Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 23. OKTÓBER 1992 37 Bjamheiður Brynjólfs- dóttir - Kveðjuorð Fædd 23. júní 1900 Dáinn 16. september 1992 Nýlega hefur horfið af sjónar- sviðinu Bjarnheiður Brynjólfsdótt- ir, eftir langt og athafnasamt ævistarf. Bjárnheiður var gift Magnúsi Guðmundssyni frá Hörgsholti í Hrunamannahreppi. Magnús var móðurbróðir minn, og því naut ég hins breiða frænd- garðs, sem leitaði skjóls hjá þeim Magnúsi og Bjarnheiði í Hafnar- stræti 18. Þar rak Bjarnheiður matsölu í áratugi eða þar til hún flutti í eigið húsnæði að Stangar- holti 38, nokkru eftir að Magnús féll frá. Magnús var einn þeirra, ásamt Guðmanni bróður sínum, sem fórst með Glitfaxa 1951. Þannig atvikaðist að við, Magn- ús yngri, sonur Magnúsar móður- bróður míns og stjúpsonur Bjarn- heiðar, urðum uppeldisbræður. Við vorum báðir móðurleysingjar og teknir í fóstur hjá Jóni Guðmunds- syni frá Hörgsholti, bróðir Magn- úsar og Ólafíu móður minnar, og konu hans Sigríði Guðnadóttur frá Laxárdal í Gnúpverjahreppi. Þau hjón bjuggu um áraraðir á Brúsa- stöðum í Þingvallasveit, og stóðu fyrir hótelrekstri á Hótel Valhöll á Þingvöllum. Þar nutum við Magnús yngri, ásamt Sigrúnu frændsystur okkar, Haraldi og Sigríði, sem ekki voru skyld okkur, skjóls og uppvaxtar- skilyrða, sem við værum eigin börn þeirra Brúsastaðahjóna. Þau ólu okkur upp við hjartahlýju og gott atlæti. Við Magnús yngri vorum næst- um jafngamlir, fæddir á sama al- manaksárinu. Þess vegna rugluð- um við meira saman reitum okkar en ella hefði orðið. Þetta hélst eft- ir að við fluttum á mölina í Reykja- vík. Báðir leigðum við árum saman á Bræðraborgarstíg 18. Hér naut ég frændsemi, því að enginn mun- ur var gerður á mér sem heimilis- manni og á Magnúsi uppeldisbróð- ur mínum. Hafnarstræti 18 var mitt annað heimili og svo var um fjölmarga aðra. Frændgarður þeirra Magnúsar og Bjamheiðar var stór. Allt frændliðið var sem heimamenn í Hafnarstræti 18, og margir sem höfðu að engu öðru að hverfa. Mötuneytið í Hafnarstræti var . lífsskóli í mannlegum kynnum. Þangað sóttú kost sinn ólíklegustu manngerðir, þar var mikið spjall- að, og mikið nám fyrir okkur hina yngri. Þar kynntist maður mönn- um, sem síðar áttu eftir að lenda á hinum ólíklegustu þrepum mannlífsins. Svo fór að Iausamennsku minni lauk, og að ég stofnaði mitt eigið heimili. Þannig fór einnig um Magnús uppeldisbróður minn. Meðan ég bjó syðra fylgdist ég jafnan með þeim systrum Bjarn- heiði og Þórdísi og eftir að ég fór norður hafði ég ákveðin tengsl við mitt fyrra velgerðarfólk í gegnum Magnús uppeldisbróður minn. Magnús yngri er fallinn í valinn fyrir nokkrum misserum, og því tókst mér ekki að fylgjast, sem skyldi, með þeim í Stangarholtinu, eins og mér hefði borið skylda til. Bjarnheiður markaði djúp spor í lífi mínu og þannig er um fjöl- marga, sem nutu samfylgdar hennar, þeirrar umhyggju er ein- kenndi allt viðmót hennar. Fyrir mér var þetta ómetanleg stoð á þeim tímum í ævi minni, þegar ég átti í fá