Morgunblaðið - 05.09.1992, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.09.1992, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 Björgvin Guðmunds- son — Minning Fæddur 15. nóvember 1932 Dáinn 30. ágúst 1992 Hann elsku afi okkar er dáinn. Okkur finnst það sárt og óréttlátt, en hann var búinn að vera svo mik- ið veikur og svo lengi. Það var svo gaman að vera hjá afa í Birtó eins og við kölluðum hann, bæði þar og í sumarbústaðnum og ekki megum við gleyma fjörunni á Stokkseyri. Afí sagði okkur oft frá Stokkseyri því þar átti hann heima svo lengi og þótti honum mjög vænt um þann stað. Þegar við fórum með honum í fjöruna fannst honum jafn gaman og okkur. í sumarbústaðnum feng- um við alltaf að smíða, raka heyið og setja það í litlar hjólbörur sem amma og afi höfðu keypt handa okkur. Svo fór afi líka oft með okk- ur að veiða, sem okkur þótti ofsa- lega gaman. Okkur fínnst erfitt að hafa afa ekki hjá okkur lengur en nú iíður honum vel. Með þessum orðum kveðjum við elsku afa okkar og þökkum fyrir að hafa átt hann að. Elsku amma, megi Guð hjálpa þér í sorginni. Blessuð sé minning hans og megi hann hvíla í friði. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin, á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem). Barnabörn. I dag þegar mágur okkar, Björg- vin Guðmundsson, verður iagður til hinstu hvíldar í Stokkseyrarkirkju- garði koma í hugann ljúfar og þakk- látar minningar liðinna daga. Við sjáum þorpið okkar í fjarlæg- um bláma bernskuminninga, þegar ungt fólk með sömu þrár og vænt- ingar, sem alltaf fylgja vissum aldri, gekk um götur og stíga til að hitt- ast og gleðjast. Björgvin Guðmundsson var fædd- ur í Merkigarði á Stokkseyri 15. nóvember 1932, sonur hjónanna Þorbjargar Asgeirsdóttur og Guð- mundar Einarssonar. Hann var yngstur fjögurra bræðra þeirra Merkigarðshjóna. Hinir eru Svein- björn, útibússtjóri KÁ á Stokkseyri, Konráð, framkvæmdastjóri á Hóteí Sögu, og Ásgeir, húsvörður hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Selfossi. Björgvin kvæntist 9. apríl 1955 Kristínu Jósteinsdóttur frá Haust- húsum á Stokkseyri. Þau hófu bú- skap á Stokkseyri og bjuggu þar til ársins 1981 er þau fluttu til Reykja- víkur. Við munum að við vorum bæði stoltir og ánægðir með þennan ráðahag systur okkar. Merkisgarðsfólkið var þekkt sómafólk og bræðurnir sem þar voru að alast upp gjörvilegir og líklegir til góðra verka. Sú hefur líka orðið raunin á. Seinna áttum við svo eftir að reyna hvern mann Björgvin hafði að geyma. Því lengri sem kynnin urðu treystust bönd vinsemdar og virðingar og bar þar aldrei skugga á. Kristín og Björgvin eignuðust fjögur börn. Þau eru: Ingibjörg, gift Herði Inga Jóhannssyni. Þau eiga 3 börn; Guðmundur, ókvæntur; Brynja, gift Vilbergi Magna Óskars- syni. Þau eiga 3 börn; Svandís Björg, ógift í foreldrahúsum. Björgvin var framfarasinnaður dugnaðarmaður. Hann var' sérlega laginn til allra verka. Ungur eignað- ist hann vörubíl með ámoksturs- krana, sem ekki var algengt á þeim árum og vann þá við að flytja sand frá Stokkseyri til Sandsölunnar í Reykjavík. Um áraraðir var hann svo starfsmaður Hraðfrystihúss Stokkseyrar og hafði þá umsjón með vélum hússins ásamt