Morgunblaðið - 08.08.1992, Page 12

Morgunblaðið - 08.08.1992, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992 Guðbjartur Jónsson Skiltíð sem Guðbjartur Jónsson, eigandi Vagnsins, setti upp. Flateyri; Deilur um auglýsinga- skilti við þjóðveginn DEILUMÁL hefur risið upp á Vestfjörðum á milli Guðbjarts Jónssonar, veitingamanns á Flat- eyri, og Vegagerðar ríkisins. Guðbjartur reisti auglýsinga- skiltí við afleggjarann að Flat- eyri en Vegagerðin tók skiltíð niður. „Ekkert skilti er við afleggjarann frá þjóðveginum að Flateyri, sem segir að á Flateyri sé að finna veit- ingaþjónustu, gistiaðstöðu, sund- laug, tjaldstæði og fleira. „Þess Biskup vísi- terar Hún- vetninga BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, vísiterar Húna- vatnsprófastsdæmi dagana 11.-24. ágúst. Biskup mun heimsækja alla söfnuði prófastsdæmisins, 28 að tölu, og ræða við safnaðarmenn og presta og predika við guðs- þjónustur og helgistundir í kirkj- unum Vísitasía biskups hefst 11. ágúst með messu í Holtastaða- kirkju kl. 14. Síðar um daginn og um kvöldið verða helgistund- ir í Bólstaðarhlíðarkirkju og Bergsstaðakirkju. í för með biskupi verður eigin- kona hans, frú Ebba Sigurðar- dóttir, og prófastur Húnvetn- inga, séra Guðni Þór Ólafsson, og eiginkona hans, frú Herbjört Pétursdóttir. vegna keyrir fólk fram hjá af- leggjaranum án þess að hafa hug- mynd um að Flateyri hafi upp á nokkuð að bjóða", sagði Guðbjartur Jónsson við Morgunblaðið. Hann segir að sumarið sé að verða búið og Flateyringar séu að missa af aðal ferðamannastraumn- um. Guðbjartur brá því á það ráð, til hans sögn, að láta útbúa skilti, sem auglýsir Vagninn, veitinga- staðinn sem hann á og rekur. Hann setti það svo upp við afleggjarann. Vegagerðin brást við með því að rífa skiltið niður eins og reglur segja henni að gera. Gísli Eiríksson, umdæmisverk- fræðingur Vegagerðarinnar á þessu svæði, segir að reglur, sem hafí verið settar í samvinnu Vegagerð- arinnar og Náttúruvemdarráðs, banni önnur skilti en stöðluð skilti Vegagerðarinnar við þjóðvegina og þeir sem vilji að þau séu sett upp verði að borga fyrir þau. Engin greiðsla hafí borist frá Flateyri og því hafí ekki verið hægt að setja neitt skilti upp. Nýlega hafa verið sett upp skilti fyrir ferðamenn sem koma til Vest- fjarða en á þeim er hvorki talað um veitingastað né sundlaug á Flat- eyri. Næsta skilti við Flateyri er í um 40 km fjarlægð. Hjá Flateyrarhreppi fengust þær upplýsingar að málið sé á frumstigi hjá þeim en hreppurinn hafi hugsað sér að nýta sér þá skiltaþjónustu sem Vegagerðin bjóði upp á. „Það hljóta að eiga að vera hags- munaaðilar sem ættu að sjá um þetta en ekki einhveijir aðrir“, sagði Guðbjartur, „og það versta er auð- vitað að það vantar alla heildar- mynd svo ég viti hvernig ég eigi að snúa mér í þessum málum.“ íslensk menningarstarfsemi: Steinunn Biraa kynnir tónlist í Bandaríkj unum STEINUNN Birna Ragnars- dóttír píanóleikari var nýlega gestur í klukkustundarlöngum þætti fyrir útvarps- og sjón- varpsstöðina WGBH, þar sem hún kynntí íslenska tónlist og sat fyrir svörum um íslenska þjóð og menningu. Þátturinn er sendur til margra milljóna áheyrenda í Bandaríkjunum og víðar. Flutt voru verk eftir Jón Nor- dal, Þorkel Sigurbjömsson og sjálf lék Steinunn verk eftir Sveinbjörn Sveinbjömsson, Scarlatti og Schumann. Þátturinn var sendur út til um eitt hundrað stöðva í Bandaríkjunum í gegnum gervi- tungl og auk þess í gegnum Voice of America til Ástralíu, Englands og fleiri landa. Víst er að með þessum flutningi hefur íslensk tónlist fengið mjög víðtæka kynn- ingu. „Fyrir utan það að vera per- sónulegur heiður fyrir mig var Steinunn Birna Ragnarsdóttír þetta talsverð landkynning. Ég fékk tækifæri til að kynna ís- lenska tónlist, sem var mjög gam- an vegna þess hve fátt fólk gerir sér grein fyrir hve blómlegt tón- listarlífið er á íslandi. Svo fengu þeir líka að heyra rímur sem hristi dálítið upp í þeim. Ég