Morgunblaðið - 05.07.1992, Side 2
2 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992
EFNI
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Lagt af stað í ijómalogni
Árleg Faxaflóakeppni siglingaklúbbsins
Brokeyjar hófst í gær. Fjórtán skútur taka
þátt í képpninni og voru þær ræstar með
fallbyssuskotum kl. 10. í blíðskaparveðri frá
útsýnisstaðnum við listaverkið Sólfar við
Skúlagötu. Siglingaleiðin er þijátíu sjómílur
og liggur hún um Hvalíjörð, Akranes og aft-
ur til Reykjavíkur.
Tyrkneska forræðismálið:
Sophia Hansen fékk ekki
að hitta dætur sínar í gær
SOPHIA Hansen fékk ekki að sjá dætur sínar í gær laugardaginn 4.
júlf. Hún sagði í samtali við Morgunblaðið að hún ætlaði ekki að láta
bugast og að hún muni fara til Tyrklands laugardaginn 18. júlí til þess
að reyna að hitta dætur sínar. Fyrrverandi eiginmaður hennar, Halim
Al, hefur brotið umgengnisrétt hennar þrisvar í röð. Hann á nú fjár-
sekt og 12 mánaða fangelsisdóm yfir höfði sér vegna þessara brota.
Hótanir halda áfram að berast til Sophiu frá öfgahópum í Tyrklandi.
Eitt blað heittrúa múslima hefur slegið upp þeirri sögu að íslensk
stjómvöld ætli með liðsinni annara Norðurlandaþjóða að setja viðskipta-
bann á Tyrkland til þess að stúlkurnar verði sendar til íslands.
Bráðabirgðalögin;
Forsetigaf
lögin út í
skólaskrif-
stofunni
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, gaf út bráða-
birgðalögin um Kjaradóm í skrif-
stofu fjármálastjóra Fjölbrauta-
skólans á Akranesi um kl. 23.30
sl. föstudagskvöld. Tillaga að lög-
unum var samin í embættisbústað
forsætisráðherra á Þingvöllum og
símsend til forsætisráðuneytisins
þar sem hún var rituð á löggiltan
pappir. Eftir því sem næst verður
komist mun þetta vera í fyrsta
sinn sem bráðabirgðalög eru sam-
in á Þingvöllum.
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri
í forsætisráðuneytinu, sagði að að-
stoð lögreglu hefði verið fengin við
flutning á skjölunum. Ríkisstjórnin
var öll samankomin á Þingvöllum og
var hún f sambandi við ráðuneytið í
Reykjavík. Texti bráðabirgðalag-
anna, sem var saminn á Þingvöllum,
var sendur með símbréfi til forsætis-
ráðuneytisins. Þar voru lögin rituð
um kl. 21 á löggiltan skjalapappír í
fólíóformi, en ekki er aðstaða á Þing-
völlum til að gera það. Lögin voru
síðan send með símbréfi til Þingvalla
þar ríkisstjómin fór yflr endanlegan
texta og frágang á skjölunum. Lög-
reglan í Reykjavík flutti skjölin aust-
ur á Þingvöll þar sem fjármálaráð-
herra undirritEiði lögin og tillögu til
forseta íslands um að hún setti lögin.
Ólafur fór síðan með skjölin til
Akraness með lögreglunni og hitti
þar forseta í hátíðarsamkomu í Fjöl-
brautaskólanum um kl. 23.30. For-
seti skrifaði undir skjölin fyrir kl. 24
í skrifstofu fjármálastjóra skólans.
Skjölin voru send þaðan til skrifstofu
Stjómartíðinda í Reykjavik.
-----» » »---
V-Evrópusambandið:
Akvörðun í
næstu viku
JÓN Sigurðsson, iðnaðar- og við-
skiptaráðherra og starfandi utan-
ríkisráðherra, kynnti á ríkis-
stjórnarfundi sl. föstudag erindi
sem borist hefur frá Vestur-Evr-
ópusambandinu, varnarsamstarfi
Evrópuríkja, að íslendingar fái
aukaaðild að sambandinu. Ráð-
herra á von á því að ákvörðun
ríkisstjómarinnar um erindið
verði tekin í næstu viku.
Fyrr á árinu bámst boð frá Vestur-
Evrópusambandinu um aukaaðild
íslendinga að sambandinu. „Það mál
er nú að skýrast og mun skýrast
betur í næstu viku,“ sagði Jón.
