Morgunblaðið - 23.10.1992, Síða 1

Morgunblaðið - 23.10.1992, Síða 1
80 SIÐUR B/C 242. tbl. 80. árg. FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rússneskur embættismaður Kremlverjar komu Kekkonen til valda Helsinki. Reuter ANATOLÍJ Smirnov, deildarstjóri í rússneska utanríkisráðuneytinu, sagði í gær að sovéskir kommúnistar hefðu átt stóran þátt í því að Urho Kekkonen var kjörinn forseti Finnlands árið 1956 og hélt emb- ættinu í 26 ár. Smimov sagði að rannsókn ráðu- neytisins á skjölum sovéska komm- Herðir EB reglur um flóttamenn? Lundúnum. Reuter. RÁÐHERRAR í aðildarrílqum Evrópubandalagsins (EB) íhuga nú að setja strangari reglur um landvistarleyfi til handa flótta- mönnum, sem sækja um hæli í EB-löndunum. Gert er ráð fyrir að fólk, sem flýr borgarastyijald- ir í heimalöndum sinum, geti ekki fengið landvistarleyfi. Þetta kom fram í frétt breska útvarpsins BBC, sem komst yfír ein- tak af tillögum embættismanna EB-ríkja þessa efnis. Hundruð þús- unda manna hafa flúið frá fyrrver- andi lýðveldum Júgóslavíu til Evr- ópuríkja og samkvæmt tillögunum verður þessu fólki neitað um land- vistarleyfi innan EB-landanna. í tillögunum er einnig gert ráð fyrir strangari reglum til að torvelda fólki frá öðrum álfum að komast til EB-landa. Slíkir fólksflutningar eru „sjaldan nauðsynlegir", segir í drög- unum. Talsmaður innflytjenda- deildar breska innanríkisráðuneytis- ins sagði að markmiðið með tillögun- um væri að tryggja að aðildarríki Evrópubandalagsins fylgdu öll sömu reglum um landvistarleyfi. Talsmaðurinn sagði að í tillögun- um kæmi ekki fram hvenær nýju reglumar ættu að öðlast gildi en þær yrðu ræddar á leiðtogafundi EB í Edinborg í desember. Stjóm Bretlands hefur lagt fram umdeilt framvarp, sem miðar að því að koma í veg fyrir að útlendingar geti fengið hæli í landinu á röngum forsendum. Þeir sem gagnrýna framvarpið segja að verði það að lögum komi það í veg fyrir að flótta- menn, sem hafa rétt á pólitísku hæli, komist til landsins. únistaflokksins hefði leitt í ljós að Kekkonen hefði verið í nánum tengslum við stjómina í Kreml. Finnskir kommúnistar hefðu til að mynda fengið skipun frá Moskvu um að greiða Kekkonen atkvæði sitt árið 1956. Kremlverjar hefðu litið á kjör Kekkonens sem góða gjöf til þings sovéska kommúnistaflokksins, sem var sett skömmu eftir kosning- arnar. „Þetta voru þaulhugsaðar og vel heppnaðar aðgerðir og þær báru þann árangur að Kekkonen var kjör- inn forseti," sagði Smirnov og bætti við að þrír embættismenn leyniþjón- ustunnar KGB hefðu verið heiðraðir fyrir framgöngu sína í þessu máli. Smirnov sagði ennfremur að sov- ésk stjómvöld hefðu í samráði við Kekkonen ákveðið að tryggja end- urkjör hans árið 1962 með því að senda honum bréf, sem ætlað var skapa ótta í Finnlandi um að Sovét- menn kynnu að ráðast inn í landið. Bréfið hefði skapað kreppu í fínnsk- um stjómmálum og sannfært Finna um þeim væri fyrir bestu að kjósa Kekkonen. Bretadrottning grýtt eggjum í Dresden Reuter. Elísabet Bretadrottning, sem nú er í opinberri heim- sókn í Þýskalandi, heimsótti í gær borgirnar Leipzig og Dresden í austurhluta landsins. í Leipzig fögnuðu um átta þúsund manns drottningunni er hún fór um borgina, en hún er fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn sem þangað kemur eftir sameiningu Þýskalands. í Dresd- en fékk drottninginn hins vegar kaldari móttökur. Breskar sprengjuflugvélar lögðu borgina í rúst und- ir lok síðari heimsstyijaldarinnar og tóku um þijú þúsund Dresdenbúar þátt í mótmælum fyrir utan Kreuzkirche, kirkju sem.helguð er minningu þeirra er létu lífið í sprengjuárásum Breta. Drottningin, sem tók þátt í minningarathöfn í kirkjunni ásamt Richard von Weizsácker Þýskalandsforseta, var grýtt eggjum og gerð voru að henni hróp er hún steig úr bifreið sinni. Ekkert eggjanna hitti drottninguna. Á myndinni má sjá 66 ára gamlan Dresdenbúa, Lothar Wagner, halda á myndum af fjölskyldu sinni sem lét lífið í sprengjuárásunum. Á spjaldinu stend- ur: Dresden áminnir. Övissa um frekara framhald GATT-viðræðnanna Hætta á víðskíptastríði fari viðræðurnar út um þúfur Brussel. Reuter. MIKIL óvissa rikti um framhald GATT-viðræðnanna í gær eftir að slitnaði upp úr samningum Bandaríkjastjórnar og Evrópu- bandalagsins um landbúnaðarmál