkisins. „Fólk á okkar aldri getur
nú litið til baka og hugsað til komm-
únistaáranna sem ævintýris sem við
urðum að þola. Von okkar um eðli-
legt líf verður væntanlega að veru-
leika undir stjóm Klaus. En það verð-
ur erfitt að semja við Slóvaka. Við
Tékkar erum að verða þreyttir á
þeim og myndum láta þá sigla sinn
sjó ef tilfinningarnar væru látnar
ráða. En við erum hugsandi fólk og
vitum að það væri betra ef sam-
bandsríkið styrktist frekar en sundr-
aðist."
Vinur minn sagði að sjálfstæðis-
þörf Slóvaka byggðist á minnimátt-
arkennd. Þegar Tékkar og Slóvakar
tóku höndum saman 1918 var at-
vinnulíf og fagmenntun mun þróaðri
í tékkneska hlutanum og Tékkar
hjálpuðu Slóvökum að koma undir
SNARA
FÁNASTENGUR
# Úr glosfiber
# Með öllum búnaði
# Lengdir 6-7-8-10 metrar
SNARI
SÍMI 72502
■ CMC karfl fyrir nlðurhengd loft, er úr
galvaniseruðum málmt og eldþoliö.
■ CMC kerfl er auðvelt I uppsetningu og mjðg sterkt.
• CMC kerfl er fest með stlllanlegum upphengjum
sem pola allt að 50 kg þunga.
■ CMC kerfl faast ( mðrgum gerðum baeði sýnilegt og
falið og vorðlð er ótrúlegn iágt
EINKAUMBOÐ
cö Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0
Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640
TILBOÐ
í Cherokee Sport 4x4, árg. ’90 (ekinn 16
þús. mílur), Isuzu P/U 2 W/D, árg. 90 (ek-
inn 24 þús. mílur), Chevrolet Custom Van
C-20 (innréttaður), árg. ’87 og aðrar bifreið-
ar, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðju-
daginn 16. júní kl. 12-15.
Ennfremur óskast tilboð í I.H.C. Wrecker
10 hjóla með/bómum og spili, árg. ’78.
Tilboðin verða opnuð á sama stað ki. 16.
SALA VARIMARLIÐSEIGIMA