Morgunblaðið - 05.09.1992, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
201. tbl. 80.árg.
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Borgarastyrjöld í suðurhluta Tadzhíkístan
Þingið kom for-
setanum ekki frá
Dúshanbc. Reuter.
HARÐIR bardagar geisuðu í gær milli stuðningsmanna og andstæð-
inga Rakhmons Nabíjevs, forseta fyrrum sovétlýðveldisins Tadzhí-
kístans. Aðallega var barist í suðurhluta landsins, talið er að um
þrjátíu hafi fallið í gærdag en hundruð manna í vikunni.
Tadzhíkístan, sem er ríki aðal-
lega byggt múslímum og með
landamæri að Afganistan og Kína,
hefur verið nánast stjórnlaust frá
því á mánudag er hópur andstæð-
inga forsetans náði yfirráðum yfir
Ofurmenn-
inu brugg-
uð banaráð
New York. Reuter.
SUPERMAN á skammt eftir ólif-
að. Þótt hið 54 ára Ofurmenni sé
snegg^ra en hvínandi kúla og afl-
meira en eimreið fær það ekki
ráðið við sljórnendur, teiknara og
textahöfunda DC-myndasagna.
Þeir hafa lagt á ráðin um dauða
Ofurmennis í átökum við ógnvald-
inn Dómsdag í 75. tölublaði teikni-
myndasögunnar sem út kemur í
nóvember.
Mike Carlin, ritstjóri Ofurmennis-
blaðanna, segist undrandi á hve mik-
inn úlfaþyt áformin hafi vakið. „Eng-
inn tók eftir Ofurmenni lengur," seg-
ir hann. Alls er óvíst hvort Ofur-
mennið verði síðar lífgað við og seg-
ir Carlin ekki vitað hvernig íbúar af
plánetunni Krypton, fæðingarstað
Ofurmennis, bregðist við jarðneskum
leiðarlokum. Hann segir hættuspil
að enda tilvist Ofurmennis, sem brá
sér tíðum úr gervi hins hægláta
fréttamanns Clarks Kents og flaug
með þanda skikkju til að takast á
við misyndismenn. Hins vegar telja
sérfræðingar í teiknimyndaiðnaði að
andlátið sé kænn leikur sem rífa
muni upp sölu Ofurmennis-blaða svo
mánuðum skiptir.
forsetahöllinni. Þing lýðveldisins
var í gær kallað saman til að taka
ákvörðun um að svipta forsetann,
fyrrum yfirmann kommúnista-
flokksins, völdum. Það gekk hins
vegar ekki eftir þar sem einungis
80 þingmenn af 221 voru viðstadd-
ir en 154 hefði þurft til atkvæða-
greiðslunnar.
Andstæðingar Nabíjevs forseta,
sem eru jafnt múslímar sem fijáls-
lyndir, saka forsetann um að hika
við að koma á umbótum og að hann
hafi ekkert gert til að stöðva átök
í suðurhluta lýðveldisins, sem eru
farin að taka á sig mynd borgara-
styrjaldar.
Heimili Serba í Gorazde brennur en múslimum
hrekja umsátursmenn þeirra nokkuð frá.
Reuter
í borginni hefur að sögn eftirlitssveitar SÞ tekist að
Ekkert flogið með hjálpargögn til Sarajevo síðan ítölsk vél fórst
Staðhæfingar um að skotið
hafí verið á vélina ósannaðar
Genf, Róm, Sar^jevo, Zagreb. Reuter.
FLUTNINGAR hjálpargagna
til íbúa Sarajevo, höfuðborgar
Bosníu, hafa legið niðri síðan
ítölsk flugvél á leið til borgar-
innar fórst á fimmtudag og all-
ir í áhöfninni, alls fjórir, létust.
Stöðvun hjálparflutninga getur
haft alvarlegar afleiðingar fyr-
ir borgarbúa. Haft er eftir vitn-
um á slysstað og ítölskum ráð-
herrum að vélin hafi verið skot-
in niður af stríðsaðila en engar
Reuter
Tekist á vegna Jeltsíns
Lögregla í Tókýó setti í gær á svið átök við liðsmenn búna eins og
hægrisinnaðir óeirðaseggir og var æfingin þáttur í undirbúningi fyrir
heimsókn Borísar Jeltsín Rússlandsforseta til Japan um miðjan mánuð-
inn. Rússar sögðu í vikunni að ófullnægjandi öryggisgæsla gæti komið
í veg fyrir ferðina en hurfu síðan frá því hiki. I heimsókninni á að
ræða kröfu Japana um að Rússar skili fjórum eyjum norður af Japan
sem þeir tóku í lok seinni heimsstyijaldar, tveimur til að byija með.
