Morgunblaðið - 14.06.1992, Síða 15

Morgunblaðið - 14.06.1992, Síða 15
.M,QKGIJNBLAÐJÐ ffUK^ljDAG.UK, H.rijLfWiM»2 M VACLAV HAVEL, forseti Tékkó- slóvakíu, heilsar hér Vaclav Klaus, sem hann veitti umboð til að mynda nýja stjóm eftir þingkosningarnar. VLADIMIR MECIAR, leiðtogi Hreyfingar fyrir lýðræðislegri Slóv- akíu. + ________________________________________________________________ Otryggt samband í 74 ór SPENNA hefur verið milli Tékka og Slóvaka allt frá því þeir stofnuðu Tékkóslóvakíu árið 1918. A þeim tíma voru Slóvakar að mestu bændafólk og stóðu Tékkum langt að baki hvað iðnað varðar eins og nú. Um 2000-400 fyrir Krist var svæðið sem nú er Slóvakía einkum byggt þrakó-kimmerskum þjóðflokkum en eftir það sóttu Keltar inn á það að vestan og síðan Slavar að norðan. Und- ir lok 9. aldar lögðu Ungveijar Slóvakíu undir sig og landið heyrði undir Ungverjaland í um 900 ár, eða þar til Tomas Masaryk og Edu- ard Benes, stjómmálamenn sem höfðu verið í útlegð, lýstu yfir sjálf- stæði Tékkóslóvakíu í október 1918 þegar Habsborgar-keisaradæmið var leyst upp í lok heimsstyijaldarinnar fyrri. Fyrsti ungverski háskólinn var stofnaður í Bratislava árið 1467 og borgin var höfuðborg Ungveijalands á meðan Búdapest var í höndum Tyrkja frá 1541 til 1686. Habsborgar-keisarar, sem voru einnig kon- ungar Ungveijalands, voru krýndir krúnu Stefáns helga í Martinsdóm- kirkju í Bratislava til 1830 og ungverska þingið kom þar saman til 1848. Ungverska var ríkismál alls Ungveija- lands og ekki ætlast til að slóvakíska væri töluð opinberlega. Tékkía, tékknesku svæðin í gamla furstadæm- inu Mæri og konungsríkinu Bæheimi, tilheyrði Habsborgar-kéisaradæminu í aldaraðir og þýska var tungumál embættismanna þar. Móravar, slavneskur þjóðflokkur, settist að í Mæri á 6. og 7. öld e.Kr. og stofnuðu þar konungsríki 830. Mæri varð hluti af Bæheimi 1029. Bæheimur var frá um 2000 f.Kr. byggður Keltum en á 1. öld e.Kr. lögðu Germanar landið undir sig. Um 600 lögðu Tékkar, slavn- eskur þjóðflokkur, Bæheim undir sig og settust þar að. Á 9. öld var Bæheimur sameinaður í eitt furstadæmi sem kristnaðist á 10. öld. Eftir það voru Bæheimskonungar yfirleitt háðir Þýskalandskeisurum. Hámarki náði veldi Tékka á tímum Ottókars konungs 2. (1253-78) er ríkti yfír hluta Slóvakíu, Austurríkis og Slóveníu, auk Bæheims og Mæris. Á 14. og 15. öld var Bæheimur einn mikilvægasti hluti Þýska keisaradæmisins. Árið 1526 var fursti af habsborgaraætt kjör- inn konungur Bæheims og landið sameinaðist þannig Austurríki-Ung- veijalandi. Spenna var milli Tékka og Slóvaka er Habsborgar-kéisaradæmið var leyst upp 1918. Tékkar voru ekki aðeins fleiri heldur stóðu þeir einn- ig fjárhags- og menningarlega framar Slóvökum, sem voru að mestu bændafólk. í Bæheimi og Mæri voru þrír fjórðu af iðnaði keisara- dæmisins. Tékkar og Slóvakar tóku þó höndum saman til að geta styrkt hvorir aðra í sjálfstæðisbaráttunni og stofnuðu Tékkóslóvakíu árið 1918. Stóijörðum var skipt og stjórnarskrá, sem kvað á um þingræði og lýðræði, tók gildi 1920. Tékkar réðu mestu og vakti það óánægju meðal Slóvaka og Súdeta-Þjóðveija, en