Morgunblaðið - 29.09.1992, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 29.09.1992, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 Þessar telpur efndu til hlutaveltu til styrktar Hjálparstofnun Rauða krossins. Þær heita Kristín Sigurjónsdóttir, Sigríður Svava Sigurjóns- dóttir og Rut Jóhannsdóttir og söfnuðu 520 kr. Þessir krakkar eiga heima á Seltjarnarnesi og héldu þar hlutaveltu til ágóða fyrir „Hjálpum þeim“-söfnun Rauða krossins. Þeir söfnuðu rúmlega 2.100 kr. Börnin heita: Stefán Reykjalín, Rut Reykjalín og Hildur Björgvinsdóttir. Þessar telpur efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir MS-félagið og söfn- uðu 5.000 kr. Þær heita Guðrún Halla Daníelsdóttir, Silja Valdemars- dóttir og Arna Óskarsdóttir. Þessar dömur héldu hlutaveltu til ágóða fyrir Reykjavíkurdeild Rauða krossins og söfnuðust 550 kr. Þær heita Þórunn María Hólm og Birna Ásgeirsdóttir og eiga heima í Grafarvogshverfi. Þær Hrund Þórsdóttir og Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir söfnuðu 5.300 kr. til íslandsdeildar Amnesty International á hlutaveltu sem þær héldu á Eiðistorgi. Skrifstofa samtakanna biður þess getið að þetta muni vera í fyrsta skipti sem börn styrkja samtökin með þess- um hætti. _ Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Nú hillir undir að gæðingakeppni verði tekin upp á alþjóðlegum vettvangi samkvæmt reglum L.H. en mikill áhugi virðist fyrir keppnisgreininni í Evrópu. Aðalfundur FEIF í Sviss Breytingartillaga íslendinga um heimsbikarkeppnina samþykkt ________Hestar__________ Valdimar Kristinsson BREYTINGARTILLAGA ís- lendinga um heimsbikarkeppn- ina var samþykkt á aðalfundi Alþjóða sambands eigenda ís- lenskra hesta (FEIF) sem hald- inn var 12. september sl. í Sviss. í tillögunni er gert ráð fyrir að íslenskir keppendur geti unnið sér keppnisrétt á Heims- bikarmótinu án þess að þurfa að keppa á móti erlendis. Þess í stað verða lágmark einn, helst tveir erlendir dómarar að vera á þeim úrtökum sem haldnar verða hér fyrir Heimsbikarkeppn- ina. Þessi háttur verður hafður á næstu flögur árin en þá verður fyrirkomulagið tekið til endur- skoðunar. Keppendur frá öðrum þjóðum verða að keppa á minnst einni úrtöku í öðru Iandi en heima- landinu. Að sögn Péturs Jökuls Hákonarsonar formanns Hesta- íþróttasambands íslands sem sat fundinn fyrir hönd íslands ásamt Kára Ámórssyni formannni Landssambands hestamannafé- laga, var fundurinn vel heppnaður að flestu leyti en þó taldi hann hafa skyggt á að afnumið var tvöfalt vægi hægatöltsins í tölt- keppninni en Islendingar hafa alltaf barist hart fyrir að hafa það tvöfalt. Voru það aðeins Norð- menn auk íslendinga sem greiddu atkvæði gegn tillögunni sem kom frá Svíum. Þá var samþykkt að efnt yrði til Evrópumóts í ís- lenskri gæðingakeppni. Ekki var ákveðið hvar keppnin yrði haldin en vitað er að Svisslendingar hafa mikinn áhuga á að halda hana, einnig hefur heyrst að Danir vilji hugsanlega tengja hana alþjóð- legu afmælismóti sem þeir koma til með að halda á næsta ári í til- efni aldarfjórðungsafmælis Dansk Islandshesteforening. Haft var eftir Hans Pfaffen frá Sviss að búast megi við að hátt í 200 hest- ar verði skráðir til Ieiks en hann hefur kannað ýtarlega áhugann fyrir gæðingakeppninni. Farið verður eftir íslensku gæðingaregl- unum í einu og öllu en mikill áhugi virðist fyrir þessari keppni. Sam- þykktar