Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 15

Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 15 prúðu lífi og væri til fyrirmyndar í svo mörgu. Það kom því ekki á óvart þó Björgvin efldist til áhrifa í hinu litla samfélagi heimabyggðar sinnar. „Við eigum að stefna að því hver um sig á okkar afmarkaða sviði að bæta það samfélag sem við lifum í og reyna að koma hlutum til betri vegar,“ voru orðin sem Björgvin gekk með inn í hreppsnefnd Stokks- eyrar, þar sem hann sat sem fulltrúi Alþýðuflokks. Þar starfaði hann í 4 ár við góðan orðstír. Björgvin var sér alla tíð meðvit- aður um sjúkdóm sinn. Hálft lífs- hlaupið bar hann þann sjúkdóm sem að lokum varð honum að aldurtila. Er erfitt að gera sér í hugarlund hvernig sú tilfinning er að ganga með ólæknandi blóðsjúkdóm sem langflesta kaliar í burtu á mun skemmri tíma en Björgvin. Fjölmargar tilraunir til að vinna bug á honum náðu ekki tilætluðum árangri. Einhveiju sinni vorum við saman á heimleið frá Þýskaiandi hvar við hittum sérfræðing einn, sem ég reyndi að telja Björgvin trú um að hugsanlega mætti eiga ráð við sjúk- dómi hans. Fannst mér í lok ferðar- innar sem árangurinn hefði orðið harla lítill. Færði ég það af varfærni í tal við Björgvin sem svaraði að bragði með þeirri glettni sem hann virtist endalaust eiga nóg af. „Dauð- inn minnir okkur á að lifa, Ómar minn, lifa af alefli, vaxa, starfa og njóta. Leiðin styttist alltaf til grafar við hvert spor sem við stígum. Lífið verður því auðugra við hvert auga- bragð sem ævin styttist meir.“ Hann bað ekki um vorkunn. Björgvin starfaði í rúm 10 ár hjá Þýsk-íslenska hf. Inn í fyrirtækið kom hann á uppvaxtarárum þess. Hann réðst til starfa í þjónustudeild félagsins sem þá var nýtekin ti! starfa. Starfshæfni hans og mann- kostir urðu til þess að hann valdist í framkvæmdastjórn félagsins og sat hann þar allan sinn starfstíma. Fylgdi hann félaginu frá því að vera lítið innflutningsfyrirtæki í hraðferð þess yfir í að vera eitt af stærri inn- flutningsfyrirtækjum landsins. Tel ég ekki að á nokkurn mann sé hall- að þó ég segi að Björgvin eigi dijúg- an þátt í þeim árangri sem félagið hefur náð. Mannkostir hans komu hvað skýrast fram í öllu er viðvék starfsmannastjórnun og samskipt- um við viðskiptavini. Hann var maðr ur sem gekk alla tíð til þeirra starfa sem hann var kallaður til af áhuga og viljasemi og með því hugarfari að ljúka verkinu vel og samvisku- samlega. Rökfastur, ákveðinn, sanngjarn og heiðarlegur leysti hann verkefnin, hvert og eitt, og var dagur oftast að kveldi kominn er hann kvaddi vinnustaðinn, oft síðastur manna. Margar stundirnar sátum við sam- an yfir málefnum félagsins og varð mér það stundum undrunarefni hvað Björgvin gaf sig allur til starfsins. Það kom því ekkert á óvart þegar hann í mörg ár á árshátíðum félags- ins var valinn maður ársins, besti starfsmaðurinn eða vinsælasti starfsmaðurinn af starfsfólkinu sjálfu. Það er sárt að kveðja góðan vin. Það er eftirsjá í því fyrir okkar litla samfélag þegar mannkostamenn á borð við Björgvin kveðja langt um aldur fram. En það er líka þakkar- efni að lífið var honum gjöfult og hann var mikill gæfumaður í sínu BILALEIGA Úrval 4x4 fólksbfla og statlon bfla. