Morgunblaðið - 05.07.1992, Page 8
H -I'U
MORGUN'fiL^Ölé
n'
JIOM
1"TV A /”^ersunnudagur5.júlí, semer 187. dagur
-L' VJ ársins 1992. Árdegisflóð í Reykjavík kl.
10.30 og síðdegisflóð kl. 22.23. Fjarakl. 3.53 ogkl. 16.10.
Sólarupprás í Rvík kl. 3.14 og sólarlag ki. 23.49. Sólin er
í hádegisstað í Rvík kl. 13.32 ogtunglið í suðri kl. 18.10.
(Almanak Háskóla íslands.)
Hann svaraði: Yður er gefið að þekkja leyndardóma
himnaríkis, hinum er það ekki gefið. (Matt. 13:11.-12.)
ÁRNAÐ HEILLA
Q pTára afmæli. í dag er
OtJ 85 ára Þórður Sig-
urðsson frá Bakka í Hnífs-
dal, Skólavegi 5 þar í bæ.
Kona hans er Guðný Finns-
dóttir frá Hrauni á Ingjalds-
sandi.
/'/\ára afmæli. í dag er
\J v sextíu ára Jakob Júl-
íusson, Löngufit 12,
Garðabæ. Eiginkona hans er
Guðný Sigurjónsdóttir. Þau
eru að heiman.
/?/\ára afmæli. í dag, 5.
ÖU júlí, er sextug Asdís
Sörladóttir, Lækjarkinn 10,
Hafnarfirði. Hún er ættuð
norðan af Ströndum. Eigin-
maður hennar er Ásgeir
Sölvason skipstjóri. Þau taka
á móti gestum á heimili sínu
í dag, afmælisdaginn, eftir
kl. 17.
/?/|ára afmæli. Á þriðju-
vl v daginn kemur, 7. júlí,
er sextugur Ólafur G. Ein-
arsson menntamálaráð-
herra, Steklqarflöt 14,
Garðabæ. Kona hans er
Bima Bjarnadóttir. Þau taka
á móti gestum í félagsheimil-
inu á Seltjamamesi á afmæl-
isdaginn kl. 17-19.
/?/\ára afmæli. í dag, 5.
V/vr þ.m., er sextugur
Gunnar Snorrason, Lindar-
hólum 5, Rvík, kaupmaður
í Hólagarði. Hann var fyrr-
um formaður Kaupmanna-
samtaka Islands. Kona hans
er Jóna Valdimarsdóttir. Þau
em erlendis.
KROSSGATAN
E
9
a
13
■i
: ■'!
j 22 23 24
LÁRÉTT: — 1 öflug, 5
drepa, 8 bjargbúar, 9 hundur,
11 trítlar, 14 ekki marga, 15
skræfa, 16 konu, 17 á húsi,
19 súrefni, 21 milda, 22 þátt-
takan, 25 mergð, 26 eld-
stæði, 27 handsami.
LÓÐRÉTT: — 2 spil, 3
rönd, 4 þrástaglast á, 5
skrattans, 6 púki, 7 mánuður,
9 þvætting, 10 undir áhrifum,
12 ófrjálsi maðurinn, 13
þvaðraði, 18 slæmt, 20 grein-
ir, 21 rómversk tala, 23 end-
ing, 24 lést.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: - 1 nauts, 6 barti, 8 eklan, 9 damla, 10 unn-
um, 14 lin, 15 lítil, 16 illan, 17 inn, 19 tæla, 21 egni, 22
eldkúla, 25 leg, 26 átu, 27 Rín.
LÓÐRÉTT: — 2 ala, 3 tel, 4 skalli, 5 baunin, 6 ann, 7 tíu,
9 dálítil, 10 mátuleg, 12 nálægar, 13 montinn, 18 nekt, 20
al, 21 el, 23 dá, 24 úu.
/
Danir Evrópu-
Má ég núna koma inn og leika við ykkur?
FRÉTTIR/MANNAMÓT
I DAG er þriðji sunnudagur
eftir trínitatis. Á morgun,
mánudag, hefst 28. vinnuvika
yfirstandandi árs.
FLÓINN skipulagður. í tilk.
í Lögbirtingablaðinu frá sam-
vinnunefnd um svæðisskipu-
lag í Flóanum og skipulags-
stjóra ríkisins segir að lögð
hafi verið fram, almenningi
til sýnis, skipulagstillaga að
svæði því sem heitir „Skipu-
lagssvæði Flóa 2011“. Tillag-
an nær yfir núverandi og fyr-
irhugaða byggð á skipulags-
tímabilinu í þeim sveitarfélög-
um sem aðild eiga að sam-
vinnunefndinni um skipulag í
Flóa. Ér skipulagstillagan til
sýnis á sjö stöðum: í hrepps-
skrifstofum Stokkseyrar- og
Eyrarbakkahreppa, í bæjar-
skrifstofum Selfoss, í Þjórsár-
veri, í Villingaholtshreppi, í
félagslundi í Gaulverjabæjar-
hreppi og í skrifstofu oddvita
Hraunsgerðishrepps og Sand-
víkurhrepps. Tillagan er til
sýnis á þessum stöðum til 15.
þ.m. Hugsanlegum athuga-
semdum á að skila fyrir 29.
þ.m. á ofantöldum stöðum.
GERÐUBERG, félagsstarf
aldraðra liggur niðri vegna
sumarleyfa frá 6. þ.m. til 17.
ágúst nk.
RAUNVISINDASTOFNUN.
í Lögbirtingi tilk. mennta-
málaráðuneytið að dr. Þórður
Jónsson hafí verið ráðinn til
starfa sem sérfræðingur við
stærðfræðistofu Raunvís-
indastofnunar Háskóla ís-
lands.
