Morgunblaðið - 14.06.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JÚNÍ 1992
23
við Morgunblaðið: „Þetta er ekkert
innfjarðargeim lengur.“
Sá sem fyrstur verður á vegi okk-
ar á flotbryggjunni á Tálknafiði er
Helgi Bergþórsson á trillunni Guð-
rúnu Helgu EA. Hann hefur verið
sjómaður alla sína tíð, lengst af á
togaranum Margréti EA. Árið 1989
keypti hann Guðrúnu Helgu og hefur
haft lifibrauð sitt af bátnum að mestu
síðan. „Mig langaði til að gerast eig-
in herra og það lá beinast við fyrir
mig að prófa þetta,“ segir Helgi.
Á SKAKIMEÐ
TRILLUKÖRLUM
FYRIR VESTAN
„Þetta hefur gengið svona nokkurn
veginn eins og ég átti von á að það
gengi en framtíðin er aftur á móti
óviss. Ég er á krókaleyfi núna og
ég vona að það haldist áfram.
í máli Helga kemur fram að hann
geti ekki stundað þessa atvinnu sína
nema í mesta lagi 5-6 mánuði á
ári, það er yfir sumartímann, sökum
veðra. Helgi lenti í aflahrotunni sem
greint var frá í fjöltniðlum á þessu
svæði. „Það var rosalegt að koma
hér í höfnina þegar þetta skot var í
gangi, en svona vikur eins og þessi
koma ekki nema á nokkurra ára
fresti. Skakveiðin nú er allajafna
ekkert nema púl og miklar yfirlegur
ef eitthvað á að fiska,“ segir hann.
„Dagsaflinn hjá okkur varð mestur
2,7 tonn og það var mikið líf í sjón-
um hér undan og góðar lóðningar á
stóru svæði.“
y Háskólastúdent í harkinu
Skammt frá Guðrúnu Helgu er
sómabáturinn Stefán Ragnar EA.
Eigandinn, Stefán Stefánsson, er um
borð að gera klárt meðan á brælunni
stendur. Hann hefur átt bátinn í tæp
fjögur ár og hefur notað skakveiðina
til að fjármagna háskólanám sitt.
Hann er nú í rekstrarfræði í Sam-
vinnuskólanum að Bifröst eftir að
hafa numið arkitektúr í Bandaríkjun-
um.
Stefán er nýkominn til Tálkna-
fjarðar eftir að hafa verið að skaka
í grennd við Grímsey og Kolbeinsey.
„Eg lít á það sem forréttindi að fá
að vera á skaki á góðum sumardög-
um,“ segir Stefán. „Maður nær ein-
hvern veginn svo vel að kúpla sig
frá öllu í landi. En þar með er ekki
sagt að þetta sér eintómur leikur. í
þessari vinnu verða menn fyrst og
fremst að geta bjargað sér sjálfir ef
eitthvað kemur upp á, eins og til
dæmis vélarbilun. Það er ekki hægt
að hringja í næsta verkstæði þegar
maður er staddur 20-30 mílur út á
sjó.“ Stefán segir að hann lifí í þeirri
von að geta framfleytt sér á skak-
inu, tekjurnar séu það góðar að hann
fái ekki námslán.
10 ára skak
Guðmundur „Grímseyingur" Har-
aldson er að skrúbba trilluna sína,
Normu KE, sem hann hefur nýlega
fest kaup á. Hann hefur stundað sjó-
inn, einn á báti frá 10 ára aldri og
alltaf gert út frá Grímsey. Norma
er fjórða trillan sem fjölskylda hans
eignast. „Það er óhætt að segja að
þetta sé ævistarf mitt hingað til að
vera á skaki,“ segir Guðmundur.
„Það sem mér finnst mest heillandi
vð skakið er að maður ræður sér
algerlega sjálfur, tekur ekki við skip-
unum frá einum eða neinum og er
ekki háður einhverri stimpilklukku."
Guðmundur er ættaður frá Hval-
látrum og þykir fískinn með afbrigð-
um. Mest hefur hann náð að afla um
50 tonna á sumri, sem gerir mánað-
artekjur upp á ríflega milljón krón-
ur. Hann getur ekki hugsað sér ann-
að líf en sjómennsku og þegar hann
er ekki á skaki er hann á stærri
bátum eða millilandaskipum á vetr-
um. Hann ætlar sér að taka frí frá
sjómennskunni um stund í náinni
framtíð til að fara í Stýrimannaskól-
ann og afla sér skipstjórnarréttinda.
