Morgunblaðið - 05.09.1992, Síða 18
18
*í»r flaaMamas .$ HUOAdp/ntjAJ c!iflA.?{ix?ioHOM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992
Stórabeltisbrúin
Danir greiða
Finnum 900
milljónir
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
RÚMRI viku áður en deila Dana
og Finna vegna Stórbeltisbrúar-
innar átti að koma fyrir alþjóða-
dómstólinn í Haag hefur málið
verið leyst. Forsætisráðherrar
Iandanna komu sér saman um
að Danir greiddu Finnum 90
milljónir danskra króna (tæpar
900 milljónir ÍSK) í eitt skipti
fyrir öll.
Finnar hafa haldið því fram að
málið snerist ekki um peninga held-
ur að Danir væru að loka alþjóð-
legri siglingaleið en finnskt fyrir-
tæki hefur siglt þama um með 200
m háa borpalla. Brúin verður hins
vegar 65 metra há og Danir segja
pallana ekki flokkast undir skip.
Poul Schlúter, forsætisráðherra
Dana, sagði að opnanleg brú eins
og Finnar fóru fram á hefði kostað
1.000 milljónir Dkr, hún hefði ekki
orðið eins traust og framkvæmdir
hefðu dregist á langinn.
Þjóðaratkvæðið í Frakklandi um Maastricht-samkomulagið
Sjónvarpsumræður hafa lít-
il áhrif á franska kjósendur
Reuter
Fórnarlambanna íMiinchen minnst
Ættingjar 11 ísraelskra íþróttamanna sem hryðju-
verkamenn úr röðum Palestínumanna myrtu á
Olympíuleikunum í Múnchen 1972 komu saman
í borginni í gær til að minnast þess að 20 ár eru
Iiðin frá atburðunum í dag, 5. september. Þýsk
stjórnvöld reyndu að semja við hryðjuverkamenn-
ina, sem tekið höfðu íþróttamennina í gíslingu og
sett fram ýmsar kröfur, um að leysa málið með
friðsamlegum hætti og var Hans-Dietrich Gensc-
her, er síðar varð utanríkisráðherra V-Þýska-
lands, fulltrúi yfírvalda. Þær tilraunir reyndust
árangurslausar. Deilt var hart um það á sínum
tíma hvort aflýsa ætti leikunum eftir morðin en
svo fór að þeim var haldið áfram.
París. Reuter.
FRANCOIS Mitterrand Frakk-
landsforseti varði Maastricht-
samkomuiagið um aukinn sam-
runa rikja Evrópubandalagsins
í þriggja tíma sjónvarpsumræð-
um í fyrrakvöld. Fréttaskýrend-
ur voru hins vegar efins um að
umræðumar hefðu breytt miklu
um afstöðu franskra kjósenda
til samkomulagsins.
Áætlað er að 22 milljónir
Frakka hafí fylgst með sjónvarps-
umræðunum og nokkrir kjósendur
fengu tækifæri til að leggja spurn-
ingar fyrir forsetann, auk frétta-
manna og stjórnmálamanna sem
leggjast gegn samkomulaginu.
Mitterrand lagði áherslu á að
Maastricht-samkomulagið yrði til
Mitterrand
góðs fyr-
ir efna-
hag
Frakk-
lands og
ef
Frakkar
höfnuðu
því í
þjóð-
arat-
kvæðinu
20. þessa mánaðar myndi það
skaða Frakka sjálfa og Evrópu.
Nokkrir af kjósendunum gagn-
rýndu forsetann harðlega vegna
atvinnuleysisins í landinu, sam-
dráttar á landsbyggðinni og auk-
innar samkeppní frá Japan. Hann
viðurkenndi að óvinsældir sínar
gætu orðið til þess að kjósendur
greiddu atkvæði gegn samkomu-
laginu en vildi ekki tjá sig um það
hvort hann myndi segja af sér ef
því yrði hafnað. Hann kom sér
einnig hjá því að svara spumingu
fréttamanns um það hvort til
greina kæmi að hann lofaði að
segja af sér fyrir þjóðaratkvæðið
A P T O N
Einfalt • auðvelt • handhægt
Smíðakerfi
sniSið fyrir hvern og einn
Kínveijar
saka stjórn
Bush um lygi
Peking. Reuter.
KÍNVERJAR halda áfram
hörðum árásum á Banda-
ríkjamenn vegna þeirrar
ákvörðunar George Bush
Bandaríkjaforseta að leyfa
sölu orrustuþotna til Tævan.
Fréttastofan Xinhua sagði í
gær að ákvörðunin myndi ýta
undir spennu milli Kína og
Tævan. „Stjóm Bush hefur
framleitt vef lyga og afsakana
til að afsaka vopnasöluákvörð-
un sína, sem gæti skemmt
verulega fyrir samskiptum
Kína og Bandaríkjanna," sagði
einnig í yfirlýsingunni.
ef það mætti verða til þess að
samkomulagið yrði samþykkt.
Mitterrand fékk stuðning frá
Helmut Kohl, kanslara Þýska-
lands, sem flutti ávarp í beinu sjón-
varpssambandi frá Bonn þrátt fyr-
ir ásakanir andstæðinga sam-
komulagsins um að slíkt væri
íhlutun í innanríkismál Frakka.