þeir síðarnefndu vildu samein- ast Austurríki eða Þýskalandi. Tékkar og Slóvakar tóku höndum saman til að geta styrkt hvorir aðra í sjálfstæðisbaráttunni og stofnuðu Tékkóslóvakíu árið 1918. sig fótunum. Tékkar voru herteknir af Þjóðveijum í seinna stríðinu og Eduard Benesch, þáverandi forseti, flúði land og setti upp útlagastjóm og tékkneskar hersveitir börðust með bandamönnum. Dr. Josef Tiso stjórn- aði hins vegar Slóvakíu með blessun Hitlers og Þjóðveijar tryggðu landa- mæri ríkisins, en stríðsárin eru eina tímabilið sem Slóvakía hefur verið sjálfstæð. Það kom Slóvökum vel þegar sambandsríkið sameinaðist aftur eftir stríðið að bandamenn litu á Tékkóslóvakíu sem einn af sigur- vegurunum vegna afstöðu Tékka. Kommúnistastjórnin byggði upp þungaiðnaðinn í Slóvakíu og hélt honum gangandi í gegnum þykkt og þunnt. „Pjöldi Tékka var sendur þangað til starfa. Slóvakar vissu að þeir hefðu frekar kosið að starfa í tékkneska hlutanum. Þeir sem neit- uðu að ganga í kommúnistaflokkinn og þeir sem lentu í ónáð af einhveij- um ástæðum voru gjarnan sendir til Slóvakíu,“ sagði vinur minn sem gekk aldrei í flokkinn og starfaði um tíma í Slóvakíu. „Sumir þessara manna gerðu sig breiða og Slóvakar kunnu ekki við þá.“ Alexander Dubcek, formaður flokksins sem var settur af 1968, og Gustav Husak, sem missti forseta- embættið 1989, voru báðir frá Slóv- akíu. Þeir sáu til þ'ess að Slóvakar færu ekki halloka í samskiptunum við Tékka. Sumum Slóvökum finnst Havel ekki gæta hagsmuna Slóvakíu eins vel. Meciar, sem 37% Slóvaka kusu í kosningunum til slóvakíska þingsins, segir hann forseta Tékka. Slóvakar hafa aldrei staðið á eigin fótum nema á stríðsárunum. Þjóð- ernissinnar vilja nú fá að sýna hvað í þeim býr. Þeir eru vanþakklátir fyrir hjálp Tékka í gegnum árin, segjast vel geta komist af án þeirra og afskiptasemi sambandsstjórnar- innar í Prag. „Það er alltaf talað um Tékka þegar átt er við Tékkósló- vaka,“ sagði ung kona í Bratislava. „Við erum orðin þreytt á „Tékkar" þetta og „Tékkar" hitt. Við viljum ekki að Slóvakar gleymist lengur.“ hafa farið til Slóvakíu þar sem 33% þjóðarinnar búa. Slóvakískir þjóðern- issinnar kenna embættismönnum í Prag um en líklegra þykir að Þjóð- veijar, sem standa að baki megin- parts fjárfestinganna, kjósi Bæheim og Mæri af því að þau eru nær Þýska- landi og voru auk þess hluti af þýsku- mælandi Evrópu í aldaraðir. Því er stundum haldið fram að Slóvakar séu slakari vinnukraftur en Tékkar. Kona sem ég gisti hjá í Brat- islava var fljót að taka fram að maðurinn hennar væri „duglegur Slóvaki" þegar ég spurði hvaðan þau hjónin væru. „Eg er frá Mæri en maðurinn minn er héðan," sagði- hún.