Morgunblaðið - 29.09.1992, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNVLÍF ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
33
Listmunir
Sotheby’s heldur velli sem
stærsta uppboðsfyrirtækið
Velti 6,3 milljörðum kr. á síðasta ári
Á SÍÐASTA ári nam velta Sotheby’s 1,14 milljörðum dollara eða
um 63 milljörðum íslenskra króna. Þessar tölur eiga við um sölur
frá águst 1991 til júlí 1992, samanborið við 1990-1991 sem voru 1,35
milljarðar dolara eða um 72 mil|jarðar íslenskra króna.
„Það voru nokkur mjög söluhá
uppboð í vor, þar á meðal voru boð-
in upp einstök söfn sem voru í eigu
einkaaðila, þar á meðal var að finna
hið kunna „Imperial Fabragé Love
Trophy Egg“ sem var selt á 3,19
milljónir dollara eða tæpar 176 millj-
ónir (slenskra króna og náði hæsta
verði í heimssögunni — fyrir rúss-
neskan hlut, þar á meðal listmuni
frá Fabragé. Málverk eftir
Rembrandt sem var andlitsmynd af
Johannesi Uyttenbogarert seldist í
Lundúnum á 4,18 milljónir sterl-
ingspunda eða um tæpar 44 milljón-
ir íslenskra króna,“ sagði Sigríður
Ingvarsdóttir fulltrúi hjá Sotheby’s.
„Þessar sölur leiddu til þess að Sot-
heby’s heldur enn forystuhlutverki
sínu á hinum alþjóðlega uppboðs-
listaverkamarkaði. Eins og menn
vita hafa verið erfíðleikar á lista-
verkamarkaðinum alls staðar í
heiminum eins og á öðrum mörkuð-
um. Þó hefur markaðurinn verið að
taka við sér aftur fyrstu sex mán-
uði ársins og búist er við að það
haldi áfram.“
Stærstu uppboðin í haust
Hápunkturinn af þeim uppboðum
sem verða í haust verður án efa
hluti af safni Thum- og Taxis-fjöl-
skyldunnar í Þýskalandi sem talin
er vera ein ríkasta fjölskylda í Evr-
ópu. Þessir hlutir hafa sumir verið
í eigu fjölskyldunnar í fímm aldir.
Um er að ræða silfur, skartgripi,
og fleiri kjörgripi, en þetta er eitt
dýrmætasta safn í Þýskalandi.
Hér er þó aðeins um að ræða
hluta af safninu, eða alls 500 hluti,
sem er metinn á 840 milljónir ís-
lenskra króna. Uppboðið fer fram í
Genf nk. nóvember. Ágóðanum
verður varið til að greiða erfðaskatt
fjölskyldunnar, en Prince Johannes
lést fyrir tveimur ámm og lét eftir
sig unga ekkju, Gloriu, og þrjú böm.
Á árinu 1993 verða fleiri uppboð
úr umræddu búi sem fram fer í
Lundúnum og Kastala-fjölskyldunn-
ar í Regensburg.
Á skartgripauppboðinu sem verð-
ur haldið í New York í október verð-
ur mikið um glæsilega hluti. Þar
verður boðið upp skartgripasafn
seinni konu Harry Winston sem var
frægur skartgripasali. Um er að
ræða 100 skartgripi sem eiginmaður
hennar gaf henni í gegnum 45 ára
hjónaband. Safnið er metið á 3-4
milljónir dollara eða milli 165 og
220 milljónir íslenskra króna. Þá
má nefna armband Marlene Dietrich
sem hún. var með í kvikmyndinni
Stage Fright eftir Alfred Hitchcock.
Armbandið er metið á 300.000-
400.000 dollara eða milli 16,5 og
22 milljónir íslenskra króna. Onnur
þekkt einkasöfn verða einnig boðin
upp í haust sem gefur okkur tilefni
til bjartsýni," sagði Sigríður Ingv-
arsdóttir.
Helstu uppboð sl. vor
„Ef litið er til uppboða á síðustu
önn þá hafa málverk eftir impressi-
onistana, gömlu meistarana, banda-
rísku og bresku málarana hækkað
lítillega í verði. Besta verð sem feng-
ist hefur sl. tvö ár á verkum eftir
impressionista og nútímalist fékkst
sl. maí í New York. En þessi verk
áttu það sameiginlegt að þau voru
öll í háum gæðaflokki. Samtímaverk
náðu góðu verði ef um var að ræða
hágæðaverk og eitthvað sem var
nýtt eða se mékki hafði sést áður
á listamarkaðinum. En markaðurinn
fýrir ákveðna listamenn var erfíðari
en búist hafði verið við. En í báðum
þessum deildum hafði hin efnahags-
lega lægð sem nú hefur verið rílq-
andi í heiminum þau áhrif að erfið-
ara var að fá góð verk eins og oft
hefur átt sér stað áður þegar að
kreppir," sagði Sigríður Ingvars-
dóttir.
Bankar
Austurrískir bankar
í erfiðeikum
0RACLE7
kynning að Holiday Inn
1. október 1992,
kl. 14.90 -17.09
Dagskrá
Kynningin sett
Vandamálin í heimi upplýsingatækninnar
Nýjimgar í ORACLE7:
♦ Innri hönnun
Heilleiki gagna
♦ Gagnaöryggi
Kaffihlé
Viðbætur í ORACLE7:
♦ SteQuviðbót
♦ Samhliða-miðlaraviðbót
♦ Dreifð-vinnsluviðbót
Skipt yfir í ORACLE7
Kennsla og þjálfun í ORACLE7
Almennar umræður og léttar veitingar.
