Morgunblaðið - 14.07.1992, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992
11
stólar telja sig geta seilst inn á það.
Að vonum á fræðimaðurinn erfitt
með að ná áttum. Vonandi tekst
dómurum að herða sig upp í að veita
framkvæmdavaldinu markvissara
aðhald á þessu viðkvæma sviði.
Umboðsmaður Alþingis, dr. Gauk-
ur Jörundsson, ritar um reglu eina,
sem hann nefnir meðalhófsreglu, og
telur bindandi grundvallarreglu í ís-
lenskum stjómsýslurétti. Regla þessi
hefur ýmis blæbrigði en segja má,
að kjarni hennar sé, að stjórnvöld
verði að gæta hófs við meðferð valds
síns og að taka verði tillit til and-
stæðra hagsmuna við ákvörðun vald-
marka stjórnvalda og fara þar meðal-
veg. Höfundur reifar dæmi um áhrif
reglu þessarar vð framkvæmd Mann-
réttindasáttmála Evrópu og í starfi
sínu sem umboðsmaður Alþingis.
Elsta oglíklega skýrasta svið meðal-
hófsreglunnar er valdbeiting lög-
reglu og reyndar er reglan lögfest
þar. Ætti að vera í fersku minni,
hvernig fór vestan hafs, þegar lög-
reglan gætti ekki meðalhófsins. Hóf-
semdarregla fólst bersýnlega í þeim
heilræðum, sem sverðasmiðurinn
vígalúni í kvæði Gríms Thomsens
kenndi sínum belgblásturssveini:
„Ofsanum skyldi enginn beita/of er
verst í hveijum hlut,/hófs er best og
lags að leita,/lánið situr þá í skut.
Ég sé í gamalli námsbók um þjóða-
rétt, að kafla, sem ber heitið „krigs-
retten", hefur verið sleppt. Líklega
hefur prófessorinn ekki talið hollt
ungum sálum að vita, að réttarreglur
giltu um þann hátt, sem valdstjórnir
hafa helst á lausnum ágreiningsmála
sinna. Nú leikur þessi speki lausum
hala í Gizurarbók í ritgerð dr. Páls
Sigurðssonar, prófessor um „mann-
úðarrétt". Menn geta leitað að þess-
um rétti á veraldarskjá sjónvarpsins.
Hitt er annað mál, að saga Rauða
krossins er ævinlega uppbyggilegt
lestrarefni.
Þór Vilhjálmsson, hæstaréttar-
dómari, kannar það athyglisverða
efni, hvort nauðsynlegt hafi verið
talið að setja stjórnarskrárreglur til
að stýra starfsemi stjórnmálaflokka
með hagsmuni borgaranna fyrir aug-
um. Kemur raunar ekki á óvart, að
þessi könnun hans leiðir í ljós, að
það eru einkum fyrrverandi alræðis-
ríki, fasísk og kommúnísk, sem sett
hafa reglur í stjómlög sín til að hemja
stjórnmálaflokka, enda hafa þau
vægast sagt bitra reynslu af starf-
semi þeirra. Kannski er óhætt að
nefna Proudhon núorðið og minnast
þeirra orða hans, að allir stjómmála-
flokkar, sem sælast eftir völdum, séu
einræðisafbrigði.
Síðasta ritgerðin í bókinni er eftir
Hjördísi Björk Hákonardóttur, borg-
ardómara, og nefnist „tungutak lög-
fræðinnar", sem mörgum finnst ill-
skiljanlegt. Telur Hjördís, að
lagamálið eigi að vera nákvæmt og
auðskilið. Það sé fallið til þess að
efla skilvirkni laga og réttar og örva
réttarvitund almennings. Vel má það
vera, þótt rökin fyrir því, að almenn-
ing varði meiru að skilja lagamálið
en sérfræðimál annarra greina, liggi
ekki í augum uppi. Þarf reyndar
ekki að miða þessar kröfur við leik-
menn. Lögfræðingar virðast oft eiga
í mesta basli að skilja óskýra laga-
texta og grautarlega dóma. Höfund-
ur telur, að lítið samfélag eins og
það íslenska geti frekar búið við fáar
meginreglur og knappa löggjöf en
stærri þjóðir. Það þykir mér bjart-
sýni. Nýsamþykkt réttarfarslöggjöf
og EES-beðjan, sem nú liggur fyrir
Alþingi, gefa ekki góð fyrirheit um
þetta.
Nú blómstrar lögfræðin á Vestur-
löndum í gróskumiklum frumskógi
laga og reglna. Þrætumálum fjölgar
og kærur og kvartanir hrannast upp.
Langar biðraðir eru við dómstóla og
stjómsýslustofnanir og hvergi sem á
íslandi. Nú er treyst á „rule of law“
og síst skal það lastað. Kannski kem-
ur að því, að réttlætinu verði útdeilt
í neytendaumbúðum við vægu verði.
Allt er heldur yfírbragðsmikið til að
sjá. Samt eru minnisstæð þau orð,
sem íslenskur heimilismaður í British
Museum, dr. Jón Stefánsson, hafði
eftir virðulegum pasja í Marokkó.
Þá höfðu Frakkar tekið landið í
gæslu. Pasjann mælti yfir græntteið:
„Á pappímum er meira réttlæti, en
gamla ranglætið var bæði viðunan-
legra og skemmtilegra. Þá var þræta
lögð fyrir dómara og hann skar úr
henni strax. Nú er tímanum eytt -
og peningunum líka með alls konar
lagaflækjum."
Með vökvastýri • 5 gíra eða sjálfskiptur
1300cc • 16 ventla • Bein innspýting • 90 hestöfl
KOSTAR STAÐGREIDDUR, KOMINN Á GÖTONA FRÁ: