Morgunblaðið - 29.09.1992, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
...------)■"..;■'•-■■•■■■-!"..T |1 ) / ' ...
Ólina Þorvarðardóttir
„Nú er komið fram á
haust — og ljóst að
áhrifanna af aðgerðum
þeim sem borgin greip
til vegna atvinnu skóla-
fólks í sumar er hætt
að gæta. Vandinn er
óleystur eftir sem áður
og atvinnuástandið fer
síst batnandi.“
fóstur borgarstjóra, sem nýjustu
fregnir herma þó að verði andvana
fætt sökum óeiningar innan borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.
Síðari tillaga Nýs vettvangs í at-
vinnumálum fól í sér að borgin
myndi nýta sumarið til þess að láta
gera hagkvæmnikönnun vegna
nokkurra framkvæmda sem væn-
legt gæti verið að flýta eða ráðast
í til að bæta atvinnuástand. Höfðum
við þá einkum í huga framkvæmdir
við nokkrar nauðsyniegar þjónustu-
og velferðarstofnanir sem bæta
myndu þjónustu við Reykvíkinga og
skapa þannig atvinnu eftir að fram-
kvæmdum væri lokið. Lögðum við
til að borgarstofnunum yrði falið
að meta kostnað við slíkar fram-
kvæmdir og sömuleiðis ijölgun at-
vinnutækifæra sem af þeim hlytust.
Er ekki að orðlengja það að skrif-
ræði kerfisins kæfði þessa tillögu
sömuleiðis, og ekkert gerðist í sum-
arleyfi borgarstjórnar.
Hik er sama og tap
Nú er komið fram á haust — og
ljóst að áhrifanna af aðgerðum þeim
sem borgin greip til vegna atvinnu
skólafólks í sumar er hætt að gæta.
Yandinn er óleystur eftir sem áður
og atvinnuástandið fer síst batn-
andi.
Borgarfulltrúum Nýs vettvangs
er ljóst að við svo búið má ekki
standa lengur. Borgaryfirvöld verða
að grípa til raunhæfra og varan-
legra úrræða. Því höfum við nú lagt
til að borgin leiti eftir hagstæðu
langtímaláni sem nemi allt að 500
milljónum króna til þess að svara
þörfinni fram að áramótum. Verði
ijármagni þessu veitt til nokkurra
framkvæmda sem vænlegar geta
talist til atvinnusköpunar, en leysa
jafnframt úr nokkurri þjónustuþörf.
Má nefna byggingu hjúkrunarheim-
ilis fyrir aldraða, uppbyggingu leik-
skóla og aukið viðhald skólahús-
næðis, auk gatnaframkvæmda sem
bæta umferðaröryggi.
Þessi tillaga, sem flutt var í borg-
arstjóm 17. september síðastliðinn,
liggur nú til umsagnar í borgarkerf-
inu hjá borgarverkfræðingi og at-
vinnumálanefnd. Hún gerir ráð fyrir
að hagkvæmniathugun vegna ofan-
greindra verkþátta verði lokið fyrir
næstu mánaðamót, og vonandi
gengur það eftir.
Hitt er ljóst, að jafnvel þótt tillag-
an nái fram að ganga er engan
veginn nóg að gert. Hér er einungis
um að ræða skammtímaúrræði á
síðasta fjórðungi þessa árs. Eftir
stendur sú staðreynd að til lang-
tímaúrræða vegna hins. erfiða at-
vinnuástands hefur ekki verið gripið
enn og má það ekki dragast lengur.
Betur má ef duga skal
Borgaryfirvöld geta ekki setið
með hendur í skauti og fylgst áð-
gerðarlaus með þróun mála. Þeim
ber skylda til þess að grípa til áhrifa-
ríkra og varanlegra úrræða. Það
hefði raunar mátt gerast löngu fyrr.
Við gerð næstu fjárhagsáætlunar
fyrir árið 1993 ríður því á að menn
beini ekki blinda auganu að atvinnu-
horfum í höfuðborginni, heldur geri
ráð fyrir því við áætlunargerðina.
Þannig verði reynt að mæta útgjöld-
um vegna versnandi atvinnuástands
á annan hátt en með aukafjárveit-
ingum sem fara beint inn á yfír-
dráttarheimild í Landsbankanum.
Slíkar skammtímaskuldir eru rán-
dýrar fyrir borgina. Þær kostuðu
vel á þriðja hundrað milljóna króna
í vaxtagreiðslum á síðasta ári og
munu líklega kosta borgina um hálf-
an milljarð á þessu ári. En það er
viðlíka há upphæð og Nýr vettvang-
ur leggur til að fari í að bæta at-
vinnuástandið á þessu hausti.
Hér er ekki einungis spurt um
getu borgarinnar til að leysa vand-
ann heldur einnig vilja og skilning.
Raunhæf áætlanagerð, skilningur á
vandanum og vilji til að leysa hann
eru farsælasta vegarnestið.
Höfundur er borgarfulltrúi Nýs
vettvangs í Reykjavík.
FLISAR
-~2Zíí
gntaiffiruiTTi_L!u
in
111 II! 1
±
Stórhöfða 17, við GulUnbrú,
sími 67 48 44
i sálarfrœði
Námskeið sem byggir á nýjum rannsóknum
um þróun kvenna og mótun persónuleikans.
Áhersla er lögð á samstarf og innbyrðis
samskipti kvenna á mismunandi vettvangi.
MEÐAL EFNIS
Sálarlíf kvenna. Samstarf kvenna:
Tyrirtnyndir og náin tengsl. Vinátta, ö/und og samkeppni.
Olík viöbrögð kvenna og karla. Innbyrðis átök og úrlausnir.
Líjsskeið ogþersónul Aðgreining, frumkvæði,
egstaða. árangur.
Lc
Leiðbeinendur eru sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Nánari upplýsingar og skráning i
símum Sálfræðístöðvarínnar 21110
og 623075 milli kl. 11—12.
SÁLFRÆÐISTÖÐIN
SPARISJOÐURVELSTJORA
SAMEINAR KOSTINA
NJÓTTU ÖRYGGIS, TRAUSTS OG PERSÓNULEGRAR ÞJÓNUSTU.
Innlánsreikningar Sparisjóðs vélstjóra gefa allir mjög góða ávöxtun og í
sumum tilfellum bestu ávöxtun innlánsreikninga í íslenska bankakerfinu.
Sparisjóður vélstjóra auðveldar þér þannig að leggja grunn að traustri skipan
í fjármálum og njóta ávaxtanna af skynsamlegri ráðstöfun fjármuna.
TROMPBOK i
Góð ávöxtun fyrir þá
sem vilja geta gengið
að sparifé sínu
hvenær sem er.
ÖRYGGISBOK
Mjög góður kostur
fyrir þá sem vilja
binda sparifé sitt til
ávöxtunar.
BAKHJARL 1
24 mánaða reikningur
fyrir þá sem vilja
njóta hagstæðustu
ávöxtunarkjara.
LANAFYRIR-
GREIÐSLA v
Sniðin að þörfum
viðskiptavinarins.
n
SPARISJÓÐURINN
SPARJSJÓÐUR VÉLSTJÓRA
Borgartúni 18, Síðumúla 1, Rofabæ 39