Morgunblaðið - 05.07.1992, Qupperneq 15
15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1992
i
I
Maðurinn er eins og dýr í varnar-
stöðu eða árásarhug. Sé fólk í þann-
ig ástandi í fleiri fleiri daga safnast
upp spenna sem það á oft erfitt með
að losa sig við. Þá er rétt að nefna
að ferðir innanlands eru ekki alltaf
til ánægju; það getur verið ósam-
komulag vegna þess að annað hjóna
veit ekkert skemmtilegra en að sofa
í tjaldi en hinn aðilinn þolir það ekki.
Börnin eru leið á langkeyrslum,
streita magnast, vegarykið, veðrið
og skipulagsleysið ergir.“
Líkamleg óþægindi eru af ýmsum
toga. í sólarlandaferðum fá alltaf
einhveijir í bakið af legum á gijót-
hörðum sólbaðsbekkjum. Þá segir
Jóhanna mikla drykkju, t.d. hjá fólki
sem er óvant henni heima hjá sér,
vera gffurlegt álag á taugakerfíð og
fólk snúi heim skjálfandi á beinunum.
Að sögn Kjartans Pálssonar, farar-
stjóra hjá Samvinnuferðum-Land-
sýn, hefur drykkja í sólarlandaferð-
um íslendinga, sem oft hefur verið
vitnað til, hins vegar minnkað mikið.
Innkaupaferðir hafa reynst mörg-
um erfiðar. „Þær eru líklega mesta
geggjunin. Fólk fer í örfáa daga til
að kaupa inn eins og neyð sé yfírvof-
andi segir Jóhanna. “í þessum ferð-
um er óhemju mikill burður og þegar
við bætist heitt loftslag og allt of
mikil eyðsla, sem aftur veldur mikl-
um peningaáhyggjum, er ekki von á
góðu. Og fólk veit svo sem hveiju
það á von á, síðasta vetur báðu all-
margir sem voru í meðferð hjá mér
um að ég gerði þá nú góða fyrir slík-
ar ferðir. I innkaupaferðum, svo og
t.d. skoðunarferðum, et oft um að
ræða fólk sem hreyfír sig lítið sem
ekkert alla jafna en gengur svo fleiri
kílómetra á gijóthörðum gangstétt-
um og það á misgóðum skóm. Það
er geysilega érfítt fýrir fætur og
bak, fólk er með blöðrur og sár inn
að beini á fótum og með verk í baki
og öxlum.“
Jóhanna segir að þeir sem kunni
að ferðast sé fólk sem skipuleggi
ferðimar vel, nái að slappa af og
komi endurnært heim. „Það er það
sem við viljum auðvitað öll og við
ættum að hafa í huga að við náum
því aldrei að sjá allt og gera allt sem
markvert telst í útlöndum og því
ættum við að einbeita okkur að því
að njóta þess sem best sem við ákveð-
um að gera.“
íslendingar kröfuharðir
Hvaða væntingar gera ferðamenn
sér um fríið áður en lagt er af stað?
Það er að heyra á starfsfólki ferða-
skrifstofa að íslenskir ferðamenn séu
ákaflega kröfuharðir um leið og
Skómir
björguðu
DÁLÍTIL fyrirhyggja getur
hæglega komið í veg fyrir að
óhöpp geri ferðalagið að sann-
kallaðri fýluferð. f tilfelii Rann-
veigar ívarsdóttur voru það
kaup á íþróttaskóm sem gerðu
langar skoðunarferðir bærileg-
ar fyrir fætur og bak.
Rannveig vissi alveg á hveiju
-hún átti von í fyrirhugaðri
ferð sinni til Kaupmannahafnar
fyrir skemmstu. Ætlunin var að
skoða það sem markverðast var
í borginni, sem þýddi miklar
göngur á steinsteyptum gang-
stéttunum. Og niðurstaðan hefði
hæglega getað orðið helaumir
fætur og bak. „Áður en ég fór
var ég í meðferð hjá sjúkraþjálf-
ara sem ráðlagði mér eindregið
að kaupa mér íþróttaskó til að
ganga á. Ég gerði eins og mér
var sagt og keypti á mig og
dóttur mína fyrsta daginn I
Kaupmannahöfn. Það er kannski
ekkert sérlega glæsilegur fóta-
búnaður en í útlöndum er manni
nokk sama í hvetju maður geng-
ur. Við vorum því ófeimnar á
skónum og fundum ekki fyrir
verkjum í fótunum. Vinkona
okkar var ekki eins heppin því
hún var á nýjum hælaskóm og
var lurkum lamin eftir nokkurra
daga göngur um götur Kaup-
mannahafnar."
