Morgunblaðið - 18.10.1992, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 18.10.1992, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18. OKTÓBER 1992 17 hagsleg og stjórnmálaleg. Erlendur Einarsson forstjóri skrifar (bls. 269): „Viðreisnaráratugurinn var harður skóli fyrir stjórnendur Sam- bandsins. Við misstum þau póli- tísku tengsl við stjórnvöld sem við hofðum haft og voru svo mikilvæg á þessum árum.“ I stað skjóls fyrri ára lék næðingur markaðarins nú um Sambandið. Gamall draumur samvinnu- manna um eigin bankastofnun rættist árið 1963 með stofnun Sam- vinnubankans hf. Landbúnaðurinn vóg þungt í viðskiptum og breyttir búskaparhættir, með vélvæðingu og áburðarnotkun, kölluðu á aukið fjármagn. Fjárhagsvandi landbún- aðarins varð viðvarandi vandamál hjá Sambandinu á þessum árum. Þörfin fyrir lánsfé jókst ár frá ári. Þrátt fyrir að Sambandið ætti ekki jafn greiðan aðgang að helstu ráða- mönnum og áður var umfang þess i þjóðarbúinu slíkt að stjórnvöld urðu að taka tillit til viðskiptaris- ans. Til dæmis um það er lítið at- vik sem Ólafur Björnsson prófessor og fyrrum þingmaður rifjaði upp í samtali við blaðamann. Á þing- flokksfundi sjálfstæðismanna á Viðreisnarárunum barst í tal að Sambandið hefði safnað verulegum skuldum í Landsbankanum, þá sagði Bjarni Benediktsson: „Ja, það verður nú að láta þá lifa.“ Honum hefur fundist það valda verulegri röskun þá að þrengja að Samband- inu hvað lánafyrirgreiðslu snerti. Þegar leið á áratuginn voru fjár- hagsvandræði Sambandsrisans orðin talsverð. Brugðist við byggðaþróun Viðreisnarstjórnin féll árið 1971 eftir 12 ára valdaferil. Við_ tók vinstri stjórn undir forsæti Ólafs Jóhannessonar, formanns Fram- sóknarflokksins og starfsmanns Sambandsins í eina tíð. Samvinnu- menn höfðu haft þungar áhyggjur af byggðaþróuninni, fólk streymdi úr sveitunum og flest til höfuðborg- arsvæðisins. Þessi þróun leiddi óhjákvæmilega til þess að mikil- vægi samvinnuhreyfingarinnar í efnahagslífinu mundi minnka, „ef ekki yrði brugðist við henni á rétt- an hátt“, eins og Erlendur Einars- son segir í bók sinni (bls. 317). Eitt af stefnumálum vinstri stjóm- arinnar var svonefnd byggða- stefna, sem fólst í stórfelldri upp- byggingu úti á landi, einmitt þar sem Samvinnuhreyfíngin stóð traustustum fótum. Samvinnu- menn tóku víða þátt í skuttogara- væðingunni og juku mjög hlut sinn í sjávarútvegi á þeim árum sem í hönd fóru. Mörg kaupfélög end- urnýjuðu og efldu útgerð og vinnslu, Sambandið keypti frysti- hús í Reykjavík og fjölgaði frysti- skipum. Vestur í Bandaríkjunum lenti fisksölufyrirtækið Iceland Se- afood í miklum rekstrarerfiðleikum og var í raun gjaldþrota 1975 að sögn þáverandi framkvæmdastjóra sjávarútvegsdeildarinnar, Guðjóns B. Ólafssonar. Guðjón flutti vestur um haf og tók stjórn fyrirtækisins í eigin hendur. Stofnlánadeild samvinnufélaga var sett á laggirnar í Samvinnu- bankanum árið 1972 og var hlut- verk hennar að veita lán til verslun- arbygginga. Árið eftir var hafin bygging stórhýsisins Holtagarða í Reykavík, sem rúma skyldi