Morgunblaðið - 29.09.1992, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
35
Nesstofa
Fyrirlestur í Nesstofu
PRÓFESSOR dr. Christa Habrich flytur fyrirlestur á vegum Félags
áhugamanna um sögu læknisfræðinnar og Nesstofusafns (lækna-
minjasafns í Nesstofu) miðvikudaginn 30. september kl. 17.30.
Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar
Heita vatnið nú selt
eftir rennslismæli
Borgarnesi.
HITAVEITA Akraness og Borgarfjarðar, HAB, hefur breytt sÖIukerfi
sínu úr hemlakerfí, þar sem notandinn greiddi fyrir ákveðinn fjölda
mínútulítra til húshitunar, í greiðslu samkvæmt rennslismæli, þar sem
notandinn greiðir fyrir alla vatnsnotkun auk fastagjalds af flatarmáli
íbúðarhúsnæðis og mælaleigu. Breytingin tók gildi 1. september sl. og
fyrstu reikningarnir í nýja kerfinu koma um næstu mánaðarmót.
Leitað að
nýliðum í
hjálparsveit
HJÁLPARSVEIT skáta í Kópa-
vogi er ein af aðildarsveitum
Landsbjargar. Innan skamms
hefst nýliðaþjálfun og verður
kynningarfundur miðvikudaginn
30. september kl. 20. Fundurinn
verður haldinn í húsnæði sveitar-
innar á Hafnarbraut 1, Kópavogi.
Leitað er að fólki frá 17 ára aldri
sem áhuga hefur á björgunarstörfum
hvar sem er og hvenær sem er. Leit-
ast er við að veita nýliðum sem víð-
tækasta þjálfun á sviði björgunar-
mála, bæði í þéttbýli og íjallabjörg-
un. Þeir sem áhuga hafa og vilja
kynna sér málið ættu að koma á
kynningarfundinn. Þar verður gerð
grein fyrir starfinu í sveitinni.
----» -----
Rabbum
kvennafræði
Annadís Gréta Rúdolfsdóttir fé-
lagsfræðingur talar um rannsóknir
sínar á sérstöðu og gerð hins ís-
lenska kvenleika miðvikudaginn 30.
september kl. 12-13 í stofu 202 í
Odda. Annadís stundar nám í félags-
legri sálfræði við London School of
Economics and Political Science og
vinnur nú að doktorsritgerð sinni þar.
Fyrirlesturinn er haldinn í sam-
vinnu við þýska sendiráðið og er
hluti af dagskrá sem sett hefur
verið saman til að minnast þess að
40 ár eru liðin frá því að ísland og
Þýskaland tóku upp stjórnmálasam-
band. Fyrirlesturinn fer fram í úti-
húsinu (fjósinu) suðvestanvert við
Nesstofu á Seltjamarnesi. Fyrir-
hugað er að gera þetta húsnæði
upp og að þar verði aðal sýningar-
salur Nesstofusafnsins í framtíð-
inni.
Prófessor dr. Christa Habrich er
forstöðumaður þýska lækninga-
minjasafnsins í Ingolstadt
(Deutsches Medizinhistorisches
Museum). Hún er jafnframt for-
maður Evrópusambands lækninga-
minjasafna (European Association
of Museums of History of Medical
Sciences). Fyrirlesturinn, sem
væntanlega verður haldinn á ensku,
nefnist: Staða Nesstofusafns meðal
evrópskra lækningaminjasafna.
Fram að þessu hafa notendur
HAB ekki þurft að spara neyslu-
vatnið eða spá í vatnsnotkun til
húshitunar. En eftir þessa breyt-
ingu verður að koma til annar hugs-
unarháttur. Margir notendur hafa
verið með áhyggjur um að þeir
kynnu að missa stjóm á notkuninni
fyrstu mánuðina. I ljósi þessa sam-
þykkti stjóm hitaveitunnar nýverið
að leiðrétta að ákveðnu marki
reikninga þeirra sem nota vatn
umfram áætlun fyrstu þijá mánuð-
ina eftir sölukerfísbreytinguna. Eft-
ir þann tíma verður ekki um leið-
réttingu að ræða nema í einstökum
augljósum tilfellum. Stjóm HAB
hefur hvatt notendur til að nota
þennan aðlögunartíma vel, fylgjast
með notkun og láta yfírfara hitá--
kerfið ef um óeðlilega notkun er
að ræða.
Breytingin hefur verið kynnt út-
gafu á bæklingum. Þar kemur m.
a. fram að ástæðan fyrir henni sé
í fyrsta lagi að með hemlasölukerf-
inu hafi vatnsnotkunin farið um
25% fram úr því sem eðlilegt gat
talist og í kuldum hefði því orðið
hætt við að Deildartunguhver gæti
ekki uppfyllt vatnsþörfína.
Náttúrufræðistofnun
gefíð safn kísilþörunga
TKÞ.
Úr myndinni Rush.
