Morgunblaðið - 08.08.1992, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1992
m&nm
Hjá okkur hefur ekkert tek-
ið neinum breytingum nema
heimilisfangið.
*
Aster...
7-8
... þegarhann fyllir flestar
síður í dagbókinni.
TM Reg U.S Pat Off.—all rights reserved
• 1992 Los Angeles Times Syndicate
Ég komst ekki heim fyrr
vegna yfirvinnunnar...
JMtogmiMiifeito
BRÉF TIL BLAÐSINS
Aðalstræti 6 101 Reylqavík - Sími 691100 - Símbréf 691222
Slys eða ásetningnr?
FráJóhanni F. Guðmundssyni:
Morgunblaðið: Sunnudagur 26. júlí
1992. Fyrsta frétt á forsíðu: Var
Kristur fráskilinn faðir? Hver getur
verið tilgangur slíkrar fréttar? Tel-
ur Morgunblaðið í alvöru að líkur
séu á því að búið sé að kollvarpa
því sem er grundvöllur kristinnar
trúar, upprisu Jesú Krists?
Ég vísa til orða Páls postula:
En ef Kristur er ekki upprisinn, er
trú yðar fánýt. Þér eruð þá enn í
syndum yðar. (1. Kor.)
Ég rakst á eftirfarandi í kristi-
Iegu smáriti, „Our Daily Bread“
nýlega, sem mér fínnst vel við
hæfi að komi fram vegna þessa
tilefnis. Yfírskrift greinarinnar er:
Tveir hrokafullir ráðamenn. „Því
hver sem upphefur sjálfan sig mun
auðmýktur verða, en sá sem auð-
mýkir sjálfan sig mun upphafmn
verða. (Lúkasar guðspjall.)
Hvað er sameiginlegt með
Nebúkadnesar konungi hinnar
fomu Babýlon og Nikolai Ceau-
sescu forseta Rúmeníu? Báðir voru
miskunnarlausir harðstjórar, sem
misstu völd sín. Nebúkadnesar
gortaði af því að hafa byggt hina
miklu borg Babýlon með sínum eig-
in mætti. „Er þetta ekki sú hin
mikla borg Babýlon, sem ég hef
reist að konungssetri með veldis-
styrk mínum og tign minni til
frægðar?" Guð auðmýkti hann og
sendi út meðal dýra merkurinnar
andlega sjúkan. (Daníel, G. test-
am.)
Ceausescu sem í mörg ár af
mikilli grimmd ofsótti hina kristnu
og lét taka af lífí þá sem hann
taldi hættulega fyrir sig og völd
sín. Hann fyrirskipaði ríkisópemnni
að gera tónverk sér til dýrðar, þar
sem þessi orð kæmu fram í texta
verksins. „Ceausescu er góður,
réttlátur og heilagur." Þetta verk
skyldi síðan leikið og sungið á 72.
ára afmælisdegi hans 26. janúar
1990. En 25. desember 1989 voru
hann og kona hans tekin af lífí.
Jafnvel þótt honum væri steypt af
stóli um leið og byltingin gekk yfir
í Austur-Evrópu, eru margir kristn-
ir menn sem sjá endalok hans sem
verk Guðs.
Rúmeni, Peter Dugulescu, sagði
að hér væri um að ræða afleiðingu
þess að taka fyrir sig þann heiður
sem Guði einum ber. Guð sendir
ekki alltaf strax dóm þeim til handa
sem ræna guðdómi Hans eða leit-
ast við að ræna Hann þeim heiðri
sem Honum ber, en fyrr eða síðar
kemur fram sannleikur Guðs orða:
„Því hver sem upphefur sjálfan sig
mun auðmýktur verða, en sá sem
auðmýkir sjálfan sig mun upphaf-
inn verða.“ „Þeir sem ráða fyrir
mönnum, ættu að lúta ráðum
Guðs.““ Hér lýkur greininni.
Að lokum: „Það allt sem þér
gjörðuð einum minna minnstu
bræðra, það hafið þið gjört mér.“
(Matt. guðspjall.)
„Villist ekki! Guð lætur ekki að
sér hæða, það sem maður sáir, það
mun hann og uppskera.“ (Galata-
bréfið.)
Jesús er upprisinn, samanber
Hann er ekki hér, hann er uppris-
inn. (Lúkasar guðspjall.)
