Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992
29
—
Evrópubandalagið
Aukið frelsi íflugmálum
ÞRIÐJI og síðasti pakki Evrópubandalagsins um frelsi í fluginálurn
hefur nú verið kynntur. Samkvæmt pakkanum taka fyrstu breyt-
ingarnar, sem miða að því að fella niður allar hömlur í flugi inn-
an Evrópu, gildi í ársbyrjun 1993. Vonir standa til að flugfar-
gjöld lækki í kjölfarið, en bent hefur verið á að mörg vandamál
eru enn óleyst og ný hafa skapast.
Samkvæmt nýju reglunum geta
evrópsk flugfélög ákveðið sjálf
fargjöld sín frá og með janúar
næstkomandi. Félögum verður
einnig leyft að fljúga milli hvaða
landa Evrópubandalagsins sem er,
og árið 1997 verður einnig leyfi-
legt að keppa í innanlandsflugi
annarra Evrópubandalagsríkja.
Eins og áður sagði er þessum
breytingum ætlað að lækka far-
gjöld, en þau eru um þriðjungi
hærri í Evrópu en í Bandaríkjunum
að meðaltali.
Margir telja þó að Evrópu-
bandalagið muni ekki hafa erindi
sem erfiði. Bent er á að flugfélög
í Evrópu eru rekin með miklu tapi
í dag, á síðasta ári var samanlagt
tap þeirra hátt í 70 milljörðum
króna meira en heildarhagnaður
þeirra síðastliðin tíu ár. Flugfélög-
in hafa enn ekki náð að rétta úr
kútnum eftir átökin við Persaflóa
og kreppuna.
Auk þessa skapa hugmyndir um
að setja 9% virðisaukaskatt á flug-
fargöld enn meiri þrýsting á far-
gjöldin. Telja flugfélögin að það
myndi valda kostnaðarauka upp á
um 60 milljarða króna á ári. Aætl-
anir um mengunarskatt á elds-
neyti eru félögunum einnig
áhyggjuefni.
Annað, og ekki minna vanda-
mál, er flugumferðin sjálf. Flug-
umferð í Evrópu er orðin svo mik-
il að flugvellir hafa hreint ekki
undan. Tafír og seinkanir af þess-
um sökum hafa aukist um 13%
milli ára. Vegna þessa verður erf-
itt fyrir flugfélög að heíja áætlun-
arflug á nýjum leiðum.
Ljóst verður því að teljast að
enn er langt í land að tilgangur
nýju reglugerðarinnar um lækkun
flugfargjalda verði að veruleika.
Sumir óttast jafnvel að á einstaka
flugleiðum geti nýju reglumar leitt
til verðhækkana. Forsvarsmenn
flugmála innan Evrópubandalags-
ins segjast þó gera sér grein fyrir
erfiðleikunum en telja að með tím-
anum megi leysa öll þessi vanda-
mál.
Menntun
Austur-evrópskir
prófessorar seijast á
skólabekk í Bandaríkjunum
FIMM af áhrifamestu viðskipta-
háskólum Bandaríkjanna hafa
sameinast um að kenna grund-
vallaratriði í viðskiptafræðum.
Nemendurnir verða 120 útvald-
ir prófessorar í hagfræði,
stjórnun og verkfræði við há-
skóla í Austur-Evrópu.
Verkefnið mun kosta 3,5 millj-
ónir Bandaríkjadala (196 milljónir
ÍSK). Vanalega eiga skólarnir
fimm, Harvard, Wharton, Stan-
ford, Kellogg og Sloan School, í
harðri innbyrðis samkeppni.
Prófessoramir munu sækja
tíma í Bandaríkjunum og þar gefst
þeim færi á að sökkva sér niður
í svo framandi viðfangsefni sem
markaðssetningu og samkeppnis-
greiningu. Hugmyndin er sú að
eftir námið geti þeir að leitt landa
sína í átt að markaðshagkerfi.
Bandarísku háskólamir verða
reyndar ekki einir um að mennta
íbúa Austur-Evrópu í viðskipta-
fræðum. London Business School,
INSEAD í Frakklandi og IMD í
Sviss leita eftir fjármagni í hlið-
stætt verkefni. Auk þess hafa
margar vestrænar menntastofn-
anir náið samstarf við háskóla í
Austur-Evrópu.
Tom Piper, prófessor við Har-
vard-háskóla, segir afar mikilvægt
að kennslan verði samræmd og
löguð að menningu þjóða í Austur-
Evrópu. Að öðrum kosti er hættan
sú að fræðimenn og stjórnendur
fyrirtækja fái ruglingslega og ós-
amhljóða leiðsögn.
Vaskhugi
Ný stórglæsileg útgðfa af
forritinu er komin á
markaö.
Auk heföbundins bókhalds
sér forritiö um aö prenta
út reikninga, gíróseöla og
yfirlit, reikna út dráttar-
vexti, skrá stööu ávísana-
heftis og margt fleira.
SJón er sögu ríkari.
Þú ert velkominn til okkar
á Grensásveg 13 eöa
hringdu og viö sendum
bækling um hæl.
Bókhald sem
spararfé
og fyrirhöfn
Vaskhugi hf.
Grensásvegi 13, sími 682680.
Blaóid sem þú vaknar vió!
Vikuna 13. ■ 19. júlí heldur íslenska umboðssalan hf.
sýningu sem unnendur vatna- og sjósports mega ekki missa af.
í sýningarsalnum aö Seljavegi 2 (gamla Héðinshúsinu)
veröur m.a. eftirfarandi til sýnis:
m mrnc * ^DS GT sportbátar, öruggir og hraðskreiðir
jSllT Uw fjölnotabátar, 2,55 - 6 m.
AVN
E23I r,
Johnsan
UTANBORÐSMOTORAR
• Avon gúmmíbátar, sérlega sterkir og stöðugir,
5 gerðir á sýningunni, fjölmargar aðrar tegundir í boði.
• Johnson utanborðsmótarar sem fást nú loksins aftur
hér á landi, 2,3 - 300 hestöfl. Hörkugóðir mótorar í alla
báta - hafa aldrei verið betri!
• Sportvörur frá NITRO, t.d. sjóskíði, brimbretti,
hnébretti, björgunarvesti og ótalmargt fleira
...og ánægjan siglir í kjölfarið
Láttu ekki hjá iíða að skoða sýningu okkar að Seljavegi 2.
Opið frá kl. 8 til 19 frá mánudegi til föstudags.
Seljavegi 2, 101 Reykjavík, sími 26488, fax 626488, pósthólf 1180, 121 Reykjavík
AUK/SÍA k723-1