voru nýjar reglur um fóta- og beislabúnað og sagði Pétur að þær breytingar væru mjög í takt við íslensku reglurnar. Nú hillir undir að opnuð verði skrifstofa FEIF með föstum starfsmanni sem staðsettur verð- ur í Sviss. Heike Beerle frá Sviss hefur verið ráðin til starfa og mun hún hafa fasta viðveru einu sinni í viku. Ein breyting varð á stjóm FEIF er Þorgeir Guðlaugsson sem búsettur er í Hollandi hætti sem upplýsingafulltrúi en í hans stað var kosinn Freddy Lehr frá Sviss. Marit Jonsson, Danmörku, var endurkjörin forseti til tveggja ára en hún tilkynnti að að þeim tíma liðnum myndi hún draga sig í hlé. Sigurður Ragnarsson er áfram varaforseti en til stendur að leggja þessa stöðu niður. Þess í stað verður kosinn útreiða- og tóm- stundafulltrúi. Aðrir í stjóm em Uli Solka, Sviss, gjaldkeri, Fiona Pugh, Bretlandi, ritari, Eva Marie Gerlach, Þýskalandi, unglingafull- trúi, Mats Jennerholm, Svíþjóð, ræktunarfulltrúi, og Toni Kolnes, Noregi, íþróttafulltrúi. Þá var Víkingur Gunnarsson kosinn í ræktunarnefnd FEIF og gera menp sér vonir um að hann taki seinna meir við starfi ræktunar- fulltrúa í stjóminni. Þá kom fram áhugi hjá mörgum fundarmönn- um að Búnaðarfélag sæi alfarið um alla tölvuskráningu kynbóta- hrossa sem hljóta dóm í aðildar- löndum samtakanna. Var Mats Jennerholm ræktunarfulltrúa stjómarinnar falið að kanna málið við Búnaðarfélagið. Fundarmenn báru lofsorð á framkvæmd íslendinga á alþjóð- legu dómararáðstefnunni sem haldin var hér á landi i apríl á þessu ári og einnig fyrir æskulýðs- búðir FEIF sem haldnar voru á Skógarhólum í sumar. Bar mönn- um saman um að sérlega vel hefði til tekist. Þá er þess að geta að FEIF verður 25 ára á næsta ári og em hugmyndir uppi um að afmælisaðalfundurinn verði hald- inn á Islandi. Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson Ekki ætti að vera vandkvæðum bundið að fá dómara til starfa á hestaíþróttamótum á næsta keppnistímabili með tilkomu 25 nýrra dómara. Tuttugu og fimm nýir dómarar útskrifaðir TUTTUGU og fimm nýir hesta- íþróttadómarar voru útskrifað- ir á dómaranámskeiði sem Hestaíþróttasamband íslands gekkst fyrir í Harðarbóli á Varmárbökkum í Mosfellsbæ nýlega. Alls tóku 39 þátt í nám- skeiðinu, 11 féllu en þrem verð- ur gefinn kostur á að taka próf- ið upp á nýjan leik. Meðal þátttakenda voru nokkr- ir af þekktustu reiðmönnum landsins og náðu þeir flestir próf- inu. Þessi viðbót dómara ætti að t^yggja nægjanlegt framboð af dómurum en oft hefur gengið illa að fá dómara til starfa á mótum. Að sögn Péturs Jökuls er hugsan- leg ástæða þess hve margir falla sú að þarna sé verið að keyra mjög umfangsmikið efni í gegn á of stuttum tíma. Sagði Pétur að námskeiðið sem hófst á fimmtu- dagskvöld og stóð yfir allan föstu- daginn, laugardag og sunnudag, hefði staðið yfir í 35 tíma en ef vel ætti að vera veitti ekki af 40 til 50 tímum í þetta. Taldi hann að af þessum sökum hefðu e.t.v. margir efnilegir dómarar fallið. Þá vildi hann nota tækifærið og koma á framfæri þökkum til Hestaíþróttafélagsins Harðar fyr- ir ágæta aðstöðu sem félagið lét í té og eins þeim er mættu með hesta á námskeiðið. Þá má geta þess að ársþing HIS verður haldið í félagsheimili Fáks laugardaginn 31. október nk. helgina eftir árs- þing Landssambands hesta- mannafélaga, en það verður hald- ið á Flúðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.