fleiru. Hann setti upp harðfisksgerð á Stokkseyri og vann þar um skeið ásamt fjöl- skyldu sinni. Síðustu árin starfaði Björgvin hjá Þýsk-íslenska fyrirtæk- inu í Reykjavík. Þar vann hann meðan heilsan leyfði, vinsæll og virt- ur af starfsfólki og eigendum fyrir- tækisins. Um árabil þjáðist Björgvin af ill- vígum blóðsjúkdómi sem oft lék hann grátt. Við sem erum svo lán- söm að vera heilsuhraust getum áreiðanlega ekki alltaf sett okkur í spor þeirra sem við erfið veikindi eiga að stríða. Allan tímann sem Björgvin og Kristín áttu heimili á Stokkseyri voru frændur og vinir ævinlega vel- komnir í heimsókn. Þar var oft sest að veisluborði. Já, það var sannar- iega gott þegar hin óviðráðanlega ástríða greip mann, að skreppa aust- ur á ströndina, að geta þá komið við hjá „Dídí og Bjögga", sest við eldhúsborðið og drukkið kaffisopa. Þá er eftir að geta þess sem hátt ber, en það er hvernig þau hjón, Björgvin og Kristín, reyndust for- eldrum okkar, þegar þau voru orðin öldruð og hjálparþurfi. Þar var hlut- ur Björgvins Guðmundssonar stór. Systur okkar, Kristínu, börnunum og fjölskyldum þeirra, bræðrum Björgvins svo og öllum vandamönn- um sendum við systkinin og okkar fjölskyldur innilegar samúðarkveðj- ur. Björgvin Guðmundsson var og vildi vera Stokkseyringur. Hann hef- ur nú um nokkur ár átt heimili í Reykjavík. Hann var í góðu starfi og allt hefði vel blessast ef heilsan hefði ekki brugðist og óviðráðanleg- ur sjúkdómur lagt hann að velli um aldur fram. Hugur hans mun þó oft hafa leitað heim til þorpsins þar sem hann dvaldist stærstan hluta ævi sinnar. Nú er hann kvaddur hinsta sinni og lagður í mjúkan sandinn fyrir ofan sjógarðinn heima. Genginn er góður drengur. Blessuð sé minning hans. Björgvin og Einar Jósteinssynir í dag er borinn til grafar frá Stokkseyrarkirkju tengdafaðir minn, Björgvin Guðmundsson, Birtmga- hvísl 34, Reykjavík. Bjöggi, eins og allir kölluðu hann, fæddist 15. nó- venmber b932 í Merkigarði á Stokkseyri, sonur hjónanna Þor- bjargar Ásgeirsdóttur og Guðmund- ar Einarssonar og var yngstur 4 bræðra og bjó þar öll sín uppvaxtar- ár. Árið 1955 giftist hann Kristínu Jósteinsdóttur og áttu þau gott og farsælt hjónaband. Þau eignuðust 4 börn, Ingibjörgu, Guðmund, Brynju og Svandísi Björgu. Bjöggi og Dídí byggðu sér hús á Stokkseyri og bjuggu þar til ársins 1981 er þau fluttu til Reykjavíkur. Bjöggi starf- aði lengi sem vörubílstjóri því næst sem vélamaður í Hraðfrystihúsi Stokkseyrar þar til að hann stofnaði eigið fyrirtæki sem hét Fiskverkun B.G. og var framleiðslan harðfiskur. Árið 1981 ákváðu Bjöggi og Dídí að flytjast til Reykjavíkur vegna tíðra læknisferða hans og seldi hann þá fyrirtækið í miklum blóma og fluttust þá búferlum. í Reykjavík starfaði hann hjá Þýzk-íslenska hf. við hin ýmsu störf til ársins 1990 er hann hætti að vinna vegna veik- inda. Ég kom inn í ættina 1979 og var mér mjög vei tekið frá fyrstu tíð. Bjöggi var mjög góður við mig í gegnum súrt og sætt, hann var mjög ráðagóður maður og þótti mjög vænt um ef ég leitaði ráða hjá hon- um. Hann var mjög ákveðinn maður og hafði sínar skoðanir á hreinu og fannst mér hann hafa vit á öllum hlutum, eins og t.d. einu sinni þegar hann fann út