Morgunblaðið - 14.07.1992, Page 31

Morgunblaðið - 14.07.1992, Page 31
MORGUNBLAEMÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992 31 Lax á grillið eða í bakaraofninn Þegar þetta er skrifað 30. júní er lítið farið að bera á sumri. Á sumrin hefi ég það fyrir venju að tína sóleyjar og setja í vasa, en það var ekki fyrr en núna um helgina að ég fann fallegar útsprungnar sól- eyjar. Ég hefi aldrei leitt hugann að því, hvernig orðið sóley er til- komið, en núna, þegar sama og engin sól hefur verið hafa ekki held- ur verið sóleyjar. Manni dettur óneitanlega í hug, að Drottinn hafí klárað sólskinskvótann í fyrrasum- ar. En laxinn er hinn kátasti og sá stóri jafnvel svo kærulaus að hann lætur veiða sig í á, þar sem hann hélt að hann væri óhultur. Svona er lífið, hvar erum við óhult? En hvernig er með grillveðrið, það mætir ekki, hvorki í sveit né bæ, og þótt margir þijóskist við og grilli samt er erfitt að grilla í köldu og hvössu veðri, kæling verður of mikil og erfitt að ná upp hitanum. Ég vil hafa vaðið fyrir neðan mig. Þess vegna er heiti þessa þáttar „Lax á grillið eða i bakaraofninn". Lax með rjómaosti 1 lax, u.þ.b. 5 kg 3 tsk. salt nýmalaður pipar 200 gr hreinn ijómaostur eða 'h stór dós 1 dl matarolía og 'Atsk. salt til að pensla með. 1. Þvoið laxinn vel, hellið heitu vatni á roðið og skafið það vel. Klippið af ugga, en hafið hausinn á. Hreinsið blóð úr fiskinum, takið tálknin úr hausnum. Skerið kvið- megin upp í fiskinn og takið beinið úr honum. Látið hann hanga saman að aftan. 2. Stráið salti inn í fiskinn, malið mikið af pipar inn í hann. Látið hann standa þannig í 10 mínútur. 3. Smyrjið ijómaostinum jafnt inn í fiskinn. Penslið fiskinn jafnt með saltri olíunni. 4. Ef fiskurinn er grillaður á úti- grilli þarf helst að setja hann í smurða, heita samlokugrind. En ef hann er grillaður í bakaraofni þarf að smyija grindina úr ofninum vel og leggja fiskinn þar á. Snúa á fisk- inum einu sinni, en þessi stærð af laxi þarf um 15 mínútur á hvorri hlið. Þó fer það eftir fjarlægð frá glóð, en hún ætti að vera 10-15 cm. Penslið fískinn með matarolíu öðru hvoru. 5. Fiskurinn er tilbúinn, þegar hægt er að ýta fiskflökunum í sund- ur og bein eru laus. Meðlæti: Soðnar eða bakaðar kartöflur og hrásalat með gúrku. Hrásalat 1 meðalstór kínakálshaus, eða 2 hausar blaðasalat eða jöklasalat. 1 stór gúrka safi úr 1 lítilli sítrónu 'h dl matarolía 1 skvetta úr tabaskó-sósuflösku salt milli fmgurgómanna 1 tsk. fljótandi hunang (má sleppa) 1. Þvoið og þerrið salatið, skerið í ræmur og setjið í skál. 2. Þvoið gúrku, skerið í þunnar sneiðar með ostaskera, setjið saman við salatið. 3. Kreistið safa úr sítrónum, setj- ið í hristiglas ásamt matarolíu, salti, tabaskó-sósu og hunangi. Hristið saman og hellið yfír salatið. INNRETTINGAR Ármúla 17a sínii 91-679933 E N N F L E I R I O G FALLEGRI INNRÉTTINGAR FYRIR ELDHIJS, SVEFNHERBERGI O G BAÐHERBERGI Verslun Brúnáss innréttinga hefur nú opnað aftur eftir umfangsiniklar breytingar og fjölbreytnin er meiri en nokkru sinni. Á tveimur liæðum gefur að líta fallegar innréttingar í mörgum verðflokkmn, allt frá einföldum, ódýrum innréttingum til íburð- armeiri innréttinga eins og úr hinum vinsælu viðartegundum kirsuberjaviði og fuglsauga. Brúnás innréttdngar eru gott dæmi um metnaðarfulla íslenska hönnmi og bera smiðmn sínum gott vitni um hagleik og vandvirkni. Innanhússarkitekt starfar í verslunimii sem aðstoðar viðskiptavini og gefur góð ráð. Verið velkomin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.