Morgunblaðið - 14.07.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 14.07.1992, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C 157. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Bosnía: Rússland: Ottast fjöldamorð í tveimur borgum Sprengjum varpað að stöðvum SÞ Sar^jevo, Róm. Reuter, The Daily Telegraph. SERBAR hertu í gær árásir sínar á borgina Gorazde, sem er eina borgin sem þeir hafa ekki náð á sitt vald í austurhluta Bosníu. Um 40-70.000 manns, aðallega múslimar, hafa verið innikróaðir í borginni í þrjá mánuði og þeir óttast að fjöldamorð fylgi í kjölfar árásanna. Flóttamenn frá nágrannaborginni Foca segja að þúsund- ir múslima sem ekki urðu við tilmælum um að yfirgefa borgina hafi verið myrtir. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöldi að senda 500 gæsluliða til Sarajevo í viðbót við þá 1.100 sem eru þar nú. Útvarp múslima í Gorazde sagði í gær að sveitum Serba umhverfis borgina hefði borist liðsauki frá Serbíu og Svartfjallalandi með þyrlum júgóslavneska sambands- hersins. Þungum stórskotaliðs- árásum væri haldið uppi á borgina og rotnandi lík lægju óhreyfð á götunum. Stjórnir Bosníu og Króatíu báðu í gær öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að heimila loftárásir og aðrar aðgerðir gegn sveitum Serba við Gorazde og ann- ars staðar í Bosníu-Herzegovínu. Sveitir Serba eru einnig í sókn í norðurhluta Bosníu, nálægt landamærunum við Króatíu og þær hafa látið sprengjum rigna yfir borgina Mostar í Herzegovínu, þar sem Króatar hafa lýst yfír sjálf- stjórnarsvæði. Blaðamaður The Daily Telegraph, sem ferðast hefur um átakasvæðin, segir að erfítt sé að segja hvort aðgerðir Serba séu samræmdar, en sveitimar hafí vopn og vistir til margra ára hem- aðar og viðskiptabannið á Serbíu hafí ekki bein áhrif á Serba í Bosniu-Herzegovínu. Ellefu skip undir yfírstjóm NATO og Vestur-Evrópusam- bandsins (VES) eru nú á Adría- hafí og reyna að framfylgja við- skiptabanninu á Serbíu og Svart- fjallalandi með því að krefja skip svara um farm þeirra og áfanga- stað. Hins vegar er þeim ekki heim- ilt að senda menn um borð. Forsvarsmenn Sameinuðu þjóð- anna í Sarajevo segja áframhald- andi bardaga þar stefna flutningi hjálpargagna í bráða hættu. í gærkvöldi var þrettán sprengjum varpað að aðalstöðvum gæsluliðs SÞ í Sarajevo með þeim afleiðing- um að einn unglingur lét lífíð og fjórir særðust. Keuter Múslimar í Sarajevo syrgja 25 ára gamlan hermann, sem þeir segja að hafi verið skotinn til bana af leyniskyttu þegar hann reyndi að bjarga særðri konu af götu í borginni. 25 milljón skjöl sögð eyðilögð Moskvu. The Daily Telegraph. HÁTTSETTUR maður innan Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna fyrirskipaði eyðileggingu 25 milljóna skjala á síðasta ári til að hylma yfir ólöglega starf- semi flokksins. Þessu var haldið fram í gær í vitnaleiðslum stjórn- lagadómstóls í Moskvu, sem skera á úr um hvort bann á starfsemi Kommúnistaflokksins sé löglegt. Að sögn Andrei Makarovs, full- trúa andstæðinga kommúnista, gaf varaformaður Kommúnistaflokks- ins, Vladimir Ivashko, þessa fyrir- skipun út í mars í fyrra. Þetta sýndi að iðrun flokksfélaga vegna gamalla synda væri yfírdrepsskapur. Valentin Kuptsov, síðasti formað- ur rússneska Kommúnistaflokksins, sagði að yrði bannið á flokknum staðfest gæti það gefíð lagalega tylliástæðu til að hefja „nornaveið- ar“ á flokksfélögum, en þeir voru 18 milljónir í Sovétríkjunum þegar mest lét. Kommúnistaflokkurinn var lýstur ólöglegur eftir hið misheppn- aða valdarán harðlínumanna í ágúst í fyrra. Yitzhak Rabin forsætisráöherra ísraels: Reiðubúinn að fara til höfuð- borga araba til að ræða frið Jerúsalem, Washington. Reuter. YITZHAK Rabin, sem tók við sem forsætisráðherra ísraels í gær, bauðst til að sækja heim leiðtoga arabaþjóða til að ræða frið auk þess sem þeir væru velkomnir til ísraels í sömu erindagerðum. Hanan Ashrawi, talsmaður Palestínumanna í viðræðunum, sagði að orð Rabins gæfu til kynna að alvara væri að baki stefnu ísra- ela um friðarviðræður. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkj- anna, hrósaði frumkvæði Rabins og tilkynnt var að hann færi í næstu viku til Miðausturlanda að ræða frið. Reuter Konur úr röðum landnema gyðinga á hernumdu svæðunum með slag- orðaspjöld utan við Knesset, ísraelska þingið, í gær. Þær hvöttu til þess að palestínskir hermdarverkamenn yrðu reknir úr landi. Bandaríkin: Hætt að framleiða efni í kjamorkusprengjur Kennebunkpork Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær að Bandarikin Dönsk fót- fimi heillar ferðamenn Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Evrópumeistaratitill Dana í knattspyrnu færir þeim um 5 milljarða ÍSK í tekjur vegna aukins ferða- mannastraums, að því að danska ferðamálaráðið hef- ur reiknað út. Ráðið segir Dani hafa skor- að þrennu í júnímánuði í keppninni um athygli almenn- ings. Fyrst hafí, Danir fellt Maastricht-samkomulagið og svo hafí þeir komið óundirbún- ir til leiks í Evrópukeppninni og lagt hvert knattspyrnustór- veldið á fætur öðru að velli. Þriðja atriðið telja Danir vera silfurbrúðkaup Margrétar drottningar og Hinriks prins. Reiknað er með að fjöldi gistinátta í Danaveldi aukist um hálfa milljón af þessum sökum. Það eru helst Þjóðveij- ar sem taldir eru vilja koma og sjá, fyrst þeim tókst ekki að sigra. Ashrawi sagði að mjög mikilvæg atriði hefðu komið fram í ræðu Rabins en áður hafa ýmsir tals- menn araba látið í ljós efasemdir um að það myndi breyta miklu að Rabin tæki við af harðlínumannin- um Yitzhak Shamir úr Likud- flokknum. „En við þurfum raun- verulega sönnun þess að þeir tali af heilum hug, eitthvað sem getur eytt óbragðinu eftir Likudstjóm Shamirs," sagði Ashrawi. Jórd- anskur heimildannaður sagði að Jórdanir myndu vart vilja heija beinar viðræður nema eitthvað mið- aði í samningunum um brottför ísraelshers frá hernumdu svæðun- um sem Palestínumenn byggja. „Ég býð konungi Jórdaníu og forsetum Sýrlands og Líbanons að stíga í þennan ræðustól Knessets [ísraelska þingsins], hér í Jerúsa- lem, til að ræða um möguleikana á friði," sagði Rabin skömmu áður en þingið gaf stjóm hans traustsyf- irlýsingu. „Til að þjóna friðinum er ég reiðubúinn að fara til Amm- an, Damaskus og Beirút í dag, á morgun,“ bætti hann við. Ráðherrann sagði að Palestínu- menn myndu ekki fá allar óskir sínar uppfylltar ef þeir féllust á hugmyndir hans um takmarkaða sjálfstjóm á eigin svæðum; ef til vill mætti segja hið sama um ísra- ela sjálfa. Hann hvatti Palestínu- menn til að grípa tækifærið sem nú byðist. „Glatið ekki tækifæri sem þið fáið kannski aldrei aftur." Er Rabin, sem er sjötugur að aldri, var vamarmálaráðherra árið 1987 reyndi hann að berja niður uppreisn Palestínumanna á her- numdu svæðunum, intifada, með valdi og hlaut viðumefnið „bein- bijótur" meðal þeirra. Við stjórnar- myndunina lagði hann mikla áherslu á þá stefnu sína að ná árangri í friðarumleitunum. Hann hyggst sjálfur stjóma beinum við- raeðum við araba og tók auk for- sætisráðuneytisins að sér vamar- málin þar sem hann telur að náið samhengi sé milli árangurs í við- ræðunum og þess hvernig til tekst við stjóm á hemumdu svæðunum. Sjá „Með nauman meirihluta ... “ á bls. 23. hefðu hætt framleiðslu plútón- íums og auðgaðs úraníums, sem eru nauðsynleg efni í kjarnorku- sprengjur. Bandaríkjastjóm sagði ákvörðun- ina lið í að stöðva útbreiðslu kjama- vopna og sagðist munu sækjast eftir alþjóðlegum stuðningi við þá við- leitni. Lee Feinstein, talsmaður hreyfingar sem berst fyrir takmörk- un vígbúnaðar, sagði ákvörðunina ráðast að rótum kjamorkuvandans og að því leyti væri hún jafnvel mikil- vægari en fækkun vopna. Þá væri það einnig mikilvægt frá umhverfis- sjónarmiði að stöðva framleiðslu geislavirkra efna eins og plútóníums.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.