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bílar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 s®ta Van bllar. Farslmar, kerrur f. búslóðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík 686915 interRent Europcar BÍLALEIGA AKUREYRAR Fáðu gott tilboð! einkalífi. Það er þakkarefni fyrir okkur að hafa átt hann að vini. Megi Björgvin Guðmundsson sæll nálgast þann Guð sem allar bænir heyrir, til að búa í forgörðum hans og seðjast af gæðum hans í helgi- dómi musteris hans. í nafni stjórnar og starfsfólks Þýsk-íslenska og fjölskyldu minnar votta ég konu hans, börnum, tengda- börnum, barnabörnum og öðrum ástvinum innilegustu samúð og bið góðan Guð að styrkja Dídí konu hans sem gengið hefur í gegnum mikla erfiðleika með einskærum dugnaði og stillingu. Óniar Kristjánsson. Það var sunnudagskvöldið 30. ágúst sem veikindi Björgvins vinar míns báru hann ofurliði eftir harða og erfiða baráttu. Minningar mínar um Björgvin eru margar og góðar. Þegar ég hóf störf hjá Þýsk-íslenska fyrir um 9 árum var hann einn af stjórnendum fyrirtækisins. Hann var geðþekkur maður sem stjórnaði með festu og góðum aga þannig að starfsmenn báru virðingu fyrir honum. Björgvin tók mér strax vel og lét mig finna að færi ég eftir settum reglum gætum við orðið góð- ir vinir og ég held að þetta hafi tek- ist nokkuð vel hjá okkur. Björgvin var fjölhæfur maður og umræðuefn- in því óþrjótandi, það var líka alltaf stutt í léttan og skemmtilegan húm- orinn hjá honum. Þess vegna náði hann svo vel til okkar allra og þar skipti aldur ekki máli. Þó að við öll vissum að að besta hvíldin fyrir Björgvin væri að hverfa frá okkur, þá er sárt að finna vonina bresta. Elsku Dídí, hetjulegri baráttu Björgvins er nú lokið og allan þenn- an erfiða tíma stóðst þú sem óbif- andi klettur við hlið hans, bjartsýni baráttukraftur og æðruleysi ykkar beggja kom mér ekki á óvart. Þá komu í ljós mannkostir ykkar beggja og hversu samrýnd þið voruð. Börnin ykkar og barnabörn gáfu ykkur trú á lífið og megi sá styrkur fylgja þér um ókomna framtíð. Björt minning er styrkur og bless- un. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að kveðja Björgvin sem lést langt um aldur fram. Ég bið góðan guð að gefa Dídí, börnum og fjölskyldu styrk. Hvíli hann í friði. Ragnheiður Lárusdóttir. Hafravatn Til sölu er sumarbústaður nálægt Hafravatni. Mikill ræktaðurskógur, um 8 þúsund tré, er á landinu, sem er um 6000 m2 að stærð. Silfurtær lækur, sem aldrei þrýtur, renn- ur í gegnum landið. Bústaðurinn er aðeins í 16 km fjarlægð frá Reykjavík. Allar upplýsingar veittar í síma 91-10413 milli kl. 19-20 næstu daga. Músíkleikfimin hefstfimmtudaginn 17. september Styrkjandi og liðkandi æfingar fyrir konur á öllum aldri. Byrjenda- og framhaldstímar. Kennsla fer fram í íþróttahúsi Melaskóla. Kennari Gígja Hermannsdóttir. Upplýsingar og innritun í síma 13022 um helgar og virka daga í sama síma eftir kl. 16. SALA AÐGANGSKORTA ER HAFIN ONDVECISVERK FYRIR AÐEINS 7.040.- K.R. ÍIPJ ÞJOÐLEIKHUSIÐ Cóöo skemmtun! KOSTIRNIR VIÐ KORTIN: • AÐGANGSKORTIÐ veitir þér 20% afslátt af miöaveröi. • Þú tryggir þér góö sœti á fyrstu sýningar eftirtalinna verka á Stóra sviöinu: HAFIÐ eftir Ólaf Hauk Símonarson Leiftrandi átakaverk úr íslenskri samtíb. , DANSAÐ A HAUSTVÖKU eftir Brian Friel írska leikritiö sem nú fer sigurför um heiminn MY FAIRLADY eftir A.J. Lerner og F. Loewe Vinsœlasti söngleikur aldarinnar. ÞRETTÁNDA KROSSFERÐIN eftir Odd Björnsson Margslungib verk um leit mannsins ab lífshamingju. • AÐGANGSKORTIÐ veitirþér jafnframt verulegan afslátt af öllum sýningum á Litla svibinu og á Smíbaverkstœbinu. LITLA SVIÐIÐ: RITA GENGUR MENNTAVEGINN eftir Willy Russell og STUND GAUPUNNAR eftir Per Olov Enquist. SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ: STRÆTI eftir Jim Cartwright og FERÐALOK eftir Steinunni Jóhannesdóttur. • Þú drífur þig í leikhúsib! Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla daga frá kl. 13 - 20 á meðan á kortasölu stendur. Miðapantanir f rá kl. 10 virka daga í síma 11200. Greiðslukortaþjónusta. Græna línan: 99 6160. LEIKHÚSLÍNAIM: 99 1015. KJAFTACANCUR eftir Neil Simon Splunkunýr og sprenghlœgilegur gamanleikur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.