Kvikmyndin „Rush“
DR. BARBARA R. Gudmundson, bandarískur kísilþörungafræðing-
ur frá Minneapolis í Minnesota, hefur dvalist hér á landi undan-
farna fjóra mánuði og unnið að því að koma á fót safni kísilþör-
unga við Náttúrufræðistofnun íslands. Dr. Barbara var gift manni
af íslenskum ættum, sem var prestur í Minnesota en er nú játinn,
og hefur alla tíð haft mjög sterkar taugar til íslands og Islend-
inga. Hún hefur nokkrum sinnum komið til Islands og farið um
landið þvert og endilangt, bæði til að kynnast landi og þjóð og til
að safna kísilþörungum í ám og lækjum, tjörnum og vötnum.
í tvo áratugi hefur dr. Barbara
Gudmundson unnið markvisst að
því hjartans áhugamáli sínu að
koma á fót safni kísilþörunga hér
á landi og færa íslendingum að
gjöf. Hún hefur tvívegis hlotið
styrk til þess verks frá Fulbrig-
htstofnuninni, fyrst árið 1986 þeg-
ar hún dvaldi hér í þrjá mánuði
og hafði vinnuaðstöðu á Líffræði-
stofnun Háskóla íslands, og svo
aftur í sumar, en nú hafði hún
vinnuaðstöðu á Náttúrufræðistofn-
un Islands. Við vinnu sína hér
naut hún aðstoðar nokkurra
áhugasamra sjálfboðaliða sem hún
útvegaði sjálf.
Safn það, sem dr. Barbara Gud-
mundson hefur komið upp og af-
hent Náttúrufræðistofnun að gjöf,
samanstendur af sýnishornum
kísilþörunga frá um 300 stöðum
hér á landi sem hún hefur safnað
sjálf, og nokkrum tugum sýna frá
öðrum löndum og heimsálfum,
ásamt tilbúnum smásjársýnum á
glerplötum frá flestum þessara
staða. Að auki fylgir með fjöldi
sýna sem hún hefur útvegað Nátt-
úrufræðistofnun að gjöf frá öðrum
kísilþörungafræðingum, sem hafa
safnað hér á landi og annars stað-
ar, þar á meðal um 270 sýni frá
Niels Foged, Danmörku, sem einna
Verðlaun veitt fyrir
tímamótahugmyndir
AKADEMIA Café Óperu hefur nú verið valin fyrir starfsárið 1992-93
en í henni eiga sæti tíu forstjórar og framkvæmdastjórar eitt ár í
senn. „Takmarkið er, nú sem fyrr, að verðlauna einstakling úr at-
vinnulífí - mann eða konu - vegna nýrra tímamótahugmynda sem
hann/hún hefur fengið, þróað og barist fyrir þrátt fyrir lítinn skiln-
ing, jafnvel andstreymi," segir í frétttilkynningu.
Fimm einstaklingar hafa verið
tilnefndir til verðlaunanna: Friðrik
Þór Friðriksson kvikmyndagerðar-
maður, Geir A. Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri, Gísli Örn
Lárusson forstjóri, Jóhannes Jóns-
son kaupmaður og Jón Ásbjörns-
son fiskverkandi. Úr þessum hópi
verður verðlaunahafínn valinn og
heiðraður á galakvöldi akadem-
íunnar 8. október nk. á Café Óperu
þar sem hann fær afhentan „lykil
framtíðar".
Verðlaunagripurinn, sem Sig-
urður Steinþórsson, gullsmiður í
Gulli & silfri, hefur hannað, er eft-
irlíking úr silfri af voldugum lykli
sem fannst í jörðu í kirkjugarði
að Stórólfshvoli og varðveittur er
á Þjóðminjasafni Islands.
Eftirtaldir eiga sæti í akademíu
Café Óperu árið 1992-93: Ágikt
Einarsson, Elsa Haraldsdóttir,
Herluf Clausen, Hörður Gunnars-
son, Jóhann G. Bergþórsson, Jón
Ásbergsson, Kristinn Björnsson,
Magnús Oddsson, Svava Johansen
og Þórarinn Jón Magnússon.
sýnd í Bíóborginni
BÍÓBORGIN frumsýnir í dag, þriðjudag, myndina Rush. Leikstjóri
er Lili Fini Zanuck. Tónlist er eftir Eric Clapton. í aðalhlutverkum
eru Jason Patric, Jennifer Jason Leigh og Sam Elliott.
mest hefur rannsakað og skrifað
um íslenska kísilþörunga á síðari
árum. Þessu safni fylgja svo ýmsar
merkar handbækur og ritgerðir.
Kísilþörungar eru smásæir ein-
frumungar, sem mynda um sig
fagurlega myndaðar skeljar úr kís-
il; þeir eru mjög algengir og mikil-
vægir í vistkerfí vatna og sjávar
og lifa auk þess í rökum jarðvegi
og á rökum stöðum.
(Fréttatílkynning)
í frétt frá kvikmyndahúsinu seg-
ir um söguþráðinn: „Hér er á ferð-
inni mögnuð mynd þar sem þau
Jason Patric og Jennifer Jason
Leigh leika tvær fíkniefnalöggur.
