Morgunblaðið - 05.09.1992, Side 13
lenskra bókaútgefenda til þess
telja upplag hinnar nýju dansk-
íslensku orðabókar, bera saman
við reikninga og staðfesta þar með
hver prentunarkostnaðurinn í
Belgíu hafi verið. Bókaútgefendur
eru bestir til að staðreyna þetta
þar sem þeim er málið ef til vill
skyldara en öðrum. Það eru jú
þeir sem verða að sjá til þess að
bækur þeirra séu á sem bestu verði
fyrir neytandann.
Lærdómsrík umræða
Ofangreind umræða opnar augu
almennings fyrir því að smæð ís-
lensks þjóðfélags og fjarlægð frá
hinum stóru mörkuðum úti í heimi
hefur hingað til verndað ákveðnar
iðngreinar og er þá ekki aðeins átt
við prentiðnaðinn.
Markaðirnir eru sífellt að sam-
einast og í þeim skilningi fer
heimurinn minnkandi. Sérstaða,
sérþarfir og sérhagsmunir er nokk-
uð sem lögmál hins fijálsa markað-
ar brenna sínu marki. Það hefur
stundum verið sagt að á íslandi
ætti að vera ein stór verstöð, þar
sé samkeppnisstaða íslendinga
góð, aðrir eigi að sinna því sem
þeir kunni og geti best.
Sennilega er tímasetning
þessarar prentumræðu góð fyrir
þjóðfélagið í heild. Um þessar
mundir er mikið rætt um tengingu
okkar við Evrópumarkaði, tolla-
bandalög og önnur mikilvæg efna-
hagsmál. Þótt þetta ákveðna mál
hafi ekki valdið Isafoldarmönnum
neinni ánægju, er fátt svo með
öllu illt að ekki boði nokkuð gott
og sennilega er þessi þáttur máls-
ins góði þátturinn.
Að lokum óska ég íslenskri
menningu til hamingju með hina
nýju og glæsilegu dansk-íslensku
orðabók, sem vissulega var ekki
vanþörf á að gefa út.
Höfundur er stjórnarformaður
Isafoldarprentsmiðju hf. og
varamaður í bankaráði
Seðlabankans.
vanþróuð og jafnvel sum meðalstóru
fyrirtækjanna eru ofvaxin smáfyrir-
tæki í þeim skilningi að stjórnunar-
þátturinn er vanræktur. Það örlar
jafnvel á því viðhorfi meðal stjórn-
endanna sjálfra að þetta sé ekkert
annað en leiðinleg skriffinnska og
menn væru betur komnir í ærlegri
vinnu. Hins vegar verður það ekki
nógsamlega undirstrikað að nýsköp-
un á sér oft stað í litlum fyrirtækjum.
Forystumenn prentiðnaðar hafa
þegar hrint af stað Prenttæknistofn-
un til að byggja upp hæfni og þekk-
ingu starfsmanna á nýrri tækni. Það
hefur þó komið í ljós strax á fyrstu
skrefum Prenttæknistofnunar að
mikil þörf er fyrir þekkingu í þeim
grundvallaratriðum sem menn héldu
að væru fyrir hendi.
íslenska verkmenntakerfið er i
rúst og verði ekkert að gert á næstu
misserum má búast við því að enn
frekar grafi undan iðnfyrirtækjum.
Ráðamenn menntamála virðast hafa
takmarkaðan skilning á því hversu
illa er komið og hversu röggsamlega
þarf að bregðast við. Það þýðir ekki
að horfa á gamlar hefðir og smá-
kóngasjónarmið í skólakerfinu og
láta það verða hindrun í vegi til fram-
fara. Uppstokkunar er þörf. Atvinnu-
lífið verður að fá tækifæri til að
móta iðnnámskerfið að þeim kröfum
sem við blasa. Þetta er í sjálfu sér
einfalt mál, og krefst í raun ekki
annars en að yfirvöld menntamála
sýni nauðsynlegan kjark og taki
ákvarðanir. Fulltrúar margra iðn-
greina hafa á undanförnum árum
lagt fram tillögur um innihald og
stjórnun iðnnáms, sem að mestu eru
samhljóða. Sumir hafa jafnvel geng-
ið svo langt að bjóðast til þess að
taka að sér rekstur iðnnámskerfis-
ins, í þeirri fullvissu að þeir geti
gert það bæði betur og ódýrar en
ríkið gerir núna. Eftir hveiju eru
stjórnvöld að bíða? Endanlegu hruni
íslensk iðnaðar?
