Morgunblaðið - 14.07.1992, Page 30

Morgunblaðið - 14.07.1992, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992 Ók á 53 km umfram há- markshraða UM kvöldmatarleytið á sunnudag var ökumaður tekinn á 103 kiló- meta hraða á svonefndri Skútna- hæð norðan Glerár á Akureyri. Þarna er leyfður 50 kílómetra hámarkshraði _ og gangbraut í grenndinni. Okumaðurinn var sviptur ökuskírteini sínu. Ung- menni voru tekin höndum þar sem þau syntu nakin i sundlaug- inni á Svalbarðseyri síðla aðfara- nætur mánudags. Að sögn Gunnars Randversson- ar, varðstjóra lögreglunnar, voru 10-15 ökumenn sektaðir fyrir of hraðan akstur um helgina, en sá sem hefði verið á 103 km hraða nyrst í bænum hefði skorið sig nokkuð úr í þeim hópi. Annars hefði umferð í héraðinu verið mjög mik- il, ekki síst vegna þess fjölda manna sem var á Unglingameistaramótinu á Dalvík, og hefði umferðin þar gengið mjög þokkalega og án telj- andi vandræða. Að sögn Gunnars var lögreglan kölluð út að sundlauginni á Sval- barðseyri fyrir fótaferðatíma á mánudagsmorgun. Þar hefðu sjö ungmenni lagst til sunds án leyfís og flest á Adams- og Evuklæðum einum saman. Sumt hefði fólk þetta verið nokkuð ölvað en annað minna undir áhrifum áfengis. Þrennt hefði verið fært til fangageymslu en öðr- um verið sleppt eftir tiltal. Einhveij- ar skemmdir hefðu hlotist af þessu tiltæki. Dálítið hefði verið um það á Akureyri á föstudagskvöld að ölv- aðir hefðu átt í átökum og nokkrir verið færðir til gistingar í fanga- geymslum af þeim sökum. -----♦------- Atvinnumála- um framtíð skóiðnaðar Atvinnumálanefnd Akureyrar- bæjar mun á fundi sínum í dag fjalla um framtíð skóiðnaðar á Akureyri í lgölfar gjaldþrots Skóverksmiðjunnar Striksins. Heimir Ingimarsson, formaður Atvinnumálanefndar, sagði að nefndin mundi flalla um afdrif Striksins og hvað gera mætti í stöðu mála. Fyrirhugað væri að leggja til að þess verði farið á leit við Iðnþró- unarfélag Eyjafjarðar að það kanni hvort rétta megi á einhvern hátt við þann rekstur sem hjá Strikinu hefði verið, á hliðstæðan hátt og Iðnþróunarfélagið hefði haft með að gera málefni Álafoss og skiptin yfír í Foldu á síðasta ári. Sá orðrómur hefur gengið að erlendir aðilar séu tilbúnir að koma inn í skóverksmiðjurekstur á Akur- eyri. Um það vildi Heimir ekki segja annað en að vart hefði verið áhuga erlendra aðila að vita af þessum málum, en slíkt væri ekki komið á neinn umræðugrundvöll. -----♦ ♦ ♦ Hjólreiðamað- ur fyrir bíl Hjólreiðamaður var fluttur á sjúkrahús með meiðsl á fæti eftir að hafa skollið á fólkbifreið á Akureyri eftirmiðdaginn á föstu- dag. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður reiðhjólsins, drengur á þrettánda ári, lenti á fólkbifreið þegar hann hjólaði út af innkeyrslu að skátaheimilinu Hvammi út á Hafnarstræti. nefnd fjallar Nemendur Jarðhitaskólans skoða hitasvæði Eyjafjarðar UM HELGINA voru á ferð á Akureyri nemendur og kennar- ar Jarðhitaskóla Orkustofnunar. Þeir fóru meðal annars í kynnis- ferð um hitasvæði í Eyjafirði og skoðuðu stöðvar Hitaveitu Akur- eyrar. Jarðhitaskólinn hefur starfað frá 1979 og er rekinn sem deild í Há- skóla Sameinuðu þjóðanna, sem hefur aðalaðsetur sitt í Tókýó í Japan. Nemendur koma undan- tekningarlítið frá þróunarlöndun- um og skilyrði til þátttöku í náminu hér eru að nemendur hafi að baki háskólapróf í jarðvísindum og eins árs starf í tengslum við jarðhita. Fastir kennarar Jarðhitaskólans eru tveir, Ingvar Birgir Friðleifsson og Lúðvík Georgsson, en auk þeirra eru fengnir til kennslu í