Morgunblaðið - 05.09.1992, Side 24
Endurbætur á Harðbaki
Slippstöðin gat ekki
lækkað tilboð sitt
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Slysavarnarskólinn fær björgunarbát
Slysavarnaskóla sjómanna var í gær færður tíu
manna björgunarbátur að gjöf frá Kristjáni Ó.
Skagfjörð og framleiðenda bátanna, Nordisk
gummibát fabrik en gjöfín er gefin í tilefni þess
að fyrirtækið á 80 ára afmæli á árinu. Sæbjörg,
skip Slysavarnaskólans, verður í Eyjafirði nú í
september þar sem haldin verða námskeið fyrir
sjómenn á svæðinu, en hið fyrsta eftir sumarfrí
hófst í gær. Báturinn sem skólanum var færður
að gjöf í gær er af gerðinni Viking, en slíkir björg-
unarbátar eru í flestum íslenskum fiskiskipum
„þannig að í skólanum læra sjómenn á þau tæki
sem notuð eru í skipunum ef til þess kemur að
nota þarf björgunarbátana," sagði Jónína Guðrún
Jónsdóttir framkvæmdastjóri Kristjáns Ó. Skag-
fjörð, sem afhenti Hilmari Snorrasyni skipstjóra
Sæbjargar og skólastjóra Slysavarnarskóla sjó-
manna gjöfina. Jónína stökk af þessu tilefni í flot-
galla í sjóinn og afhenti gjöfina um borð í bátnum
og er myndin tekin við það tækifæri.
Kennarar við Verkmenntaskólann á Akureyri
Tap af völdum niðurskurð-
ar verður að vinna upp síðar
SLIPPSTÖÐIN hf. á Akureyri
hafði ekki svigrúm til að lækka
tilboð sitt í endurbætur og breyt-
ingar á togaranum Harðbaki
EA, en frestur sem stjórn Út-
gerðarfélags Akureyringa gaf
Slippstöðinni til að endurskoða
tilboð sitt rann út á hádegi í
gær. Endurbætur á Harðbaki
munu því verða gerðar í pólsku
Fjölgar á
atvinnu-
leysisskrá
FJÖLGAÐ hefur á atvinnu-
leysisskrá á Akureyri á milli
mánaðamóta, í lok ágúst voru
263 á skrá, en 250 í lok júlí.
Mun fleiri eru atvinnulausir nú
en voru um sömu mánaðamót á
síðasta ári, en þá voru 156
skráðir atvinnuiausir. Þess er
vænst að nánast megi tæma at-
vinnuleysiskrána á næstu vikum
í kjölfar samþykktar Atvinnu-
leysistryggingasjóðs og bæjar-
stjórnar Akureyrar um að
leggja fram fé til að skapa at-
vinnu í stað þess að greiða at-
vinnuleysisbætur.
Samtals komu 360 manns inn á
atvinnuleysisskrá í síðasta mánuði,
en í lok mánaðarins voru 263 á
skránni, 116 karlar og 147 konur.
Um er að ræða nokkra fjölgun frá
fyrra mánuði þegar 250 voru
skráðir atvinnulausir í bænum, 113
karlar og 137 konur. Þegar miðað
er við sama tíma á síðasta ári hef-
ur um töluverða fjölgun atvinnu-
lausra verið að ræða, en í lok ág-
úst á liðnu ári voru 156 atvinnu-
íausir á Akureyri.
Raufarhöfn
skipasmíðastöðinni Nauta, sem
átti lægsta tilboðið í verkið.
Knútur Karlsson formaður
stjórnar Slippstöðvarinnar sagði að
á fundi með framkvæmdastjóra
ÚA í gærmorgun hefðu ýmsir
möguleikar verið skoðaðir, en menn
hefðu ekki séð þá fleti á málinu
að ásættanlegt væri. Meðal þess
sem rætt hefur verið um var að
skipta verkinu þannig að hluti þess
yrði unnin erlendis og hluti hér
heima.