ORACLE7 kynningin fer fram á ensku undir
leiðsögn Jesper Frötlund frá Oracle Danmark
A/S, en hann er helsti DBA og ORACLE7
sérfræðingur Oracle í Evrópu.
Þátttaka er ókeypis og óskast tilkynnt í
síma 62 30 88 fyrir kl. 17:00
miðvikudaginn 30. september.
ORACLE
ORACLE ísland Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími 91-618131 Fax 91-628131
BÖNKUM í Austurríki hefur enn ekki tekist að vinna sig út úr þeim
erfiðleikum sem komu upp á yfirborðið á síðasta ári, en stærsta
vandamálið er of mikill fjöldi lánastofnana.
Á síðasta ári þótti vandi bank-
anna einkum endurspeglast í allt
of litlum hagnaði innan greinarinn-
ar. Nú er ljóst af niðurstöðutölum
fýrri hluta ársins að hagnaður hefur
enn dregist saman.
Þegar á síðasta ári gripu bank-
arnir til aðgerða til að bæta stöðu
sína. yar einkum um tvennt að
ræða. í fýrsta lagi reyndu margir
að auka umsvif sín með því að hefja
viðskipti á alþjóðlegum mörkuðum.
Þar hefur það sýnt sig að nauðsyn-
legan bakgrunn skorti. Bankarnir
hafa neyðst til að eiga í of miklum
mæli við áhættusöm viðskipti, eins
og algengt er með nýliða á markaði.
Þörf austurrísku bankanna fyrir
aukinn hagnað grundvallast einkum
af lélegri eiginfjárstöðu þeirra, en
hún uppfyllir iðulega ekki alþjóðleg-
ar kröfur. Hin leiðin sem reynd er
til að bæta stöðuna er fækkun
banka með sameiningu þeirra.
Fyrsta stóra skrefíð í þá átt var
sameining Landerbank og Zentral-
sparkasse Wien við Bank Austria.
Sú sameining varð aðeins til þess
að í ljós kom að fjárhagsstaða Land-
erbank var enn verri en áður hafði
verið ætlað. Sameinig stórbank-
anna Girozentrale og Erst Oester-
reichische Sparkasse misheppnaðist
einnig illa.
Þessi leið virðist þó nú orðið vera
sú eina mögulega fyrir austurríska
bankakerfíð. Lokaniðurstaðan gæti
þó orðið sú að erlendir bankar yfír-
tækju þá austurrísku. í öllu falli er
ekki hægt að búast við að á meðan
bankakerfið er ekki jafn þroskað
og bankakerfi Evrópu, geti það við-
haldið sjálfstæði sínu.
Fyrirtæki
Aukin ítök útlend-
ÍSLENSKT VATN
E R GULLS ÍGILDI
INNKÖLLUN Á KRÖFUM
Utflutningsfyrirtækið Vatnsberinn hf. óskar
eftir því við lánadrottna félagsins, aS þeir
sendi inn nú þegar stöðu á ógreiddum
kröfum á hendur Vatnsberanum hf., ásamt
gíróseðli.
GreiSslur verða inntar af hendi innan 35
daga, frá því krafa berst.
inga íDanmörku
Um aldamótin verða aðeins 30%
hlutafjár danskra fyrirtækja,
sem skráð eru í kauphöllinni, í
eigu einstaklinga. Hin 70% verða
þá komin í hendur lífeyrissjóða,
fjárfestingarsjóða og útlendinga.
Það er a.m.k. skoðun Jan Aarso
Nielsens, forstjóra Aarso Nielsen
& Partners.
Aarso Nielsen telur að fram til
aldamóta muni fjárfestingar útlend-
inga í dönskum fyrirtækjum aukast
um helming, fara upp í 20%, og
fjárfestingar danskra stofnana, þ.e.
lífeyrissjóða, banka o.fl., fara úr
33% í um 50%. Telur hann raunar
hættu á, að eignaraðild útlendinga
aukist enn meir verði ekki afnumd-
ar þær takmarkanir, sem nú eru
við fjárfestingu lífeyrissjóðanna og
einnig ef sjóðirnir kjósi að ávaxta
sitt fé með öðru og áhættuminna
móti.
Ýmis merki má sjá um það síðar-
nefnda og Flemming Skov Jensen,
forstjóri LD, Dýrtíðarsjóðs laun-
þega, hefur t.d. fengið fyrirmæli
um að draga úr fjárfestingu í fyrir-
tækjum.
Hjá skráðum fyrirtækjum í Dan-
mörku eru 33% hlutafjár í eigu fjár-
festingastofnana, 10% í eigu útlend-
inga og 57% í eigu annarra. Sam-
svarandi tölur frá Englandi eru
63%, 12% og 25% en í Bandaríkjun-
um 44%, 7% og 49%.
AÐSTANDENDUR FÉLAGSINS
Til upplýsinga skal tekið fram aS eftirtaldir
aSilar eru meS öllu ótenqdir fyrirtækinu:
BERGUR GUÐNASON hdl., PALL G.
JÓNSSON - Pólaris, HANI AHMED -
Omni Invest og DR. DONALD ROCCO -
United Gulf.
HLUTHAFAR
Hluthafar fó innan fárra daga í hendur fund-
arboS vegna aSalfundar Vatnsberans hf.
ATNSBERINN HF
A Q U A R I U S
I N C
SUÐURHÓLAR 18 111 REYKJAVÍK SÍMI 985-24743
ESSEMM