Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992 Hjóluðu frá Mosfells- bæ til Siglufjarðar „ÞETTA var virkilega gaman, eiginlega ólýsanlega skemmtilegt og alls ekkert erfítt,“ sagði Sigþóra Gústafsdóttir í Siglufírði, en hún og fjórar konur aðrar hjóluðu frá Mosfellsbæ norður til Siglufjarðar. Hópurinn lagði af stað síðastlið- inn laugardag og í fyrsta áfanga var hjólað að hvalstöðinni í Hval- firði, síðan næsta dag að Hreða- vatnsskála, þá að Laugarbakka og loks að Húnaveri. Þaðan var hjólað Þakkir til leitar- og björgnn- armanna Hugheilar þakkir færum við öllum þeim fjölmörgu fómfúsu aðilum sem tóku þátt í leitar- og björgunarstarfi þegar ástkær sonur okkar, unnusti, bróðir og tengdasonur, Sigurður Bern- harð Hauksson, fórst með flug- vélinni RF—IVI þann 3. júlí sl. Sérstakar þakkir færum við björgunarsveitarmönnum, starfsfólki Landhelgisgæslunn- ar, varnarliðs, flugmálastjórnar og lögreglunnar. Þá viljum við einnig þakka þeim fjölmörgu einka- og atvinnuflugmönnum svo og öðrum einstaklingum sem einnig tóku virkan þátt í leitinni. Hafið öll hjartans þökk fyrir. Guð blessi ykkur Auður Jónsdóttir, Haukur Guðmundsson, Sóley Hauks- dóttir, Elín Freyja Hauksdótt- ir, Lilja Steindórsdóttir, Steindór Guðmundsson, Mar- grét Brynjólfsdóttir. . í Varmahlíð og síðustu nóttina gistu stöllurnar í Ketilási í Fljótum. „Við fengum gott ferðaveður, ef frá er talið er við hjóluðum yfir Vatnsskarðið, en þá rigndi hressi- lega, eins og hellt væri úr fötu yfír okkur,“ sagði Sigþóra. Ferðin gekk óhappalaust fyrir sig, aðeins sprakk á einu hjóli en að öðru leyti sluppu þær við viðgerðir. „Ferðin gekk í alla staði vel og við erum ánægðar með hana.“ Ferðafélagar Sigþóru voru þær Sólveig Júlíusdóttir, Ingaló Magn- úsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Guðfínna Bjömsdóttir. Sólveig átti hugmyndina, að sögn Sigþóru. Hún reyndi í fyrstu að fá sauma- klúbbinn sinn til að hjóla norður í land, en tókst það ekki. „Ég var til í tuskið og þegar við höfðum ákveð- ið þetta slógust hinar með í hóp- inn,“ sagði Sigþóra og bætti við að nú væru þær stöllur farnar að ræða um að hjóla næst í Skaftafell. Hafsteinn Guðmundsson Sýning í Landsbókasafni í ANDDYRI Safnahússins við Hverfisgötu hefur nú verið opnuð á vegum Landsbókasafns íslands sýning á ýmsum verkum Haf- steins Guðmundssonar. Er til hennar efnt í tilefni átt- ræðisafmælis hans fyrr á þessu ári 7. apríl 1992. Sýningin er opin á opnunar- tíma safnsins mánud.-föstud. kl. 9-19. Bandaríkin: ÓlafurRagnar og Jón Baldvin á flokksþingi demókrata ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for- maður Alþýðubandalagsins, og Jón Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, sitja nú flokkþing demókrata í Banda- ríkjunum, í boði demókrata- flokksins. Flokksþingið er haldið í New York 11.-16. júlí. Þar em valdir frambjóðendur demókrata til emb- ætta forseta og varaforseta í Bandaríkjunum, en forsetakosning- ar fara fram í nóvember á þessu ári. Einnig mun flokksþingið ákveða stefnumál demókrata í for- setakosningunum. Erlendir gestir eiga fundi með forystumönnum demókrata á flokksþinginu, ræða við þingmenn flokksins og flokksþingsfulltrúa, taka þátt í ráðstefnu sem ber heitið „Lýðræði í Bandaríkjunum— Lýð- ræði í veröldinni" og sitja einnig helstu fundi flokkþingsins. Heilbrigðisfræðsla í framhaldsskólum: Leggja þarf áherslu á geð- ræna og félagslega þáttínn - segir Lilja Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur Fyrsti heiðurs- borgari Reyk- hólahrepps Reykhólum. KRISTÍN LHja Þórarinsdóttir húsfreyja á Grund í Reykhólaveit varð 70 ára sunnudaginn 12. júlí sl. Af þvi tilefni gerði hrepps- nefnd Reykhólahrepps Lilju að heiðursborgara hreppsins. Lilja er mikil félagskona og hefur starfað í flestum félögum hér og er meðhjálpari í Reykhólakirkju. Einnig eru þau hjóii með stórt bú og safna verðlaunabrúsum fyrir góða mjólk. Maður Lilju er Ólafur Sveinsson og eiga þau hjón tvo syni, Guðmund og Unnstein Hjálmar. Lilja tók á móti gestum í félagsheimil hreppsins og munu um 200 manns hafa setið veisluna, Afmælisbarninu barst fjöldi gjafa og heillaskeyta. — Sveinn. „BRÝNA nauðsyn ber til þess að í framhaldsskólum landsins verði tekin upp fyrirbyggjandi fræðsla með tilliti til geðheilbrigðis og félagslegs þroska," segir Lilja Óskarsdóttir hjúkrunarfræðingur en hún á sæti í samstarfshóp um forvarnir gegn sjálfsvígum ungmenna sem var stofnaður haustið 1991. Á nýliðnu skólaári fóru aðilar á vegum hópsins í nokkra framhaldsskóla og héldu fræðslufundi fyrir nemendur. Lilja segir að fyrirliggjandi sé næg þekking á streituvald- andi þáttum i lífí unglinga til þess að hefja þegar í haust skipulega geðverndarfræðslu i framhaldsskólum. „Unglingsárin eru erfið bæði unum, sumum af siðferðilegum unglingum og foreldrum og það toga, sem geta haft áhrif á allt vantar virkilega fræðsluefni sem þeirra líf bæði líkamlega og félags- þess að unglingar eigi aðgang að sérfróðum aðila innan skólanna sem geti leiðbeint þeim þegar þeir standa frammi fyrir persónulegum vanda. „Hvort sem þarna væri sál- fræðingur, hjúkrunarfræðingur eða læknir að störfum er nauðsynlegt að sá aðili eigi nána samvinnu við kennarana sem þekkja vel eðlilegan ungling og eru þess vegna í aðstöðu til að koma auga á þá sem líður illa,“ segir Lilja. „Með slíkri sam- vinnu væri hægt að grípa inn í áður en mál unglingsins þróast á versta veg.“ Lilja segir að næg þekking sé fyrir hendi í landinu á vandamálum unglinga til þess að semja og kenna fræðsluefni um geðvernd á fram- haldsskólastigi. „Það þarf ekki að byija á því að gera rannsóknir á vandanum. Þær eru nauðsynlegar jafnframt en þörfin er svo brýn að fræðsla af þessu tagi þyrfti að hefj- ast í öllum framhaldsskólum strax næsta haust." lýtur bæði að geðrænni og líkam- legri heilbrigði og sérstaklega er sniðið að þörfum unglinga og ungs fólks,“ segir Lilja og bendir á þá staðreynd að sjálfsvíg karla á aldrinum 14 til 25 ára eru hér- lendis næst algengust á Norður- löndum. Lilja segir að námsefni af fyrr- greindu tagi þurfí að taka á öllu sem lýtur að tilfinningalegri líðan og mannlegum samskiptum. Jafn- framt þurfí að leggja áherslu á mikilvægi þess að leita sér aðstoðar ef unglingurinn lendir í ógöngum. „Unglingar lenda oft í ótrúlega kröppum dansi og þeir standa frammi fyrir margvíslegum ákvörð- lega,“ segir Lilja og nefnir í því sambandi áfengis- og vímuefna- notkun og kynlíf. „Það virðist vera algengt að unglingar lendi í blind- götu bara við það að verða ást- fangnir og lenda í ástarsorg. Próf- kvíði er líka mjög algengur og það þarf að hjálpa unglingunum við að greina á milli þess hvað er eðlilegt og hvað óeðlilegt hvað