einstökum greinum sérfræðingar frá Orku- stofnun, Náttúrufræðistofnun og Háskóla íslands. Lúðvík Georgsson sagði að í þetta sinn væru nemendur skólans 12 talsins, þrír kæmu frá Kína, þrír frá Filippseyjum, tveir frá Kenya, einn frá Costa Rica, einn frá E1 Salvador, og einn frá Guate- mala. Tólfti nemandinn væri að vísu ekki frá þróunarlöndunum heldur frá Tékkóslóvakíu, með sér- stökum styrk frá forsætisráðuneyt- inu. Skólinn væri hluti af þróunar- aðstoð íslendinga en rekinn að hluta með styrk frá höfuðstöðvum Háskóla Sameinuðu þjóðanna í Tókýó. Lúðvík sagði að nemendur Jarð- hitaskólans væru valdir til náms- ins, þeir væru hér við nám og störf í 6 mánuði en færu síðan undan- tekningariaust til starfa að jarð- hitamálum í heimalöndum sínum. Gamlir nemendur skólans væru víða komnir í áhrifastöður heima fyrir og sendu nú nemendur og starfsmenn sína hingað til náms. Alls væru nemendur skólans orðnir um 120. Námið fer þannig fram að fyrstu fímm vikurnar sækja nemendur almenna fyrirlestra um jarðhita, næstu fímm vikur sækja þeir fyrir- lestra á sérsviðum sínum, þá tekur við tveggja vikna kynnisferð um jarðhitasvæði og hitaveitur og það sem eftir er af tímanum vinna nem- endur að sérverkefnum undir hand- leiðslu sérfræðinga og skila að lok- um skýrslu um verkefnið. Að sögn Lúðvíks hefur námið í skólanum skilað góðum árangri ogjafnan sé tekið til þess að hér fái nemendur svo mikla hagnýta þjálfun að þeir gangi beint inn í störf við heimkom- una, en Jarðhitaskólinn á íslandi hafí þar nokkuð fram yfír aðra hliðstæða skóla Sameinuðu þjóð- anna, á Ítalíu og Nýja Sjálandi. Á Akureyri sóttu nemendur Jarðhitaskólans fyrirlestra um jarðhita á Norðurlandi í húsum Menntaskólans á Akureyri og fóru síðan í skoðunarferð um hitasvæði í Eyjafirði undir leiðsögn Ara Rögnvaldssonar hjá Hitaveitu Ak- ureyrar. Þeir skoðuðu meðal annars dælustöð Hitaveitunnar á Syðra- Laugalandi og þar brögðuðu þeir meðal annars kælt vatn úr borhol- um Hitaveitunnar, en það er svo hreint og lyktarlaust að það er sem besta kalt lindarvatn. Lúðvík Georgsson. Morgunblaðið/Eiríkur Ingvar Birgir Friðleifsson á tali við nemendur Jarðhitaskólans í kynnisferð að Syðra-Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar: 22 milljóna króna gati lokað með því að ganga á veltufé Fyrirhugað að bjóða fyrirtækjum að taka unglinga í vinnu en bærinn borgi launin BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur gengið frá tillögum sinum til breytinga á fjárhagsáætiun bæjarins. Auk leiðréttinga og lagfæringa á fyrri áætlun eru gerðar ýmsar breytingar vegna kostnaðarliða sem komið hafa upp, meðal annars vegna breytinga á tónlistarkennsiu og vegna unglinga sem enn eru atvinnuiausir. Fyrirhugað er að bjóða fyrirtækj- um að taka unglinga í vinnu en bærinn mun greiða þeim laun. Til að mæta auknum kostnaði verður meðai annars nokkur samdráttur í fyrir- hugaðri gatnagerð. TiUögur bæjarráðs koma til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar i dag. Að sögn Sigurðar J. Sigurðssonar, formanns bæjarráðs, lauk bæjarráð fyrir helgina endurskoðun fjárhagsá- ætlunar. Rekstararútgjöld hefðu í þessari endurskoðun hækkað um 20 milljónir króna, gjaldfærður stofn- kostnaður hefði hækkað um 6,8 millj- ónir en eignfærðar flárfestingar hefðu lækkað um 5,2 milljónir á móti. Þar væri stærst að nefna að teknir hefðu verið inn í áætlunina nú liðir sem ljóst væri að stæðust ekki áætlun og færu fram úr henni. Fyrst vildi Sigurður nefna fjár- hagsaðstoð vegna félagsmálastofn- unar, 1,5 