Sophia Hansen sagði að tyrkneska
lögreglan og lögfræðingur hennar
hefðu leitað á þeim stöðum i Istanb-
úl er talið hefði verið að Halim A1
gætti dvalið í gærmorgun, laugar-
daginn 4. júlí, en hann og stúlkumar
hefðu ekki fundist. Stúlkumar eru
enn taldar dvelja í austurhluta Tyrk-
lands en vitað var að faðir þeirra var
í Istanbúl í fyrradag. Sophia sagði
að hún mundi reyna aftur 18. júlí
hvort hún muni fá að sjá dætur sín-
ar eða ekki. Hún sagði að áfram
mundi bætist við fangelsisdóm Halim
A1 ef hann heldur uppteknum hætti.
Halim A1 á nú yfir höfði sér 6
mánaða fangelsisdóm fyrir hvem
lauga'rdag sem Sophia hefur ekki
fengið að hitta stúlkumar. Hann á
því yfir höfði sér 18 mánaða fangels-
isdóm en getur sloppið við fyrstu sex
mánuðina með því að greiða fjár-
sekt. í framhaldi af þessum brotum
hefur tyrkneski dómarinn er dæmdi
Sophiu umgengnisrétt kært Halim
A1 fyrir að vanvirða úrskurðinn og
lögfræðingur Sophiu hefur einnig
kært hann fyrir að brjóta á rétti
hennar. Sophia sagði að dómari tæki
ákvörðun 20. september nk. hvort
Halim A1 yrði að afplána dóminn.
Síðan eitt af blöðum heittrúa músl-
ima birti heimilisfang Sophiu í Ist-
anbúl hefur hún og aðrir aðilar er
tengast málstað hennar í forræðis-
málinu fengið hótanir bæði símleiðis
og bréflega. Sophia sagði að hún
hefði fengið þijú hótunarbréf og
margoft hefði verið hringt og lagt á
eða andað í símann. í hótanabréfun-
um er henni sagt m.a. að koma sér
burt frá Tyrklandi, dætur hennar séu
tyrkneskar og þær muni aldrei fá
að fara til íslands. Sophia sagði að
fólk er standi með Halim A1 reyni
að hræða sig og ógna svo hún gefist
upp. En hún sagði að hún ætlaði
ekki að láta bugast.
í blaði öfgasinnaðra múslima hef-
ur nafni Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar, utanríkisráðherra, verið slegið
upp og því haldið fram á forsíðu að
íslensk stjórnvöld séu að reyna að
fá allar Norðurlandaþjóðimar til þess
að beita tyrknesk stjómvöld við-
skiptaþvingunum svo að dætur Sop-
hiu fái að koma til íslands. Blaðið
skorar á heittrúa múslimi til þess að
standa saman gegn þessum meintu
þvingunaraðgerðum.
Fyrsti dómurinn olli
deilum
►Úrskurður Kjaradóms um laun
æðstu embættismanna ríisins hef-
ur sætt mikilli gagnrýni. Kjara-
dómur hefur starfað frá árinu
1962 og þetta er ekki í fyrsta sinn
sem dómur hans veldur úlfúð í
þjóðfélaginu./lO
Útverðir I landvinning-
um réttarríkisins
►Ríki Austur-Evrópu vinna nú að
því að koma á réttarríki að vest-
rænni fyrirmynd. Gengur sú þróun
mishægt./12
Skuggahliðar sumar-
leyfisins
►Ekki koma allir endumærðir úr
sumarleyfinu. Streita hversdagsins
getur brotist út þegar loksins á
að slaka á, uppgjör innan fjölskyld-
unnar orðið óhjákvæmilegt og bak-
verkurinn og vöðvabólgan magn-
ast./14
Lúkas kvikmyndaður í
Eistlandi
►Nýlega var lokið í Eistlandi tök-
um á kvikmyndinni Lúkas, sem
byggð er á leikriti Guðmundar
Steinssonar, en myndin verður
væntanlega frumsýnd í Tallin í
september og skömmu seinna hér
áfslandi./18
Batvinnu/rað og
SMÁAUGLÝSINGAR
FASTEIGNIR
► 1-16
Hvar er íslenski mat-
urinn? 1
►Flestum dettur í hug hamborg-
arar og franskar kartöflur með
kokteilsósunni frægu þegar talið
berst að íslenskum veitingahúsum
á þjóðvegi númer eitt. Því vaknar
sú spuming hvort eingöngu sé
hægt að fá bandarískan mat þegar
ferðast er um landið eða hvort ís-
lenska kjötsúpan leynist einhvers
staðar?/l
Veðjaði Churchill á
rangan hest?
