Morgunblaðið - 14.07.1992, Side 4

Morgunblaðið - 14.07.1992, Side 4
4 soor I.r'M. m írjavrrvuíM fliQAjanuoflof/: MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992 Ánægja í langþráðu sólskini íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa svo sannarlega notið lífsins í sól- inni, sem skyndilega lét sjá sig eftir langt hlé. í miðbæ Reykjavíkur var í gær um að litast eins og í sólarlöndum, léttklætt fólk spókaði sig og börnin fengu ís. Sum þeirra brugðu sér líka í hringekju á Bakka- stæði, á meðan þeir eldri tefldu eina skák á útitaflinu. Samkvæmt veðurspá heldur blíðan áfram, hæg breytileg átt, víðast léttskýjað og hlýtt. Morgunblaðið/Sverrir VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 14. JULI YFIRLIT: Yfir (slandi og hafinu suðvesturundan er 1015 mb hæðarhrygg- ur sem hreyfist lítið, skammt norður af Skotlandi er 987 mb lægð sem hreyfist austnorðaustur. Hiti breytist lítið. SPÁ: Fremur hæg norðvestan- og vestanátt. Bjartviðri um allt land. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Vestan og norðvestan gola eða kaldi og skýjað eða úrkomulaust norðan- og norðvestanlands en hægviðri og bjartviðri annars staðar á landinu. Hiti verður 8 til 14 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG: Sunnan gola eða kaldi og skýjað austanlands en breytileg étt, gola eða kaldi og víða bjartviðri í öðrum landshlutum. Svarsími Veðurstofu islands — Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað r r r * / * r r * r r r r r * r Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Allir helstu vegir um landið eru nú greiðfærir. Fært er nú fjallabílum um mestallt hálendið. Þó eru eftirtaldar leiðir enn lokaðar: F78, úr Laugafelli í Kiðagil; Stórisandur og Hlöðuvallavegur. Uxahryggir og Kaldidalur eru opnir allri umferð. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA kl. 12.00 ígær UM HEIM að ísl. tíma Akureyri Reykjavlk hiti 16 14 veöur heíðskfrt heiðskírt Bergen 13 skýjað Helsinki 27 léttskýjað Kaupmannahöfn vantar Narssarssuaq 13 skýjað Nuuk 4 þokaígrend Ósló 21 hálfskýjað Stokkhólmur 23 hálfskýjað Þórshöfn vantar Algarve 32 heiðskírt Amsterdam vantar Barcelona 23 skýjað Berlín 22 skýjað Chicago 17 alskýjað Feneyjar 25 léttskýjað Frankfurt 20 skýjað Glasgow 15 skúrásíð. klst. Hamborg 21 skýjað London 20 alskýjað LosAngeles 21 alskýjaö Lúxemborg 18 skúr á sfð. klst. Madrid 32 heiðskírt Malaga 29 heiðskírt Mallorca 27 léttskýjað Montreal 16 skýjað NewYork 28 aiskýjað Orlando vantar Parls 22 skýjað Madelra 21 8kýjað Róm 26 skýjað Vín 21 skýjað Washington 27 skýjað Winnipeg 15 skýjað IDAG kl. 12.00 HelmiW: Veðuretofa íslands (Byggt ó veðurspá kl. 16.15 í gœr) Efni geta borist úr plastfilmum í mat NYLEGAR breskar rannsóknir hafa Ieitt i ljós að efni úr plastfilmum geti borist í mat sem þær eru vafðar um, einkum ef um er að ræða feitan mat. Hefur fólki verið ráðlagt að vefja filmunum ekki utan um feitmeti, eins og osta, feitt kjöt, kökur með súkkulaði- og/eða ijóma og matvæli sem innihaldi majones. Að sögn Ólafs Reykdal, matvæla- fræðings hjá Rannsóknarstofnun landbúnaðarins, hafa ekki verið gerð- ar rannsóknir