Franskir fréttaskýrendur sögðu
að sjónvarpsumræðumar myndu
að öllum líkindum ekki breyta
miklu um afstöðu franskra kjós-
enda. Samkvæmt nýjustu skoð-
anakönnunum em fylgismenn
samkomulagsins ívið fleiri en and-
stæðingamir en munurinn er inn-
an skekkjumarka. „Það má ganga
út frá því sem vfsu að allir hafí
verið sömu skoðunar og áður eftir
að hafa slökkt á tækjunum," sagði
dagblaðið France-Soir. Umræð-
umar höfðu einnig lítil áhrif á
verð hlutabréfa í kauphöllinni í
París.
ERLENT
0DEXION SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI31 • SÍMI62 72 22
Norska stjórnin
Brundtland stokkar upp
Ósló. Keuter.
GRO Harlem Brundtland, forsætisráðherra Noregs, skýrði í gær frá
mikilli uppstokkun í minnihlutastjórn Verkamannaflokksins. Sex
ráðherrar af 18 alls fá ný embætti eða hverfa úr stjóminni og þar
að auki verða ráðuneyti endurskipulögð. Talið er að með þessu
hyggist Brundtland reyna að styrkja ímynd Verkamannaflokksins
en skoðanakannanir gefa til kynna dvínandi fylgi flokksins.
Þingkosningar verða á næsta ári
í Noregi. Nýleg könnun dagblaðsins
Verdens Gang gaf Verkamanna-
flokknum 29.5% fylgi en flokkurinn
fékk 34.3% í kosningunum 1989.
Atvinnuleysi hefur vaxið hratt að
undanförnu og mældist 5.8% í ág-
ústmánuði. Forysta Verkamanna-
flokksins er hlynnt því að Norð-
menn sæki um aðild að Evrópu-
bandalaginu en mjög skiptar skoð-
anir eru um málið meðal óbreyttra
flokksmanna. Kannanir sýna að
andstæðingar aðildar em nú mun
fjölmennari en stuðningsmenn í
landinu.
Meðal breytinga í stjórninni má
nefna að Gunnar Berge tekur við
ráðuneyti sveitarstjómarmála af
Kjell Borgen, Berge mun einnig
annast atvinnumálin. Jan Henry
Olsen tekur við sjávarútvegsmálum
af Oddrunn Pettersen.
Breti
dæmdur í
fangelsi í
Irak
BRESKA stjómin hefur mót-
mælt tíu ára fangelsisdómi yfír
breskum ferðamanni, sem fór
í heimildarleysi. á reiðhjóli yfir
landamæri íraks. Ferðamaður-
inn var á hjólreiðaferð til
Ástralíu þegar hann var hand-
tekinn í borginni Mosul í Norð-
ur-írak í maí. Hann fór frá
Tyrklandi á yfírráðasvæði íra-
skra Kúrda en stjómarher-
menn náðu honum er hann hjól-
aði suður á bóginn. Hann er
nú í fangelsi í Bagdad ásamt
öðrum Breta, sem er að afplána
sjö ára fangelsisdóm eftir að
hafa farið yfír landamærin frá
Kúveit.
Thatcher
varar við
stríði innan
EB
MARGARET Thatcher, fyrr-
verandi forsætisráðherra Bret-
lands, varaði í
fyrradag við
því að ef Evr-
ópubandalagið
(EB) yrði gert
að „ofurríki“
yrði mikil
hætta á átök-
um milli þjóð-
anna og jafn-____
vel stríði. „Ein Thatcher
af helstu lex-
íum nútímasögunnar er að til-
búin ríki, svo sem Júgóslavía,
eða stórveldi sem haldið er
saman á grundvelli kommún-
isma eins og Sovétríkin, hrynja
einhvem tíma með alvarlegum
afleiðingum," sagði hún.
Ekkert lát á
óeirðunum í
Þýskalandi
ÞÝSKIR hægriöfgamenn köst-
uðu steinum á lögregluna í
borginni Eisenhúttenstadt í
austurhluta Þýskalands í fyrri-
nótt eftir að óeirðalögreglan
hafði komið í veg fyrir að þeir
réðust inn í gistihús fyrir er-
lenda flóttamenn. Þrír óeirða-
seggir og einn lögreglumaður
særðust. Bensínsprengjum var
einnig varpað á dagheimili fyr-
ir böm flóttamanna af þýskum
uppruna frá Sovétríkjunum
fyrrverandi í Köln. Tugir slíkra
árása hafa verið gerðir í land-
inu undanfamar tvær vikur.
Dubcek á
batavegi
ALEXANDER Dubcek fyrrum
forsætisráðherra Tékka er á
hægum bata-
vegi eftir al-
varlegt bílslys
á þriðjudag.
Dubcek var
leiðtogi „Vors-
ins í Prag“
1968 og
hraktist í póli-
tíska útlegð
eftir að það Dubcek
var barið niður
allt til ársins 1989. Þá varð
hann þingforseti og var í júní
kjörinn á þing fyrir sósíaldemó-
krata. Hann rifbeinsbrotnaði
og meiddist illa í baki í slysinu
á BMW-bifreið sinni sem ekið
var af einkabílstjóra í hellirign
ingu á þjóðvegi í grennd við
Prag og lenti ofan í gljúfri.
V