Vaxandi þrýstingur er á Jeltsín að gefa þær ekki eftir en þörfin fýrir
efnahagsaðstoð Japana spilar væntanlega inní umræðurnar.
sannanir hafa komið fram um
það. Serbar sitja enn um
Gorazde norður af Sarajevo en
virðast hafa hörfað nokkuð
undan sveitum múslima sem
hafa borgina á valdi sínu. Milan
Panic, forsætisráðherra Júgó-
slavíu, hlaut í gær stuðning 111
þingmanna gegn 33 en fulltrúar
þjóðernissinnaðra Serba báru
fram á hann vantrauststillögu
í vikunni.
ítalska herflutningavélin af
gerðinni G-222 var á leið til
Sarajevo með 5 tonn af teppum
handa íbúum borgarinnar þegar
hún hrapaði nærri bænum Jesenik
34 kílómetrum vestur af Sarajevo
í fjalllendi þar sem Króatar og
múslimar hafa undirtökin.
Varnarmálaráðherra Ítalíu segir
allar líkur benda til að vélin hafí
verið skotin niður og starfsbróðir
hans fullyrðir að svo hafi verið.
íbúar í Jesenik segjast hafa séð
flugskeyti skella á vélinni en
starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
sem rannsaka flakið hafa ekki
fundið þess merki.
Owen lávarður, samningamað-
ur Evrópubandalagsins í málefn-
um Júgóslavíu, varar við hörðum
viðbrögðum SÞ. Komi í ljós að
vélinni hafi verið grandað verði
mun fastar gengið fram í að ná
stjórn á þungavopnum stríðsaðila
í Bosníu. Yfírmenn SÞ hafa kraf-
ist ítarlegrar rannsóknar á orsök-
um slyssins.
Flak vélarinnar er dreift yfir
stórt svæði sem bendir til að hún
hafi sprungið þegar hún hvarf af
ratsjárskjám í um 2.500 metra
hæð en ekki við að skella til jarð-
ar. Sérfræðingar segja að ef skot-
ið hafí verið á vélina hafí flaugin
komið úr sprengjuvörpu á jörðu
niðri. Búnaður Serba er ekki tal-
inn nógu öflugur til að þeir gætu
talist ábyrgir fyrir verkinu.
SÞ fóru fram á 434 milljóna
dala aðstoð við fómarlömb stríðs-
ins í Bosníu-Herzegóvínu á ráð-
stefnu sem nú stendur yfir í Genf
um málefni fyrrum Júgóslavíu.
Peningana á að nota til kaupa á
matvælum, lyfjum og nauðsynleg-
um hjálpargögnum fyrir veturinn.
Sadako Ogata, yfírmaður flótta-
mannahjálpar SÞ, segir kuldana
framundan geta reynst skæða
þeim tveimur milljónum heimilis-
lausra flóttamanna sem nú eru í
Bosníu og Króatíu. Bandaríkja-
menn lofuðu í gær 40 milljónum
dala til hjálparstarfsins.
Sameinuðu þjóðirnar hætta hjálparflugi
til Sarajevo á meðan rannsókn stendur
yfir á hrapi ítalskrar vélar á leið
þangað með hjálpargögn.
Fjögurra manna áhöfn fórst
Skotið var á fjórar banda- Brak úr vélinni bendir til
riskar þyrlur sem sendar að sprenging hafi orðið
voru af flugmóðurskipi á meðan hún var enn
á slysstað_________________á lofti___________reuter
Fríðrik segir hnökra á
för sinni til Sveti Stefan
FRIÐRIK Ólafsson skrifstofustjóri Alþingis og stórmeistari í skák
segir ýmsa hnökra á því að hann geti tekið að sér dómgæslu í ská-
keinvígi þeirra Bobby Fischers og Borísar Spasskís í Svartfjalla-
landi. „En óneitanlega væri áhugavert að fara,“ segir Friðrik sem
í fyrradag var beðinn formlega að dæma skákirnar frá 10. september.
„Auðvitað kitlar þetta boð,“ seg-
ir Friðrik, „en ýmsar hliðar málsins
eru óljósar og þarf að athuga betur
áður en ég get svarað þeim í Sveti
Stefan. Ég er í starfí sem verður
að sinna, fyrirvarinn er ansi stuttur
og ómögulegt að gera þetta nema
ljóst sé að það fari ekki gegn sjónar-
miðum íslenskra stjórnvalda vegna
viðskiptabanns á Júgóslavíu.“
Hérlendis var sett reglugerð fyr-
ir þrem mánuðum vegna ályktunar
Öryggisráðs SÞ um refsiaðgerðir
gegn sambandslýðveldinu Júgó-
slaviu (Serbiu og Svartfjallalandi).
Þar segir meðal annars að menning-
arleg samskipti við lýðveldið séu
óheimil og kveðst Gunnar Pálsson
skrifstofustjóri í utanríkisráðuneyt-
inu hljóta að telja skákeinvígið falla
undir þetta ákvæði.