slfkan kvíða varðar sem og aðrar geðsveiflur, sem eru mjög algengar á þessum aldri. Það þarf að koma heilbrigðis- fræðslunni í gott horf til þess að unga fólkið geti byggt ákvarðanir sínar á því hvaða lífsstíl það velur á staðgóðri þekkingu." Lilja leggur áherslu á mikilvægi Verðlagsstofnun: Allt að 200% verðmunur er á ís eftir verslunum Hærra meðalverð á ís á landsbyggðinni en í Reykjavík VERÐLAGSSTOFNUN gerði verðkönnun á ís í 37 ísbúðum og sjopp- um á höfuðborgarsvæðinu og 19 stöðum á landsbyggðinni í lok júní- mánaðar. Minnsti verðmunur reyndist vera á bananasplitti, eða 30%, en mestur á barnaís án dýfu eða 200%. Barnaísinn er ódýrastur í Reykja- vert hærra verð fyrir ísinn en íbúar vík hjá Isseli við Rangársel. Þar kostar hann 50 krónur án dýfu, en dýrasti barnaísinn í höfuðborginni fæst á 150 krónur hjá Dairy Queen og Staldrinu. Aldýrastur er bamaís- inn samt hjá Shell-nesti við Hörgár- braut á Akureyri.þar sem hann kostar 195 krónur. Almennt þurfa landsbyggðarmenn að greiða tölu- höfuðborgarsvæðisins. Meðalverð á ís er 7-43 prósent hærra úti á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt könnun Verðlags- stofnunar er minnstur verðmunur á bananasplitti milli verslana. I Reykjavík er það dýrast í ísbúðum íshallarinnar og hjá Allra best í Stigahlíð, þar sem það kostar 495 krónur. I Reykjavík er ódýrsta ban- anasplittið hjá Fröken Reykjavík í Lækjargötu þar sem það kostar 380 krónur. Ódýrasta bananasplitt á landinu fæst samt í Söluskála Kaupfélags Héraðsbúa á Egilsstöð- um þar sem það kostar 350 krónur. í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að í Reykjavík var ís- sel við Rangárbakka oftast með lægsta verðið eða í fjórum tilvikum af sjö en Staldrið við Stekkjarbakka var oftast með hæsta verðið, einnig í fjórum tilvikum af sjö. Hlaut verðlaun í alþjóðlegri keppni ÁSHILDUR Ilaraldsdóttir flautuleikari hlaut 3. verðlaun í alþjóðlegri keppni flautuleik- ara„Flute d’or 92“. Keppnin sem opin var flautuleikurum fæddum 1962 og síðar var haldið dagana 6.-11. júlí í borginni Puteaux, skammt frá París. Enginn hlaut fyrstu verðlaun að þessu sinni. Af 300 umsækjendum voru sextíu valdir til keppninnar, en dóm- arar voru frá Bandaríkjunum, Frakklandi, Ítalíu og Þýska- landi. í fyrstu umferð léku þátttak- endur þijú verk fyrir einleiks- flautu. Níu keppendur komust í aðra umferð, en þá voru leikin þessi fjögur verk: Episode, fyrir einleiksflautu eftir Betsy Jolas, Sónata fyrir flautu og sembal eftir J.S. Bach, Þijár rómönsur fyrir flautu og píanó eftir Robert Schumann og Le Chant de Linos fyrir flautu og píanó eftir Andre Jolivet. í lokaumferð léku fjórir keppendur tvö verk með hljóm- sveitarundirleik, konsert eftir W.A. Mozart og verk eftir Jean Michel Damase, en það síðar- nefnda var samið sérstaklega fyr- ir keppnina. Áshildur Haraldsdóttir er fædd árið 1965. Hún lauk burtfarar- prófí frá Tónlistarskólanum í Áshildur Haraldsdóttir. Reykjavík árið 1983, B.M. gráðu frá New England Tónlistarhá- skólanum í Boston 1986 og Meistaraprófi frá Julliard-skó- lanum í New York árið 1988. I desember næstkomandi lýkur formlegu námi Áshildar er hún útskrifast úr „Cycle de perfecti- onnement" í Tónlistarháskóla Parísar, þar sem hún hefur not- ið kennslu Alain Marion síðast- liðin tvö ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.