Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 29.09.1992, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1992 Húsavík Bamaskólinn hlýtur nafnið Borgarhólsskóli Húsavík. NÝBYGGING við Grunnskólann á Húsavík, sem nú hefur hlotið nafn- ið Borgarhólsskóli, hefur nú verið tekin til afnota og leysir það mjög úr húsnæðismálum skólanna á Húsavik. Öldrunar- og hjúkrunarheimilið Víðihlíð í Grindavík. Grindavík Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Hjúknuiarheunili aldraðra formlega tekið í notkun Gríndavík. í nýbyggingunni eru 6 kennslu- stofur, bókasafn skólans sem nú er orðið töluvert að vöxtum, stjómun- arálma, söngstofa og geymslur í kjallara. Efnt var til fagnaðar við þetta tækifæri og sagði þar Halldór Valdi- marsson skólastjóri í stuttu máli sögu bamafræðslu á Húsavík. Þor- valdur Vestmann, formaður skóla- nefndar, sagði byggingarsögu húss- ins. Arkitekt er Sigríður Sigþórs- dóttir, en byggingarverktakar vom húsvísku fyrirtækin Borg hf., íjalar hf., og Jónas Gestsson. Byggingar- kostnaður í dag er 100 milljónir króna eða um 70 þúsund krónur fermetrinn og þykir það ekki dýrt í slíku húsnæði. Húsið prýðir listaverk eftir Sigríði Ásgeirsdóttur og er mynd af því í Lesbók Morgunblaðs- ins hinn 5. þessa mánaðar. Tónlistar- skólinn er þarna til húsa og er hluti nýbyggingarinnar sérstaklega hann- aður með tilliti til þess. Þorvaldur lauk máli sínu með því að tilkynna að byggingarsögu skólans væri ekki lokið. Einn áfangi væri eftir og stefnt væri að því að honum yrði lokið á árinu 1996 eða þá 100 ár væm liðin frá því kennsla hófst í sérstöku skólahúsnæði á Húsavík. Skólanum hefur borist mikil bókagjöf frá Sigurði Gunnarssyni, sem var skólastjóri skólans í 20 ár. Gjöfin hefur að geyma safn barna- og unglingabóka, sem gefnar hafa verið út á íslensku og nokkurt safn sömu bóka útgefinna á Norðurlönd- um. Og ekki er síst að nefna safn gamalla námsbóka, sem nú eru ófá- anlegar og margar hveijar hinir mestu dýrgripir. Bókavörður skóla- safnsins er Amheiður Eggertsdóttir og sagði hún þetta mikla og kær- komna gjöf. Skólanefndin taldi rétt að gefa skólanum eitthvert sémafn og efndi til samkeppni þar um. Fyrir valinu varð Borgarhólsskóli og 5 keppendur áttu þá nafngift. En í Borgarhóls- landi hefur barnaskóli Húsavíkur staðið í yfir 80 ár og munnmæli herma að landnámsmaðurinn Garðar Svavarsson hafi reist bæ sinn á Borgarhóli. - Fréttaritari HJUKRUNARHEIMILI aldraðra í Víðihlíð var formlega tekið í notkun við hátíðlega athöfn sl. fimmtudag. Þetta er fyrri hlutinn af tveimur sem er tekinn í notkun og er fyrir 14 sjúklinga. 25 manns koma til með að vinna við heimilið, flestir í hlutastörfum, að sögn Eddu Sigur- björnsdóttur deildarstjóra, og koma 11 þeirra frá Grindavík. Þá er einn- ig starfrækt mötuneyti og eldhús fyrir heimilið. „Mér er efst í huga á þessum tíma- mótum að nú nálgist takmarkið að geta þjónað öllum öldruðum og sjúk- um á svæðinu og veitt þeim þá þjón- ustu sem þeir eiga skilið og rétt á,“ sagði Jóhann Einvarðsson fram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Keflavík- urlæknishéraðs í samtali við Morg- unblaðið. „Við sjáum einnig fram á, þegar neðri hæðin verður tekin í notkun, væntanlega í lok næsta árs ef allt gengur að óskum, verulega stóran áfanga í þessum málaflokki. Nú eru 14 rúm á efri hæð hússins og annað eins verður á neðri hæðinni þegar að því kemur og sú