Morgunblaðið - 29.09.1992, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
27
Syndaskrá kaþólsku kirkj-
unnar færð í nútímahorf
SKATTSVIK, mútuþægni, spákaupmennska og umhverfisspjöll eru
alvarlegar syndir og þeir sem gerast sekir um þær eiga á hættu
að brenna í helvíti, samkvæmt nýju spurningakveri kaþólsku kirkj-
unnar. Það er einnig synd að lesa stjörnuspár, leita til stjömuspek-
inga, taka þátt í miðilsfundum og hafa á sér töfragripi, að því
er fram kemur um í frétt breska dagblaðsins The Independent
um þessa nýju syndaskrá Páfagarðs.
Verið er að þýða spumingakver-
ið á hin ýmsu tungumál og gefa á
það út í lok ársins. Þetta er fyrsta
almenna spumingakver kaþólsku
kirkjunnar í rúmlega 80 ár og því
er ætlað að skýra kenningar kirkj-
unnar, einkum boðorðin tíu, í nú-
tímasamhengi. Þannig er ekki
lengur minnst á hólmgöngur en
þess í stað er meðal annars fjallað
um hryðjuverk.
í kverinu kemur fram að helvíti
er enn til og logar þess bíða þeirra
sem gerast sekir um „alvarlegar
syndir", en svo nefnast nú „dauða-
syndirnar". Kirkjan virðist hins
vegar hafa mildað afstöðu sína til
synda sem rekja má til félagslegra
vandamála.
„Alvarlegu syndimar" em marg-
ar og af ýmsum toga, allt frá mis-
notkun á náttúruauðlindum til
svika í viðskiptum og framleiðslu,
dreifingu og neyslu eiturlyfja. Litið
er á misnotkun á áfengi, tóbaki
og matvælum sem „ofnautn". Hins
vegar er akstur undir áhrifum
áfengis, sem og of hraður akstur,
fordæmdur sem alvarleg synd.
Hneykslismál stjómmála- og fjár-
málamanna á Italíu virðast hafa
vakið ugg í Páfagarði því kardinál-
amir sjö, biskuparnir 15 og fleiri
áhrifamenn, sem sömdu kverið,
létu spillingu, spákaupmennsku,
skattsvik og fjárglæfra til sín taka.
Fjallað er um kynferðislegar
syndir á tíu blaðsíðum í nýja kver-
inu, en aðeins í sjö línum í því
gamla. Pör sem búa saman utan
hjónabands gerast sek um „alvar-
lega synd“ og em útilokuð frá
sakramentinu. Kynlíf í hjónabandi
er sagt til „ánægju- og yndis-
auka“, en eigi að færa „ftjósemi í
hjónabandið". Kaþólikkar em
hvattir til að eignast mörg börn
þótt þeir megi takmarka fjöl-
skyldustærðina ef fyrir því eru
„góðar aðstæður“ - en aðeins má
beita „náttúrulegum“ aðferðum
(þ.e. getnaðarvarnir eru ekki heim-
ilar).
Samkynhneigt fólk verður að
ástunda skírlífi, en koma skal fram
við það með „virðingu, samúð og
nærgætni“.
Hjúskaparbrot, skilnaðir og
sifjaspell eru „brot gegn reisn
hjónabandsins". Klám, sjálfsfróun,
hórdómur, vændi og kynferðislegt
ofbeldi em skilgreind sem „skírlíf-
isbrot". Kirkjan sýnir þó slíkum
syndurum skilning því sagt er að
við skriftir eigi prestar að taka til-
lit til „sálfræðilegra og félagslegra
þátta“ sem leiða til sjálfsfróunar
og vændi sé minni synd ef rekja
megi það til „fátæktar, kúgunar
eða félagslegs þrýstings“.
t
Reuter
Skútan Pride of Teesside tók fljótlega forystu í hnattsiglingunni á
laugardag en fyrir kappsiglurunum lá að sigla 45.000 kílómetra leið.
10 skútur í 8 mán-
aða kappsiglingu
Portsmouth. Reuter.
ERFIÐASTA siglingakepþni heims hófst í Portsmouth á suðurströnd
Englands á laugardag er 10 skútur lögðu af stað i kappsiglingu
umhverfis jörðina sem áætlað er
Gert er ráð fyrir að hnattsigling-
in, sem kennd er við British Steel,
standi yfir í átta mánuði en vega-
lengdin sem skútumar sigla er um
28.000 mílur eða 45.000 kílómetr-
ar.
Loft var þrútið er skútumar 10
lögðu úr höfn í Portsmouth og tóku
Roh í Kína
Peking. Reuter.
LEIÐTOGAR Kína og Suður-
Kóreu hittust í fyrsta sinn í gær.
Þannig var innsiglað samkomu-
lag frá því í síðasta mánuði um
stjórnmálasamband ríkjanna.
Roh Tae-woo, forsætisráðherra
Suður-Kóreu, hitti Yang Shangkun,
forseta Kína, að máli í Peking í
gær. Snerust viðræður þeirra að
miklu leyti um sambúð Norður- og
Suður-Kóreu. Talið er að Roh von-
ist til að Kínveijar geti liðkað fyrir
bættum samskiptum Kóreuríkjanna
tveggja.
að taki átta mánuði.
stefnu vestur út yfir Atlantshafið.
