Morgunblaðið - 08.08.1992, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992
3
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Spj átrungslegnr svanur við Tjörnina
Svanur á Tjöminni vakti nýverið mikla athygli með kostulegri hegð-
an. Hann stöðvaði umferð akandi og gangandi vegfarenda í dágóða
stund á meðan hann tók nokkur létt dansspor á malbikinu. Hátterni
svansins kom í veg fyrir að leið 17 kæmist ferða sinna og urðu farþeg-
ar vagnsins að bíða á meðan svanurinn lauk dansatriðinu. Einnig
hefti hann för bíla sem óku framhjá með því að narta í þá. Fólk safn-
aðist saman til þess að fylgjast með framferði svansins og voru marg-
ir með myndavélar á lofti til þess að festa hegðan hans á filmu. Vakti
hátterni hans sérstaka kátínu hjá útlendingum sem fannst fuglinn
hinn kostulegasti.
Borgarspítalinn:
14,8 millj-
ónir fyrir
þaká
B-álmu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að taka 14.886.371 króna tilboði
lægstbjóðanda, ístaks hf., í þak
á B-álmu Borgarspítala. Til-
boðið er 98,26% af kostnaðará-
ætlun, sem er 15.150.140 krón-
ur.
Fimm tilboð bárust í lokuðu
útboði og jafn mörg frávikstilboð.
Næst lægsta boð átti Byggðaverk
hf., sem bauð rúmar 15,9 millj.
eða 105,46% af kostnaðaráætlun.
Ármannsfell hf., bauð rúmar 16,3
millj. eða 107,82% af kostnaðar-
áætlun, Sveinbjörn Sigurðsson
bauð rúmar 18,8 millj. eða
124,69% af kostnaðaráætlun og
SH verktakar hf., buðu rúmar
22,3 millj. eða 147,57% af kostn-
aðaráætlun.
Skipaskoðun fylgist
með könnun á Herjólfi
SKIPASKOÐUNARDELLD Siglingamálastofnunar ríkisins mun
fylgjast með þeim athugunum sem gerðar verða á sjóhæfni Her-
jólfs samkvæmt upplýsingum Páls Guðmundssonar yfirmanns deild-
arinnar en eins og fram kom i Morgunblaðinu í gær hafa skipstjórn-
armenn á Herjólfi kvartað yfir því hversu mikið skipið heggur og
hefur sljórnarformaður Heijólfs óskað eftir því við Skipatækni
hf. að þetta verði kannað nánar. Að sögn Bárðar Hafsteinssonar
þjá Skipatækni annaðist danskt fyrirtæki prófanir með líkan skips-
ins á sínum tíma og segir hann að það hafi framkvæmt mælingarn-
ar samkvæmt ákveðnu prógrammi, m.a. við mismunandi ölduhæð
og hraða.
Páll Guðmundsson, yfirmaður
skipaskoðunardeildar Siglinga-
málastofnunar ríkisins, sagði að
stofnuninni hefðu ekki borist at-
hugasemdir vegna Heijólfs en
starfsmenn hefðu fengið fregnir
af því síðastliðinn fimmtudag að
óskað hefði verið eftir að gerðar
verði mælingar á skipinu. „Það
verða gerðar prófanir og við mun-
um að sjálfsögðu fylgjast með
þessu,“ sagði Páll.
Að sögn Bárðar Hafsteinssonar
hjá Skipatækni, sem hannaði skip-
ið, voru gerðar prófanir á líkani
skipsins af fyrirtæki í Danmörku
og sagði hann að m.a. hefðu verið
gerðar svokallaðar bylgjumælingar
við mismunandi ölduhæð og hraða
skipsins. „Það var allt gert af fær-
ustu fagmönnum og þeirra mat var
að það væri mjög lítil hætta á svo-
kölluðu „slammning," sem á sér
stað þegar skipið rís upp og loft
kemst undir það þannig að það
skellur niður aftur,“ sagði hann.
Bárður benti einnig á að ekki
væri víst að sú siglingaleið sem
gamli Heijólfur sigldi henti nýja
skipinu, þar sem það fari nálægt
landi í krappri öldu. „Menn þurfa
að þreifa sig áfram og læra á hlut-
ina,“ ságði Bárður.
Elti risalax um tvo kíló-
metra við Þrastarlund
Fyrir fáeinum dögum varð sá atburður austur við Sogið, að
veiðimaður missti þann stóra og er veiðisagan sem hér um
ræðir vægast sagt sérstök. Veiðimaðurinn sem í hlut átti, var
Árni Baldursson, fengsæll og snjall stangaveiðimaður og einn
leigutaka Laxár í Kjós. Laxinn setti hann í á veiðistað sem
heitir Kúagil og er fyrir landi Þrastarlundar.
