Morgunblaðið - 29.09.1992, Page 44

Morgunblaðið - 29.09.1992, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SESSEUA CHRISTENSEN, Vesturbergi 122, Reykjavfk, lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi 26. september. Jóhannes Christensen, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Anna Helene Christensen, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNSDÓTTIR frá frafelli, Laugarnesvegi 86, lést föstudaginn 25. september. Lilja Magnúsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Bergur Magnússon, Alda Magnúsdóttir, Gunnar Borg, barnabörn og barnabarnabörn. t Dóttir mín, móðir, tengdamóðir og amma, EYGLÓ JÓNSDÓTTIR, lést á heimili sínu, Laugavegi 98, miðvikudaginn 23. september. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 1. október kl. 15.00. Guðrún Þórðardóttir, Steinunn Ólafsdóttir, Valgarður Zophaníasson og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARTA EIRfKSDÓTTIR, Miðtúni 1, Keflavík, andaðist 26. september sl. í Sjúkrahúsi Keflavíkur. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðursystir mín, GUÐRÚN RUNÓLFSDÓTTIR, lést á elliheimilinu Grund aðfaranótt 27. september. Jarðarför auglýst síðar. Þórey Sumarliðadóttir. t Ástkær móðir okkar, GUÐBJÖRG EIRÍKS HARALDSDÓTTIR, Sléttahrauni 24, Hafnarfirði, andaðist sunnudaginn 27. september í Sankti Jósefsspítalanum, Hafnarfirði. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Bróðir okkar, SVERRIR SIGTRYGGSSON, Grundarbraut 15, Ólafsvík, lést í Sjúkrahúsi Akraness aðfaranótt 26. september. Jarðarförin fer fram laugardaginn 3. október kl. 14.00. Systkini hins látna. t Bróðir minn og móðurbróðir, BENEDIKT ÓSKAR JÓNSSON, elliheimilinu Grund, áður Sveinsstöðum, Vestmannaeyjum, lést sunnudaginn 27. september. Hansina Jónsdóttir, Hrefna Hagbarðsdóttir. Minning Stefán Þorkelsson í dag, þriðjudag 29. september, er mágur minn, Stefán Guðmundur Þorkelsson, til moldar borinn. Hann fæddist 21. apríl 1941 á Óspaks- eyri í Bitrufirði, Strandasýslu, og ólst þar upp, sohur hjónanna Ástríð- ar Ingibjargar Stefánsdóttur frá Kleifum í Gilsfirði og Þorkels Guð- mundssonar frá Melum í Árnes- hreppi. Hann var annar í röðinni af fjórum sonum þeirra hjóna, en hinir eru Sigurgeir, kvæntur Frey- gerði Pálmadóttur, en þau eiga flóra syni, Ingimar Heiðar, kvæntur undirritaðri, þau eiga tvo syni, og Gylfi, kvæntur Sigríði Halldórsdótt- ur og eiga þau eina dóttur. Stefán var alinn upp á stórri jörð, þar sem umsvif voru mikil. Búið var stórt og þar að auki kirkja og kaupfélag. Auk þess að vera* bóndi var faðir hans kirkjuvörður og kaupfélagsstjóri. Gestkvæmt var því á bænum og þurfti stórhuga og duglega konu til að stjóma því heimili, en það hlutverk rækti Ásta af framsýni og myndarskap. Stefán og bræður hans áttu því láni að fagna að vera aldir upp á kærleiksríku og traustu heimili með víðáttu hinna íslensku fjalla og dala við hvert fótmál. Fjaran var fram- undan bænum og ekki óeðlilegt að þrá hafi vaknað til að kynnast öðr- um löndum og þjóðum. Eftir skyldunám, fyrst heima í sveitinni og síðan á Reykjum í Hrútafirði, þar sem Stefán lauk gagnfræðanámi, réð hann sig á millilandaskip og sigldi um heimsins höf, allt frá Múrmansk í norðri til Odessa í austri og Karíbahafsins í vestri. Hann hafði mikið yndi af að segja frá ferðum þessum í góðra vina hópi. Annars var Stefán ekki margmáll maður. Hann var hlé- drægur og bar ekki á torg tilfinn- ingar sínar. Stefán var áhugasamur um sögu lands og þjóðar og vel að sér í þeim efnum. Hann fylgdist vel með því sem hveiju sinni var að gerast í umheiminum, víðsýnn og hafði vel mótaðar skoðanir á mönn- um og málefnum. Árið 1964 lærði Stefán málaraiðn og við þessa iðn starfaði hann síð- an. Stefán var hjálpsamur, fómfús og velviljaður maður, það sýndi sig vel er hann hjálpaði okkur að mála húsið okkar bæði að innan sem utan. Það leyndi sér ekki að hann var afkastamikill og góður verk- maður. Stefán var traustur vinur vina sinna, hlýr í viðmóti og bar ekki kala til nokkurs manns. Hann lét Bjamheiður Brynj- ólfsdóttir - Minning Fædd 23. júní 1900 Dáin 16. september 1992 Aðeins fáein orð um sérstaka konu. Ættartala hennar verður ekki rakin hér, það