Siglt verður í vesturátt umhverfis
jörðina, gegn ríkjandi straumum og
vindum sem gerir kappsiglinguna
þeim mun erfiðari.
Fyrsti áfangastaður sæfaranna
er Rio de Janeiro í Brasilíu. Þaðan
er siglt fyrir suðurodda Suður-
Ameríku til Hobart í Astralíu. Þriðji
áfangi er frá Hobart til Höfðaborg-
ar í Suður-Afríku en þaðan er siglt
aftur til Portsmouth og hringnum
lokað.
Anna Bretaprinsessa sem er
áhugasöm um skútusiglingar ræsti
keppendur af stað með því að
hleypa af fallbyssu sem komið hafði
verið fyrir um borð í feiju á Solent-
firðinum úti fyrir Portsmouth.
í áhöfn hverrar skútu eru 13
menn og verður hver þeirra að
leggja fram sem nemur 15.000
sterlingspundum, jafnvirði 1,5 millj-
óna ÍSK, til þess að fá að vera
með. Að þessu sinni er þess minnst
að 21 ár er liðið frá því Bretinn
Chay Blyth sigldi skútu að nafni
Breskt stál umhverfis jörðina.
Sameinast til
að fella Saddam
ÍRASKIR stjórnarandstöðuhóp-
ar hafa samþykkt að sameina
krafta sína í því skyni að steypa
Saddam Hussein forseta af stóli
og setja á laggirnar lýðræðis-
stjórn í írak. I yfirlýsingu, sem
gefin var út eftir þriggja daga
fund þessara hópa í borginni
Salahuddin í Norður-írak, sagði,
að andófsöflin hefðu ákveðið að
sameinast í því skyni að flýta
fyrir, að alræðisstjórnin viki fyr-
ir fjölflokka þingræðisstjórn.
Fundinn sátu fulltrúar sunni- og
shítamúslima, Kúrda, Túrkmena
og Assýringa, auk kommúnista,
sósíalista og andófsafla í Baath-
flokknum.
Báðir aðilar
safna liði
FERNANDO Collor de Mello,
forseti Brasilíu, og
gagnrýnendur hans leituðu ákaft
eftir stuðingi þingmanna i gær,
síðasta daginn áður en greidd
verða atkvæði um, hvort
forsetinn verði dreginn fyrir rétt
vegna ásakana á hendur honum
um spillingu. Báðir aðilar lýstu
yfir í gær, að þeir hefðu aflað
sér nægilegs stuðnings í þinginu.
Tveir þriðju hlutar 503 þing-
manna verða að greiða atkvæði
með málsókn á hendur forsetan-
um. Verði málsókn ofan á,
verður forsetinn leystur frá
störfum í sex mánuði, á meðan
öldungadeild þingsins fjallar um
mál hans.
Japanir reiðir
út af Kanemaru
LEIÐTOGAR í kaupsýslu og
stjórnmálum í Japan sem og al-
mennir borgarar fordæmdu þá
ákvörðuif saksóknaraembættis
landsins á mánudag að hlífa ein-
um voldugasta stjómmálamanni
Japans, Shin Kanemam, enda
þótt sú staðreynd lægi fyrir að
hann hefði tekið við ólöglegum
greiðslum japanska flutningafyr-
irtækisins Sagawa Kyubin, að
upphæð fjórar milljónir jena (tæ-
par tvær millj. ísl. kr.), í sjóði
Fijálslynda demókrataflokksins.
Saksóknari ákvað að hlífa
Kanemam við handtöku og
réttarhöldum, en gerði honum
aðeins að greiða 200.000 jena
(um 100.000 ísl. kr.) sekt fyrir
brot á lögum um eftirlit með
sjóðum stjórnmálaflokka.
Kardinálarnir í Róm hafa sent frá sér nýtt spurningakver.
Kaþólska kirkjan lítur þó enn á
fóstureyðingar sem morð. Hins
vegar leggur hún blessun sína yfir
dauðarefsingar, „réttlát" stríð og
vopnaðar uppreisnir við ákveðnar
aðstæður.
Þá segir í kverinu að sýna beri
sjálfsmorðum skilning ef rekja
megi þau til sálrænna vandamála,
mikilla þjáninga og pyntinga. Áður
leit kaþólska kirkjan sjálfsmorð
alvarlegum augum og þeir sem
fyrirfóm sér fengu ekki trúarlega
útför. Líknardráp eru bönnuð en
kirkjan telur þó réttlætanlegt við
ákveðnar aðstæður að hætta að
halda lífi í sjúklingum með tækjum
eins og öndunarvélum ef þeir eru
haldnir ólæknandi og þjáningar-
fullum sjúkdómum.
Royal
LYFTIDUFT
Notiö ávallt bestu
hráefnin í bakstúrinn.
Þér getið treyst
gæðum ROYAL
lyftidufts.
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
ÞRIÐJUDACSTILBOÐ
Verð nú 1.995,-
Verð áður 4.995,-
Litur. Gul-brúnt.
Stærðir: 36—41.
I
5
Domus Medica, Kringlunni,
Egilsgötu 3, Kringlunni 8-l 2,
^ sími 18519 sími 689212