►Andstæðingar Serbíustjómar
heiðra umdeildan óvin Titos. /6
Skálholt er helgistað-
ur
►Þingvellir voru miðstöð þjóðlífs-
ins í tvær vikur, Skálholt árið um
kring, segir Jónas Gíslason, vígslu-
biskup, sem sest hefur að í Skál-
holti eftir að staðurinn hefur verið
biskupslaus í tæp tvö hundruð ár.
/10
Upplýst stjórnleysl
►Ein óvenjulegasta og jafnframt
vinsælasta hljómsveit landsins er
gleðisveitin Júpíters./l2
Af spjöldum glæpa-
sögunnar
►Lofíe Louise Peete skildi eftir
sig blóðslóð. Hún stai, sveik, laug,
myrti og seldi sig alla ævi og allir
fjórir eigimenn hennar fyrirfóru
sér./l4
► FASTIR ÞÆTTIR
Fréttir 1/2/4/6/bak Kvikmyndir lOc
Leiðari 16 Dægurtónlist llc
Helgispjall 16 Myndasögur 16c
Reykjavíkurbréf 16 Brids 16c
Minningar 21 Stjömuspá 16c
Fólk í fréttum 24 Skák 16c
íþróttir 26 Bíó/dans 17c
Útvarp/sjónvarp 28 Bréf til blaðsins 20c
Gárur 31 Velvakandi 20c
Mannlífsstr. 4c Samsafnið 22c
INNLENDARFP iÉTTIR:
2-6-BAK
ERLENDAR FRÉITIR:
1-4
Helgi Tómasson var sæmdur
heiðurstitli í Bandaríkjunum
HELGI Tómasson, stjórnandi San Fransisco-ballettsins, hafði við-
dvöl á íslandi yílr helgina. Hann sendi 18 nemendur sína og tvo
kennara á undan sér til Frakklands til þess að geta sjálfur stansað
hér í þijá daga og heimsótt landið og fjölskyldu sína, eins og hann
orðaði það í samtali við blaðið. En Helgi hefur nýlega hlotið mikinn
heiður, sem nær langt út fyrir balletsviðið. Hann var sæmdur heið-
urstitli af American Academy of Achievement og tók við honum
við hátíðlega athöfn I Las Vegas um síðustu helgi.
Heiðurstitillinn, sem Helga Tóm-
assyni hlotnaðist, er veittur þeim
sem skara fram úr í Bandaríkjun-
um og lengst hafa náð á ýmsum
sviðum. Er efnt til þriggja daga
hátíðar þar sem 450 bandarískir
nemendur, sem skarað hafa fram
úr í námsárangri, fá tækifæri til
að hitta og leggja spumingar fyrir
þetta fólk. í þetta sinn voru þau
35 talsins, stjórnmálamenn, leikar-
ar o.s.frv.. Þar á meða! var einn
öldungadeildarþingmaður, ríkis-
stjóri, landlæknirinn og heilbrigðis-
ráðherrann Louis W. Sullivan, for-
stjóri ABC-sjónvarpsstöðvarinnar,
leikarar eins og Kevin Costner og
Barbra Streisand og kvikmynda-
gerðarmaðurinn Oliver Stone, svo
einhverjir séu nefndir. Helgi sagði
að hátíðinni hefði ekki verið mikið
umtöluð vegna öryggisráðstafana,
því meðal gesta
voru m.a. fram-
kvæmdastjóri
FBI, Norman
Schwarzkopf, yf-
irmaður banda-
ríska hersins í
Persaflóastríð-
inu, og Colin
Powell, yfirmað-
ur bandaríska
herráðsins.
Helgi Tómas-
son hlaut mikið
lof í vetur fyrir ballettflokk sinn
eftir sýningar í New York og þykir
þessi útnefning sýna að hann sé
kominn í hóp þeirra manna sem
hæst ber í Bandaríkjunum. Sjálfur
staðfesti hann að þetta væri mikill
heiður, sem gleddi hann mjög.
Ákveðið hefur verið að hann komi
í mars í vetur með San Franscisco-
ballettinn aftur til New York og
sýni í Lincoln Center. Sýningar-
tímabili flokksins, sem gekk ákaf-
lega vel, lauk í maílok og síðan
kvaðst Helgi hafa verið að undirbúa
förina með nemendur sína til
Frakklands, en þangað er boðið
nemendaflokkum frá Shanghai,
Peking, Filippseyjum, Kúbu og San
Fransisco. Verður hátíðin í bænum
La Boule norðan við Bordeaux.
Eftir það tekur við hjá Helga undir-
búningur undir næsta árs sýningar-
tímabil. Hann hefur því ærið að
starfa, en gefur sér þó tíma til að
koma við á íslandi ef hann mögu-
lega getur.
Helgi
Tómasson