Höfundur er framkvæmdastjóri
Prenttæknistofnunar.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992
13
Besta vatn í heimi
eftir Pál Gíslason
Þegar Reykvíkingar og nágrann-
ar þeirra koma frá útlöndum fínna
þeir, þrátt fyrir allan barlóm, að
best er að vera á íslandi. Þótt mörg-
um verði hugsað til glænýja og ljúf-
fenga fisksins, hlakka flestir til
þess að fá ferskt og hressandi kalt
vatn úr krananum heima.
Það er einn af mörgum kostum
að eiga heima á íslandi að geta
notið þessa tæra, hreina vatns í
eins ríkum mæli og við viljum og
þurfum.
Menn gera sér þó ekki alltaf
grein fyrir því að vatnið kemur
ekki úr krönunum heima hjá okkur
nema af því að Vatnsveita Reykja-
víkur hefur, með fyrirhyggju, lagt
vatnsleiðslur frá vatnsbólum við
Gvendarbrunna í hvert hús í
Reykjavík og nágrenni. í Heiðmörk
hafa mikil mannvirki verið reist til
að safna vatninu saman úr 10 til
200 metra dýpi og veita því, án
mengunarhættu, til neytenda.
Vatnsveita Reykjavíkur er gam-
algróið fyrirtæki - 83 ára, sem vill
eiga gott samstarf við notendur
vatnsins. Við álítum því nauðsyn-
legt að kynna þeim starfsemi vatns-
veitunnar og munum því halda upp
á „Dag kalda vatnsinsj nk. laugar-
dag, 5. september, milli kl. 10 og 16.
Það er ósk okkar að Reykvíking-
ar og nágrannar þeirra noti tæki-
færið og kynni sér starfsemi vatns-
veitunnar og mæti í Heiðmörk við
Rauðhóla og njóti þess að skoða
falleg mannvirki og vel hannaðar
byggingar, sem allir eiga svo mikið
undir að starfi vel.
Vatnsveita Reykjavíkur og not-
endur vatnsins eiga samleið í vatns-
málum.
Höfundur er formaður stjórnar
veitustofnana Reykjavíkurborgar.
Páll Gíslason
ISUZU pallbílarnir hofo vokið sérstoko othygli tyrir follego og nýtískulego
hönnun. Þeir eru sterkir og kroftmiklir, en somt mjúkir og þœgilegir í okstri.
CREW CAB sameinar kosti 5 manna fólksbíls og burðarmikils flutningatœkis því rúmgott
og þœgilegt farþegarými hans ber af öllum öðrum sambœrilegum bílum ö markaðnum.
*STAÐGREIÐSLUVERÐ: BENSÍNBÍLL KR. 1.520.000 - DlSILBÍLL KR. 1.620.000
SPORTS CAB hefur rými og
kraft burðarmikils vinnubíls og
einnig ótrúlega gott plóss fyrir
afton framsœtin fyrir farangur
eðo 2 farþega.
Bílamir eni töanlegír með 2,31 bensínvél eða 2,51 dísilvél.
Berðu ISUZU palfcíkma saman vfð bestu og vinsœluslu jeppono ó markoðnum f dag. Þeir þola fyllilega þann
ítffHiqnÖuríyilflBga Þllhf£tíáfeh<RQfiB) jepparnir, sem nú fara sigurför um Bandaríkin, smíðaðir ó sömu
forsendum.
Berðu líka verð, slœrð og gœði pallbílanna saman við það sem aðrir bjóða. Komdu svo til okkar og aktu bílunum
til reynslu. Þú munt sannfœrast um að þeir eru fremstir í sínum flokki!
ÞRIGGJA ÁRA ÁBYRGÐ! ÁRLEG ÓKEYPIS SKOÐUN Á VEGUM FRAMLEIÐANDA.
'íslensk ryövörn og skróning Innifalin í verði.
'STAÐGREIÐSLUVERÐ:
BENSÍNBÍLL KR. 1.499.000
DÍSILBÍLL KR. 1.589.000
Míés
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-634000 og 634050