Tómstundagaman í 30 ár
Frá Tálknafirði liggur leið okkar
á Flateyri en þangað hafa trillur
verið að tínast inn í höfnina ein af
annarri síðústu dagana. Ekki hefur
gefið á sjó í tæpa viku og nota menn
landleguna til að sitja á Vagninum
yfir kaffibolla og ræða spekingslega
um lóðningar og lórantölur og gildi
þess að hafa bræluskak á nýju DNG-
rúllunum. Meðal þeirra sem gera út
frá Flateyri er Sigurður Sigurdórsson
sem átt hefur bát á staðnum frá
1960 og haft skak sem tómstundaga-
man síðan. í fyrra fékk hann sér
nýjan bát og nú er ætlunin að reyna
að lifa af þessu.
„Ég er búinn að gera skak að mínu
aðalstarfí og ætla að gera út í sum-
ar með dóttur minni,“ segir Sigurður.
Eins og flestir aðrir trillukarlar
og skakarar nefnir Sigurður sem
höfuðkost við þessa atvinnu að hann
er algerlega sjálfs síns herra og laus
við allan skarkala og læti þegar út
á sjó er komið. En honum fínnst
framtíð sín sem trillukarls mjög
óviss. „Það hefur verið rætt um að
þegar krókaleyfínu ljúki verði settur
kvóti á þessa báta og það þýðir að
við fáum ekki neitt,“ segir Sigurður.
„Ég lít þannig á málið að ráðamenn
ættu að hugsa vel sinn gang því
þessi veiðarfæri sem við notum eru
þau sem minnst ganga á fiskistofn-
ana. Það vita allir og það eru ekk:
handfærin sem eru að ganga að físki-
stofnunum dauðum."
í máli Sigurðar kemur fram að á
síðustu árum hafi menn stöðugt þurft
að sækja fískinn lengra á haf út og
vera lengur við að físka en áður.
„Svo hef ég einnig á tilfinningunni
að veðurfar hafí farið versnandi á
síðustu árum,“ segir Sigurður. „Hér
áður fyrr var oft hægt að sæka á sjó
á trillum dögum saman en nú kemur
vart sú vika að ekki sé bræla megn-
ið af henni og aðeins hægt að fara
út dag og dag.“ Sigurður segir að
aflabrögðin í maí hafí verið óvenju-
góð en það telst ágætt að ná svona
10 tonnum á mánuði á skakinu.
Hef það sama og á togara
Annar trillukarl á Flateyri, Aðal-
steinn Bjarnason, sem stundað hefur
skak í fimm ár eða frá 17 ára aldri
tekur undir með Sigurði hvað afla-
brögðin í ár varðar. Hann segir að
hann hafí svipað upp úr skakinu og
hann hefur haft á togara. „En það
þarf að vera vel við til að ná þessum
peningum upp úr skakinu og þetta
eru miklar vökur hjá manni þegar
gefur á sjó,“ segir Aðalsteinn. „Það
er ekkert lengur að hafa á grunnslóð-
inni hérna í grennd og sem stendur
sæki ég minn fisk um 13 mílur út
af Barðanum fyrir utan Dýrafjörð."
Aðalsteinn segir að hann ætli sér
að stunda skak á sumrin í nánustu
framtíð enda sé það hið skemmtileg-
asta sem hægt er sé að lenda í á
góðum dögum.
Lára leggur úr höfn
Sjálfur hef ég ekki gert mikið af
því að skaka en gefst tækifæri til
að sigla einn róður með Birni E.
Hafberg á Láru IS, fjögurra tonna
Færeyingi frá Flateyri. Bjöm er einn
af þessum trillukörlum sem enn sjá
skakið í rómantísku ljósi og þegar
við komum út á rúmsjó út af Barðan-
um fer hann að segja mér á sinn
rólega og yfirvegaða hátt hve nánum
tengslum sé hægt að ná við náttúr-
una á skakinu. A meðan ligg ég yfír
borðstokknum og reyni að koma í
veg fyrir að innyfli mín komist í
þessu nánu tengsl.
Um borð í Láru eru þijár skakrúll-
ur, tvær rafdrifnar Juksa Robot og
ein gömul Elliða snegla. Neðan á lín-
unni hangir blýklumpur á þyngd við
meðal handlóð og síðan slóði með
5-6 önglum. Juksa Robot rúllan er
sjálfvirk þannig að aðeins þarf að
ýta á takka og sér hún síðan um að
setja færið í botn og skaka því síðan
upp og niður þijá faðma frá botnin-
um. Þegar bítur á eða þyngsl koma
á færi pípir í rúllunni og hún dregur
slóðann upp. Á gömlu Elliða-græj-
unni þarf maður að skaka sjálfur.