á miðvikudag. Einn embætt- ismanna EB lét hafa það eftir sér að GATT-viðræðumar væru þar með úr sögunni en framkvæmda- stjórn EB bar þá staðhæfingu formlega til baka. „Við erum enn að semja ... Ég veit ekki til að það hafi slitnað upp úr viðræðun- um,“ sagði Frans Andriessen, sem fer með utanríkismál innan fram- kvæmdastjórnarinnar. Þegar hann var spurður hvort aðalsamn- ingamaður Bandaríkjastjórnar, Joe O’Mara, væri enn í Brussel sagðist hann hins vegar ekki vera Skref í átt að þjóðarsátt um afstöðuna til EB í Danmörku Stjómarandstaðan tekur fmmkvæðið afstjórninni Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. FORMENN dönsku stjómarandstöðuflokkanna skýrðu frá því í gær að þeir hefðu komið sér saman um tillögu að þjóðarsátt um afstöðuna tíl Evrópubandalagsins (EB). Flokkamir, Jafnaðarmannaflokkurinn, Sósialíski þjóðarflokkurinn og Róttæki vinstriflokkurinn, hafa meiri- hluta á þingi. í tillögunni eru úrslit þjóðarat- kvæðisins um Maastricht-samkomu- lagið frá í júní sl. túlkuð sem and- staða við samrunaþróunina í Evrópu en því þó haldið fram að Danir vilji vera áfram í EB. í tillögunni er hafn- að sameiginlegri varnarstefnu, mynt, ríkisfangi og lögreglusamstarfi eins og ákvæði þar að lútandi era sett fram í Maastricht-samkomulaginu. Leiðtogar stjómarandstöðunnar sögðu í gær að næðu þessar tillögur fram á vettvangi EB auðveldaði það Svíum og Norðmönnum að ganga í bandalagið og treysti aðstöðu Norð- urlandanna innan þess. Paul Schluter forsætisráðherra sagði tillögur stjómarandstöðunnar mikilvægt skref í átt að þjóðarsátt, einkum vegna aðildar Sósíalíska þjóðarflokksins að þeim. Þær féllu að mörgu leyti að hugmyndum stjómarinnar sem hann hefði kynnt leiðtogum annarra EB-ríkja að und- anfömu. Raddir voru uppi um að með tillög- unum hefðu flokkamir þrír tekið framkvæðið af stjóminni en því neit- ar Schluter. viss. Að sögn bandarískra emb- ættismanna hafði O’Mara þá þeg- ar farið frá Brussel. Bandaríkjamenn saka fram- kvæmdastjómina um að standa í vegi samkomulags. Hafa þeir hótað að leggja innflutningstolla á mat- væli frá EB-ríkjum ef viðræðurnar fara út um þúfur. Embættismenn hjá EB sögðu að ef það yrði gert væra Evrópuríkin reiðubúin að heyja viðskiptastríð við Bandaríkin. Næstu dagar era taldir eiga eftir að ráða úrslitum um hvort sam- komulag náist eða ekki og sagði Ray MacSharry, sem fer með landbúnað- armál í framkvæmdastjóm EB, að ef ekki næðist samkomulag fyrir mánaðamót, áður en forsetakosning- ar fara fram í Bandaríkjunum, gæti það þýtt að ekkert samkomulag næðist næstu árin. Bretar, sem fara nú með foryst- una innan EB, segjast ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að samkomulag náist. Sögðu breskir embættismenn að John Major for- sætisráðherra ynni hörðum höndum að því að ná mönnum að samninga- borðinu á ný fyrir kosningamar í Bandaríkjunum. Arthur Dunkel, framkvæmdastjóri GATT, gaf einnig út yfirlýsingu þar sem hann minnti á hið gífurlega mikilvægi þéss að ná samkomulagi þar sem það yrði til að glæða efnahagslíf um allan heim. Þjóðveijar leggja einnig mikla áherslu á samkomulag og segjast búast við að framkvæmdastjóm bandalagsins muni fínna farsæla lausn þrátt fyrir allt. „Það er ekki lengur nein ástæða fyrir hendi, ef litið er hlutlægt á málið, að fresta því að ná samkomulagi," sagði Júrgen Möllemann, efnahagsmála- ráðherra Þýskalands. „Það sem skil- ur á milli er svo smávægilegt að það er ekki lengur í neinu hlutfalli við þann skaða sem skipbrot viðræðn- anna myndi valda, skipbrot sem yrði ekki vegna viðskiptalegs ágreinings heldur greinilega vegna innanríkis- mála,“ sagði hann ennfremur. Það era fyrst og fremst Frakkar sem standa í vegi fyrir samkomulagi og hafa þeir einangrast mjög innan EB vegna einarðrar afstöðu sinnar. Óttast franska stjórnin að samkomu- lagið myndi espa upp bændur sem gæti haft afdrifaríkar afleiðingar í Ijósi þess að þingkosningar fara fram í landinu í byijun næsta árs. Frönsk stjórnvöld sögðu í gær að samkomulag um viðskiptamál innan GATT-viðræðnanna myndi örugg- lega ekki nást fyrr en á næsta ári og voru viðbrögð Breta við þeirri yfirlýsingu mjög hörð. „Ég gæti ekki verið meira ósammála þessari fullyrðingu," sagði Major forsætis- ráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.