hæð verður ekki eins dýr, ef hægt er að orða það þannig, því nú þegar er eldhús og mötuneyti fullfrágengið á efri hæð- inni og rekstrareiningin verður að öllu leyti hagkvæmari," sagði Jó- hann. Margt manna var viðstatt þessa athöfn og tóku margir til máls. Hrafn Pálsson formaður byggingar- nefndar rakti byggingarsögu heim- ilisins. Í máli hans kom fram að nefnd var skipuð á árinu 1989 til að skipuleggja öldrunarþjónustu á Suðurnesjum. Könnun á vegum nefndarinnar leiddi í ljós að þörfin á að bæta þjónustu við aldraða var mikil og þoldi illa bið. Þá voru uppi hugmyndir að byggja myndarlega við Sjúkrahúsið í Keflavík en í Grindavík stóð fokheld bygging sem var komin í þrot. Það ráð var síðan tekið að koma hjúkrunarheimili á stofn í Grindavík í samráði við sveit- arstjórnir á Suðurnesjum annars vegar og ríkið hins vegar. Gengið var til samninga um kaup á C-álmu þessa húss og hálfri B-álmunni fýrir hjúkrunarheimili aldraðra í janúar 1990. Sighvatur Björgvinsson heilbrigð- isráðherra flutti ávarp og afhenti bygginguna og sagði m.a.: „Við höf- um, íslendingar, á tiltölulega skömmum tíma gert átak í málefn- um aldraðra. Þeim var ekki vel kom- ið fyrir 25 árum en við höfum lyft þar Grettistaki, einkum og sér í lagi eftir að til kom framkvæmdasjóður aldraðra. Við höfum gjarnan leyst vandamál okkar með steinsteypu og á þessum tíma hefur okkur tekist að bæta mjög verulega úr brýnni þörf á vistunarrými, bæði hjúkrunar- rými, heimilisrými og þjónusturými, fyrir aldraða og er nú svo komið að víða er ástandið orðið viðunandi og sumstaðar mjög vel viðunandi þar sem við erum komnir með yfir 17 rúm á hveija 100 íbúa yfir 70 ára og er það um tvöfalt meira en talið er nauðsynlegt í nágrannalöndum okkar sem við miðum okkur gjarnan við. Það verður þó að segja söguna eins og hún er, að þeir sem hafa setið eftir í þessari uppbyggingu eru íbúar suðvesturhornsins, í Reykjavík og eins í Reykjaneskjördæmi. Það er því ánægjulegt þegar þessi stofn- un er opnuð að um er að ræða þriðju sh'ka opnun á rúmlega einu ári á þessu svæði. Á þessu ári hafa orðið verulegar framfarir í þessum málum hér þó að betur megi að sjálfsögðu gera.“ - FÓ Morgunblaðið/SPB Frá vinstri: Halldór Valdimarsson skólastjóri, Arnheiður Eggerts- dóttir bókavörður og Gísli Halldórsson yfírkennari. Neskaupstaður, Hafnarfjörður, Akranes og Sauðárkrókur Breytingu á virðis- aukaskatti mótmælt BÆJARRÁÐ Neskaupstaðar og Sauðárkróks og bæjarstjórnir Akra- ness og Hafnarfjarðar hafa sent frá mótmæli við þeim áformum ríkis- stjórnarinnar að fella niður endurgreiðslur virðisaukaskatts af þeirri vinnu og þjónustu sveitarfélaga sem upp er talin í reglugerð um virðis- aukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila. , Morgunblaðið/SPB Frá vinstri: Sendiherra Finna á Islandi, Hákan Branders, Þórarinn B. Jónsson ræðismaður, Anneli Warén-Branders sendiherrafrú, Ein- ar Njálsson bæjarstjóri og Sigurður Guðmundsson vígslubiskup. Myndin er tekin þegar Hákan Branders lagði blómsveig á leiði finnska skipsljórans sem jarðsettur var í Húsavíkurkirkjugarði árið 1940. Húsavík Látins Finna minnst Húsavík. HÁKAN Branders, sendiherra Finna á íslandi, kom til Húsavíkur fyrir skömmu til að athuga legstað finnsk skipstjóra sem jarðsettur var í HúsavJkurkirkjugarði 1940. Bæjarstjórn Akraness skorar á ríkisstjómina að beita sér fyrir efl- ingu byggðar í landinu með samein- ingu