BARNADEILD Heiisu-
vemdarstöðvarinnar, Baróns-
stíg, hefur opið hús fyrir for-
eldra ungbarna á þriðjudag-
inn kemur kl. 15-16. Þór-
gunna Þórarinsdóttir Qallar
um ungbarnanudd.
LÁTA af embætti. Mennta-
málaráðuneytið tilk. í Lög-
birtingi að Andra ísakssyni,
prófessor { uppeldisfræði við
félagsvísindadeild Háskólans,
sé veitt lausn frá embætti frá
1. ágúst nk., að eigin ósk.
Þá hefur Soffía Ingadóttir,
skrifstofustjóri Þjóðskrár í
Hagstofunni, fengið lausn frá
embætti frá fyrsta þ.m., að
eigin ósk.
AGLOW, kristileg samtök
kvenna, halda mánaðarlegan
fund mánudag 6. þ.m. kl. 20.
Gestur fundarins verður Lilja
Óskarsdóttir, sem verið hefur
kristniboði í Kenýa en er á
förum til starfa í Eþíópíu.
Kaffiveitingar.
KENNARAHÁSKÓLINN
auglýsir í Lögbirtingi lausar
tvær stöður, sem veittar verða
frá 1. ágúst. Staða forstöðu-
manns Lestrarmiðstöðvar
Kennaraháskólans. Auk þess
sém væntanlegur forstöðu-
maður skal hafa lokið al-
mennu kennaranámi skal
hann hafa lokið a.m.k.
tveggja ára framhaldsnámi í
sérkennslufræðum. Hann
verður ráðinn til næstu fjög-
urra ára. Hitt starfið er um-
sjónarmannsstarf við farskóla
Kennaraháskólans. Umsjón-
armaðurinn hefur í umboði
rektors og skólaráðs umsjón
með almennu kennaranámi til
B.Ed-gráðu, sem skipulagt
verður með fjarkennslusniði
og hefst á vorönn 1993. Gerð
er krafa um reynslu af stjóm-
un, skólastarfi og tilskilið er
háskólapróf o.fl. I þetta starf
er ráðið til tveggja ára.
SILFURLINAN s. 616262.
— Síma- og viðskiptaþjónusta
við eldri borgara virka daga
kl. 16-18.
BRÚÐUBÍLLINN verður á
morgun kl. 10 í Dalalandi og
kl. 14 á Amarbakka.
SERFRÆÐINGAR. í tilk.
frá heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytnu segir að Jóni
Guðmundssyni lækni hafí ver-
ið veitt leyfi til að starfa sem
sérfræðingur í myndgrein-
ingu brjóstholslíffæra, sem
undirgrein við geislalækning-
ar. Björn Einarsson læknir
hefur fengið sérfræðingsvið-
urkenningu frá ráðuneytinu
til að starfa sem sérfræðingur
í almennum lyflækningum
með öldrunarlækningar sem
undirgrein. — Og Óttari Guð-
mundssyni Iækni hefur verið
veitt leyfí til að starfa sem
sérfræðingur í geðlækning-
um. Sérfræðingsleyfi sem
hann hafði áður var fellt nið-
ur.
FÉLAG eldri borgara. í
kvöld kl. 20 verður dansað í
Goðheimum. Á þriðjudag er
Pétur Þorsteinsson til viðtals
í Risinu e.h. Panta þarf við-
talstíma á skrifstofu félags-
ins.
KIRKJUSTARF
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Fundur í æskulýðs-
félaginu kl. 20.30 í kvöld.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
Reykjafoss fór á miðnætti
aðfaranætur laugardags á
ströndina. Þýska eftirlitsskip-
ið Fric(jof fór út aftur í gær.
Á morgun er Brúarfoss
væntanlegur að utan.
ORÐABOKIN
Reykjavík — Rvík
Þegar ekið er um Reykja-
vík, sjást víða skilti, þar
sem vísað er til vegar til
ýmissa hverfa borgarinn-
ar. Á þeim mörgum stend-
ur borgarheitið ýmist full-
um stöfum Reykjavík eða
er skammstafað Rvk eða
jafnvel R, oft vegna rým-
isins, en þó ekki alltaf.
Þegar ég var í skóla, var
kennt að skammstafa
Rvík og eins Khöfn fyrir
Kaupmannahöfn, þ.e. rita
seinni liðinn alltaf fullum
stöfum, og svo mun
standa í kennslubókum.
Illa fer líka á því að stytta
nafnið vík í vk, jafnvel
þótt það sé seinni liður
samsetts orðs. Á mörgum
þeim skiltum, sem ég hef
séð, er auðvelt að nota
-vík og rita Rvík. Þegar
Reykjavík var lítið þorp,
mun nafnið jafnvel á
stundum hafa verið stytt
í Vík. Var talað um Vík-
ina. Það mun nú horfíð.
Sú stytting þekkist samt
enn um bæjarheiti, sem
enda á vík. Þannig mun
Bolungarvík oft vera
nefnd Víkin af íbúunum.
Slíkar styttingar eru eðli-
legar. Þá þekkist einnig
skammstöfunin R.v.k. á
Reykjavík. Okkur var í
þessu sambandi kennt, að
ekki tæki meiri tíma að
skrifa í í vík en setja
punktinn á milli. Sú regla,
sem kennd hefur verið,
að rita seinni liðinn í
Reykjavík fullum stöfum,
er mjög skýr. Því hefði
bæði verið réttara og fal-
legra að fara eftir henni
og skrifa einungis á skilt-
in Reykjavíkeða Rvík.
— JAJ