Morgunblaðið - 05.09.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 05.09.1992, Blaðsíða 37
gg#l MJflMJTTSi/' .ð HynACfJIAðJJA.1 fnC!AJHVíT)DHnW MORGUNBLAÐÍÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 m; 37 VELVAKANDI Lokun geðdeilda Til Velvakanda frá aðstandanda: I ALLRI umræðunni um niður- skurð og sparnað í samfélaginu hef ég varla nokkurs staðar rek- ist á athugasemdir um lokanir á geðdeildum nú í sumar, nema lítilsháttar frétt í sjónvarpinu. Göngudeild Kleppsspítala er lok- uð í allt sumar vegna sparnaðar. Mér er sagt af fagfólki að sjúkl- ingum sem þangað leita í sumar sé vísað á göngudeild geðdeildar Landspítalans, en þar var víst yfrið nóg að gera fyrir. Það fylgdi sögunni að þessi lokun hefði í raun ekki sparnað í för með sér, því hún kallaði á fleiri innlagnir. Með öðrum orðum, einhverjir þeirra sjúklinga sem hafa getað búið heima meðan göngudeildar- þjónustu naut við verða nú að leggjast inn á sjúkrahús þegar sú þjónusta er skorin niður. Skilst mér að þessi lokun sé ekki gerð í samráði við fagfólkið. Deild 26, sem rekin er út frá geðdeild Landspítalans, er lokuð um helgar í allt sumar. Þar dvelst fólk með geðræna sjúkdóma, sem er það vel á vegi statt að það þarf ekki að vera á sjúkrahúsi, heldur er þetta einskonar heimili með færra starfsfólki. Heilsufar þessara einstaklinga er mjög misjafnt; sumir geta ef til vill unnið á vernduðum vinnustað, ef vinnu er að fá, aðrir ekki. Flest er þetta ungt fólk. í þijá mánuði í sumar er deildin lokuð á föstudagskvöldum og ekki opn- uð aftur fyrr en á mánudags- morgnum. í örfáum tilvikum gengur vel að hafa þetta fólk heima um helgar sem betur fer, í öðrum tilvikum gengur það erf- iðlega og stundum verða sjúkl- ingarnir að vera á öðrum deildum og hver er þá sparnaðurinn? Aðstæður heima hjá sjúklingum eru mismunandi og heilsufar þeirra einnig. Þess má geta að allar breytingar verka mjög illa á suma sjúklinga með geðræna kvilla. í sumum tilfellum er afar bindandi fyrir ættingjana að hafa sjúklinga heima; þegar sjúkling- ar eru þannig að varla má víkja frá þeim. Er þá lítið um. sumar- ferðalög í þeim- fjölskyldum og ættingjarnir jafnvel uppgefnir þegar þeir eiga að mæta til vinnu á mánudagsmorgnum. Mér er sagt að það sé stjórnar- nefnd ríkisspítalanna sem ákveði þessar lokanir samkvæmt fyrir- skipun ofan frá. Væri ekki ráð fyrir þessa ágætu nefndarmenn að kynna sér betur málefni geð- sjúkra. Það væri líka gott ráð ef þeim væri boðin helgardvöl á heimili illa veiks sjúklings. Þeir gætu þá aðstoðað við umönnun og við að koma sjúklingnum aft- ur á deildina á mánudagsmorgni áður en haldið er til vinnu. Það getur nefnilega verið erfitt og tímafrekt, bæði vegna sjúkdóms- ins og lyija sem þetta fólk verður að taka. Margir sjúklinganna eru þungir upp á morgnana. Deild 26 var upphaflega í öðru húsnæði, sem hefur verið í við- gerð í lengri tíma. Skilst mér að viðgerðirnar