Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992
Kveikt í
rusli í Ný-
listasafni
Slökkviliðið í Reykjavík var
kallað að Vatnsstíg- í fyrrinótt, þar
sem vegfarendur fundu mikla
reykjarlykt. í (jós kom, að eldur
logaði í rusli í herbergi á Nýlista-
safninu. Hann var fljótslökktur og
skemmdir urðu iitlar. Talið er víst
að um íkveikju hafi verið að ræða.
Slökkviliðinu var tilkynnt um
megna reykjarlykt á svæðinu kl. 3
um nóttina. Þegar það kom á staðinn
reyndist reyk leggja undan þak-
skeggi Nýlistasafnsins. Reykkafarar
fóru inn í húsið og logaði þá í rusli
á gólfi herbergis, sem er inn af sýn-
ingarsal. Vel gekk að slökkva eldinn
og var húsið reykræst. Skemmdir
urðu litlar, nema smávægilegar af
reyk.
Slökkviliðið telur fullvíst að kveikt
hafi verið í ruslinu og er talið að sá
Mprgunblaðið/Kristinn
í gær var unnið við að hreinsa
Nýlisstasafnið.
sem það gerði hafi komist inn um
opinn glugga. Það styrkir slökkviliðið
í trúnni, að á sama tíma og eldurinn
uppgötvaðist í Nýlistasafninu gaus
upp eldur í ruslatunnu við hús hinum
megin við Vatnsstíginn.
Spilaklúbbar
Ekkí upplýst um ólögleg-
an rekstur í Skipholti
„LÖGREGLAN hefur ekki haft neina ástæðu til að ætla að í spilasalnum
í Skipholti fari fram ólögleg starfsemi, en við munum grípa þarna inn
í ef ástæða telst til,“ sagði Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlög-
regluþjónn þegar hann var spurður hvers vegna lögreglan léti starf-
semi spilavítis í Skipholti óáreitta.
Ómar Smári sagði að eigandi
spilasalarins í Skipholti hefði staðið
öðruvísi að málum en eigendur spila-
vítanna í Súðarvogi og Ármúla.
„Hann setti upp aðstöðu og flutti inn
spilaborð og rúllettuhjól, en leitaði
til lögreglunnar eftir upplýsingum
um hvort hann gæti fengið leyfi fyr-
ir starfsemi," sagði Ómar Smári.
„Lögregluembættið treysti sér ekki
til að veita slíkt leyfi og vísaði á
dómsmálaráðuneytið, sem gaf sömu
svör. Við höfum því fylgst vel með
því, hvað þama fer fram. Þama hef-'
ur mjög lokaður hópur setið að spil-
um og áfengi hefur ekki verið selt.
Það er því engin ástæða til að ætla,
að þar fari fram ólögleg starfsemi,
þ.e. að þama sé starfrækt spilavíti
í atvinnuskyni. Þessi spilavítamál eru
hins vegar í biðstöðu núna og við
flýtum okkur hægt þar til niðurstaða
hefur fengist í málum eigenda spila-
vítanna í Súðarvogi og Ármúla. Eg
ítreka hins vegar að ef við teljum
ástæðu til að grípa inn í, þarna eða
annars staðar, þá gerum við það,“
sagði Ómar Smári Ármannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn í Reykjavík.
Kirkjuþing
Stofnað verði embætti
prests eða djákna er ann-
ist þjónustu við fatlaða
ÞRATT fyrir brýna þörf hefur embætti prests í þjónustu við fatl-
aða verið lagt niður, um tíma a.m.k. Sr. Guðný Hallgrimsdóttir,
sem gegnt hefur starfinu tímabundið, segir að ástæðan sé sú að
samtök fatlaðra sem fjármagnað hafi starfið að V* hlutum á móti
biskupsstofu, telji að þau eigi ekki að greiða sérstaklega fyrir
prestþjónustu fatlaðra meðan almennir borgarar fái hana í gegnum
ríkið. Kirkjuþingið beinir þeim tilmælum til kirkjumálaráðherra
og fjármálaráðherra að þeir beiti sér fyrir því að veitt verði fé til
að stofna embætti prests eða djákna er annist þjónustu við fatlaða.
í samtali við Guðnýju kom fram
að hún hefði tekið við starfínu í
ágústmánuði árið 1990 og hefði
það mótast smám saman. Störf
hennar hafa verið af ýmsum toga.
„Ég hef sérstaklega sinnt fötluðum
bömum og foreldrum fatlaðra
bama sem þurfa, að mér finnst,
mjög á stuðning að halda í sorg
sinni. Því það er sorg að eignast
fatlað barn þó svo það veiti foreldr-
um sínum mikla ánægju þegar á
líður,“ sagði Guðný og minnti á
að það væri erfítt að sjá um fatlað-
an einstakling og t.d. veita honum
úrræði þegar foreldrarnir væm
ekki lengur til staðar.
Hún tók fram að hún hefði m.a.
sinnt undirbúningi fermingar-
fræðsluefnis fyrir fatlaða og ann-
ast fermingar. Þá kannaði hún í
samvinnu við Carl Brand, starfs-
mann samstarfsnefndar um feril-
mál fatlaðra, aðgengi við og í kirkj-
um og safnaðarheimilum Reykja-
víkurpófastsdæmanna tveggja.
„Við komumst að því að kirkjan
má mjög mikið bæta sitt aðgengi,"
sagði hún og bætti við að lítið
þýddi að bjóða fatlaða einstaklinga
velkomna þegar komið væri að svo
til læstu dyrum í þeirri merkingu
að ef til vill væra 10 tröppur upp
að kirkjunni og 10 sm hár þrösk-
uldur inn í hana.
