Morgunblaðið - 05.09.1992, Side 40

Morgunblaðið - 05.09.1992, Side 40
ttnjtmfytaMfr !fi W MlCROSOFT. einar). WlNDOWS. SKÚLASONHF MORGVNBLAÐW, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SÍMI 691100. SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1655 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Morgunblaðið/Árni Sæberg Skólastarfið hafið Kennsla hófst í grunnskólum Reykjavíkur í gær, og var þessi mynd tekin í Álftamýrarskóla þar sem börn í 2. bekk SE voru mætt í fyrstu kennslustundina í fylgd með foreldrum sínum. Tvö íslensk skip til veiða við Grænland LÍSA MARÍA ÓF hélt frá heimahöfn sinni, Ólafs- firði, í gær til línuveiða við Austur-Grænland. Skip- ið, sem má stunda þar ótakmarkaðar þorskveiðar til áramóta og hirða allan meðafla, verður mánuð í þessari veiðiferð en aflinn verður flakaður og frystur um borð og landað hérlendis, að sögn Sig- urðar Gunnarssonar hjá útgerð skipsins, Sædísi hf. Hann segir að Skotta HF fari einnig á línuveiðar ' öið Austur-Grænland eftir helgina. Sigurður Gunnarsson segir að Grænlenskur maður, sem hafi línuveiðileyfi við Austur-Grænland til áramóta, hafi selt Sædísi hf. leyfið gegn því að fá visst hlutfall af aflaverðmætinu. Þá fari Skotta HF, sem keypt hafi svipað leyfi, trúlega á línuveiðar við Austur-Grænland eftir helgina. Nokkrir norskir og færeyskir línubátar hafa stundað þar veiðar og heilfryst aflann um borð en Lísa María ÓF er líklega eini línuveiðarinn í heiminum, sem jafnframt er flakafrystiskip, að sögn Sigurðar. Skipstjóri er Númi Jóhannsson en í áhöfninni er 21 maður. Sigurður sagði að íslendingar hefðu gert allt of lítið af því að afla sér veiðiheimilda í lögsögum ann- arra ríkja. Lítill fískveiðikvóti sem þeim hafi verið út- hlutaður hafí gert það að verkum að þeir hafi ákveðið að leita á önnur mið. Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur hjá LÍÚ, sagði að samtökin hefðu kannað fyrir nokkrum árum ’hvort hægt væri að fá veiðiheimildir við Grænland. „Grænlendingar höfðu á þessum tíma veitt Norðmönnum heimildir til veiða í tilraunaskyni. Þeir settu þau skilyrði að aflanum yrði landað á Grænlandi á ákveðnu verði. Reynsla af veiðum Norðmann- anna var þess eðlis að áhugi okkar dofnaði. Fyrir 3-4 árum keyptum við 30 þúsund tonna loðnukvóta Græn- lendingum sem við veiddum. Reynsl- an af því var sú að mönnum þótti þetta óhentugt. Strangar kröfur voru gerðar um að grænlenskir sjómenn -^rðu ráðnir á íslensku skipin, sem þegar allt kom til alls fengu ekki nema nokkur hundruð tonn hvert. Auk þess greiddum við hátt verð fyrir heimildimar. Þeir sem hafa kannað slíka hluti telja þó að í þessu felist tækifæri og hafa í því sam- bandi meðal annars rætt um veiði- heimildir á enn fjarlægari miðum. _S_amt er orðið erfíðara að veiða í lög- "^ogu annarra ríkja,“ sagði Sveinn. Garðabær kaupír Garða á tæplega 50 milljónir BÆJARSTJÓRN Garðabæjar hefur staðfest kaup bæjarins á jörð- inni Görðum á Álftanesi. Heildarsöluverð jarðarinnar, sem er 410 hektarar, er 49,2 milljónir. Jörðin var verðlögð með tilliti til þess að síðar yrði á henni íbúðarbyggð, útivistarsvæði og náttúruverndar- svæði eins og gert er ráð fyrir í aðalskipulagi Garðabæjar, að sögn Ingimundar Sigurpálssonar bæjarstjóra. Aðspurður sagði Ingimundur að viðræður um kaup á jörðinni hefðu staðið í um það bil 4 ár en skrifað hefði verið undir kaupsamning með fyrirvara um samþykkt bæjar- stjórnar í lok júlímánaðar. Bæjar- stjóm hefði síðan samþykkt kaupin á fundi sínum á fimmtudag. Ingimundur sagði að fest hefðu verið kaup á 410 hektara lands- svæði en jörðinni hefði verið skipt í nokkrar bújarðir með íbúðarhús- um og útihúsum. Bærinn hefði ekki fest kaup á byggingunum en tekið á sig þær kvaðir sem hefðu hvílt á seljanda að leysa til sín mannvirkin þegar að því kæmi. Um er að ræða megnið af því Morgunblaðið/Rúnar Þór Haldið á Grænlandsmið Gunnar Þór