séu stopp vegna peningaskorts. Væri ekki ráð- legra að spara á öðrum sviðum en í þjónustu við geðsjúka? Það er frekar að á skorti að aðstoð við þetta fólk sé nógu mikil, held- ur en áð skera þurfi niður. Kostn- aður við geðsjúka á sjúkrastofn- unum mun líka vera mun minni en við almenna sjúklinga. Engin. úrræði eru til af hálfu heilbrigðis- yfirvalda gagnvart þeim sjúkl- ingum sem neita að taka lyf sem þeir þurfa að taka. Þeir sjúkling- ar eru bara útskrifaðir og látnir fara á flakk, jafnvel til annarra landa, allt á ábyr^ð aðstandenda, ef einhveijir eru. Jafnvel eftir þá erfiðu ákvörðun aðstandenda að svipta sjúkling sjálfræði eru sjúklingar útskrifaðir stuttu eftir sviptingu, ef þeir vilja ekki taka lyf. Helbrigðisyfirvöld fírra sig ábyrgðinni, sem mun ekki alls- staðar vera tilfellið. Að minnsta kosti mun vera annar háttur hafður á í þessum málum í Sví- þjóð. En hér er komið efni í aðra grein og væri fróðlegt ef ein- hveijir fleiri fjölluðu um þessi mál. Ég skora á stjórnarnefnd ríkis- spítalanna að beita sér fyrir því að deildirnar tvær sem ég gat um áðan verði opnaðar aftur sem fyrst. Það getur varla verið að nefndarmönnum hafí þótt þægi- legra að skera niður í þjónustu við geðsjúka en aðra, af því að vitað er að sá hópur getur ekki myndað þrýstihóp? Aðstandandi. Pennavinir Tékknesk 22 ára stúlka með áhuga á landafræði, sögu og íþrótt- um: Renata Lovasova, Bajkalska 2338/16, 058 01 Poprad, Czechoslovakia. Þrettán ára ensk stúlka með áhuga á íþróttum, einkum sundi: Linda Murray, Red Rose Inn, 21 St. Paul’s Square, Preston PRl ÍXA, Lancashire. Sextán ára ensk stúlka með margvísleg áhugamál: Claire Kirby, 152 Queens Drive, Liverpool 13, 113 OAL, England. Tékknesk stúlka með áhuga á ensku, ferðalögum, fjallaferðum, hlaupum, hjólreiðum og skíðum: Rene David, Hubnerove 324, Usti’ Nad Labem, Strekov 400 03, Czechoslovakia. Japönsk stúlka með mikinn tón- listaráhuga en getur ekki um aldur: Masumi Yokota, 3966-8 Haraichi, Ageo-shi Saitama-ken, 362 Japan. Hann fer í gang með MAXILIFE Fæst á næstu bensínstöð LAUGARDAC KL. 11-16 OG SUNNUDAG KL. 13-16 HEILSUBRUNNURINN hefur opnað aftur eftir sumarfrí. Eigum lausa tíma í nudd og Ijós (nýjar perur) Sími 6871 10. Bígja, Sigurbjörg, idda Berður, Agnes, hnna Margrét, hrnbiörg. \__________________________________________________________/ SÍMI614444 Innilegar þakkir sendi ég öllum þeim nœr og jjœr, sem heiÖruðu mig og glöddu meÖ ýmsum hœtti á nírœÖisafmœli mínu. Katrín S. Brynjólfsdóttir. SÓLSKÁLAR Sýning um helgina! Opið frá kl.13-17 KOMIÐ OG KYNNIÐ YKKUR EITT FjÖLBREYTTASTA ÚRVAL INNRÉTTINGA í ELDHÚS OG Á BÖÐ, SEM VÖL ER Á, AUK FATASKÁPA OG TRÉSTIGA í MIKLU ÚRVALI. Sólstoíur Svalahýsi Rennihurðir RennigluggarFellihurðir Útihurðir o.m.fl. Ekkert viðhald íslensk framleiðsla Gluggar m Garðhús » Dalvegi 2A, Kópavogi, Sfmi 44300

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.