milljónir króna. Til þessa liðar hefði verið varið sama fé og síðasta ár en rauntalan hefði verið hærri og auk þess væri eftirspumin fremur vaxandi en hitt hjá þeim sem væru aðstoðar þurfí svo nú ætti þessi liður að vera nærri réttu. Þá nefndi hann að stefnt væri að því að ópna nýjan leikskóla í haust og til þess veitt 2,1 milljón króna og til Félags- stofnunar stúdenta væri veitt 3,5 Tenórsöngur á Akureyri Gunnar Guðbjörnsson tenórsöngv- ari og Jónas Ingimundarson halda tónieika á Akureyri í kvöid og í Miðgarði í Skagafirði annað kvöld. Þeir Gunnar og Jónas hafa að undanfömu verið á tónleikaferð á Norðurlandi, en Gunnar er í stuttu sumarleyfí frá Óperuhúsinu í Wies- baden í Þýskalandi. Ferð þeirra lýkur með þessum tvennum tónleikum. Á efnisskrá þeirra Gunnars og Jónasar eru fjölmörg ný og gömul verk margra höfunda. Tónleikamir á Akureyri heQast í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju klukkan 20.30 í kvöld og tónleikam- ir í Miðgarði í Skagafírði annað kvöld hefjast klukkan 21.00 milljónum vegna byggingar stúd- entagarða. Þar væri um að ræða sams konar fjárhagsaðstoð og áður hefði verið veitt að sams konar til- efni. Þá hækkuðu rekstrargjöld vegna Tónlistarskólans um 5,5 millj- ónir króna, en um helmingur þess væri vegna þess að verið væri að færa tónlistarkennslu út í grunnskól- ana en helmingurinn væri leiðrétting á fjárhagsáætlun, sem áður hefði aðeins verið til bráðabirgða. Til reksturs Skíðastaða rynnu 5 milljón- ir króna, svo ná mætti endum saman eftir snjóleysi vetrarins. Liðurinn Kaup á húseignum sagði Sigurður að hækkaði um lið- lega 5 milljónir, en þar væri að mestu um að ræða húseignir sem bærinn keypti til niðurrifs. Þá væri fjárveit- ing til Umhverfisdeildar hækkuð um 1,5 milljónir og hálf önnur milljón rynni til viðbótar til sumarvinnu skólafólks. Enn væru um 40 ungling- ar algerlega atvinnulausir og ættu ekki kost á atvinnuleysisbótum og auk þess væru nokkrir í tímabund- inni vinnu og aðrir á einhveijum tímabundnum bótum, svo alls væru þetta um 60 unglingar. Með þessari fjárveitingu væri ætlunin að bjóða fyrirtækjum að taka þetta unga fólk í vinnu en bærinn myndi greiða laun þess. Ennfrémur hefði 3,5% skattur- inn vegna félagslegra ibúða numið um 5 milljónum króna. Sigurður sagði að til þess að mæta þessum breytingum væri á áætlun að lækka framlög til gatna- gerðar um 8 milljónir króna. Ekki væri ákveðið enn hvar sá sparnaður kæmi fram en reynt yrði að dreifa honum sem víðast. Lækkun á áætluð- um kostnaði við snjómokstur og rekstur göngugötunnar næmi auk heldur 5,5 milljónum. Þá hefði verið á áætlun að innrétta og taka í notk- un sambýli aldraðra að Skólastíg 5, en framlag úr Framkvæmdasjóði aldraðra hefði verið 9 milljónum króna lægra en von hefði verið á og þeim framkvæmdum yrði frestað fram yfír áramót. Sigurður sagði að þegar upp væri staðið og allt tínt til stæði eftir gat sem næmi 22 milljónum króna og því væri fyrirhugað að mæta með því að ganga á veltufé bæjarins. Ekki væri á þessu stigi máls gert ráð fyrir að tekjur ykjust, en ef af því yrði myndi veltufjárstaðan batna sem því næmi. Að sögn Sigurðar er vinnan að endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrr á ferð en venjulega og stefnt væri að því að ganga frá þessum málum framvegis sem næst miðju ári. Því yrði þessu starfí enn hraðað á næsta ári frá því sem nú var. Tillögur bæj- arráðs yrðu teknar til afgreiðslu hjá bæjarstjórn Akureyrar á fundi henn- ar í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.