Morgunblaðið - 05.07.1992, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992
STJORNLAGADOMSTOLAR I MIÐ- OG AUSTUR-EVROPU
Útverðir í landvinningum
réttarríkisins
Ungverski stjórnlagadómstóllinn að störfum. Vafasamt er að nokkurs staðar í heiminum hafi sam-
bærilegur dómstóll jafn mikil völd.
RÉTTARRÍKIÐ heldur innreið
sína í Mið- og Austur-Evrópu.
I stað alræðis kommúnismans
kemur lýðræðisleg sljórnskip-
an þar sem stjórnarskráin er
kjölfesta réttarríkisins. Víða
hefur verið komið á fót stjórn-
lagadómstólum að þýskri fyrir-
mynd sem standa eiga vörð um
stjórnskipunarlögin og meta
hvort lög og reglugerðir stang-
ist á við þau. Dómstólar þessir
hafa mismunandi völd. Ung-
verjar hafa gengið hvað lengst,
sljórnlagadómstóllinn þar
fengið tæplega fjögur þúsund
mál til afgreiðslu á tveimur
fyrstu starfsárum sínum. Ann-
ars staðar, eins og í Rúmeníu,
gengur hægt að innleiða slíka
nýskipan.
egar á sjötta áratugnum
fjarlægðist Júgóslavía
stalínska stjómarhætti. Á
grundvelli stjómarskrárinnar frá
árinu 1963 voru stjórnlagadóm-
stólar settir á stofn í lýðveldunum
sex og báðum sjálfstjórnarhéruð-
unum. Þeir fengu þó ekki að láta
mikilvægar pólitískar spurningar
til sín taka. Dómstólarnir fengust
einkum við það að meta hvort
sveitarstjórnir og atvinnufyrir-
tæki færu út fyrir valdsvið sitt
með ákvörðunum sínum og sam-
þykktum. Það var ekki fyrr en
eftir að Slobodan Milosevic hóf
útþenslustefnu Serbíu árið 1987
að mikilvæg pólitísk álitamál
komu til kasta stjórnlagadómstól-
anna. Vörðuðu þau einkum kröfur
lýðveldanna Króatíu og Slóveníu
um fullveldi. í janúar 1990 felldi
stjórnlagadómstóll Júgóslavíu
þann dóm að sjálfsákvörðunar-
réttur lýðvelda og þjóða Júgóslav-
íu heimilaði þeim að lýsa yfir sjálf-
stæði. Þetta yrði þó að gera í
samráði við aðra hlutaðeigandi. í
framhaldinu reyndu Slóvenar og
Króatar að semja um sjálfstæði
sitt við önnur lýðveldi Júgóslavíu
en slík viðleitni strandaði á
ósveigjanlegri andstöðu Serba og
, - Svartfellinga. Lýstu Slóvenar og
Króatar þá einhliða yfir sjálf-
stæði. Stjórnlagadómstólnum í
Belgrad gafst ekki tími til að
meta hvort sú ákvörðun stæðist
gagnvart stjórnskipunarlögum
Júgóslavíu. Dómstóllinn leið svo
undir lok í borgarastytjöldinni líkt
og Júgóslavía sjálf.
Slóvenar og Króatar hafa nú
stofnað sjálfstæða stjórnlagadóm-
stóla að þýskri fyrirmynd. I Serb-
íu og Makedóníu hefur ekki verið
hróflað við gömlu réttarskipaninni
og merkja má afturför í Serbíu
að því leyti að stjórnlagadómstól-
arnir í héruðunum Vojvodina og
Kosovo hafa verið lagðir niður.
Á mörkum nýja og gamla
tímans
Stjórnlagadómstóll tók til
starfa í Póllandi í desember 1985.
Starfsemi hans mótaðist nokkuð
af þeirri kenningu kommúnismans
að allt ríkisvald eigi sér eina rót
og hana megi ekki kljúfa. Þrí-
skipting ríkisvaldsins eins og hún
tíðkast á Vesturlöndum var því
andstæð kommúnismanum. Sjálf-
stæði dómstóla og vald til að
hnekkja lagasetningu var ekki
talið æskilegt markmið vegna
þess að dómstólar væru stofnanir
sem ekki væru valdar með jafn
„lýðræðislegum hætti“ og þjóð-
þingin. Pólski stjórnlagadómstóll-
inn hafði því einungis heimild til
að lýsa því yfir að lög stönguðust
á við stjórnarskrá ríkisins en ekki
vald til að fella þau úr gildi. Á
árunum 1986-1991 tók dómstóll-
inn 150 mál fyrir og var þar eink-
um um að ræða reglugerðir fram-
kvæmdavaldsins. Gegndi hann
mikilvægu hlutverki við að setja
bönd á tilskipanagleði fram-
kvæmdavaldsins. Þær kröfur ger-
ast nú æ háværari að dómstóllinn
fái aukin völd I hendur.
Ungversk réttarvitund
Höfundar stjórnarskrár Ung-
veijalands voru gagnteknir mikilli
ást til réttarríkisins að því er virð-
ist. Vafasamt er að nokkurs stað-
ar í heiminum hafi stjórnlagadóm-
stóll jafn mikil áhrif. Hver einasti
borgari getur hvenær sem er
kvartað yfir hvaða réttarreglu
sem er án þess að hann hafi nokk-
urra sérstakra hagsmuna að
gæta. Ungverskur almenningur
hefur nýtt sér þessa heimild í rík-
um mæli og árin 1990-1991 bár-
ust dómstólnum 3.927 kvartanir,
þar af 3.284 frá almenningi.
