Morgunblaðið - 14.07.1992, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1992
ATVINNUAUGl YSINGAR
Meiraprófsbítstjóri
Óskum eftir að ráða meiraprófsbílstjóra til
afleysinga í 1V2 mánuð.
Upplýsingar í síma 673555.
Sandurhf.,
Viðarhöfða 1.
Ræstingarfólk óskast
Vinnutími er frá kl. 06-10 fyrir hádegi.
Um er að ræða bíósali og salerni.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um viðkom-
andi.-berist skrifstofu Háskólabíós í síðasta
lagi föstudaginn 17. júlí.
Háskólabíó.
Áskirkja í Reykjavík
óskar eftir að ráða starfsmann til að skipu-
leggja og annast félagsstarf kirkjunnar í
safnaðarheimili Áskirkju. Um er að ræða
hálft starf og nauðsynlegt að viðkomandi
starfsmaður hafi reynslu af félags- og safn-
aðarstarfi með eldra og yngra fólki.
Skriflegar umsóknir sendist sóknarnefnd
Áskirkju, Vesturbrún 30, 104 Reykjavík, fyrir
25. júlí nk. Frekari upplýsingar um starfið
veitir Björn Kristmundsson, formaður sókn-
arnefndar, sími 38347.
Sóknarnefnd Áskirkju.
Smiðir
Óska að ráða smiði í uppslátt og þakfrágang.
Friðjón Skúlason,
húsasmíðameistari,
sími 653845.
Kennarar - kennarar
Enn vantar hressa og áhugasama kennara
til Grundarfjarðar að Grunnskóla Eyrarsveit-
ar. Almenn bekkjarkennsla, íslenska, líf-
fræði, smíðar og hannyrðir eru meðal við-
fangsefna. Húsnæðishlunnindi í boði.
Upplýsingar gefa Gunnar, skólastjóri, í síma
93-86802 eða 93-86725, og Ragnheiður,
aðstoðarskólastjóri, í síma 93-86772.
Skólanefnd.
Sölufólk
Dagvinna - góð laun
Til stendur að bæta við 3-4 góðum sölu-
mönnum. Viðkomandi verður að hafa bíl.
Varan er góð og notagildið augljóst. Nám-
skeið á vegum fyrirtækisins fer fram í upphafi.
Viljir þú starfa sjálfstætt með möguleika á
að skapa þér góð laun, þá hafðu samband
við sölustjóra okkar, Björk eða Magnús, í
síma 676869, mánudag til fimmtudags milli
kl. 10 og 12 fyrir hádegi.
ORVI
Starfs|>jálfunarstaður
Kársneshraut 110, 200 Kópavogi,
Fagmenntaður
starfsmaður
Starfsþjálfunarstaðurinnn Örvi óskar að ráða
fagmenntaðan starfsmann til starfa sem
fyrst.
Örvi sinnir starfsþjálfun fatlaðra með það að
markmiði að þjálfa fatlaða til starfa á almenn-
um vinnumarkaði.
Við viljum ráða iðjuþjálfa eða starfsmann
með uppeldis-, sálar- eða félagsfræðilega
menntun og/eða víðtæka reynslu af starfi
með fatlaða.
Um er að ræða 50-75% starf til 6 mánaða.
Starfsmaðurinn mun, ásamt fagmenntuðum
starfsráðgjafa Örva, vinna að gerð endur-
hæfingaráætlana og mati á árangri starfs-
endurhæfingar. Starfsmaðurinn mun einnig
sinna almennri ráðgjöf, fjölskyldutengslum
og samskiptum við stofnanir og annað fag-
fólk.
Umsóknir skal senda til Örva, Kársnesbraut
110, 200 Kópavogi, fyrir 1. ágúst nk.
Upplýsingar eru veittar á staðnum
og í síma 91-43277.
5 norskir myndhöggvarar
5 norskir myndhöggvarar óska eftir að leigja
íbúð/hús í Reykjavík á meðan á sýningu þeirra
stendur í Nýlistasafninu í september 1992.