birgða- stöð og skipaafgreiðslu. Naut Sam- bandið ráðgjafar sænskra sam- vinnumanna sem bentu á að KRON hefði mun minni skerf af smásölu- kökunni í höfuðborginni en sam- vinnuverslanir í öðrum höfuðborg- um Norðurlanda. Húsið var vel við vöxt enda hugðu samvinnumenn á stóraukna verslun á höfuðborgar- svæðinu. Þær áætlanir gengu aldrei eftir og þegar húsið var tekið í notk- un 1977 reyndist það ofvaxið að stærð og óhagkvæm fjárfesting. Dótturfyrirtækin Olíufélagið hf. og Samvinnubankinn hf. reistu einnig hvort sitt stórhýsið í Reykjavík á þessum árum. Um miðjan áratuginn var stofnað í Reykjavík hlutafélagið Samvinnuferðir um rekstur ferða- skrifstofu og varð hún fljótlega meðal þeirra stærstu á sínu sviði. Vaxandi fjármagnsþörf Samvinnuverslunin mátti þola áföll undir lok 8. áratugarins. Áuk- in velmegun í landinu kallaði á meira vöruúrval, sem litlar stijál- býlisverslanir áttu bágt með að mæta. Bættar samgöngur gáfu dreifbýlisfólki kost á að leita til stærri verslunarstaða þar sem úr- valið var meira. Smærri kaupfélög ýmist sameinuðust eða lögðu upp laupana. Enn sem fyrr kom það í ljós að fjármagnsskortur háði mjög samvinnufyrirtækjunum. Með raunvaxtastefnunni varð dýrt að skulda, það var ekki lengur „lán að fá lán“ eins og á dögum nei- kvæðu vaxtanna. Sambandið var mjög skuldugt innan lands og utan og í áhættusömum ábyrgðum. Það var lífsspursmál að fá eigið fé í reksturinn. Seint á áttunda ára- tugnum varpaði Erlendur Einars- son fram þeirri hugmynd á aðal- fundi KEA að samvinnufélögin leit- SAMVINNUSTEFNAN byggðist á hugmyndum sem rekja má til evrópskra sósíal- ista á 18. öld. Frumheijar samvinnuhreyfingarinnar töldu nauðsynlegt að huga að uppeldis- og menntamál- um samvinnufólks, ekki síst þeirra sem völdust til starfa þjá hreyfingunni. Skólastarf Samvinnumanna hófst með námskeiðahaldi á Akureyri 1916 að frum- kvæði Hallgríms Kristins- sonar forstjóra. Hallgrímur vann að frekari uppbyggingu fræðslustarfs og réði Jónas Jónsson frá Hriflu til að koma á fót og veita forystu skóla á vegum Sambandsins. Hall- grímur kom því og til leiðar að fimmtungi af ársarði Sam- bandsins skyldi varið til fræðslu- og menntamála. Reglulegt skólastarf Sam- vinnuskólans hófst 1918, skól- inn var skipulagður sem tveggja vetra framhaldsskóli í verslunar- og samvinnufræð- um. Ekki voru allir samvinnu- menn á eitt sáttir um nauðsyn skólastarfsins. Á aðalfundi Sambandsins í Reykjavík 1919 urðu deilur um, hvort rétt væri að Sambandið héldi uppi sér- stökum skóla til að búa menn undir störf vegna samvinnufé- laganna. Frá þessu segir svo í íslenskum samvinnumönnum eftir Jónas Jónsson: „Sótti sr. Arnór Árnason í Hvammi ... einna harðast fram gegn Sam- vinnuskólanum og taldi nóg í þeim efnum að hafa Verzlunar- skóla íslands, þar sem kennd væru þau fræði, sem menn þyrftu með við verzlun hér á landi. Ingimar Eydal (innsk.: skólastjóri á Akureyri og rit- stjóri Dags) kvaddi sér þá hljóðs og vitnaði í ummælin í kveri Helga Hálfdánarsonar um trú Múhameðsmanna. Lýsti Ingimar Eydal með glöggum og skýrum orðum þeirri skoðun hins lútherska kirkjuhöfðingja, að Múmameðstrúin væri að vísu trú á einn Guð, en annars blandin margs konar skaðlegri hjátrú og villu. Taldi Ingimar Eydal líkt ástatt um lífsskoðan- ir kaupmannasinna frá sjónar- miði samvinnumanna eins og kennisetningar Múhameðs- manna fyrir kristið fólk. Þótti Ingimar Eydal hafa mælzt vel, og hafa samvinnumenn síðan talið rök hans í fullu gildi um þetta atriði.“ Skólinn var til húsa í Sam- bandshúsinu í Reykavík, við hliðina á íbúð Jónasar Jónsson- ar, en flutti að Bifröst í Borgar- firði árið 1955. Fræðsla fyrir starfsfólk samvinnufélaganna var liður í starfsemi skólans. Einnig byggðist upp Bréfaskóli SÍS sem síðar var rekinn í sam- vinnu við verkalýðshreyfing- una og námskeiðahald fyrir samvinnufólk. Skólastarfíð heyrði undir Fræðsludeild Sam- bandsins, sem einnig annaðist útgáfu tímaritsins Samvinn- unnar. Skólastarf á Bifröst hefur þróast í takt við auknar mennt- unarkröfur. Árið 1988 varð skólinn að sjálfseignarstofnun og ber nú nafnið Samvinnuhá- skólinn. Þessi skóli er á há- skólastigi og leggur áherslu á viðskiptamenntun. Áhrifa sam- vinnuhugsjónarinnar gætir lítið í skólastarfinu að sögn Vé- steins Benediktssonar rektors, á námsskrá er þó að fínna „Samvinnufræði" sem fjalla um rekstur samvinnufélaga. Stjórn Sambandsins skipar Qóra fulltrúa í skólanefnd og menntamálaráðherra einn full- trúa. uðu eftir áhættuijármagni, líkt og hlutafjár er aflað til hlutafélaga. Þessar hugmyndir féllu ekki í fijó- an jarðveg. „Eg sá að menn horfðu á mig stórum augum eins og þeir vildu segja að hugmyndir mínar gengju í berhögg við samvinnuhug- sjónina.“ (Bls. 320.) Samvinnuhreyfingin fagnaði átt- ræðisafmæli sínu í febrúar 1982. Samþykkt var stefnuskrá Sam- bandsins og stofnaður Samvinnu- sjóður íslands hf. Tilgangur hans var að afla fjár til framkvæmda og fjárfestinga. Samvinnumenn stofnuðu fjármögnunarfélagið Lind hf. í félagi við franskan banka og rekstrarerfiðleikar ágerðust með hvetju árinu sem leið á 9. áratug- inn. Þurfti hvað eftir annað að grípa til aðhaldsaðgerða. Erlendur Einarsson ákvað að láta af forstjór- astarfí 1. september 1986. í ævi- sögu sinni rekur hann all róttækar niðurskurðar- og aðhaldsaðgerðir sem hann lagði fyrir stjórnarfund Sambandsins veturinn 1986 og hefur vakið nokkra furðu að þær skyldu ekki komnar fram löngu fyrr. Fæstar tillögurnar komust til framkvæmda áður _en Erlendur hætti um haustið. í kveðjuræðu sinni fjallaði Erlendur meðal annars um fjárhagslega uppbyggingu samvinnufélaga í ljósi breyttra þjóðfélagsaðstæðna. Benti hann á að fjármagns til reksturs yrði að afla í gegnum hlutafé eða hlið- stæða eignahluta. Hann benti á þá staðreynd að nýtt samvinnufélag hefði ekki verið stofnað á íslandi áratugum saman, þess í stað hefðu samvinnufélögin stofnað hlutafélög um nýjan rekstur. Þessi ræða stað- festir þá skoðun að samvinnufé- lagsformið hafi fyrir löngu gengið sér til húðar sem grundvöllur versl- unarreksturs í nútímahagkerfi. Endalok Sambandsins Hinn nýi forstjóri Sambandsins, Guðjón