margir geri ekki nægar kröfur til
sjálfra sín um undirbúning. „Ferða-
mátinn gefur oft til kynna hvaða
væntingar fólk gerir sér og margir
hafa kynnt sér efni ferðabæklinga
vandlega. En auðvitað eru þeir ekki
síður margir sem skipuleggja ekki
nógu vel eigin ferðir," segir Gyða
Sveinsdóttir hjá Samvinnuferðum-
Landsýn. Gyða segir að þeir ferða-
menn sem leggi eigin drög að ferðum
verði að muna að hafa þau opin.
Þeir verða að gera ráð fyrir því að
geta breytt áætlun, mæta óvæntum
uppákomum og ættu að hafa smá-
stund lausa til að hvflast. Á því vilji
því miður verða misbrestur.
Allt fyrir ekkert
Líklega þekkja engir betur til ís-
lendinga á ferðalögum en fararstjór-
ar. Kjartan L. Pálsson, fararstjóri
hjá Samvinnuferðum Landsýn, segist
verða allnokkuð var við áráttu sumra
ferðamanna að fínna öllu allt til for-
áttu. „Ég verð meira var við slíkt
hjá eldra fólki, það er oftar yfírstress-
að en yngra fólkið, sem er meira
sjálfbjarga. Fólk kvartar yfir ýmsu;
það yfirgefur stóru fallegu húsin sín
til að dvelja í hótelherbergi og er
ekki alltaf sátt við það þegar á hólm-
inn er komið. Sumir ferðamenn vilja
fá allt fyrir nærri því ekki neitt, yfir-
leitt heyrist hæst í þeim sem minnst
vilja borga. Þá telja margir þeirra
sem fara til sólarlanda að þar eigi
alltaf að vera sól og bregðist það
heyrist jafnan hljóð úr homi.“
í starfi sínu sem fararstjóri hefur
Kjartan einnig haft afskipti af fólki
sem tekur vandamálin með að heim-
an og virðist helst ætlast til þess að
þau leysi sig sjálf. Slíkt segir hann
að bitni hins vegar oft á öðrum, t.d.
bömunum. „Það er stundum mikið
stress, redda á hlutunum og gera svo
margt að þeir em til sem koma upp-
gefnir heim úr fríinu. Hins vegar
sýnist mér stressið ijúka úr flestum
eftir nokkra daga og þá nær fólk
að slappa af. Þegar líður að heimfor
magnast spennan á nýjan leik, til-
hlökkun að koma heim en kvíði fyrir
daglega amstrinu um leið. Ég held
þó að fólk velti hlutunum meira fyr-
ir sér nú en áður og fínn stóran mun
á landanum til batnaðar."
Að læra af reynslunni
Hér að framan hefur aðeins verið
tæpt á litlum hluta þess sem íslend-
ingar taka sér fyrir hendur í sumar-
leyfínu. Fjöldamargir snúa heim end-
urnærðir úr fríi sem stóðst allar
væntingar, fríi sem reyndist öðrum
nærri ofviða. En lærir fólk af mis-
lukkuðum ferðalögum? „Ekki ailir,“
segir Nanna K. Sigurðardóttir.
„Dæmi eru um að fólk vinni ekki
úr þessum ágreiningi, læri ekki af
reynslunni og eftir nökkur „mis-
heppnuð" frí hættir það að fara sam-
an í frí.“
Jóhanna S. Sigurðardóttir segist
ekki þora að segja hvort ferðalög sem
einkennast af streitu frá upphafi til
enda séu að aukast. Það sé hins veg-
ar ljóst að sumir geri sömu mistökin
aftur og aftur. „Þeir virðast telja að
svo óheppilega hafi viljað til í þetta
sinn að ferðin gekk illa. Þá eru sum-
ir óskaplega vonsviknir og reyna að
finna sér blóraböggul, sem oft er
ferðaskrifstofan. En sem betur fer
eru þeir líka margir sem sjá hver
ástæðan var; einfaldlega of mikið
álag, ákafi í þeim sjálfum og enginn
tími til að njóta augnabliksins.“
GOÐ RÁÐ TIL FERÐALANGA
Jóhanna S. Sigurðardóttir sjúkraþjálfari hefur
gefið ferðalöngum nokkur góð ráð til að draga
úr streitu í tengslum við ferðalög.