Vinsamlega skrifið til: Sissel Berntsen,
Akersbakken 25, N-0172 Osló, Noregi, eða
hringið ykkur að kostnaðarlausu í síma
90 47 2 111181. Fax 90 47 2 112719.
Þýskur Ijósmyndari
Þýskur Ijósmyndari, sem ætlar að dvelja á ís-
landi í eitt ár (kringum 1993), óskar eftir að
taka á leigu lítið hús eða sumarbústað meðan
á dvöl hans stendur. Sumarbústaðurinn eða
húsið skal vera íbúðarhæft yfir veturinn.
Óskastaðir: Svæði í kringum Vík, Höfn eða
Akureyri.
Vinsamlega sendið tilboð á auglýsingadeild
Mbl. merkt: „L - 14332“ og mun hann hafa
samband við viðkomandi á íslandi í sumar.
KENNSIA
Enskunám
Skólinn, English 2000 í Bournemouth, býður
þig velkominn til náms. Yfirkennari er Mich-
ael Roberts, sem mörgum íslendingum er
að góðu kunnur.
Upplýsingar gefur Páll G. Björnsson, sími
98-75888 eða heimasími 98-75889.
Stólar í matsal
Tilboð óskast í 200 stóla fyrir matsali
Frímúrarahússins.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 11599 frá
kl. 9.00 til kl. 12.00 virka daga.
Frímúrarareglan á íslandi.
Útboð
Ólafsvíkurvegur um Mýrar 1992
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagn-
ingu Olafsvíkurvegar frá Urriðaá að Hestlæk,
alls 5,5 km kafla með tengivegi.
Helstu magntölur: Fyllingar og burðarlög
115.000 m3, bergskeringar 16.000 m3 og
klæðingar 32.000 m2.
Verki skal lokið 1. september 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkis-
ins í Borgarnesi og í Borgartúni 5, Reykjavík
(aðalgjaldkera), frá og með 13. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl.
14.00 þann 27. júlí 1992.
Vegamálastjóri.
Laxveiðileyfi
Til sölu veiðileyfi í Hvítá í Árnessýslu, fyrir
landi Langholts.
Einnig í Reykjadalsá í Borgarfirði.
Upplýsingar í síma 77840 alla virka daga frá
8.00 til 18.00
Þrotabú Prentverks
Odds Björnssonar hf., Akureyri
Skiptafundur
Hér með er boðað til skiptafundar í þrotabúi
Prentverks Odds Björnssonar hf., Akureyri,
kt. 520269-6229, og verður hann haldinn í
skrifstofu undirritaðs skiptastjóra þrotabús-
ins í Mörkinni 1, Reykjavík, miðvikudaginn
15. þessa mánaðar kl. 13.30. Rétt til fundar-
sóknar eiga þeir sem lýst hafa kröfum í búið.
Fjallað verður um ráðstöfun á fasteign þrota-
búsins á Tryggvabraut 18-20, Akureyri.
Eignin er veðsett umfram áætlað mögulegt
söluverð á frjálsum markaði. Fyrir liggja drög
að samningi um að veðhafi leysi til sín eign-
ina fyrir 60 milljónir króna og má búast við
að þau verði samþykkt verði ekki annað
ákveðið á fundinum.
Ragnar Halldór Hall hrl.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði
Til leigu ca 400 fm glæsileg efsta hæð í lyftu-
húsi (skrifstofuhúsnæði) við Bíldshöfða.
Vandaðar innréttingar. Langtímaleigusamn-
ingur. Laust fljótlega.
Áhugasamir sendi tilboð til auglýsingadeildar
Mbl. merkt: „Öllum svarað - 10313".
Tískuvöruverslun
Stórskemmtileg og þekkt tískuvöruverslun í
glæsilegri verslunarsamstæðu í miðborginni
er til sölu vegna sérstakra ástæðna.
Lysthafendur hafi samband í síma 679757
á skrifstofutíma.