Það er ákveðin spenna fólgin í því
fyrir óvanan að heyra fyrst pípið í
sjálfvirku rúllunum og sjá síðan
þorsk dreginn um borð en það kemst
í vana eins og annað. Gert er að
aflanum um borð og hann ísaður í
kassa. Það tekur okkur hálfan annan
sólahring að ná ca. 350 kg af þorski
þannig að þetta skaklíf virðist ekki
alltaf dans á rósum. En við erum
samt léttir í skapi því maður finnur
þessa tilfinningu svo glöggt, að vera
sinn eigin herra, og út á það gengur
jú þetta allt.
______________Brids__________________
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
46 pör í sumarbrids sl.
fimmtudag
Mjög vel var mætt í Sumarbrids í
Reykjavík síðasta þriðjudag. 46 pör
mættu til leiks í Mitchell-tvíAienning.
Úrslit urðu (efstu pör):
N/S:
Hrafnhildur Skúladóttir - Jörundur Þórðarson 535
Hulda Hjálmarsdóttir - Ólína Kjartansdóttir 496
Vilhjálmur Sigurðsson - Þráinn Sigurðsson 485
Jón Stefánsson - Sveinn Sigurgeirsson 482
Erla Siguijónsdóttir - Óskar Karlsson 458
A/V:
HaukurHarðarson-VignirHauksson 559
GunnarÞórðarson-SigfúsÞórðarson 488
Ragnheiður Nielsen - Sigurður Ólafsson 487
Gísli Sigurkarlsson - Halldór Ármannsson 479
GeorgSverrisson-BemódusKristinsson 476
Öllu rólegra var síðasta fímmtudag,
trúlega vegna Evrópumótsins í knatt-
spymu. Spilað var í tveimur riðlum,
samtals 26 pör. Úrslit urðu (efstu pör):
A
Hulda Hjálmarsdóttir - Ólína Kjartansdóttir 255
Lárus Hermannsson - Guðlaugur Sveinsson 246
HörðurPálsson-ÞráinnSigurðsson 245
ValtýrPálsson-ÞórðurSigurðsson 224
Guðmundur Samúelss. - Þorsteinn Þorvarðars. 218
FriðrikJónsson-SævarJónsson 213
B
Jón Viðar Jónmundss. - Jóhannes Guðmannss. 122
Stefán Ólafsson - Valdimar Elíasson 120
RagnaBriem-ÞórannaPálsdóttir 119
Sigurleifur Guðjónsson - Ólafur Oddsson 111
Staða efstu manna hefur lítið
breyst. Þröstur Ingimarsson leiðir enn
og næstu menn eru Þórður Björnsson,
Lárus Hermannsson og Guðlaugur
Sveinsson.
Spilað er í Sumarbrids alla mánu-
daga og þriðjudaga í Mitchell (spila-
mennska hefst kl. 19), fímmtudaga í
riðlakeppni (fyrsti riðill fer af stað upp
úr kl. 17 og síðasti riðill kl.19) og
laugardaga (spilamennska hefst kl.
13.30). Spilaður er Mitchell á laugar-
dögum.
Spilaáhugafólk er hvatt til að vera
✓
með í Sumarbrids 1992. Ferðafólk á
leið um bæinn er sérstaklega boðið
velkomið sem og erlendir gestir.
Bridsdeild eldri borgara,
Kópavogi
Sl. þriðjudag mættu 14 pör, og var
spilaður Mitchell-tvímenningur, og
urðu úrslit þessi:
N/S:
Einar Elíasson og Gústaf Lárusson 206
Bergsveinn Breið§örð og Eysteinn Einarsson 194
Helga Ámundadóttir og Hermann Finnbogas. 168
A/V:
Gísli Sigurtiyggvason og Ámi Jónasson 201
Ingin'ður Jónsdóttir og Helga Helgadóttir 184
Ásta Þorsteinsdóttir og Margrét Sigurðardóttir 175
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
llókseatn
bætir úr
brýrnii
þörf
Þessi bænabók, sem sr. Karl
Sigurbjömsson tók saman, geymir
fjölda bæna frá frumkristni til
þessa dags. Þar em bænir sem
tengjast daglegu lífí, helgum og
hátíðum og krossgötum ævinnar.
Emnig eru þar stuttar leiðbeiningar
um trúarlíf, iðkun og siði, svo og
greinarumbæn oglestur
Bibhunnar eftir dr. Sigurbjöm
Einarsson, biskup.
Bókin fæst í Kirkjuhúsinu,
Kirkjuhvoli, gegnt Dómkirkjunni,
s.21090 og 621581 og er hægt
að (á hana senda í póstkröfu,
auk þess sem hún fæst í
öllum bókaverslunum.
IEf PSÖGN A VEGl TRÚARI.ÍFSfNS
““
Skálhöltsútffáfan
|S1<
^Útg
Skálholtsútgáfan
Útgáfufélag þjóðkirkjunnar