B. Ólafsson, kom frá fisk- sölufyrirtækinu Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum þar sem hann hafði rifíð fýrirtækið upp úr mikilli lægð. Aðkoman að Sam- bandinu 1986 var með öðrum hætti en Guðjón ætiaði eftir því sem fram kemur í viðtali hans við tímaritið Mannlíf (1. tbl. 1992): „Grundvall- arvandamál Sambandsins á þessum tíma var að reksturinn skilaði engu og fyrirtækið var gífurlega skuld- ugt innanlands og utan. Auk þess hafði Sambandið tekið á sig miklar ábyrgðir vegna annarra fyrirtækja. Tap Sambandsins vegna þessara ábyrgða nam hundruðum milljóna." Ofan á slæma stöðu bættust erfið- leikaár þegar mikil verðbólga og fastgengisstefna mögnuðu erfið- leika atvinnulífsins. Erlendar skuldir hækkuðu ört og útflutn- ingsafurðir skiluðu sífellt minna í kassann. Skuldabyrðin með tilheyr- andi fjármagnskostnaði reyndist skuldugum viðskiptarisa óbærileg. „Skuldirnar, sem voru geigvænleg- ar í árslok 1986, tvöfölduðust á einu til tveimur árum.“ Þrátt fyrir erfíðleikana var enn eftir kraftur til stórra hugmynda. Sambandið áformaði að kaupa mikil land í Kópavogi fyrir höfuðstöðvar, þær hugmyndir urðu að engu en í stað- inn var gamla frystihúsið við Kirkjusand gert upp með miklum tilkostnaði. Verslunardeildin var rekin með bullandi tapi og miklir fjármunir töpuðust í stórum gjald- þrotum fyrirtækja sem tengdust Sambandinu. Reynt var að tefja undanhaldið með sölu eigna og bjarga því sem bjargað yrði með skipulagsbreytingum. í fyrra var höfuðvígi samvinnustefnunnar, SÍS, skipt upp í sex hlutafélög og lauk þar með löngum kafla í ís- lenskri viðskiptasögu. Hvers vegna? Þegar leitað er skýringa á hruni Sambandsins er ekki úr vegi að rilja upp ummæli Geirs Hallgríms- sonár, formanns Sjálfstæðisflokks- Kaupfélögin innan SÍS & Kf. Stranda- , manna ■ . Norðurflrði Kf. Isfirðinga Kf. Súgfirðinga^jN ] Kf. Önfirðinga Flateyri ^ Kf. Dýrfirðingðv- Þingeyri ^ g v Steingrimsfj. Sláturf.—^1% ' ** Hó'mavik örlygur *—c >UV— Kf. Króksfjarðar Kf. Patreksfjarðar Kf. Saurbseinga ^ Kf. Birtrufjarðar Óspakseyri-i Kf. Húnvetninga Blönduósi Kf. Tálknfirðin; Svf. Fljótamanna Kf. Ólafsfjarðar Kf. N-Þing’^yinga Kópaskeri \ Kf. Stykkishólms Kf. Grundfirðinga Kf.-J Hvammsfjarðar Búðardal > / Kf. V-Húnvetninga $1. Hvammstanga Kaupfélag Hrútfirðinga Borðeyri Kf. Skagfirðinga Sauðárkróki Söluf. A-Húnvetninga ^Kf. Þingeyinga Húsavík Kf. Langnesinga Þórshöfn ’ 'X ý A<f. Vopnftrðinga 'Kf. Svalbarðseyrar |" ®S>KI. verkamanna Akureyri Kf. Eyfirðinga Akureyri I Kf. Borgfirðingj Borgarnesi Kf. Reykjavíkur og nágrennis Kf. Suðurnesja Keflavíl^^ Kf. Héraðsbúa Egilsstöðum @ Pöntunarf. Eskfirðinga Kf. Fáskrúðsfirðinga Kf. Stöðfirðinga ^ Kf. Fram „^.Neskaupstaí Kf. Berufjarðar Djúpavogi r'Kf. Kjalarnesþings ^Kf. Árnesinga >si Kf. ^Rangæinga Kf. Vestmannaeyja Kf. Skaftfellinga Vik Kaupfélögin voru víða nær alls ráðandi í verslun og atvinnulífi á landinu. A þessari yfirlitsmynd frá 1978 eru merktar höfuðstöðvar kaupfélaga, mörg hver með útibú á fleiri stöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.