Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
Mikiðaf
loðnu á
miðunum
MESTALLUR loðnuflotinn hefur
hafið veiðar og er hann nú á svæð-
inu norðvestan við Kolbeinsey.
Loðnan er hins vegar dreifð og
erfitt að ná henni, að sögn Sæv-
ars Þórarinssonar skipstjóra á
Albert GK 31.
Albert kom til Siglufjarðar í gær
úr sinni fyrstu veiðiferð á þessu
hausti og var verið að landa úr skip-
inu þegar rætt var við Sævar. Hann
sagðist vera með 700 tonn eftir tvær
nætur. Sævar sagði að mjög mikið
væri af loðnu á veiðisvæðinu. Hún
væri hins vegar dreifð og erfitt að
ná henni. Loðnan er mjög góð að
sögn Sævars, en þó hefur aðeins
borið á að hún væri blönduð smá-
loðnu og þá aðailega í björtu.
Í gær voru þrír loðnubátar að
landa á Siglufirði, tveir á Akranesi
og einn á leið til Eskifjarðar. Sam-
kvæmt upplýsingum Teits Stefáns-
sonar hjá Félagi fískimjölsframleið-
enda voru aðeins veidd 8.600 tonn
af loðnu í síðustu viku. Heildarveiðin
á vertíðinni er nú orðin 57.000 tonn.
Ráðhústjörnin
Fiskarnir
frjálsir
fljótlega
LÖXUM og silungum, sem verið
hafa í lítilli tjörn fyrir framan
ráðhús Reykjavíkur síðan í vor,
verður sleppt á næstu dögum að
sögn Ólafs Jónssonar, upplýs-
ingafulltrúa Reykjavíkurborgar.
Fiskunum var komið fyrir í tjöm-
inni af vinum tilvonandi brúðguma
sem héldu honum svokallað steggja-
partý en einn liður í skemmtidag-
skránni var veiði í Ráðhústjörninni.
Ekkert varð úr þeirri veiðiferð því
lögreglan skarst í leikinn áður en
fiskamir vom fangaðir. Ólafur
sagði að starfsmenn ráðhússins
hefðu séð um að fæða þá en að
þeim yrði sleppt á næstu dögum
eins og fyrr sagði.
í dag
Syndaskrá Páfagarðs
Syndaskrá kaþólsku kirkjunnar
færð í nútímahorf 27
íslenskt vetni ú þýska
strætisvagna___________________
Vetnisfélagið í Hamborg hefur
áhuga á íslensku vetni 28
Fræðsla
Námskeið í flestu þvísem hugurinn
gimist 37
Leiðari________________________
Óskað eftir samstarfi við
íslendinga 28
ÁTVR
Alkóhól-
iaus vín
lækkaum
fjórðung
ALKÓHÓLLAUS vín lækka í
verði um fjórðung í dag þegar
ný verðskrá Afengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins tekur gildi.
Hins vegar hækka nokkrar kon-
íakstegundir um 7-10%. Verð á
áfengi breytist almennt lítið, flest-
ar tegundir eru á sama verði og
í gær eða hækka eða lækka um
1-2%.
Verðbreytingar eru mismunandi á
milli tegunda og framleiðslulanda.
Þannig lækka flestar tegundir sem
framleiddar eru í Bandaríkjunum lít-
illega en evrópsk vín ýmist hækka
eða lækka. Meðal þeirra vína sem
taka verulegum breytingum eru
nokkrar koníakstegundir. Camus
Napoléon hækkar um 660 kr. Flask-
an kostaði 6.220 kr. en hækkar í
6.880, eða um 10,6%. Remy Martin
X.O. (Fine Champagne) hækkar um
8% og Frapin Napoleon (Grande
Champagne) um 7,5%.
Flestar íslensku tegundirnar hald-
ast óbreyttar í verði nema lítraflaska
af Eldurís sem hækkar um 100 kr.,
úr 2.970 í 3.070 kr.
Alkóhóllaust Pol Vignan rauðvín
lækkar úr 450 kr. í 350 kr. flaskan,
eða um 22%, alkóhóllaust Pol Viguftn.
rósavín lækkar um 27% og önnur
alkóhóllaus vín hjá ÁTVR eftir því.
TiIIögur Verktakasambandsins ræddar í borgarráði í dag
Siguijón Pálsson, bóndi á Steinum, hjá rústum fjárhússins.
Morgunblaðið/Halldór Gunnarsson
Hlaða og fjárhús brunnu
undir Austur-Ejrjafjöllum
Holti.
ELDUR kom upp í hlöðu á bænum Steinum undir Eyjafjöllum á
sunnudagsmorguninn og brunnu hlaðan og áföst fjárhús á stuttum
tima.
Hlaðan á Steinum stendur fjarri
bænum til hliðar og ofan við
Steinahelli. í hlöðunni voru um
1.500 baggar af heyi sem hafði
hitnað í en hitinn lokast inni þann-
ig að ekki hafði orðið vart við
hitamyndun. Vart varð við reyk
úr hlöðunni árla á sunnudags-
morgun og þegar komið var að
var eldur laus í heyinu.
Hringt var í slökkviliðið á Skóg-
um sem kom innan skamms. Einn-
ig komu að bændur með haugsug-
ur með áfestum tengingum til
slökkvibúnaðar en allt kom fyrir
ekki. Hlaðan brann til grunna á
stuttum tíma og eldur læsti sig í
sperrur áfasts fjárhúss.
Siguijón Pálsson, bóndi á Stein-
um, sagðist ekki verá viss um að
byggja upp fjárhús og hlöðu á
þessum stað, en vafalaust yrði
hann að hefja endurbyggingu
fjárhúss og hlöðu fyrir veturinn.