Magnússon, framkvæmdastjóri Sædísar hf., útgerðar Lísu Maríu ÓF, sést hér leysa landfestar skipsins í gær, þegar það hélt frá heimahöfn sinni, Ólafsfirði, til línuveiða við Austur-Grænland. Bankastofnanir á Norðurlöndunum 1.700 milljarðar króna hafa tap- ast á fimm árum 8,3 milljarðar hafa tapast á íslandi TÆPLEGA 1.700 milljarðar króna hafa tapast vegna útláns- afskrifta í bönkum og sparisjóð- um á Norðurlöndunum á síðast- liðnum fimm árum, samkvæmt upplýsingum frá Norræna bankamannasambandinu, sem heldur þing sitt hér á landi í næstu viku. Mest hefur tapið á þessu timabili orðið í Svíþjóð, eða tæplega 550 milljarðar, en á ís- landi nemur tapið um 8,3 miHj- örðum. Mest varð tap og framlög vegna útlánsafskrifta í bankastofnunum hér á landi árið 1990, eða 2.585 milljónir. Árið 1991 nam tapið 2.530 milljónum, 1.530 milljónum árið 1989, 976 milljónum árið 1988 og 699 milljónum árið 1987. Á tímabilinu 1987-1991 hefur banka- störfum á Norðurlöndunum fækkað um 18 þúsund, eða um það bil 10%. í Noregi hefur samdrátturinn frá 1987 verið meiri en 25%, og í viss- um bönkum hefur starfsfólki fækk- að um 40%. Um þessi mál verður auk ann- arra fjallað á þingi Norræna banka- mannasambandsins sem haldið verður á Hótel Loftleiðum 9.-11. seþtember. Þar koma saman full- trúar 165 þúsund bankamanna á Búrinn kom- inn í fiskbúðir BÚRFISKUR eða búri er farinn að sjást í fiskbúðum. Skammt er síðan íslendingar fóru að veiða hann að nokkru ráði, en nyög gott verð fæst fyrir hann á mörkuðum í Frakklandi og Bandaríkjunum. Þórður Ólason í fiskbúðinni við Sundlaugaveg sagði söluna á búr- anum alltaf vera að aukast. Hann sagði að þegar fólk smakkaði fisk- inn einu sinni vildi það kaupa hann aftur og líkti hann bragðinu á búranum við skötusel og humar. Þórður sagði að gott væri að grilla, djúpsteikja eða pönnusteikja fisk- inn. Kílóverðið á búranum er 690 kr. landi á Álftanesi sem er innan bæjarmarka Garðabæjar. Jarðar- kaupin sagði Ingimundur hafa afar mikla þýðingu fyrir Garðabæ. „Við teljum afar æskilegt að bærinn hafí eignarhald á því landi sem fyrirhugað er að úthluta í framtíð- inni til íbúðarbygginga og taka til almannanota, útivistar og þvílíks," sagði Ingimundur. Norðurlöndunum, en Norræna bankamannasambandið er sam- starfsvettvangur stéttarsambanda starfsmanna banka og sparisjóða á Norðurlöndunum. Þing þessi eru haldin á þrigjgja ára fresti og nú öðru sinni á Islandi. Kartöflu- uppskera léleg í ár HORFUR eru á að kartöflu- uppskeran í ár verði jafnvel helmingi minni en i meðal- ári, eða um sex þúsund tonn. Neyslan er á bilinu 8-9 þús- und tonn á ári, og að sögn Matthiasar Guðmundssonar framkvæmdastjóra Ágætis er sennilegt að hefja þurfi inn- flutning á kartöflum í mars- apríl á næsta ári. Kartöflubændur eru þessa dagana í óðaönn að taka upp, og í næstu viku verður væntan- lega ljóst hver uppskeran verð- ur. Matthías sagði að verð á íslenskum kartöflum væri nú ívið hærra en á sama tíma í fyrra þegar uppskeran var óvenjumikil, eða rúmlega 15 þúsund tonn, en kílóið kostar nú 89 kr. í heildsölu. Hann sagði að uppskeran væri léleg alls staðar á landinu vegna óhagstæðs tíðarfars í sumar, og á Austfjörðum og Héraði væri til dæmis öll upp- skeran ónýt vegna næturfrosta sem þar urðu óvenju snemma. Ólympíumót fatlaðra Olafur er ólympíu- meistari Átta íslandsmet féllu á fyrsta degi ÍSLENSKA íþróttafólkið stóð sig vel á fyrsta keppnisdegi Ólymp: íumóts fatlaðra í Barcelona í gær. Ólafur Eiríksson vann gull- verðlaun og Lilja M. Snorradóttir silfurverðlaun. Ólafur Eiríksson, sem keppir í fötlunarflokki S9, náði bestum árangri er hann sigraði í 400 metra skriðsundi karla og setti jafnframt glæsilegt ólympíu- og íslandsmet. Lilja M. Snorradóttir vann silfur- verðlaun í 400 metra skriðsundi kvenna. Islenska sundfólkið setti samtals átta íslandsmet í gær. Sjá nánar bls. 38.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.