Morgunblaðið - 29.09.1992, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992
S3
Uppfyllti ekki
kröfur um menntun
frá Kristínu A. Árnadóttur:
Talsvert hefur verið fjallað um
ráðningu íþróttafréttamanns hjá
Sjónvarpinu. Afgreiðsla útvarps-
ráðs hefur hlotið harða gagnrýni
en lítið komið fram um hvað mót-
aði afstöðu þess. Ég var ein þeirra
sex fulltrúa í útvarpsráði sem ekki
greiddi atkvæði í samræmi við ósk
yfirmanns íþróttadeildar. Þess
vegna vil ég koma eftirfarandi á
framfæri.
Síðla ágústmánaðar voru aug-
lýstar 6 lausar stöður fréttamanna
hjá Ríkisútvarpinu. Fjöldi manns
sótti um, alls 36 umsækjendur,
flestir hverjir með víðtæka menntun
og reynslu. Enda var svo kveðið á
í auglýsingunni að nauðsynlegt
væri að umsækjendur hefðu há-
skólapróf ög/eða starfsreynslu á
sviði frétta- eða blaðamennsku.
Listi yfír alla umsækjendurna þar
sém tilgreind var menntun þeirra
og starfsreynsla var síðan að venju
lagður fyrir útvarpsráð. Samkvæmt
lögum ber ráðinu skylda til að ijalla
um ráðningar starfsfólks dagskrár.
Utvarpsstjóri ræður síðan í stöðurn-
ar. Með hliðsjón af framangreindum
upplýsingum og meðmælum frétta-
stjóra greiddu síðan einstakir full-
trúar í útvarpsráði atkvæði um
umsækjendur í stöðumar. Niður-
Dapurleg
skrif um
dýradráp
frá Eddu Bjarnadóttur:
Ekki er ofsögum sagt af þeim
Ijóma sem Morgunblaðið kýs að
sveipa dýradrápara.
Sunnudag 20. september var
miklu rými í blaðinu varið til þess
að segja ítarlega frá þriggja daga
veiðiferð 10 manns, þar af tveggja
barna, sem flengdust á þremur
jeppum upp um fjöll og fírnindi í
leit að hreindýrum. Að lokum tókst
að fínna og fella eina kú. Þar með
var komið efni í fjögurra blaðsíðna
hetjusögu, ríkulega skreytta blóði
drifnum myndum.
Dapurlegt er að liugsa til þess
að það fyrirfinnist fólk sem hefur
gaman af því að drepa eða lesa
frásagnir af dýradrápi.
EDDA BJARNADÓTTIR
hópstjóri Skuldar, vinnuhóps
til verndar villtum dýrum,
Aflagranda 40, Reykjavík.
stöður urðu þær að 5 umsækjendur
sem fréttastjórar Útvarps og Sjón-
varps höfðu mælt með hlutu stuðn-
ing. En eins og kunnugt er hlaut
Logi Bergmann Eiðsson, sá um-
sækjandi sem deildarstjóri íþrótta-
deildar, Ingólfur Hannesson, mælti
með, ekki stuðning útvarpsráðs. Þar
var ekki um samantekin ráð að
ræða. Og fýrir mitt leyti fólst ekki
í þessu neinn dómur á hæfíleika
hans til þess að íjalla um íþróttaat-
burði. Staðreyndin var sú að Logi
Bergmann Eiðsson var sá eini af
umsækjendum um stöðuna sem
uppfýllti ekki þær kröfur sem gerð-
ar eru til fréttamanna um menntun.
Þess vegna taldi ég ekki stætt á'
því að mæla með því að hann hlyti
fasta ráðningu. Niðurstaða at-
kvæðagreiðslu útvarpsráðs var sú
að einróma stuðning hlaut umsækj-
andi sem uppfyllti þau skilyrði sem
fram voru sett um menntun og
starfsreynslu.
Því hefur verið haldið fram að
fýrir hafi legið meðmæli allra deild-
arstjóra, fréttastjóra og fram-
kvæmdastjóra, bæði hljóðvarps og
sjónvarps, með Loga Bergmanni
Eiðssyni. Þetta er ekki rétt. Það
eina sem lá fyrir á fundi útvarps-
ráðs voru skilaboð um að Ingólfur
Hannesson mælti með honum. Og
þar sem Ingólfur hefur nú gagnrýnt
útvarpsráð opinberlega fyrir að
rökstyðja ekki niðurstöðu sína í
þessu máli þá verð ég að segja að
eðlilegra hefði mér þótt að hann
rökstyddi sína tillögu. Því það var
nú einu sinni hún sem braut í bága
við þær forsendur sem gefnar voru
í auglýsingunni um starfíð. Og það
er ekki útvarpsráð sem ákveður
hvaða kröfur skuli gera til frétta-
manna, heldur einmitt stjómendur
þar innanhúss og Félag frétta-
manna. Rétt er að taka fram að
samkvæmt samningi fjármálaráðu-
neytisins og Félags fréttamanna
taka fréttamenn laun eftir taxta
Bandalags háskólamanna.
