Morgunblaðið - 18.10.1992, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992
ERLEIUT
INNLENT
Aðgerðir
í atvinnu-
málum
MEÐAL þeirra hugmynda um
aðgerðir til aðstoðar sjávarút-
veginum, sem ræddar hafa verið
innan raða aðila vinnumarkaðar-
ins, er að afnema aðstöðugjald
og lækka tryggingargjald. Þetta
tvennt er talið þýða 1,5%
rekstrarbata fyrir sjávarútveg-
inn og meira fyrir aðrar grein-
ar. Til að bæta sveitarfélögum
tekjutap vegna missis aðstöðu-
gjaldsins hefur möguleg hækk-
un útsvarsprósentunnar verið
nefnd. Þá hefur verið rætt um
að lækka raforkuverð til fyrir-
tækja og lengja verulega þau
lán, sem á sjávarútveginum
hvfla. Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ,
segir að hann eigi von á að
málefnaleg samstaða náist um
aðgerðir í atvinnumálum.
Hlutabréf Regins fryst
Landsbanki íslands lagði í vik-
unni fram formlega beiðni til
forystumanna Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga þess
efnis að fyrirtækið aðhafíst ekk-
ert í málefnum Regins hf., dótt-
urfyrirtækis Sambandsins, án
þess að hafa um það samráð við
Landsbankann. Reginn á 7,5%
hlut í Sameinuðum verktök-
um.
Réttarhöld Wiesenthal-
stofnunarinnar
Efraim Zuroff, forstjóri Simon
Wiesenthal-stofnunarinnar' í
Jerúsalem, segir hugsanlegt að
haldin verði opinber réttarhöld
hér á landi yfír Eðvald Hinriks-
syni (Evald Mikson), án aðildar
íslensks dómsvalds og að Eðvald
fjarstöddum. Ari Edwald, að-
stoðarmaður dómsmálaráð-
herra, segir að slík réttarhöld
hefðu enga lögfræðilega þýð-
ingu, heldur væru eins konar
form á málþingi.
Seðlabankinn kaupir
verðbréf
Verðbréfaeign Seðlabanka ís-
lands tvöfaldaðist í sumar og var
um 4 milljarðar í ágústlok.
Ástæða þessi er sú, að bankinn
keypti verðbréf til að stuðla að
því að vextir hækkuðu ekki
meira en þeir gerðu. Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri, sagði
að kaupin hefðu vafalaust dreg-
ið úr þeirri vaxtahækkun, sem
hefði orðið í sumar.
ERLEIMT
Norðmenn
samþykkja
EES
Norska Stórþingið samþykkti
samninginn um Evrópska efna-
hagssvæðið, EES, á föstudags-
kvöld með 130 atkvæðum gegn
35, en lögum samkvæmt urðu
þrír íjórðu þingmanna að greiða
honum atkvæði. Stóðu umræð-
umar um samninginn aðeins í
tvo daga, en þær vom mjög
harðar og mörg stór orð látin
falla.
Rigoberta Menchu
Indíáni frá Guatemala fær
friðarverðlaunin
Rigoberta Menchu, indíána-
leiðtogi og baráttukona fyrir
mannréttindum í Guatemala,
hlaut friðarverðlaun Nóbels í ár.
Menchu, sem er 33 ára gömul,
hefur sagt að frumbyggjar Am-
eríku hafí verið kúgaðir í 500
ár, eða frá því Kristófer Kól-
umbus sigldi til álfunnar í októ-
ber 1492. Flestir nánustu ætt-
ingja hennar - móðir, faðir og
bróðir - vom myrtir eftir að
hafa haldið uppi andófí gegn
hemum og ríkum landeigendum
í Guatemala.
Danir krefjast sérsamninga
við EB
Danir kynntu á fímmtudag til-
lögur sínar um hvemig höggva
bæri á þann hnút sem þjóðarat-
kvæðagreiðslan í Danmörku um
Maastricht-sáttmálann olli og
sögðust vilja vera undanskildir
ákvæðum sáttmálans um sam-
eiginlega vamarstefnu, sameig-
inlega mynt og þegnréttindi.
„Okkur verður að takast að
tryggja okkur sérstakan samn-
ing ef Danmörk á að vera aðili
að Evrópubandalaginu áfram,“
sagði Poul Schluter, forsætis-
ráðherra Danmerkur, eftir að
samkomulag náðist um tillög-
umar í EB-nefnd danska þings-
ins. Schluter kynnti tillögumar
á leiðtogafundi EB í Birming-
ham á föstudag. Leiðtogarnir
samþykktu yfírlýsingu um að
auka ætti lýðræðislega umræðu
innan bandalagsins, koma í veg
fyrir óþörf afskipti yfírstjórnar-
innar af málefnum aðildarríkj-
anna og virða þjóðleg einkenni
þeirra í hvívetna.