„Við höfðum enga möguleika á
að lækka okkar tilboð,“ sagði Knút-
ur, en tilboð Slippstöðvarinnar var
um 28 milljónum króna hærra en
tilboðið frá pólsku stöðinni.
Sigurður J. Sigurðsson formaður
bæjarráðs sagði að málið hefði ver-
ið rætt ítarlega á fundi bæjarráðs
á fimmtudag, en ljóst væri að Slipp-
stöðin treysti sér ekki til að lækka
tilboð sitt í verkið, Útgerðarfélagið
vildi eðlilega fá verkið unnið á sem
lægstu verði og því hefði bæjarsjóð-
ur lítið svigrúm til að koma inn í
dæmið. „Það er auðvitað dapurt
að horfa upp þá þróun sem orðið
hefur í þessum iðnaði og virðist
fátt hægt að gera í stöðunni á
meðan Pólveijar geta boðið svo
lágt verð,“ sagði Sigurður.
Harðbakur EA er nú á veiðum
og mun síðan selja aflann erlendis
áður en farið verður með skipið til
Póllands.
„HRAPALEGT dæmi um þær
afleiðingar, sem ónógt upplýs-
ingastreymi frá yfirstjórn
menntamála í landinu hefur í för
með sér, er það sem gerðist við
Verkmenntaskólann á Akureyri
2. september 1992, þegar ráðu-
neytismenn upplýstu stjórnendur
skólans um reikningsstuðul hans
til útreiknings kennslustunda-
fjölda á haustönn daginn eftir
að skólinn var settur. Sama dag
átti að afhenda nemendum
stundaskrár, sem voru þá allar
tilbúnar. Slíkt má aldrei gerast
aftur og hefði aldrei átt að geta
gerst,“ segir í greinargerð með
ályktun sem samþykkt var á
fundi kennara við Verkmennta-
skólann á Akureyri í gær.
í ályktuninni kemur fram að
kennarar harmi þann rugling sem
ofðið hafi á reikningsstuðli til út-
reiknings kennslustundafjölda á
haustönn, hann hafi ekki komið í
ljós fyrir en á fundi starfsmanna
ráðuneytisins með stjórnendum
skólans daginn eftir skólasetningu
og eftir að stundarskráf kennara
voru lagðar fram. „Kennarafundur-
inn krefst þess að í framtíðinni ber-
ist reikningsstuðulinn með viðhlít-
andi fyrirvara," segir í ályktuninni.
Kennarar mótmæla þeim reikn-
istuðli sem VMA er ætlaður nú á
haustönn og telja hann of lágan
með tilliti til þess fjölþætta náms
sem stundað sé við skólann. Þá
átelur fundur kennara stjórnvöld
fyrir þann skaða sem unnin er á
starfi framhaldsskólanna og námi
nemenda við skólann „með þeim
vanhugsuðu ákvörðunum, sem
sprottið hafa af þeim sparnaðar-
hugmyndum sem nú eru uppi og
efar stórlega að nokkur raunhæfur
árangur verði af þeim,“ segir í
ályktuninni.
í greinargerð með ályktuninni
segir að það hljóti að vera megin-
hlutverk menntamálaráðuneytisins
að koma lykil upplýsingum til skila
til skólanna tímanlega og að stjórn-
endur skóla ættu að geta treyst því
að berist ekki tilkynningar, eins og
t.d. um reikningsstuðlagildi það sem
síðast var ákveðið.
í greinargerðinni er bent á að
með tilliti til nemendaskiptingar í
verklegar og bóklegar greinar í
VMA væri eðlilegt að reiknistuðull
skólans væri 2,1 og er þá m.a. mið-
að við að Iðnskólinn í Reykjavík
hafi reiknistuðulinn 2,5 á hvern
nemenda og Menntaskólinn í
Reykjavík 1,7 en stuðullinn í VMA
er 1,8, sem þýðir um 1.800 kennslu-
stundir á viku.