„Ég er með Þrastarlundinn á
leigu til reynslu og var að koma
heim úr annarri veiðiferð er mér
datt í hug að athuga hvort nokk-
ur væri í Kúagilinu. Það kom á
daginn að dagurinn var óseldur
og ég dreif mig þá í vöðlumar
og hljóp upp eftir til að ná nokkr-
um köstum, en veiðitími dagsins
var að renna út. Það var svo
skammt eftir af veiðitímanum,
að ég fór strax í ranann neðst á
Breiðunni sem þarna er og er
kennd við Kúagilið sem er ann-
ars lækjarspræna sem rennur í
Sogið Álviðrumegin. Þar hafði
ég sett í lax nokkrum dögum
áður. Ég notaði flugu, Sweep
númer 14 og það skipti engum
togum, að lax var á í fyrstu köst-
unum. Og enginn smáfiskur.
Hann fór strax að stökkva og
þá fóru laxar að stökkva um alla
breiðuna. Gunnar Másson var
með mér og er til vitnis um stærð
laxins, þetta var vel yfir 30 punda
lax,“ sagði Árni í samtali við
Morgunblaðið, en hann hefur
veitt þá nokkra um og yfir 20
pund og sagði þá laxa vera putta
við hliðina á þeim stóra sem hann
setti þarna í.
Frásögn Árna er síðan á þá
lund, að eftir 15 mínútna törn
uppi á Kúagilinu, setti laxinn
undir sig hausinn og tók rokuna
niður úr. Línan tættist af hjólinu
og veiðimaður æddi á eftir í blóð-
spreng. Niður við Þrastarlundar-
brú slógust með í förina veiði-
menn sem voru að taka saman
eftir veiðidaginn, Árni komst upp
á brúna og skipti um bakka, rak
flóttann áfram niður Alviðru-
bakkann. Það var ekkert lát á
laxinum sem stökk áfram og
strikaði og reif út æ meiri línu.
Leiknum lauk loks fyrir neðan
svokallaða Klöpp, sem er neðsti
veiðistaður í Alviðru. Þá sleit lax-
inn tauminn, en úti voru um 200
metrar og aðeins örfáir vafningar
eftir á hjólinu. Hélt Árni línu
sinni, en tapaði bæði laxi og
flugu. „Þrátt fyrir hamaganginn
voru engin þreytumerki að sjá á
laxinum. Þetta var 2 kílómetra
sprettur og ég hef aldrei upplifað
annað eins í veiði og reikna ekki
með því að endurtaka það,“ sagði
Árni sem reiknaði aftur á móti
fastlega með því að fara aftur í
Kúagilið og kasta flugunni sinni.
-gg-
Hluttallsleg eyðsla heimilanna
Hlutfall heildarútgjalda heimila í nokkrum löndum til eftirtalinna málaflokka
Matur, drykkjarvörur og tóbak
N O R E G U R
---------—'
124,5%
126,4%
I 23,4%
3 20,6%
L&JLS. ft AÁ AN P 116,4%
IPORTÚOAL
I S L A N D
N O R E G U R
20,0% HÚsnæðí,
i — | |...... ~i 17,0% Ijós og hiti
{JiÝSKALAND 118,2%
I PORT.\ 5.0%
37,1 °/
14,6%
15,4%
20,5%
Samgöngur,
fjarskipti,
pósturog sími
PÝSKALAND l 8,7%
PQRTÚGAL J 8,6%
Húsgögn,
heimilisbúnaður,
regluleg útgjöld
íslendingar eyða minnstu
í heilbrigðisþj ónustu
í bæklingnum „EES í tölum,“ sem gefínn er út af Hagstofu Evrópu-
bandalagsins, má sjá ýmsar upplýsingar og lykilstærðir um aðildarlönd
hins fyrirhugaða EES-samstarfs. Bornar eru saman einstakar þjóðir, og
einnig þjóðabandalögin þijú, EFTA, EES og EB.
Hreinar ráðstöfunartekjur á íbúa 1989, mældar að teknu tilliti til
kaupmáttar, eru næstlægstar á íslandi af Norðurlöndunum. Aðeins Svíar
hafa lægri ráðstöfunartekjur. Á meðfylgjandi mynd má sjá útdrátt úr
töflu EB.