Morgunblaðið - 29.09.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 29.09.1992, Síða 1
64 SIÐUR B 221. tbl. 80. árg. ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Búist við endanlegnm tölum úr kosningunum í Rúmeníu í vikulok Hiescu hefur for- Engin há- tíðarhöld ystuna að fyrstu umferð lokinni Búkarest. Reuter. SAMKVÆMT fyrstu tölum í forsetakosningnnum í Rúmeníu hefur Ion Iliescu forseti forystuna með 42,2% atkvæða og nær því ekki hreinum meirihluta í fyrstu umferð. Flokki Iliescus er spáð mestu fylgi, eða 22,5% atkvæða, í þingkosningunum sem einnig fóru fram á sunnudag. Mótherjar forsetans saka hann og flokk hans um kosn- ingasvindl en erlendir eftirlitsmenn hafa ekki tekið undir slíkar ásakanir. Allt bendir til þess að það verði Emil Constantinescu, rektor háskólans í Búkarest, sem keppi í síðari umferð innan tveggja vikna við Iliescu um forsetaembættið, en skv. fyrstu tölum fær hann 33,1% atkvæða. Ekki er búist við endanlegum tölum úr kosningunum í Rúmeníu á sunndag fyrr en í lok vikunnar. Fyrstu áreiðanlegu kosningaspárn- ar voru birtar um hádegisbil í gær. Byggjast þær á tölum frá 587 kjör- stöðum af 14.611. Samkvæmtþeim fær Lýðræðislega þjóðfrelsisfylk- ingin, flokkur Iliescus, 107 af 328 þingmönnum í neðri deild rúm- enska þingsins en 47 af 143 í efri deild. Næstur flokka kemur Lýð- ræðisþingið með 81 sæti í neðri deild en 35 í efri deild. Stjómarandstæðingar sökuðu Iliescu og fylgismenn hans um kosningasvik. Forsvarsmenn rúm- enskra mannréttindasamtaka sögðu að þeim hefði verið meinað að skoða kjörseðlana og þess vegna hefðu þeir ákveðið að draga starfs- menn sína í hlé. Tudor Marian, formaður Lýðræðisþingsins, sagði að þetta hlyti að bjóða heim kosn- ingasvikum. Jach Búchner, sem fylgdist með kosningunum fyrir hönd bandarískra samtaka, sagði að afstaða rúmensku mannrétt- indasamtakanna auðveldaði mönn- um ekki að dæma um lögmæti kosninganna. Hann sagðist ekki hafa orðið var við skipulagt svindl en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um framkvæmdina fyrr en hann hefði rætt við starfsmenn sína. Eftirlitsmenn Evrópuráðsins gáfu út yfirlýsingu um að kosningarnar hefðu verið frjálsar og réttlátar. Þetta er í annað sinn sem haldn- ar eru þing- og forsetakosningar í Rúmeníu síðan Nicolae Ceausescu var steypt í desember 1989. í þeim fyrri hlaut Iliescu 85% atkvæða til embættis forseta. Þjóðfrelsisfylk- ingin, arftaki kommúnistaflokks- ins, vann einnig yfirburðasigur í þingkosningunum. Erlendir eftir- litsmenn staðfestu þá að um kosn- ingasvindl hefði verið að ræða að einhveiju leyti. Reuter Marx og Lenín innan um kjörseðlana Starfsmaður í kjördeild í Búkarest kemur kjörseðlum, sem búið er að telja,"fyrir í kjallara dómshúss í borginni. Þar eru einnig styttur af gömlu átrúnaðargoðunum, Marx og Lenín, en þær eru ekki lengur hafðar uppi við í Rúmeníu. vegna V2 Bonn. Reuter. AFLÝST hefur verið í Þýskalandi hátiðarhöldum í tilefni af því, að 50 ár eru liðin síðan fyrsta V2- flugskeyti nasistastjórnarinnar var skotið á loft. Átti að minnast þess, að með V2 var lagður grunnur að geimflaugum nútím- ans en Bretar, sem fengu að kenna á þessu tækniundri Hitl- ers, mótmæltu því harðlega og einnig frammámenn í þýskum stjórnmálum, innan sem utan stjórnar. Þúsundir breskra borgara létu líf- ið af völdum V2-skeytanna og talið er, að 20.000 fangar hafi borið bein- in við framleiðslu þeirra. Dieter Vogel, talsmaður