Kraftur upprisunnar verður ekki
brotinn. Jesús er og verður sonur
Guðs. Frelsari mannanna, þeirra
sem á Hann trúa, en sárt var og
ógeðfellt að lesa þessa frétt í Morg-
unblaðinu á sunnudagsmorgni.
JÓHANN F. GUÐMUNDSSON
Látraströnd 8, Seltjamarnesi
HEILRÆÐI
C <\
Mikilvægt er að stigaop séu lokuð þar sem
lítil börrí eru á ferð.
HÖGNI HREKKVÍSI
,/HANlN ððS& ÖNESlNTMI."
Víkverji skrifar
eir sem þurfa að fara til lækn-
is hafa sjálfsagt margir lent
í þeirri óskemmtilegu reynslu að
bíða lon og don á biðstofunni áður
en röðin kemur að þeim, jafnvel
þótt þeir eigi pantaðan tíma. Vík-
veiji varð vitni að slíku í vikunni
þegar hann fylgdi aldraðri vinkonu
sinni til viðtals við lækni á heilsu-
gæslustöð. Konan, sem er hátt á
áttræðisaldri, átti pantaðan tíma
kl. 16.15 og var komin á staðinn
kl. 16, til að hafa vaðið fyrir neðan
sig. Víkveiji leit við kl. 16.45, til
að aðgæta hvort konan væri búin
að sinna erindi sínu. Svo reyndist
ekki vera, því hún beið enn á bið-
stofunni, hálfri klukkustund eftir
að tími hennar átti að heíjast. Það
var svo ekki fyrr en kl. 17.20 sem
hún loksins komst að og var þá
orðin afar þreytt á að sitja á biðstof-
unni í rúma klukkustund. Eina
skýringin sem reynt var að bera á
borð var sú að læknirinn væri að
leysa aðra heilsugæslulækna af í
sumarfríi þeirra og hefði því svo
mikið að gera. Víkveiji hefur hins
vegar sjálfur lent í svipuðu svo oft,
og heyrt frásagnir annarra af langri
bið á læknabiðstofum, að hann get-
ur ekki annað en velt þvi fyrir sér
hvort læknar ætla ekki sjúklingum
sínum of skamman tíma. Svo þegar
líða tekur á daginn eru allir viðtals-
tímar komnir úr skorðum og sjúk-
lingar mega bíða drjúga stund. Þó
oft geti sjálfsagt verið erfitt að
koma í veg fýrir slíkt væri afsökun-
arbeiðni í það minnsta ekki óeðlileg.
xxx
Víkveiji bíður óþreyjufullur eftir
því að hið nýja, glæsilega
listasafn á Korpúlfsstöðum verði
fullbúið. Þarna verður Erró-safnið,
listaverkagjöf Errós til íslendinga,
til húsa, ásamt deild frá Listasafni
Reykjavíkur, fjölnota sal fyrir leikr
list, fundi, upplestur og tónlist, list-
bókasafni og aðstöðu til rannsókna-
starfa. Markús Örn Antonsson
borgarstjóri sagði réttilega í sam-
tali við Morgunblaðið að húsið verði
ekki einungis menningarmiðstöð
fyrir Reykvíkinga og landsmenn
alla, heldur alþjóðlegt listasafn sem
muni vekja athygli og áhuga víða
um lönd. Og ekki lét Erró upphaf-
legu gjöfína nægja, því hann vinnur
nú að tólf nýjum myndverkum sér-
staklega fyrir þetta safn.
Sjálfsagt eiga einhveijir eftir að
fetta fingur út í kostnaðinn við
framkvæmdimar á Korpúlfsstöð-
um, sem áætlað er að verði 1,4
milljarðar, enda fer stórhugur oft
fýrir bijóstið á þeim sem smærra
hugsa. Víkveiji átti þess kost að
ganga um salarkynnin á Korpúlfs-
stöðum fyrir nokkru ásamt franska
arkitektinum Philip Bartelemy, sem
Erró tilnefndi til að vinna að safn-
inu. Hugmyndir arkitektsins að
þeim hluta hússins voru margar
stórbrotnar og Víkveiji þorir að
fullyrða að þarna verður afar glæsi-
legt um að litast þegar framkvæmd-
um lýkur. Korpúlfsstaðir verða
glæsileg eign Reykvíkinga og þjóð-
arinnar allrar.