hafa aðrir gert. Á heimili Bjamheiðar í Stangar- holti .34 á ég mjög góðar og kærar minningar frá unglingsámm. Á því heimili var alltaf mikið um að vera. Þar stjómaði Bjamheiður bæði sínu heimili, þar sem mikill gestagangur var, og matsölustað með miklum dugnaði og mikilli reisn með aðstoð systur sinnar Þórdísar og Eddu dóttur sinnar meðan hún bjó í for- eldrahúsum. Við Edda vomm bekkj- arsystur og höfum verið góðir félag- ar ætíð síðan. Kynni okkar Bjarnheiðar hófust því fyrir fjölda ára. Mér er það enn í fersku minni, þegar ég hitti hana fyrsta sinni. Ég stóð við útidymar og beið. Allt í einu opnuðust dymar og út kom grönn, nett koná með dálítið franskt yfirbragð. Hún sagði við mig snöggt en blíðlega: Komdu inn væna mín, þú ert vinkona dótt- ur minnar, þú hlýtur að vera svöng. Síðan var hún horfin. — Æ síðan hefí ég undrast og dáðst að sérstök- um hæfileikum þessarar konu til sjálfsbjargar. Hún var mikil bar- áttukona, stórlynd en hjartakær. Verandi ekkja og einstæð móðir þurfti hún að beijast fyrir lífsbjörg sinni eftir að hún missti maka sinn Magnús Guðmundsson skyndilega í flugslysi árið 1951, sem varð milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja. Þá var Edda aðeins 10 ára gömul, en stjúpsynimir tveir, Magnús 17 ára og Haukur 14 ára. Báðir eru þeir látnir. Fyrir þann tíma rak Bjamheiður stórt matsöluhús í Hafnarstræti 18 í Reykjavík. Þar var margt vinnu- fólk og mikil umsvif. Þessi reynsla Bjamheiðar kom sér vel síðar. Hún lagði ævinlega allt sitt af mörkum til þess að tilveran mætti verða bjartari. Áhyggjur hversdagsleik- ans gleymdust, þegar hún var ann- ars vegar. Eftir annir dagsins var iðulega setið fram eftir og spilað á spil og spjallað. Þá skutumst við vinkon- umar oft í eldhúsið og æfðum okk- ur við baksturinn. Fjöldi nemenda, sem komu langt að og stunduðu nám, einkum við Sjómannaskólann, Kennaraskól- ann, Menntaskóla Reykjavíkur og Háskólann nutu góðmennsku Bjamheiðar. Hún var þeim sem móðir og ráðgjafi. Myndir hefur hún varðveitt af þeim öllum. Ég sá Bjamheiði fyrir stuttu á + Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, PÉTUR SIGURMUNDSSON frá Hælavík, Skarðshlíð 24C, Akureyri, andaðist í Fjórðungssjúkrahúsi Akureyrar aðfaranótt 23. sept- ember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 1. október kl. 13.30. Birna Þorbergsdóttir, Bjargey Halldóra Pétursdóttir, Sveinn Ævar Stefánsson, Arnar Pétursson, Charda Van Schalkwyk, Sofffa Pétursdóttir, Baldvin Eiðsson og barnabörn. sér annt um sína nánustu, heim- sótti okkur reglulega og var ómiss- andi um jól, páska og aðra helgi- daga. Stefán átti sína „bamatrú" í veg- amesti sem hjálpaði honum til þess að halda jafnaðargeði sínu í með- og mótlæti og á því þurfti hann að halda er heilsunni tók að hraka, en hann lést á hjartadeild Borgarspít- alans 6. september sl. Við þökkum starfsfólki deildarinnar góða umönnun og óskum honum guðs blessunar á leið sinni gegnum móð- una miklu og góðrar heimkomu. Jóhanna Pétursdóttir. sjúkrahúsi. Hún sat í stól með sama yfírbragði og reisn og áður. Hvort hún þekkti mig, veit ég ekki, en það var sama brosið sem ég sá og þekkti sem ég mun geyma. Ég þakka af alhug að hafa kynnst henni Bjamheiði. Kæra Edda og íjölskylda, aðrir ættingjar, venslafólk og vinir, ég og fjölskylda mín sendir ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Far þú í friði friður Guðs þig blessi hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem). Blessuð sé minning um góða og mæta konu. Oddný M. Ragnarsdóttir. Minningar- greinar Að undanförnu hefur það færst mjög í vöxt að minningargreinar berast til birtingar eftir útfarar- dag og stundum löngu eftir jarð- arför. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að birta ekki minningar- greinar sem berast því eftir að útför hefur farið fram. Morgunblaðið hefur ekki birt ný minningarkvæði um látið fólk, en leyft tilvitnanir í gömul, áður prentuð kvæði. Blaðið áskilur sér rétt til að stytta þessar tilvitnanir eða fella þær niður, ef þær eru sífellt endurteknar í blaðinu. Þá mun Morgunblaðið ekki birta heil kvæði áður birt, en stundum fylgja óskir um það.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.