á aðskotaefnum úr plastfilmum hérlendis. Hann segist hins vegar hafa heyrt um þetta rætt og þekki erlendar rannsóknir á þessu. Rannsóknir sem landbúnaðar-, sjávarútvegs-, og matvælaráðuneyti Bretlands lét gera árið 1986 leiddu í ljós að efni úr plastfilmunum bár- ust í mat við hitun í örbylgjuofnum. Ráðuneytið lagði áherslu á að þetta væri ekki hættulegt en mælti hins vegar með að filmurnar kæmu ekki við matinn þegar hann væri hitaður í örbylgjuofnum. Skömmu síðar kom á markað ný tegund plastfilma þar sem búið var að koma í veg fyrir að efni gætu borist í mat við hitun. Nýlegar rannsóknir ráðuneytisins hafa leitt í ljós að efni úr öllum teg- undum plastfilma berast í mat sem þær eru vafðar um, einkum feitan mat, jafnvel þó maturinn sé kaldur. Hefur fólki verið ráðlagt að vefja filmunum ekki utan um feitan mat. Ólafur segir hættuna á að efni fari úr plastinu í matinn einkum vera fyrir hendi ef maturinn sé fítu- ríkur, síður ef um þurr matvæli sé að ræða eins og grænmeti. Hann segir að um þessi efni gildi sama um önnur aðskotaefni, því minna sem berist af þeim í mat því betra. Ólafur segist ekki hafa orðið var við mikla hættu á að efni berist úr plasti sem pakkað sé utan um vörur í verslunum, helst sé hún fyrir hendi þar sem mat sé pakkað í lausu. Umrædd efni séu ekki í því plasti sem notað sé utan um ost hérlendis. -----» » «---- Grænlending- ar leita eftir samstarfi um ferðamál Samgönguráðherra Grænlend- inga, Ove Rosing Olsen, hefur lýst áhuga sljórnar sinnar á nánara samstarfi við ísiendinga um land- kynningu og ferðamál. Ráðherrann og ferðamálastjóri Grænlendinga hafa átt viðræður við yfirmenn ferðamála hérlendis og meðal annars leitað eftir að taka þátt í rekstri íslensku landkynning- arskrifstofanna í Frankfurt og Tókýó. Að sögn Birgis Þorgilssonar ferðamálastjóra er verið að kanna hvað aðild Grænlendinga myndi kosta og í hvaða formi samstarfið gæti orðið. Engar frekari ákvarðanir hafa verið teknar en Birgir segir að yfirmenn ferðamála hér séu fremur hlynntir nánari samvinnu við Græn- lendinga á þessu sviði. Bandaríkin: Fréttapistli frá íslandi útvarpað til 20 millj. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Mbl. ÍSLAND fékk mikla landkynningu í Bandaríkjunum i g’ærmorgnn, en þá var útvarpað fréttapistli sem David D’Arcy gerði um Artic Open golfmótið á Akureyri fyrir stuttu. Fréttin í heild var um 6 mínútur og fjallaði eingöngu um mótið. Fylgdu stutt viðtöl við nokkra kepp- endur o.s.frv. Þættinum var útvarpað í tveggja tíma daglegum fréttaþætti hjá Nat- ional Public Radio. Um 400 Nation- al Public útvarpsstöðvar sendu þátt- inn út til allra héraða Bandaríkj- anna og hlusta um 21 milljón manna á þennan þátt daglega. Hér er því um mikla landkynningu að Einar Gústafsson, framkvæmda- stjóri íslandsdeildar norræna ferða- málaráðsins í New York, annaðist fyrirgreiðslu fyrir þá fulltrúa NPR, sem fóru til íslands, en hann hafði einnig milligöngu um Islandsheim- sókn frétta- og sjónvarpsmanna frá mjög vinsælum ferðamálaþætti í sjónvarpi sem leggur áherslu á ferð- ir fyrir velstætt fólk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.