Pest vinnandi fólk fær nokkurra vikna sumarleyfí
og ætti að gera ráð fyrir því að slappa af heima
í nokkra daga áður en lagt er af stað í ferðalag til
að draga úr þeirri spennu sem óhjákvæmileg er við
upphaf og lok frísins. Það á alls ekki að vinna til
hádegis þegar lagt er af stað um kaffíleytið og redda
síðustu atriðunum á leiðinni út úr bænum. Það fyrsta
sem maður man þegar af stað er komið er að eitt-
hvað gleymdist og því verður fyrsta verkið á áfanga-
stað að ganga frá því atriði. Hjá utanlandsförum má
svo ekki gleyma öllu álaginu sem fylgir þvi að koma
til útlanda og þurfa ef til vill að byija á því að fínna
út hvemig maður kemst t.d. á hótelið. Þá er gott að
vera búinn að skipuleggja daginn; átta sig á þvi hvað
tekur við að flugferð lokinni. í flugferð eiga sér stað
ýmsar lífeðlisfræðilegar breytingar í líkamanum og
menn verða því að gefa sér tíma til að jafna sig eftir
flugferðina.
Aður en lagt er af stað heim á leið er rétt að reyna
að búa þannig um hnútana að síðustu dagamir í ferða-
laginu séu sem rólegastir og best er að taka sér frí
í nokkra daga heima áður en vinna hefst að nýju.
Eins og áður hefur verið nefnt skiptir undirbúning-
ur miklu. Ferðalangar ættu að ákveða hvað þeir vilja
gera og samræma óskir þeirra sem ferðast saman
áður en lagt er af stað, ekki í sjálfu ferðalaginu. Einn-
ig er mikilvægt að fólk átti sig á takmörkunum sínum
og ætli sér ekki of mikið á of stuttum tíma.
Samvrhnuferðir - Landsýn býður Islendingum upp á ógleyman-
lega skoðunarferð til Malasíu með viðkomu í Thailandi og
Singapore dagana 21. október -13. nóvember. Fagurskreytt
musteri, risavaxin Búddalíkneski úr skíragulli, hellamusteri,
eplagarðar og jarðaberjaakrar, blaktandi pálmar á hvítum
ströndum, fljótandi markaðir,
BBk. 1 Langkawi, undurfagur og ósnortinn
RíWJ eyjaklasi, fiðrildabúgarður og
snákamusteri, er aðeins brot af
l#f* y! mnf ÆKkl ÞVI sem geíur að líta ' Þessum
fff \ WÁ löndum dulúðar og töfra.
F % En Þ°tt margt se a® skoða og
* J víða farið, munum við gefa
■ m. okkur góðan tíma til að slaka
1 —, n ILIy: rækilega á annað veifið enda
K aðstæður til slíkra hluta vægast
E' Jir~-J~sagt frábærar á þessum slóðum
B - einstök þjónusta, óviðjafnan-
legar strendur og glimrandi
golfvellir!
1 Með þessu ferðalagi komumst
;y i PU við i snertingu við ótrúlega
F náttúrufegurð og heillandi and-
rúmsloft. Góða skemmtun!
" JjHÉÍgpHM Verð á mann í tvíbýli: 199.800 kr.
bafa' J Verð á mann í einbýli: 252.600 kr.
I ‘ ------------Innifalið í verði: Flug, gisting með
j fssgí I morgunverði, allur akstur erlendis skv.
f t^I dagskráogislenskurfararstjóri.
I I Ekki innifalið í verði: Flugvallarskattur,
| forfallagjald og brottfararskattur i Singapore.
IMM I Verð er miðað við gengi og tlugverð 3. janúar
LfflLJHp |r*|,Ét 1992.
tmMffi BHMÉÍ FARARSTJÓRI: friðrik haraldsson.
M/SAS
Samviiiinilerðir-Laiiilsýii
Reykjavík: Austurstræti 12 • S. 91 - 691010 • Innanlandsterðir S. 91 - 6910 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 /
69 10 95 • Telex 2241 Hótel S09U við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 • 62 24 60
Akureifri: Sklpagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Slmbréf 96 - 2 40 87