Gorbatsjov vændur um
yfirhylmingu í Katyn-málinu
Sérstakur sendimaður Borís
Jeltsíns, forseta Rússlands, af-
henti á miðvikudag pólskum
stjórhvöldum gögn sem sýna að
það var Jósef Stalín sem skip-
aði fyrir um morðið á 15.000
pólskum liðsforingjum á dögum
síðari heimsstyijaldarinnar, sem
kennt hefur verið við Katyn-
skóg. Talsmaður Jeltsíns sagði
að allir fyrrverandi leiðtogar
Sovétríkjanna, þeirra á meðal
Míkhaíl Gorbatsjov, hefðu vit-
að um þennan glæp en kosið að
þegja um hann. Þessu vísaði
Gorbatsjov á bug og sagði að
ásökunin væri aðeins liður í
ófrægingarherferð Jeltsíns á
hendur sér.
„Sósíalískt markaðskerfi“ í
Kína
Kínverskir kommúnistar héldu
14. flokksþing sitt í síðustu viku
og lögðu blessun sína yfír mark-
aðshyggjustefnu Dengs Xiaop-
ings, helsta valdamanns lands-
ins. Jiang Zemin, aðalritari
flokksins, sagði að efnahagum-
bætumar jöfnuðust á við „nýja
byltingu“ en lagði áherslu á að
ekki yrði hróflað við alræði
flokksins og lýðræði væri alls
ekki á dagskrá.
Finnland
Ríkið veitir bönkum að-
stoð til að afstýra hruni
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins.
FJÁRHAGSVANDI finnskra banka hefur nú valdið því að ríkið hef-
ur orðið að taka ábyrgð á starfsemi þeirra til að tryggja að banka-
kerfið hrynji ekki algjörlega. Á móti stuðningi ríkisins koma aukin
áhrif þess á starfsemi bankanna.
Allir helstu bankar Finnlands
hafa lent í fjárhagserfíðleikum og
telja menn að heildartap þeirra
vegna vanskila nemi allt að 16 millj-
örðum fínnskra marka á árinu.
Stjórn bankaábyrgðastofnunar
fínnska seðlabankans hefuf lýst því
yfír að gjaldþrot banka komi ekki
til greina á núverandi krepputím-
um. Stofnunin, sem var sett á fót
fyrir nokkrum mánuðum, hyggst
hins vegar stuðla að sameiningu
og fækkun viðskiptabanka til að
tryggja rekstrarskilyrði þeirra og
hag fýrirtækja og viðskiptavina
þeirra.
Ábyrgðastofnunin hefur 20 millj-
arða marka sem nota má til að
bæta eiginfjárstöðu bankanna. Rík-
ið hafði ákveðið í vor að veita bönk-
unum 8 milljarða marka stuðning.
Sérfræðingar telja hins vegar að
þessi tæplega 30 milljarða marka
aðstoð dugi skammt ef bankamir
geta ekki breytt rekstri sínum veru-
lega.
íhlutun ríkisins veldur einnig því
að réttur hluthafa í bönkunum verð-
ur skertur, en verð hlutabréfa fínn-
skra viðskiptabanka hefur lækkað
ört á árinu. Um skeið var áformað
að afskrifa verð allra hlutabréfa til
þess að vega upp á móti fjárstuðn-
ingi ríkissjóðs. Ekkert varð hins
vegar af þessum áformum þar sem
óheppilegt var talið að ríkið eignað-
ist alla banka landsins. Þetta hefði
einnig orðið mikið áfall fyrir verð-
bréfamarkaðinn og dregið úr áhuga
útlendinga á að fjárfesta í Finn-
landi.
Fjárstuðningur ríkisins er háður
ströngum skilyrðum. Meðal annars
mega bankamir ekki greiða arð til
hluthafa nema þeir endurgreiði
stuðninginn. Þannig vill ríkið stuðla
að sameiningu bankanna. Nú þegar
hefur verið tilkynnt um að bankinn
SKOP og stærsti sparisjóður lands-
ins verði sameinaðir. SKOP ram-
baði á barmi gjaldþrots í fyrrahaust
og var rekstur bankans settur und-
ir umsjón fínnska seðlabankans.
Botnlaust fjör í miðborg Sanaa.