Tveimur af hverjum þremur kær-
um var vísað frá vegna þess að
þær voru utan verksviðs dómstóls-
ins. Eigi að síður hefur hann kveð-
ið upp 237 dóma og fellt 100 laga-
greinar úr gildi í heild eða að
hluta. Málefnin sem dómstóllinn
hefur fjallað um eru íjölbreytt og
sum hver mjög mikilvæg. Má þar
nefna fóstureyðingar, dauðarefs-
ingu, bætur fyrir eignarnám í tíð
kommúnista, fyrningu glæpa úr
stjórnartíð kommúnista og skyldu
kommúnistaflokksins til að gera
grein fyrir eigum sínum. Ung-
verska fyrirkomulagið hefur leitt
til mikils álags á dómarana og
vafalaust verður reynt á næstunni
að fækka kæruleiðum en á hinn
bóginn hefur þessi skipan orðið
til auka umræðu um breytta
stjórnskipun og þannig eflt réttar-
vitund þjóðarinnar.
Jeltsín möglaði ekki
Af fimmtán fyrrum lýðveldum
Sovétríkjanna hefur einungis
Rússland sett á stofn eigin stjórn-
lagadómstól. Hugmyndir eru uppi
um sameiginlegan stjórnlagadóm-
stól allra fyrrum Sovétlýðvelda.
Ljóst virðist að Eystrasaltsríkin
muni ekki taka þátt í slíku heldur
fela hæstarétti mat á því hvort Iög
standist gagnvart stjórnarskrá
líkt og tíðkast á Norðurlöndum, í
Bretlandi og Bandaríkjunum.
Rússneski stjómlagadómstóllinn
hóf störf um síðustu áramót.
Vakti hann þegar á fyrstu mánuð-
um athygli með tveimur dómum
sínum. Hinn 14. janúar felldi dóm-
stóllinn úr gildi tilskipun Borísar
Jeltsíns forseta um sameiningu
innanríkisráðuneytisins og örygg-
islögreglunnar, KGB. Stríddi slík
samþjöppun þvingunarvalds gegn
grundvallarviðhorfum um tempr-
un ríkisvaldsins. Hinn 13. mars
lýsti dómstóllinn því yfir að fyrir-
huguð þjóðaratkvæðagreiðsla í
Tatarstan færi í bága við stjórnar-
skrána. Spumingin sem borin var
undir kjósendur var talin loðin og
lítt skiljanleg en þó þannig gerð
að hægt yrði að nota jákvætt svar
sem röksemd fyrir aðskilnaði lýð-
veldisins við Rússland. Jeltsín
hafði beygt sig þegjandi og hljóða-
laust undir dóminn er varðaði
hans störf en stjórnvöld í Tatarst-
an létu sér fátt um finnast og
héldu þjóðaratkvæðagreiðsluna.
Naumur meirihluti galt jákvæði
og nota stjórnvöld nú þá niður-
stöðu í baráttu fyrir auknu full-
veldi.
Prófraun búlgörsku
dómaranna
Hvað önnur fyrrum kommún-
istaríki í Evrópu varðar þá hafa
stjórnlagadómstólar nýverið tekið
til starfa í Búlgaríu og Tékkóslóv-
akíu. í rúmensku stjómarskránni
sem samþykkt var í desember síð-
astliðnum er einnig gert ráð fyrir
stjórnlagadómstóli þótt enn hafi
ekki verið sett nauðsynleg lög um
starfshætti hans. Búlgarski dóm-
stóllinn stóð fyrr á þessu ári
frammi fyrir erfiðu úrlausnarefni.
Nokkrir fyrmm kommúnistar
lögðu fram kæru og héldu því
fram að stjómmálaflokkurinn
Hreyfing fyrir réttindum og frelsi
starfaði í andstöðu við stjórnar-
skrána. Þessi hreyfing, sem berst
fyrir réttindum tyrkneska minni-
hlutans, gegnir lykilhlutverki
vegna þess að stjómarflokkurinn,
Samband lýðræðisaflanna, er háð-
ur stuðningi hans. Samkvæmt 11.
grein búlgörsku stjórnarskrárinn-
ar eru stjórnmálaflokkar sem
starfa á grundvelli þjóðemis eða
trúarbragða bannaðir. Stjórnlaga-
dómstóll er að Öllu jöfnu bundinn
af stjórnarskránni en hæpið er að
þessi grein sé í samræmi við þjóð-
réttarlegar skuldbindingar Búlg-
aríu. Hinn 21. apríl síðastliðinn
ákvað dómstóllinn með naumum
meirihluta að vísa kæmnni frá.
Þar með stuðlaði hann að innan-
ríkisfriði, jók álit ríkisins erlendis
og auðveldaði um leið Evrópuráð-
inu að taka Búlgaríu í sínar raðir
en það gerðist 7. maí síðastliðinh.
Hcimild: Frankfurter Allgcmcinc Zeitung
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
Tegund: Obar Litur: svartur
Ný sending af
LLOYII
Póstsendum samdægurs. 5% staðgreiðsluafsláttur.
Domus Medica, Kringlunni,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-12,
simi 16519 sími 689212
J
Tannlæknir
Hef opnað tannlæknastofu á Stórhöfða 17 (fyrir ofan
íslandsbanka) við Gullinbrú.
Tímapantanir í síma 682320.
Sveinbjörn Jakobsson, tannlæknir.
Pltseruðu pilsin
komin aftur,
einlit og doppótt.
Vorum einnig að taka upp, beint frá París,
svört kjólefni með hvítu smámynstri.
Póstsendum.
DÖMU- OGHERRABÚÐIN,
Laugavegi 55, sími 18890.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI.
KASTRUPFLUGVELLI
OG ÁRÁÐHÚSTORGI
V