Kennarar telja að þær lausnir
sem grípa verður til í VMA til að
ná fram sparnaði sem til er ætlast
muni leiða til minna námsframboðs,
seinkunar nemenda í námi og minni
möguleika á að sinna sérþörfum
nemenda. Það sem tapist vegna
niðurskurðar verði að vinna upp
síðar. „Af þessum staðreyndum
verður ekki önnur niðurstaða leidd
en sú, að þær leiðir sem nú eru
farnar til þess að ná fram aukinni
hagkvæmni í skólastarfi, munu ekki
skila þeim árangri, sem eftir er leit-
að og eru því ófærar og jafnvel
skaðlegar fyrir allt skólastarf í land-
inu,“ segir í greinargerð kennara
VMA.
—:---»-♦■■■♦---
Grunnskól-
arnir byrja
eftir helgina
GRUNNSKÓLARNIR á Akureyri
hefjast eftir helgi eða mánudaginn
7. september næstkomandi. Nem-
endafjöldi verður svipaður og ver-
ið hefur síðustu ár, en þó er búist
við heldur fleiri nemendum nú en
var í fyrra, eða 2.340 talsins á
móti 2.320 á liðnu ári.
Flestir nemendanna verða í Síðu-
skóla og verða þeir yfir 600 og hafa
aldrei verið svo margir, en á síðasta
ári voru 560 nemendur í skólanum.
I Glerárskóla verða um 440 nemend-
ur og um 400 í Gagnfræðaskólanum
á Akureyri. Þá verða um 380 nem-
endur í Lundarskóla, 320 í Barna-
skóla Akureyrar og um 180 í Oddeyr-
arskóla.
Gert er ráð fyrir að fyrstu vikum-
ar eftir að skólinn hefst verði gang-
brautarvarsla við mestu umferðar-
'göturnar og sagði Ingólfur Ármanns-
son skólafulltrúi að hugmyndin væri
að hafa gangbrautarverði á þeim
stöðum þar sem mest hefði verið
kvartað undan þungri umferð, m.a.
við Þingvallastræti og eins úr Gilja-
hverfi yfir Hlíðarbraut.
Hátíðahöld vegna
afmælis Hnitbjarga
Raufarhöfn. ^
FREYJA Öndundardóttir hélt
sína fyrstu myndlistarsýningu í
Byrginu á Raufarhöfn fyrir
skömmu. Freyja er ættuð frá
Raufarhöfn og átti hér heima til
fullorðinsára.
Hún hefur nýlega lokið fjögurra
ára námi í Myndlistarskólanum á
Akureyri þar af einu ári í fomáms-
deild, sem er undirbúningsdeild fyr-
ir allar deildir skólans og síðan var
hún þijú ár í málunardeild. Þau
verk sem hún sýndi í Byrginu að
þessu sinni eru hluti af vinnu henn-
ar þessi þijú ár, flest þó frá síðasta
vetri.
Fólk á Raufarhöfn sýndi vefkum
hinnar ungu listakonu mikinn
áhuga og hlutu þau góða dóma
Sýningargesta og margar' myndir
seldust.
Sýning Freyju var liður í 25 ára
afmæli félagsheimilisins Hnit-
bjarga, en þau hátíðahöld- hófust
með grillveilsu í Freyjulundi, en það
er blómagarður sem kvenfélagið
Freyja á Raufarhöfn sér um vestan
við félagsheimilið. Grillveislan var
vel sótt og stóð frá kl. 19 til 23
og lauk með flugeldasýningu.
Morgunblaðið/Helgi
Freyja Önundardóttir hélt sýn-
ingu á verkum sínum í tengslum
við 25 ára afmæli Hnitbjarga,
félagsheimilisins á Raufarhöfn.
Seinni dag hátíðahaldanna var
útimarkaður og síðan var stiginn
dans til kl. 4 um nóttina við hús-
fylli og fór hann vel fram í alla staði.
Helgi