Vinna þau í dulargervi við að upp-
lýsa eiturlyfjamál og lenda við það
sjálf í slæmum málum þar sem þau
dragast sjálf inn í vítahring eitur-
lyfla og eiga í erfíðleikum með að
greina rétt frá röngu."
ÚR DAGBÓK
LÖGREGLUIMNAR í REYKiAVÍK:
25. - 28. september 1992
Fangageymslur yfírfylltust að-
faranótt laugardags. 29 einstakl-
ingar gistu þar 25 klefa. Allflest-
ir voru þeir undir áhrifum áfengis
og margir höfðu drukkið það mik-
ið að svo virtist sem þeir hefðu
ekki haft efni á að leýfa því sem
annars hefði gengið af. Af þessum
29 var mál 7 einstaklinga afgreitt
með lögreglustjórasátt, 11 voru
færðir til frekari yfírheyrslu í
þágu rannsóknar og 2 þurftu að-
stoð áfengisvarnafulltrúa.
Aðfaranótt sunnudags gistu 23
fangageymslumar, allflestir
vegna afleiðinga áfengisdrykkju.
Fimm þeirra var boðið upp á sátt-
argjörðir, allt að 15.000 kr., jafn-
margir voru færðir til frekari yfír-
heyrslu og áfengisvamafulltrúi
þurfti að aðstoða enn aðra fímm
í þeirra vanda.
Aðrir, sem gistu fangageymsl-
urnar um helgina, fengu að fara
frjálsir ferða sinna, en flestir
þeirra em fastagestir er eiga við
félagsieg og læknisfræðileg
vandamál að glíma. Þetta er fólk,
sem ekki á í önnur hús að venda
eins og búið er að því í dag. Það
er þó mat lögreglunnar að fanga-
geymslur lögreglunnar séu alls
ekki hentugur staður fyrir það.
Á föstudagskvöld var tilkynnt
um að maður hefði verið stunginn
með hnífí í húsi í Breiðholti. Um
var að ræða þrætur sambýlis-
fólks, sem enduðu með því að
sambýliskonan lagði til sambýlis-
mannsins með þeim afleiðingum
að hann skarst á fíngri. Vista
þurfti konuna í fangageymslun-
um, en manninn varð að flytja á
slysadeild.
Um kl. 2.30 aðfaranótt laugar-
dags náðust tveir piltar eftir að
hafa gert tilraun til þess að bijót-
ast inn í fyrirtæki við Ármúla.
Grunur var um að skömmu áður
hefðu þeir einnig gert tilraun til
innbrots í verslun við Skipholt.
Annars var lítið um innbrot og
þjófnaði um helgina. T.d. var ekk-
ert slíkt tilkynnt eftir aðfaranótt
laugardags, sem er óvenjulegt.
Um kl. 2.45 var brotin rúða í
skartgripaverslun við Skólavörðu-
stíg og úr glugganum stolið
tveimur hringum, sem metnir eru
á 75.000 kr. hvor. Ekki tókst að
hafa upp á þjófnum í beinu fram-
haldi af brotinu, en það sást til
hans.
Um kl. 3.35 stöðvuðu lögreglu-
menn ökufnann grunaðan um ölv-
un við akstur. Ökumaðurinn
reyndi síðan að komast undan á
hiaupum, en náðist fljótlega. Þá
veittust fjögur ungmenni, sem
höfðu verið samferða ökumannin-
um, að lögreglumönnunum og
reyndu að koma honum til aðstoð-
ar. Lögreglumennimir, sem jafn-
framt eru meðlimir „víkingasveit-
arinnar", handtóku þau öll og
færðu á lögreglustöðina.
Umferðarslys urðu 7 um helg-
ina. í öllum tilvikum virtist vera
um minniháttar meiðsli að ræða.
Um miðjan dag á laugardag var
bifreið ekið út af Suðurlandsvegi
við Geitháls og fór hún nokkrar
veltur utan vegar. Þrír menn voru
í bifreiðinni. Þeir sluppu með
minniháttar meiðsli, en þeir virt-
ust allir vera undir áhrifum áfeng-
is og vom vistaðir í fangageymsl-
unum uns þeir urðu viðræðuhæfír.
í viðræðum við aðnjótendur
fangageymslunnar að morgni eft-
ir vistun kemur í ljós að flestir
hafa neytt.áfengis ótæpilega. Þeir
hafa dmkkið frá sér vit og rænu,
og í rauninni lítið vitað af sér
eftir það, með tilheyrandi afleið-
ingum. Þegar þetta er skoðað í
ljósi afleiðinga fjölmargra slysa,
meiðinga, árása og jafnvel dauðs-
falla og tengsl þeirra við óhóflegu
áfengisneyslu, hlýtur þetta að
vera sérstakt áhyggjuefni.
Á sunnudag var kvartað yfír
aksturslagi ungs manns á Vestur-
landsvegi. Hann ýmist ók hægt
og hélt umferðinni fyrir aftan sig
eða ók eins og óður maður fram
úr röð bifreiða á veginum. Lög-
reglan hafði upp á ökumanninum,
færði hann á lögreglustöðina og
svipti hann ökuréttindum til
bráðabirgða.