Sameiningarverkir og
olíudraumar í Jemen
„FORSETINN Ali Abdullah Saleh vill halda embætti sínu en til
þess verður hann að breyta um háttu. Hann virðist hafa í kring-
um sig halelújahóp manna sem hneigir sig fyrir öllu sem honum
dettur í hug og hrtur hann standa í þeirri trú að allir hafi rangt
fyrir sér sem anda út úr sér gagnrýni á störf hans.“
Þótt lygilegt sé vom þessi orð
í leiðara Yemen Times á fímmtu-
dag og fyrir varla ári hefði verið
óhugsandi að slíkt væri sagt um
hinn elskaða og dáða leiðtoga
þjóðarinnar. Þetta sýnir, vonandi,
að viðleitni Jemena til að þoka sér
í átt til lýðræð-
is, sem varla á
sér hliðstæðu í
Arabalandi,
hefur tekið und-
ir sig stökk.
Sumir óttast þó
að of geyst verði farið og niður-
staða kosninganna í næsta mán-
úði verði aðeins ringulreið og
afturhvarf til fyrra stjórrtarfars.
Forsetinn er líka sákaður um
að vita ekkert um líðan þjóðarinn-
ar. Inn í hans fílabeinstum berist
ekki boð um að á þriðju milljón
lifi undir fátæktarmörkum, millj-
ón manna sé atvinnulaus og tvær
milljónir búi í hálfgildings flótta-
mannahúsnæði. Þá er mikil
óánægja með að Á1 Attas for-
sætisráðherra sem reyndi að segja
af sér á dögunum vegna ágrein-
ings við forsetann var neyddur til
að vera áfram fram að kosningun-
um í nóvember en hann telur sig
ekki hafa þau völd sem hann vill
til að geta gegnt embættinu sóma-
samlega.
Pólitíkusar em á fleygiferð um
landið vegna kosninganna og ef
þeir hafa ekki tíma til að heim-
sækja einhveija smástaði í eigin
persónu láta þeir varpa kosninga-
ræðum af kassettum yfír Iýðinn
með tilheyrandi húrrahrópum svo
kassettan gerir
öðru hveiju hlé
á máli sínu.
En burtséð
frá lýðræðis-
þróun og kosn-
ingabaráttu
hafa ýmsir verkir fylgt samein-
ingu Jemenríkjanna. Það er urgur
í sunnanmönnum. Þeim finnst
völdin og peningamir hafa safn-
ast til norðursins en á meðan olíu-
gróðinn er ekki farinn að skila sér
verður tæpast séð um hvaða miklu
fjármuni er að ræða. Það ber held-
ur engum saman um hvort olíu-
vinnslan muni skipta sköpum fyr-
ir bágborið efnahagsástand en
víst er að mörg fyrirtæki em hér
að leita og rannsaka.
„Við verðum næsta Kúveit,
mesta olíuríkið í þessum heims-
hluta. Það fínnst alltaf meiri og
meiri og meiri olía,“ sagði jem-
enskur kaupsýslumaður við mig.
„Við verðum í mesta lagi sjálfum
okkur nógir. Annað er bara dag-
draumar og mgl,“ sagði annar.
Réttir og sléttir Jemenar virðast
ekki vera að neinu marki með
hugann við olíugróða, þeir hugsa
um að eiga til næstu máltíðar.
Samt má sjá breytingu á ýms-
um sviðum frá þvi ég var hér
fyrir tveimur ámm. Fleiri bílar,
fleiri ferðamenn, gætu orðið alit
að 40 þúsund í ár, skilst mér,
menn vinna meira, ekki síst í suðr-
inu eftir að jarðarskikum var skil-
að úr ríkiseign eftir hrun kom-
múnismans. Það er minna rusla í
Sanaa og allt meira á iði. Útlend-
ingar flykkjast hingað til að gera
kaup við Jemena og það bendir
óneitanlega til að þeir hafí trú á
olíunni hér. Konur sjást óskýldar
meira að segja hér í Sanaa, ýtt
er undir að börn sæki skóla og
fuflorðinsfræðslu hefur verið
hleypt af stokkunum í stærstu
bæjunum.
Sameiningin gerði Jemen að
fjölmennara ríki en Saudi-Arabiu
og hefur líka leitt til þess að þeir
hafa meiri uppburði í sér gagn-
vart Saudum, sem nánast fram
að Flóastríði héldu Jemenum á
floti fjárhagslega. Fundir um óljós
landamæri eru nú öðru hveiju en
þau hafa aldrei verið á hreinu.
Nú gera Jemenar hinar skelegg-
ustu kröfur og Saudar hafa að
minnsta kosti ekki treyst sér til
að slíta þessum viðræðum þó aug-
ljóst sé af fréttum að þá blóðlangi
til þess. Þetta hefur svo enn haft
þau áhrif að Jemenum fínnst að
þeir geti greinilega staðið á sínu.
BAKSVID
Jóhanna Kristjónsdóttir
skrifar frá Jemen