lék hefð- bundna píanótónlist og rakti sögu íslenskrar tónlistar. Ég valdi m.a. tónlist eftir Jón Nordal og Þorkel Sigurbjörnsson sem leikin var af geisladiskum auk þess sem ég flutti hefðbundna píanótónlist," sagði Steinunn. Þátturinn hefur þegar opnað dyr fyrir Steinunni vestra. „For- svarsmenn stöðvarinnar viðmðu áhuga sinn á því að ég stýrði þáttaröð í útvarpi um íslenska tónlist, og væri það mjög spenn- andi ef til kæmi,“ sagði Steinunn. Steinunn nam píanóleik í Bos- ton í Bandaríkjunum og lauk mastersgráðu frá New England Conservatory of Music 1987 og starfaði síðan þar og á Spáni við tónleikahald áður en hún flutti heim. Hún starfar nú við Tónlist- arskólann í Reykjavík. Fískræktín getur bætt okkur upp þorskleysið - segir Skúli Pálsson frá Laxalóni SKÚLI Pálsson frá Laxalóni segir að íslendingar hafi alla möguleika á að verða forystuþjóð í fiskirækt. Jarðhitinn geri það að verkum að hér ætti að vera hagkvæmara að framleiða ýmsar tegundir sem þyrftu góðan hita, til dæmis skelfisk, en í löndum þar sem nauðsynlegt væri að nota upphitað vatn við ræktunina. Hann segir að helst skorti á að stjórnvöld notfærðu sér þá fiskeldisþekkingu sem til væri í landinu og bendir á að afdrifarík mistök hafi verið gerð við uppbyggingu fisk- eldisins þess vegna. Skúli sem er einn af frumkvöðlum fiskeldis hér á landi, rak í áratugi fiskeldisstöðina Laxalón. Hann hætti afskiptum af atvinnugreininni fyrir nokkmm árum en fylgist enn með þróuninni hér og erlendis. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að víða væri verið að skera niður fiskik- vóta vegna ofveiða á höfunum. „Þeg- ar búið er að gjörnýta og eyða einum Tilboð í vegagerð 56% og 58% af kostnaðaráætlun VEGAGERÐIN hefur samið við annars vegar Háfell hf. um bundið slitlag á vegarkafla á Mýrum og hins vegar við Vörubifreiðastjórafélag- ið Mjölni um undirbyggingu undir klæðningu á Biskupstungnabraut. Þessi fyrirtæki áttu lægstu tilboð í verkefni og voru þau 56% og 58% af kostnaðaráætlun. Tilboð í Ólafsvíkurveg um Mýrar vora opnuð mánudaginn 27. júlí síð- astliðinn. Birgir Guðmundsson, yfír- verkfræðingur Vegagerðarinnar í Borgamesi, segir að þegar þessu verki lýkur verði komið bundið slitlag allt vestur til Vegamóta og því sé þetta töluverður áfangi. Lægsta til- boð barst frá Háfelli hf. og hljóðaði upp á 46.758.000 kr. eða 56% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Búið er að skrifa undir samning við Háfell hf. Birgir segir að vegarsvæðið á Mýmm sé mjög mýrlent og því sé búist við að fyllingar sígi. í útboðinu var því lögð áhersla á að á ákveðnum köflum vegarins væri fyllingu lokið fyrir veturinn svo að sigið væri kom- ið fram næsta vor. Einnig þarf að sprengja leið í gegnum kletta og að þessu tvennu leyti er verkið því frá- bmgðið hefðbundnum verkum. Næsta sumar á svo að leggja bundið slitlag á veginn. Kostnaðaráætlun vegagerðarinnar var 83.187.000 kr. og átti Háfell hf. í Garðabæ lægsta tilboðið, eins og áður sagði. Næstlægsta tilboðið var frá Suðurverki hf. á Hvolsvöllum, 53.194.500 kr. eða 64% af kostnað- aráætlun, þriðja lægsta var frá Loft- orku Borgarnesi hf., 54.096.500 kr. eða 65% af áætlun, og fjórða lægsta frá Klæðningu hf., 57.313.000 kr. eða 69% af áætlun. Hæsta tilboðið átti ístak hf., 87.828.813 kr. eða 105% af kostnaðaráætlun. Eiður Haraldsson, forstjóri Háfells hf., segir að þetta lága tilboð sé eng- in tilviljun og þetta sé spuming um að hafa eitthvað fyrir tækin og starfsmenn að gera en um 10 manns vinna nú hjá fyrirtækinu. Þó að um sé að ræða mýrlendi segir Eiður að það sé ekki áhætta fyrir fyrirtækið því Vegagerðin greiði sérstaklega fyrir það efni sem bæta þarf við vegna sigs. Svona lágt tilboð sé ekk- ert einsdæmi og verkefnin hjá Vega- gerðinni hafi verið að fara út á um 50% af kostnaðaráætlun hennar. Þá hafa verið undirritaðir samn- ingar við Vörubifreiðastjórafélagið Mjölni um byggingu undir klæðningu á Biskupstungnabraut, frá Dalbrún að Einholtsvegi. Mjölnir bauð lægst í verkið, 2.424.380 kr. eða 58% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Að sögn Guðmanns Guðmundssonar, verkstjóra hjá Vegagerðinni, er þetta rúmlega eins km leið. Guðmann sagði einnig að þetta verk væri unnið í framhaldi af verk- um sem framkvæmd hafa verið við þennan veg. Bundið slitlag verði lagt á þennan vegarspotta í ágúst og muni Klæðning hf. sjá um það. Að því loknu verði hægt að keyra á bundnu slitlagi allt frá Reykjavegi að Einholtsvegi, sagði Guðmann. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinn- ar hljóðaði upp á 4.154.000 kr. Næst lægsta tilboð kom frá Ræktun- arsambandinu Ketilbimi, 2.800.000 kr. eða 67% af kostnaðaráætlun, þriðja lægsta kom frá Páli Óskars- syni, Brekkuskógi, 2.888.735 kr. eða 70% af kostnaðaráætlun. Hæsta til- boðið kom frá Ræktunarsambandi Flóa og Skeiða, 4.690.000 kr. eða 113% af kostnaðaráætlun. stofni verður eitthvað annað að taka við, sagan sýnir okkur að það hefur alltaf gerst,“ sagði Skúli. Taldi hann að fískræktin gæti bætt okkur að vemlegu leyti upp þann samdrátt sem hér væri fyrirsjáanlegur í þorsk- veiðum. Skúli vakti athygli á því að upp undir helmingur af fískneyslu í heiminum væri af ræktuðum fiski, en rúmur helmingur af veiddum físki. Sem dæmi um mikilvægi fískeldis- ins nefndi hann að í Noregi ynnu nú 50-60 þúsund manns beint og óbeint við fískeldið og því væri spáð að um næstu aldamót myndu 100 þúsund manns hafa vinnu í grein- inni. Hér væru möguleikarnir miklir, þeir biðu eftir því að fá að hlaupa upp í fangið á okkur. En margt þyrfti að laga í stjómuninni svo að möguleikarnir nýttust. Sem dæmi um afdrifarík mistök í stjómuninni nefndi Skúli að opin- berir aðilar hefðu beint uppbygging- unni á staði þar sem ekki væri kalt vatn, aðeins heitt. Kalt vatn væri undirstaða fískeldisins og væri til nóg af því sjálfrennandi víðsvegar um landið. Stærstu stöðvarnar hefðu hinsvegar verið byggðar á Reykja- nesi, þar sem dæla þyrfti vatninu úr borholum, og væri enginn gmnd- völlur fyrir rekstrinum með þann viðbótarkostnað á bakinu. Nefndi hann sem dæmi að íslandslax þyrfti að borga 30 þúsund krónur á dag í kostnað við dælingu á köldu vatni og Lindalax þyrfti að greiða 10 þús- und krónur. Ekki þyrfti neina spek- inga til að sjá að þetta gengi ekki þegar menn ættu kost á nægu sjálf- rennandi vatni á öðrum stöðum og jafnvel heitu vatni á sama stað. Skúli sagði að fiskeldismenn hefðu ekki aðeins þurft að beijast við opinbera aðila. Stéttarsamband bænda hefði samþykkt á aðalfundi sínum árið 1980 að skora á landbún- aðarráðherra að beita sér fyrir laga- setningu sem stemmi stigu við verk- Skúli Pálsson. smiðjubúskap í landinu, þar á meðal í fískirækt. Sagði Skúli að þama hefði verið farið fram á að fiskeldi á íslandi yrði bannað með lögum. Þetta sýndi vel hvaða hug samtök bænda hefðu borið til fískeldisins og við hvaða hugsanagang menn hefðu átt að eiga. Skúli sagði að vegna jarðhitans hefðu íslendingar alla möguleika á að verða forystuþjóð í fiskeldinu. Ekki borgaði sig fyrir menn að setja niður stöðvar í löndum þar sem þeir þyrftu að leggja í kostnað við að hita vatnið upp þegar þeir ættu kost á hitanurri úr jörðinni. Hægt væri að hafa kjörhita á eldisvökvanum, hita sem hentaði fiskinum og ræktun hans best. Jarðhitinn skapaði mögu- leika á að fóðra fískinn allt árið og stjórna framboðinu árið um kring. Auk lax og regnbogasilungsrækt- ar sagði Skúli að miklir möguleikar væm í ræktun á ýmsum tegundum, svo sem skelfiski. Einnig tegundum sem hingað til hefðu aðallega verið veiddar í hafínu hér við land, svo sem þorski, lúðu, rækju og humri. Sagði hann að ræktun á þorski hefði fleygt fram á undanfömum árum og nú væru Danir og Norðmenn farnir að rækta þorsk með góðum árangri. Taldi hann að íslendingar hefðu ekki síðri möguleika til slíkrar framleiðslu en þessar nágrannaþjóð- ir okkar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.