skjól að venda. Eg fyllist söknuði og þakklæti, þegar ég hugsa til minninganna um Bjarn- heiði Brynjólfsdóttur. Ég votta Eddu, dóttur hennar, manni hennar og börnum samúð mína. Ég flyt Þórdísi systur Bjarn- heiðar. þakkir fyrir áralöng kynni og votta henni samúð mína. Hún var hin þögla stoð þeirra Bjarn- heiðar og Magnúsar á hveiju sem gekk í úfnum sjó langrar ævi. Ekki get ég lokið þessu án þess að færa Jens Skarphéðinssyni, hinni traustu stoð til hinstu stund- ar, virðingu mína og kveðjur. Askell Einarsson. Baiidarískur miðill heldur námskeið Bandaríski miðillinn og leið- beinandinn Patrice Noli heldur námskeið helgina 24. og 25. október þar sem kennt verður að opna fyrir miðilshæfileik- FYRSTA þjóðmálaráðstefna kirkjunnar verður haldin laugardaginn 24; október kl. 10.00 í Háskóla íslands, Odda, stofu 101, undir yfirskriftinni: Staða heimilis og fjölskyldu í íslensku þjóðlífi. ana. Námskeiðið er byggt á bók Sanaya Roman, „Opening to Channel en hann er einnig höfundur bókanna Lifðu í gleði og Auktu styrk þinn. þjónustu kirkjunnar, og Ragnheið- ur Sverrisdóttir, djákni, varpa ljósi á þá líknar- og stoðþjónustu sem kirkjan getur veitt. Fyrirspurnir verða leyfðar eftir hvern mála- flokk og almennar umræður verða í lokin. (Úr fréttatilkynningu) Helgina 31. og 1. nóvember heldur Patrice, námskeið í sköpun alsnægta. Það'Viámskeið er byggt á bók Sanaya Roman og Duane Packer, „Creating Money“. Unnið er með æfingar og staðfestingar til að skapa alsnægtir á öllum sviðum lífs okkar og miðað að því að það nýtist fólki dagsdaglega. Bæði þessi námskeið standa frá 10-18 á laugardeginum og 10-17 á sunnudeginum. Patrice Noli miðlar fræðsluafl- inu Ceyda og á meðan á dvöl henn- ar stendur mun hún bjóða upp á hálfrar eða heillar klukkustundar einkatíma. Öll kennsla fer fram á ensku og allar nánari upplýsingar um námskeið og einkatíma er að fá hjá Nýaldarsamtökunum, Laugavegi 66. (Úr fréttatilkynningu) Er vegið að heimil- inu og fjölskyldunni? í þeim tilgangi að rödd kirkj- unnar gæti hljómað á markvissan hátt í almennri umræðu setti þjóð- kirkjan á síðasta ári á fót sérstaka nefnd er skyldi hafa það hlutverk að efla umræðu um þjóðmál út frá kristnum forsendum bæði í söfn- uðum landsins og á opinberum vettvangi og vera ráðgefandi þeim er þess óska. Jafnframt skyldi nefndin boða til þjóðmálaráðstefnu kirkjunnar til að fjalla um mikils- verð mál líðandi stundar. í nefnd- inni eiga sæti dr. Björn Björnsson, prófessor, sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur, Helgi K. Hjálms- son, formaður Leikmananráðs kirkjunnar, Hólmfríður Péturs- dóttir, kennari, og sr. Þórhallur Höskuldsson, sóknarprestur, sem jafnframt er formaður nefndarinn- ar. Atriði úr myndinni Bitrum mána. Stjömubíó sýnir myndina Bitran mána Ráðstefnan hefst á umfjöllun Sigríðar Ingvarsdóttur, héraðs- dómara, um réttarstöðu fjölskyld- unnar, Sigrún Júlíusdótitr, félags- ráðgjafi, fjallar um ólíkar fjöl- skyldugerðir og dr. Guðmundur K. Magnússon, hagfræðingur