Morgunblaðið - 29.09.1992, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
fclk f
fréttum
MorgunDiaðio/ íneoaor
íbúar við Borgarvík í Borgarnesi hamast við að leggja túnþökur á „hljóðmúrinn" sem liggur meðfram
efstu byggðinni í bænum.
IVAKORTALISTI
Dags. 29.9.1992. NR. 102
5414 8300 3052 9100
5414 8300 2890 3101
5414 8300 2772 8103
5414 8301 0407 4207
5421 72**
5422 4129 7979 7650
5221 0010 9115 1423
| Ofangreind kort eru vákort,
sem taka ber úr umferð.
VERÐLAUN kr. 5000.-
fyrir þann, sem nær korti
og sendir sundurklippt til
Eurocards.
KREDITKORTHF.,
Ármúla 28,
108 Reykjavík,
sími 685499
VAKORT
Eftirlýst kort nr.:
4507 4300 0004 4817
4507 4300 0014 8568
4543 3700 0005 1246
4543 3700 0007 3075
4548 9000 0039 8729
4548 9000 0042 4962
4548 9018 0029 3011
Afgreiöslufólk vinsamlegast takið qfangreind
koit úr umlerð og sendið VISA íslandi
sundurklippt.
VEDÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að kkMesta kort og vísa á vágest.
msmVISA ÍSLAND
Hðföabakka 9 • 112 Reykjavík
Slmi 91-671700
Glæsilegt úrval af ulla
TISKUVERSIUN
KRINGLUNNI, SÍMl 33300
BORGARNES
Hljóðmúriim
lagfærður
^Borgarnesi.
Ibúar við Borgarvík í Borgarnesi
fengu bæjaryfirvöld til að betr-
umbæta svokallaðan hljóðmúr sem
liggur meðfram þjóðveginum efst
í Borgarnesi. Á móti þökulögðu
íbúarnir „hljóðmúrinn“ í sjálfboða-
vinnu.
Með tilkomu Borgarfjarðarbrú-
arinnar árið 1980 jókst umferðin
í gegnum Borgarnes mjög mikið
enda liggur þjóðvegurinn í gegn-
um efsta hluta bæjarins. Yfir sum-
artímann fara þar að meðaltali
2.500 bílar um á sólarhring. Þó
að umferðin hafí gengið að mestu
stórslysalaust fyrir sig þessi ár fer
ekki hjá því að hún valdi einhveiju
ónæði og þá sérstaklega hávaðinn
frá henni, þar sem hún fer um
næst íbúðahúsum efst í bænum. Á
sínum tíma var gerður garður,
svokallaður „hljóðmúr", meðfram
húsunum í Borgarvík en hann
þótti ekki nógu hár. í sumar fengu
íbúarnir bæjarstjórn til að hækka
„múrinn“ og endurbæta og lögðu
síðan fram vinnu sína við að leggja
túnþökur á garðinn. Eru íbúamir
sammála um að þessi aðgerð hafí
heppnast mjög vel og hávaðinn frá
umferðinni sé nánast enginn.
TKÞ.
Skólabílar
Iveco Turbo Daily 4x4
Öflugur og hagkvœmur skólabfll.
BJóöum margar gerðlr af
skólabflum og smórútum.
'RAKTOR
Smlðsbúð2 Garðabœ
Sími 91 656580
Hannes Hauksson tekur við peningunum úr hendi Luka Kostic.
Fótboltamenn
„hjálpa þeim“
Fyrirliði íslandsmeistara ÍA í
knattspyrnu, Luka Kostic, og
Gísli Bjömsson, formaður Akra-
nesdeildar RKÍ, afhentu Hannesi
Haukssyni, framkvæmdastjóra
Rauða kross íslands, 270 þúsund
krónur í söfnunina „Hjálpum
þeim“ fyrir skömmu. Um er að
ræða ágóða af leik júgóslavneskra
leikmanna á íslandi og ÍA sem
fram fór á Akranesi 15. september
sl. og framlag Akranesdeildar
Rauða krossins til söfnunarinnar.
í frétt frá Rauða krossi íslands
segir: „Við höfðum mikla ánægju
af þessum leik og fannst gaman
að geta lagt málefninu lið. Það
segir kannski svolítið um hvað
ástandið heima hefur breyst á
skömmum tíma að í liðinu okkar
era menn af flestum þjóðernum
og þjóðarbrotum, sem eru að beij-
ast heima. En við emm allir bestu
vinir; Serbar, Króatar, Bosníú-
menn, múslimar, Kósóvómenn og
svo framvegis. En svona er stríð,“
sagði Luka Kostic við afhending-
una.
Með þessu framlagi er söfnun-
arféð farið að nálgast 25 milljón-
ir.“
„Hjálpum þeim“ er sameiginlegt
átak RKÍ og Hjálparstofnunar
kirkjunnar.
íbúar á samyrkjubúinu Konstaninovka í Kirgízístan hlakka til
næsta þáttar af sápuóperunni „Hinir ríku gráta líka“.
SJONYARP
Sápuópera truflar
búskaparbasl
Stjórn samyrkjubús nokkurs
í afskekktu héraði í Kirgíz-
ístan í Mið-Asíu hefur orðið að
loka fyrir allt rafmagn á búinu
til þess að freista þess að draga
vinnufólkið frá mexíkanskri
sápuóperu í sjónvarpinu til
starfa úti á ökmnum.
Fréttastofan Itar-Tass sagði
að íbúar á samyrkjubúinu
Konstaninovka, hefðu orðið að
sætta sig við algjört rafmagns-
leysi, þar sem stjórn búsins teldi
enga aðra leið færa í harðri
samkeppni við þessa 13 ára
gömlu 249 þátta sápuóperu,
„Hinir ríku gráta líka“.
Myndaflokkurinn, sem er í
dagdraumastíl og fjallar um
fátæka konu í hamingjuleit,
hefur hlotið fádæma vinsældir
í Sovétríkjunum fyrrverandi.
Margir líta á hann sem fullkom-
ið móteitur gegn hinu að því
er virðist endalausa rugli í
stjórnmálum og efnahagslífi í
þessum heimshluta.
Flest er nú rakið til vinsælda
myndaflokksins, meðal annars
lækkandi afbrotatíðni, af því
að það eru svo fá fórnarlömb á
ferli, og of hár þrýstingur á
vatnskerfum borga og bæja, af
því að fólk frestar uppþvottin-
um til að missa ekki af þættin-
um.
Á mánudaginn, sagði Itar-
Tass, lá við að sýning Bolshoi-
leikhússins í Moskvu á Svana-
vatninu færi út um þúfur, eftir
að áhorfendur höfðu áttað sig
á því í hléinu, að aðalleikkona
myndaflokksins, Veronica
Castro, var í húsinu.