þýsku stjómarinn- ar, sagði, að hún hefði ekki ætlað að taka þátt í að minnast fyrsta flugtaks V2-flaugarinnar og ekki vitað, að Erich Riedl efnahagsráð- herra ætlaði að flytja þar ræðu. Það var Samband fyrirtækja í loftferðaiðnaði, sem vildi minnast „tækniafreksins, sem lagði grunn að geimferðum nútímans“, en höfuðsmiður V2-flauganna var Werner von Braun. Síðar lagði hann á ráðin um geimferðaáætlanir Bandaríkj amanna. Samþykkt fjármálaráðherrafundar EB-ríkjanna í Brussel í gær Hugmyndum um tvískipt Evrópubandalag hafnað Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. Fjármálaráðherrar Evrópu- | í gjaldeyrismálum og virðist lítill bandalagsríkjanna, EB, höfnuðu áhugi vera á því utan Bretlands, í gær hugmyndinni um tvískipt að það verði endurskoðað. Var bandalag hvað varðaði samstarfið | þetta niðurstaða fundar fjármála- Hamfarir í Genúa Reuter Gífurlegar rigningar ollu flóðum í Genúa á Ítalíu í fyrrakvöld og fyrrinótt og var ófagurt um að litast þegar íbúamir voguðu sér út úr húsi í gærmorgun. Vatnavextir í einni ánna, sem renna um borgina, ollu því að hún hreif með sér hundruð bíla og lágu þeir og annað brak eins og hráviði um allt. Stórviðra- samt hefur einnig verið á Spáni og í Frakklandi þar sem 39 manns að minnsta kosti hafa farist. ráðherranna í Brussel en til hans var boðað til að endurvekja traustið á Gengissamstarfi Evr- ópu, ERM, eftir óróann að undan- förnu. Samkvæmt nýrri skoðana- könnun í Danmörku myndi góður meirihluti styðja Maastricht- samninginn í nýrri þjóðarat- kvæðagreiðslu að uppfylltum skil- yrðum. Fjármálaráðherrarnir voru sam- mála um að þjóðþing aðildarríkja EB yrðu að staðfesta Maastricht-samn- inginn sem fyrst og Jean-Claude Juncker, fjármálaráðherra Lúxem- borgar, sagði að samstaða hefði ver- ið um að líða ekki að eitthvert eitt eða fleiri ríki kæmu í veg fyrir stað- festingu hinna. Norman Lamont, fjármálaráðherra Breta, sagði að vísu, að atburðir síðustu vikna sýndu, að ekki væri allt sem skyldi í gengis- samstarfinu en hann lagði áherslu á, að hugmyndir um einangrun Breta væru úr lausu lofti gripnar. Anders Fogh Rasmussen, fjár- málaráðherra Danmerkur, sagði í gær, að Danir vildu taka þátt í gjald- eyrissamstarfi kjarnaríkjanna í EB ef af því yrði en niðurstaða fjármála- ráðherrafundarins þykir hafa minnk- að líkur á því. Samkvæmt nýrri Gall- up-könnun, sem birtist í gær í danska blaðinu Berlingske Tidende, ætla 64% Dana að styðja Maastricht- samninginn í nýrri þjóðaratkvæða- greiðslu svo fremi hann verði endur- skoðaður. Þegar spurt var um hvaða ákvæði þyrfti að endurskoða vildi meirihlutinn að Danir yrðu undan- skildir ákvæðinu um einn gjaldmiðil og sameiginlegan seðlabanka. Það kom hins vegar á óvart að meirihlut- inn studdi hugmyndina um sameigin- lega varnarstefnu EB-ríkjanna. ----------» ♦ ♦---- Tadzhíkístan Ottast borg- arastyrjöld Moskvu. Reuter. HUNDRUÐ manna biðu bana eða særðust í bardögum í Tadzhíkíst- an um helgina. Talin er hætta á borgarastyrjöld í sovétlýðveldinu fyrrverandi. Bæjarstjóri Kúrgan-Tjúbe í suður- hluta Tadzhíkístans sagði í gær, að. lögreglustjóri og 13 lögregluþjónar hefðu verið á meðal þeirra sem biðu bana í árás stuðningsmanna Rak- hmons Nabíjevs, fyrrverandi forseta landsins, á sunnudag. „Háþróuðum þungavopnum var beitt gegn sak- lausu og varnarlausu fólki og hundr- uð manna féllu eða særðust í árás-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.