„„En hann er duglegur Slóvaki. Hann vinnur tvöfalda vinnu." Markaðir Tékkóslóvakíu í Austur- Evrópu hafa hrunið og það hefur bitnað illa á Slóvakíu. Þungaiðnaður og vopnaframleiðsla eru stór hluti atvinnulífsins þar og hvort tveggja á í miklum erfiðleikum. Ákvörðun sam- bandsstjómarinnar að hætta vopna- framleiðslu hefur verið gagnrýnd harðlega í Slóvakíu. Einn starfsmað- ur Þjóðemisflokksins, sem hlaut rúm 9% í kosningunum, sagði að Tékkar ætluðu alls ekki að hætta framleiðsl- unni heldur hefðu vélar úr verksmiðj- um í Slóvakíu verið fluttar til Bæ- heims og Mæris. Það er væntanlega vitleysa en margir Slóvakar trúa öllu illu upp á Tékka. Sambandsstjórnin vill hætta vopnaframleiðslu bæði af siðferðis- og efnahagsástæðum. Lög- leg eftirspum hefur dregist svo sam- an að framleiðslan borgar sig engan veginn og ríkisstjóm Tékkóslóvakíu og Vaclav Havel forseti kæra sig ekki um að vera bendluð við ólögleg viðskipti hugsanlegra vopnakaup- enda. Innanríkisviðskipti Slóvaka og Tékka hafa verið Slóvökum í vil. Tékkar hafa keypt 30 til 40% alls „útflutnings" þeirra en Slóvakar hafa aðeins fengið um 5 til 20% „útflutn- ingsframleiðslu" Tékka. Yfir 300.000 Slóvakar búa í tékkneska hlutanum og tæp 40.000 til viðbótar sækja vinnu þangað. Um 3.500 Tékkar sækja vinnu í Slóvakíu. At- vinnuleysið þar er yfír 15% en aðeins um 5% í tékkneska hlutanum. Ástandið mun versna í báðum hlutum ríkisins ef sambandsríkið klofnar en þó sérstaklega í Slóvakíu. Klaus, sig- urvegari kosninganna í Bæheimi og Mæri, segir að sambandslýðveldin geti komist af hvort án annars í fram- tíðinni en það muni taka sinn tíma fyrir þau að jafna sig eftir aðskilnað- inn. „Enginn veit hversu langan tíma það mun taka,“ sagði hann. Flestir telja víst að Tékkar nái sér á strik langt á undan Slóvökum. Vanþakklæti í garð Tékka Vinafólk mitt á áttræðisaldri sem ég heimsótti í Prag var ánægt með úrslitin í tékkneska hlutanum en hafði áhyggjur af framtíð sambands- ríkisins. „Fólk á okkar aldri getur nú litið til baka og hugsað til komm- únistaáranna sem ævintýris sem við urðum að þola. Von okkar um eðli- legt líf verður væntanlega að veru- leika undir stjóm Klaus. En það verð- ur erfitt að semja við Slóvaka. Við Tékkar erum að verða þreyttir á þeim og myndum láta þá sigla sinn sjó ef tilfinningarnar væru látnar ráða. En við erum hugsandi fólk og vitum að það væri betra ef sam- bandsríkið styrktist frekar en sundr- aðist." Vinur minn sagði að sjálfstæðis- þörf Slóvaka byggðist á minnimátt- arkennd. Þegar Tékkar og Slóvakar tóku höndum saman 1918 var at- vinnulíf og fagmenntun mun þróaðri í tékkneska hlutanum og Tékkar hjálpuðu Slóvökum að koma undir SNARA FÁNASTENGUR # Úr glosfiber # Með öllum búnaði # Lengdir 6-7-8-10 metrar SNARI SÍMI 72502 ■ CMC karfl fyrir nlðurhengd loft, er úr galvaniseruðum málmt og eldþoliö. ■ CMC kerfl er auðvelt I uppsetningu og mjðg sterkt. • CMC kerfl er fest með stlllanlegum upphengjum sem pola allt að 50 kg þunga. ■ CMC kerfl faast ( mðrgum gerðum baeði sýnilegt og falið og vorðlð er ótrúlegn iágt EINKAUMBOÐ cö Þ.Þ0RGRÍMSS0N & C0 Ármúla 29 - Reykjavík - sími 38640 TILBOÐ í Cherokee Sport 4x4, árg. ’90 (ekinn 16 þús. mílur), Isuzu P/U 2 W/D, árg. 90 (ek- inn 24 þús. mílur), Chevrolet Custom Van C-20 (innréttaður), árg. ’87 og aðrar bifreið- ar, er verða sýndar á Grensásvegi 9, þriðju- daginn 16. júní kl. 12-15. Ennfremur óskast tilboð í I.H.C. Wrecker 10 hjóla með/bómum og spili, árg. ’78. Tilboðin verða opnuð á sama stað ki. 16. SALA VARIMARLIÐSEIGIMA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.