Starf Guðnýjar, sem var í 75%
í greinargerð með framvarpinu
segir m.a. að víðast hvar sé hið
besta samstarf milli sóknarnefnda
og sóknarpresta og náið samstarf
um flesta þætti starfs, „... en þó
virðist eðlilegt að ganga betur frá
stöðu sóknarprestsins gagnvart
mikilvægum ákvörðunum, ekki síst
þeim er snerta búnað kirkju, útlit
og starfsmannahald," segir í tillög-
unni og í beinu framhaldi: „Sam-
ræming ábyrgðar og forystu sókn-
arprests og ábyrgðar og frum-
kvæði sóknarnefnda mundi koma
starfí, var fjármagnað af biskup-
stofu að einum þriðja hluta og
samtökum fatlaðra, þ.e. öryrkja-
bandalagi og þroskahjálp, að
tveimur þriðju en það hefur nú
verið lagt niður vegna þess að sam-
tök fatlaðra telja ekki að þau eigi
að greiða sérstaklega fyrir prest-
þjónustu á meðan hinn almenni
borgari fær þessa þjónustu í gegn-
um ríkið. Guðný telur mjög miður
að staðan hafi verið lögð niður
enda hafi sýnt sig að brýn þörf sé
fýrir starf af þessu tagi.
í veg fyrir árekstra, er oft stafa
af misskilningi.“ Tillögu biskups
var vísað til löggjafamefndar.
Af öðram tillögum, sem lagðar
voru fram í gær, má nefna tillögu
til þingsályktunar um embætti og
þjónustu í þjóðkirkjunni, tillögu til
þingsályktunar um Hinn almenna
kirkjusjóð og frumvarp til laga um
kirkjuþing og kirkjuráð. í dag verð-
ur m.a. fjallað um tillögu til þings-
ályktunar um djáknanám og tillögu
til þingsályktunar um að kanna
aðstoð við atvinnulausa.
Lög um sóknarnefnd-
ir verði endurskoðuð
HR. Ólafur Skúlason, biskup, flutti þingsályktunartillögu um að
kjósa þriggja manna nefnd til að endurskoða lög um sóknamefnd-
ir og gera tillögur til að tryggja sem best grundvöll að samstarfi
sóknarnefnda og sóknarpresta, á þriðja degi Kirkjuþings í Bústað-
arkirkju i gær.
ftnita
MATERNITY
V.
Verðandi mæður:
Meðgöngubelti
Meðgöngunærfatnaður
Meðgöngubrjóstahaldarar
Gjafahaldarar
lympí
Laugavegi 26, s. 13300
Kringlunni 8-12, s. 33600.
J
Þrotabú Fiskvinnslunnar á Bíldudal
Heimamenn gera tilboð í eignimar
og undirbúa stofnun hlutafélags
HEIMAMENN á BÍIdudal ásamt
fleiri aðilum lögðu fram og
kynntu tilboð í þrotabú Fisk-
vinnslunnar hf. á Bíldudal á
miðvikudag, en þeir undirbúa
jafnframt stofnun hlutafélags
sem yfirtæki reksturinn ef
samningar takast um söluna.
Byggðastofnun sem á kröfu á
fyrsta veðrétti hefur þegar sam-
þykkt tilboðið fyrir sitt leyti, en
að sögn Skarphéðins Þórissonar
bústjóra verður væntanlega tek-
in afstaða til tilboðsins á fundi
veðkröfuhafa í dag.
Skarphéðinn vildi ekki upplýsa
fjárhæðir tilboðsins en sagði það
fela í sér kaup á langflestum eigum
þrotabúsins sem væra frystihúsið
sjálft ásamt sláturhúsi og verbúð-
um og auk þess væri gert tilboð í
flest hlutabréf sem eru í eigu
þrotabúsins, þ. á m. 75% hlut Fisk-
vinnslunnar í Útgerðarfélagi Bíld-
dælinga hf. Sagði hann ljóst að
sumir veðkröfuhafar þyrftu að af-
skrifa talsverðar fjárhæðir og því
í ORGELHÚSI nýja orgelsins í
Hallgrímskirlgu sem þýska
fyrirtækið Klais Orgelbau hann-
þyrfti tíma til að skoða tilboðið
áður en afstaða til þess væri tekin.
Útgerðarfélag Bílddælinga hef-
ur haft rekstur Fiskvinnslunnar á
leigu að undanförnu, samkvæmt
leigusamningi, til 1. nóvember.
Skiptafundur í þrotabúinu hefur
verið auglýstur 29. október.
aði og smíðaði er glerveggur
sem vakið hefur athygli, en
hönnun hans og smíði var í
höndum íslenskra aðila.
Orgelhúsið, sem er á fjóram
hæðum, er smíðað úr gegnheilli
eik og að baki þess er sérstakur
tvöfaldur glerveggur sem varpar
öllum hljóm inn í kirkjuna. Upphaf-
lega vildi þýska fyrirtækið hafa
vegg þennan úr steinsteypu en sú
tillaga fékk lítinn hljómgrunn hjá
húsameistaraembætti ríkisins. í
samvinnu við Andrés Narfa Andr-
ésson arkitekt og Gunnar Pálsson
verkfræðing sem sá um hljómburð-
inn, var veggurinn síðan hannaður
úr gleri. Er þetta fyrsta Klaisorgel-
ið sem hefur glervegg í orgelhúsi
og voru forsvarsmenn þýska fyrir-
tækisins mjög ánægðir með árang-
urinn. Verkið var síðan boðið út
og sá Vélsmiðjan Gils hf. um smíð-
ina.
Orgel í Hallgrímskirkj u
Islensk hönnun á vegg