Fréttaritari.
Borgín fullfær um að taka
erlend lán tíl framkvæmda
••
- segir Markús Orn Antonsson, borgarstjóri
FULLTRÚAR Verktakasambands íslands áttu fund með borgarstjóra
og borgarhagfræðingi í síðustu viku þar sem ræddar voru frekar
tillögur Verktakasambandsins um að flýta framkvæmdum á vegum
borgarinnar og að þær yrðu fjármagnaðar með erlendum lánum.
Að sögn Markúsar Arnar Antonssonar borgarstjóra er Reykjavíkur-
borg fullfær um að taka erlend lán til að fjármagna þessar fram-
kvæmdir og hefði lánstraust til þess.
Búið var að leggja tillögurnar fyr-
ir borgarráð en þaðan var þeim vís-
að til umsagnar borgarverkfræðings
og borgarritara. Borgarstjóri kvaðst
eiga von á því að álitsgerðir frá
þeim yrðu lagðar fyrir borgarráð í
dag.
Aðspurður um hvort Reykjavíkur-
borg gæti tekið 1,5 milljarða að láni
erlendis miðað við skuldastöðu borg-
arinnar, sagði borgarstjóri: „Það er
engu föstu slegið um það. Verktaka-
sambandið bendir á þann möguleika
og það gerir það í fullri vissu og
trausti þess að Reykjavíkurborg er
fullfær að taka slíkt lán. Borgin
hefur slíkt lánstraust og það myndi
ekki gera henni neitt sérlega erfitt
um vik upp á framtíðina að gera.
Borgin myndi þola þá skuldastöðu,“
sagði borgarstjóri.
Hann sagði að ef verið væri að
ræða úrlausnir í atvinnumálum þá
væru það viðhaldsverkefni sem sköp-
uðu flestum atvinnu. „Það er einn
þátturinn sem við hljótum að skoða.
Eru einhver slík verkefni sem við
getum flýtt og ráðist í á haustdögum
og í vetur? Það getur verið sitthvað
sem við getum tekið fyrir af því
tagi,“ sagði borgarstjóri.
Tillögur Verktakasambandsins
gengu m.a. út á að flýta fram-
kvæmdum við mislæg gatnamót á
mótum Kringlumýrarbrautar og Mi-
klubrautar. Sigurður Skarphéðins-
son gatnamálastjóri sagði að þetta
væri framkvæmd upp á 300-500
milljónir kr., en hún væri aðeins ein
af mörgum brýnum framkvæmdum
Aukaþing SUS í Neskaupstað
Formaður SUS and-
vígur ályktun um
sjávarútvegsmál
DAVÍÐ Stefánsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, lýsti
sig andvígan ályktun um sjávarútvegsmál á aukaþingi SUS sem hald-
ið var á Norðfírði um helgina. í ályktuninni er öllum hugmyndum
um veiðileyfagjald hafnað og um leið opnað fyrir að hleypa erlendu
áhættufjármagni inn í íslenskan sjávarútveg. Alyktunin var samþykkt
samhljóða en Davíð sat hjá í atkvæðagreiðslu um hana.
íþróttir
► TBRI öðru sæti á EM í
badminton - Gísli Halldórsson
hættir sem formaður Óí -
Katrín Gunnarsdóttir gefur
kost á sér til varaforseta ÍSÍ.
Skoðanaágreiningur um sjávarút-
vegsmál var að mestu útkljáður í
sjávarútvegsnefnd þingsins, en
ályktun hennar var samþykkt sam-
hljóða á þingfundi. Nokkrir þingfull-
trúar sátu hjá við atkvæðagreiðsluna
og var Davíð Stefánsson einn þeirra.
Davíð hélt harðorða ræðu áður en
atkvæði voru greidd og sagði meðal
annars að í ályktuninni væri hvorki
mjög margt nýtt að finna né djarft
á málum tekið. í henni væri verið
að afhenda ákveðnum hópi í landinu
helstu auðlind þjóðarinnar til eignar.
Sjá nánar á bls. 55.
sem framundan væru. Aðrar fram-
kvæmdir værú gatnamót á mótum
Höfðabakka og Vesturlandsvegar
sem væru á hönnunarstigi og talið
er að kosti um hálfan milljarð kr.,
auk breikkunar Vesturlandsvegar
eða gerð Ósabrautar og lagning
Geirsgötu. Hann sagði ósennilegt að
þessar framkvæmdir gætu hafist
fyrr en næsta vor. Hönnun Ósa-
brautar væri þó lengra á veg komin
og því sem næst lokið. Sú fram-
kvæmd gæti hafist fijótlega.
Tófa grip-
in með ber-
um höndum
Hofsósi.
SÁ EINSTÆÐI atburður átti
sér stað er gangnamenn úr
Sléttuhlíð í Hofshreppi voru í
smalamennsku í Hrollleifsdal,
að einn gangnamanna, Gestur
Stefánsson frá Araarstöðum,
er kominn var fram undir
botn í dalnum, varð var við
að hundar hans voru að eitast
við eitthvað sem reyndist vera
tófa.
Leikurinn barst að á er rennur
þarna niður dalinn og hröktu
hundamir tófuna út í ána. Hún
komst upp á stein í ánni og stóð
þar. Gestur brá hart við og óð út
í ána og tókst að ná í hnakka-
drambið á tófunni, þrátt fyrir
mikið hvæs og arg sem hún gaf
frá sér. Gestur óð síðan til lands
og aflífaði dýrið snarlega.
Sagði Gestur að þetta hefði
verið hvolpur frá því í vor. Hann
er vanur að -fást við tófur því
hann hefir verið grenjaskytta í
Sléttuhlíð nokkur undanfarin ár.
- Einar