Mörgum finnst að það ætti að
vera á valdi fréttastjóra og deildar-
stjóra Ríkisútvarpsins að ráða sér
samverkamenn. Þetta hefur einnig
verið mín skoðun og annarra full-
trúa Kvennalistans sem setið hafa
í útvarpsráði. En ef slíkt fyrirkomu-
lag væri haft á er augljóst að gera
yrði þá kröfu til fréttastjóranna og
deildarstjóranna að þeir væru sjálf-
um sér samkvæmir og höguðu
störfum sínum þannig að svo virtist
sem þeim væri ljóst hvers vegna
stöður hjá stofnunum í almannaeign
eru auglýstar.
KRISTÍN A. ÁRNADÓTTIR,
Heiðarseli 4, Reykjavík.
LEIÐRÉTTINGAR
Heimilisfang féll
niður
í sunnudagsblaðinu var birt bréf
frá Sjúkranuddarafélagi íslands hér
á opnunni. Þar féll niður heimilisfang
félagsins, en það er: Póstbox 1782,
101 Reykjavík.
Setning féll niður
Á baksíðu Lesbókar Morgunblaðs-
ins á laugardag féll niður setning
úr grein Þorvalds Þorsteinssonar,
sem gerir framhaldið óskiljanlegt.
Setningin, sem brenglaðist á að
hljóða svo: „Myndverk einhverfra
listamanna, eins og þau, sem hér
gefur að líta, leiða okkur á sama
hátt nær kjama þeirra einstaklinga,
sem þau skapa, heldur en tilviljana-
kennd mynd okkar af einhverfum
einstaklingi.“ Skáletraða setningin
er sú, sem féll niður og þegar hún
er lesin, verður framhaldið skiljan-
legt. Lesendur eru beðnir velvirðing-
ar á þessum mistökum.
Misritun í ljóði
Misritun varð í ljóði Sirijos Gira,
„Vilna“, í þýðingu Magnúsar Ás-
geirssonar á blaðsíðu 3 í síðustu
Lesbók Morgunblaðsins. Misritunin
var í síðari helmingi þriðja erindis
ljósins, en réttur er hann þannig:
„En götustéttir þínar eðju og auri
atast nú, - af pólskum hermannsfæti.“
Gaukshöfði
Pétur Þorleifsson hringdi vegna þátt-
arins Úr myndasafninu á sunnudag.
Hann benti á að myndirnar væru
teknar af Gaukshöfða og fjallið, sem
kindumar eru undir, heitir Bringa.
ymningstöiu' 26. sept. 1992
(Í4)í 2Í)f23)(^r 5){28j^ |15)
VINNINGAR FJOLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af5 0 2.605.972
2.««« 75.358
3. 4af5 99 7.878
4. 3af5 3.976 457
; Heildarvinninqsupphæð þessa viku:
5.655.074 kr.
mKk/y
UPPLÝSINGAR: SlMSVARI 91 -681511 LUKKUllNA 991002
GOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKARGOLFDUKAR
1 - |
o
\ O
5
o
C'
KJARAN
Gólfbúnaður |
SÍÐUMÚIA U • SÍMI (91) 813022 C
Skrifstofutækni
• INNRITUN HAFIN •
Við leggjum áherslu á vandað nám sem sniðið er að
kröfum vinnumarkaðarins og nýtist þér í atvinnuleit.
Kenndar eru eftirtaldar námsgreinar:
§ Bókfærsla
§ Ritvinnsla
§ Verslunarreikningur
§ Tölvubókhald
§ Töflureiknir
§ Tollskýrslugerð
§ Gagnagrunnur
§ Windows og stýrikerfi
Athugið okkar hagstæðu greiðslukjör, kr. 5000 á
mánuði til tveggja ára eða 15% staðgreiðsluafsláttur.
Tölvuskóli íslands
sími 67 14 66 • opið til kl. 22
GWL
3
GWL
/\S KRIFTARROÐ
Fyrstu
ÁSKRIFTARTÓNLEIKAR
vetrorins
í Hóskólabíói
fimmtudaginn 1. október, kl. 20.00
Hljómsveitarstjóri: Petri Sakari
Einleikari: Ingvar Jónasson
Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 6
Atli Heimir Sveinsson: Könnun - Lágfiðlukonsert
Jean Sibelius: Kristján konungur II
HLUSTUM Á
UfAnOI
TONLIST!
SINF0NIUHLJ0MSVEITISLANDS
Háskólabíói v/Hagatorg. Sími 622255.