um fjárhag heimilanna. Eftir hádegi ræða dr. Guðný Guðbjörnsdóttir, uppeldisfræðing- ur, og félagsráðgjafarriir Sigur- björg Sigurgeirsdóttir og Lára Björnsdóttir um uppeldis- og umönnunarhlutverkið. Magnús Skúlason geðlæknir fjallar um gildi heimilisins fyrir andlega vel- ferð og sr. Þorvaldur K. Helgason, framkvæmdastjóri Fjölskyldu- STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýningar myndina Bitran mána í leikstjórn Romans Polanskis. Myndin er byggð á skáldsögu Pascals Bruckner „Lunes de Fie“. Með aðalhlutverk fara Peter Coyote, Emmanuelle Seigner og Hugh Grant. Bitur máni gerist um borð í skemmtiferðaskipi og í anda Pol- anskis er myndin full af erótík, spennu, dulúð og yfirþyrmandi ástríðu. Coyote leikur fatlaðan Bandaríkjamann, Oscar, sem hef- ur sjúklega þörf fyrir að segja saklausum Breta frá ást lífs síns. Bretinn verður heltekinn af eigin- konu Bandaríkjamannsins og þráir að njóta konunnar sem eiginmaður hennar lýsir svo fjálglega. KIRKJUSTARF AÐVENTKIRKJAN, Ingólfs- stræti 19. Biblíurannsókn kl. 9.45. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Erling B. Snorra- son. SAFNAÐARHEIMILI aðvent- ista, Blikabraut 2, Keflavík. Biblíurannsókn kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Ræðumaður: Lilja Armannsdóttir. HLÍÐARDALSSKÓLI, Ölfusi. Biblíurannsókn kl. 10. Guðs- þjónusta kl. 11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson. AÐVENTKIRKJAN, Breka- stíg 17, Vestm. Biblíurannsókn kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Þröstur B. Stein- þórsson. AÐVENTSÖFNUÐURINN Hafnarfirði, Vitanum, Strand- götu 1. Samkoma kl. 10. Ræðu- maður: Steinþór Þórðarson. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna, t Ástkær móðir okkar og amma, JAKOBÍNA J. WALDERHAUG, andaðist í Sjúkrahúsi Siglufjarðar aðfaranótt 21.' október. Börnin. t Litli drengurinn okkar, REYNIR GÍSLI PÉTURSSON, lést í Landakotsspítala 21. október. Pétur Árni Rafnsson, Ásta María Reynisdóttir. t Ástkær dóttir okkar, systir, móðir, sam- býliskona og amma, LÍNA KRAGH, til heimilis í Hraunbæ 102E, Reykjavik, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 26. október 1992 kl. 13:30. Sveinn G.A. Kragh, Sigríður Kragh, Þorsteinn I. Kragh, Sveinn Kragh, Þorsteinn Kragh, Kjartan Guðbrandsson, Eydis Gréta Guðbrandsdóttir, Sveinn Gíslason, og barnabörn. t Hjartans þakkir fyrir hlýhug og samúð við andlát PÁLMA HANNESAR JÓNSSONAR, Fornhaga 17. Ágústa Júlíusdóttir, Pétur Pálmason, Elín Bjarnadóttir, Elín Pálmadóttir, Sólveig Pálmadóttir, Árni Jón Pálmason, Eva J. Júlíusdóttir, Helga Pálmadóttir, Helgi Samúelsson og barnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð vegna fráfalls afa okkar og langafa, ÞORSTEINS AUÐUNSSONAR útgerðarmanns, Tunguvegi 6, Hafnarfirði. Þorsteinn Auðunn Pétursson, Ingunn Einarsdóttir, Róbert Einar, Mikael Árni Bergmann Þorsteinsson, Þorsteinn Ari Bergmann Þorsteinsson, Hjálmar Þröstur Pétursson, Lovfsa Þórðardóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.