sveitarfélaga og tilfærslu verk- efna til þeirra í stað þess að draga úr framkvæmdagetu sveitarfélaga og að auka ójöfnuð í orkumálum. Bæjarráð Sauðárkróks skorar á ríkisstjómina að draga til baka fram- komnar hugmyndir og hvetur stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga til að vinna að því að fá fyrirætlunum ríkisins breytt. A FUNDI stjórnar Ferðamið- stöðvar Austurlands hf. þann 16. september sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt og send sam- gönguráðherra, flugmálastjóm og þingmönnum Austurlands: í ályktun bæjarstjómar Neskaup- staðar segir: „Á síðasta ári þegar hinn illræmdi löggæsluskattur var lagður á sveitarfélögin var því heitið að hann yrði ekki endurtekinn eða nokkurt ígildi hans. Þetta er nú svik- ið. Með þessum vinnubrögðum veikir ríkisvaldi enn það traust sem byggt var á þegar samkomulagið um breytta tekju- og verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga tók gildi 1. janúar 1990. Bæjarráð Neskaupstaðar skorar á drætti á framkvæmdum við Egils- staðaflugvöll svo og ákvörðun um verklok. Bent er á að dragist fram- kvæmdir fram yfír næstu áramót þurfi ákvörðun um verklok að liggja fyrir hið fyrsta svo ljóst megi vera hvort af leiguflugi geti orðið með erlenda ferðamenn til Egilsstaða ríkisstjómina að hætta við þessi áform þegar sem þau draga mjög úr möguleikum sveitarfélaganna til að halda uppi góðri þjónustu og minnkar svigrúm þeirra til atvinnu- skapandi aðgerða. í ályktun bsejarstjómar Hafnar- fjarðar segir: „Á síðastliðnu ári var lagður á hinn illræmdi löggæslu- skattur og því þá heitið að hann yrði ekki endurtekinn eða nokkurt ígildi hans. Með þessum vinnubrögðum nú bregst ríkisvaldið enn á ný því trausti, sem byggt var á þegar sam- komulagið um breytta tekju- og verk- efnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga tók gildi 1. janúar 1990. Þessi skattlagning ríkisvaldsins á hendur íbúum sveitarfélaga dregur mjög úr möguleikum þeirra til að halda úti góðri þjónustu og það sem meira er, minnkar mjög svigrúm sveitarfélaganna til að bregðast við samdrætti í atvinnumálum með ýms- um atvinnueflandi aðgerðum. Hafnarfjarðarbær hefur lagt allt kapp á að mæta atvinnuleysisvofunni með auknum framkvæmdum á þessu ári og því næsta. Það er hins vegar ljóst að þessar endurteknu álögur ríkisstjórnarinnar minnka mjög svig- rúm sveitarfélaga í þessum efnum sem öðrum og fráleitt bæta hag vinn- andi fólks í bænum.“ Sendiherrann sagði að fylgst væri með gröfum þeirra Finna sem dáið hefðu á stríðsárunum og verið í þjónustu finnsku þjóðarinnar utan heimalands síns. Nú að 50 árum liðnum legði hann blómsveig frá finnsku þjóðinni á leiði þessa látna skipstjóra með virðingu og þökk. Skipstjórinn sem hér um ræðir hét Aukusti Wirkki frá Sainiö, Vi- borg í Finnlandi. Hann var skip- stjóri á fínnsku skipi sem hét Figge og varð vestan víglínunnar þegar Norðursjórinn lokaðist og var skip hans í siglingum með svokallaðan kassafisk miili íslands og Englands. Hann var fæddur 17. september 1875 og varð bráðkvaddur á afmæl- isdegi sínum 1940 þegar skip hans lá við bryggju á Húsavík og því jarðsettur þar. - Fréttaritari uitr.:.\ JJ-:)! .íiiri- lawfJJi „Stjórn Ferðamiðstöðvar Austur- lands hf. lýsir áhyggjum sínum á sumarið 1993. Ferðamiðstöð Austurlands Ahyggjum lýst vegna fram- kvæmda við Egilsstaðaflugvöll
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.