hvað amaði að bílnum mínum í gegnum síma. Bjöggi var með blóðsjúkdóm í hart nær 30 ár og voru síðustu tvö og hálfa árið sérstaklega erfið. Bjöggi átti orðið 6 barnabörn sem öll elskuðu afa sinn mjög heitt. Hann var mjög góður afí og þótti þeim gaman að heim- sækja ömmu og afa, sérstaklega í sumarbústaðinn, því þar leyfði afi þeim alltaf að smíða. Bjöggi var lag- hentur maður og gerði helst allt sjálfur og þótti honum sárt undir það síðasta að þurfa að láta aðra gera hlutina fyrir sig. Með þessum fáu orðum kveð ég minn ástkæra tengdaföður, elsku Dídí, Inga, Gummi, Brynja og Svandís Björg, megi Guð styrkja ykkur og Ijöiskylduna alla á þessari sorgarstundu. Þótt vér sjáumst oftar eigi, undir sól, er skín oss hér, á þeim mikla dýrðardegi, Drottins aftur fmnumst vér. (J. Schjorreng. H. Hálfd.) Hörður Ingi. Björgvin Guðmundsson, tengda- faðir minn, lést á Landspítalanum í Reykjavík 30. ágúst sl. eftir skamma legu en margra ára baráttu við erfið- an sjúkdóm. Kveð ég þar góðan vin, sem ávallt var til halds og trausts er til hans var leitað og svo margs er að minn- ast þegar Björgvin er_,kvaddur að ekki verður það allt talið í stuttri grein. Margar góðar stundir áttum við saman, sérstaklega minnist ég þeirra stunda þegar við komum með barna- börnin til þeirra hjóna í sumarbústað þeirra, en þann bústað hafði Björg- vin byggt og var óþreytandi að eyða þar stundum sínum, þar naut hann þess að vera afi og hafa hjá sér barnabörnin. Björgvin var kjölfesta heimilisins og þó á móti blési stóð hann ávallt upp úr eins og klettur í hafínu. Hann var einnig okkar stoð og stytta, sem við gátum reitt okkur ár, rólegur, yfirvegaður og ráðagóð- ur. Það var erfítt fyrir fjölskylduna að horfa upp á þennan stóra og trausta mann láta svo mikið á sjá, sem raun varð síðustu þtjú árin. Þessi síðustu ár voru honum erfið og erfiðast átti hann með að sætta sig við að geta ekki haldið áfram að vinna. Hann hafði barist við sjúk- dóm sinn frá því hann var rúmlega þrítugur og samt hafði hann alltaf verið fullur starfsorku og starfsgleði. Björgvin var fæddur og uppalinn á Stokkseyri, sonur hjónanna Þor- bjargar Ásgeirsdóttur og Guðmund- ar Einarssonar í Merkigarði. Hann var yngstur fjögurra bræðra, en þeir eru auk hans; Sveinbjörn, úti- bússtjóri KÁ á Stokkseyri, Ásgeir, húsvörður í MBF á Selfossi og Kon- ráð, forstjóri í Reykjavík. Björgvin kvæntist árið 1955 eft- irlifandi eiginkonu sinni Kristínu Jósteinsdóttur frá Hausthúsum á Stokkseyri og eignuðust þau fjögur börn. Þau eru: Ingibjörg, húsmóðir í Hafnarfirði, gift Herði Inga Jó- hannssyni og eiga þau þrjú börn, Öldu, Bjögvin og Hafþór; Guðmund- ur, bifreiðastjóri í Reykjavík; Brynja, lyfjafræðingur og húsmóðir í Reykjavík, gift Vilbergi Magna Ósk- arssyni og eiga þau þrjú börn, Óskar Örn, Björgvin og Kristínu, og yngst er Svandís Björg,_ sem er að heija nám við Háskóla Islands nú í haust. Björgvin og Kristín bjuggu lengst af í Heiðargerði á Stokkseyri eða þar til fyrir um 11 árum að þau fluttu til Reykjavíkur. Björgvin stofnsetti og rak um nokkurra ára skeið'eigin harðfiskverkun á Stokkseyri, Fisk- verkun B.G., en þar sem hann gekk ekki heill til skógar, fór það svo að þau hjónin fluttu til Reykjavíkur, þar sem Björgvin hóf störf hjá Þýsk- íslenska hf. og starfaði þar allt þar til veikindi hans gerðu honum ókleift að sinna störfum sínum. Björgvin var trúaður maður og fleytti trúin honum oft yfir erfiða hjalla og veit ég að góður guð hefur tekið hann í sína arma. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast honum og vera einn af hans fjölskyldu og bið guð að styrkja okkur öll á þessum erfiðu tímum. Magni. í dag, laugardaginn 5. september, verður til moldar borinn frá Stokks- eyrarkirkju vinur minn og sam- starfsmaður til margra ára, Björgvin Guðmundsson. Hann lést í Landsspítalanum 30. ágúst sl. eftir stutta en stranga loka- orustu við sjúkdóm sem enginn mannlegur máttur fær ráðið við. Björgvin fæddist í Merkigarði á Stokkseyri. Hann ólst upp í foreldra- húsum við ást og umhyggju foreldr- anna, Þorbjargar Ásgeirsdóttur og Guðmundar Einarssönar, í samstillt- um bræðrahópi. Bræður Björgvins eru Sveinbjörn, búsettur á Stokkseyri, Ásgeir bú- settur á Selfossi, Konráð, fram- kvæmdastjóri Hótels Sögu, býr í Reykjavík. Björgvin var yngstur þeirra bræðra. Tvítugur að aldri gekk Björgvin að eiga eftirlifandi konu sína, föður- systur mína, Kristínu Jósteinsdóttur frá Hausthúsum á Stokkseyri. Áttu þau í tæpa þijá áratugi hlýlegt og snyrtilegt heimili á Stokkseyri þar sem þeim fæddust 4 börn: Ingibjörg húsmóðir, gift Herði Jóhannssyni matreiðslumeistara hjá Iðnskólanum í Reykjavík, Brynja lyfjafræðingur, gift Vilbergi Magna Óskarssyni starfsmanni Landhelgisgæslunnar, Guðmundur starfsmaður Samskipa og Svandís nemi við Háskóla Is- lands. Barnabörnin eru orðin 6. Framan af ævi fékkst Björgvin við vörubílaakstur og vöruflutninga, mest á milli Reykjavíkur og Stokks- eyrar. Margar sögur kunni hann að segja frá svaðilförum sínum yfir ís- lensk fjöll með vöruflutninga. Ávallt kom hann heill að landi og gerði ekki orð úr afrekum síhum. Síðar gerðist hann vélstjóri hjá Hraðfrysti- húsi Stokkseyrar eða þar til hann setti á stofn sína eigin fískverkun sem hann rak af miklum myndar- skap í Ijölmörg ár. Síðasta áratuginn rúman bjuggu þau hjónin í Reykjavík ásamt tveim- ur yngstu börnunum og áttu sér’vist- legt og hlýlegt heimili á Áitúnsholti. Mér finnst að flestir Árnesingar af minni kynslóð og eldri kannist við Bjögga, eins og hann var jafnan kallaður, frá Merkigarði á Stokks- eyri. Hann var fremur hávaxinn mað- ur, laglegur með skarplegt yfirbragð og augun snör og lifandi. Dídí og Björgvin voru í mínurn huga alltaf einkar glæsileg hjón. Ég heyrði snemma foreldra mína tala af vin- semd og virðingu um frændfólk okk- ar á Stokkseyri sem þar lifði sið- VILTII PANSA? Kennslustaðir: Auðbrekka 17 og "Lundur" Auðbrekku 25 Kópavogi. Kennum alla samkvæmisdansa: Suðurameríska, standard og gömlu dansana. Einnig arnadansa fyrir yngstu kynslóðina. Einkatímar eftir samkomulagi. Innritun og upplýsingar dagana 31. ágúst - 9. sept. kl. 10-19 ísíma: 64 11 11 Kennsla hefst fimmtudaginn 10. september. Kennsluönn er 15 vikur og lýkur með jólaballi. Ath. fjölskyldu- og systkinaafsláttur. V/SA .E FÍD Betri kennsla - betri árangur Supadance skór á dömur og herra. 'Gwrðar ha'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.