Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992 Tríó Reykja- víkur í Hafnarborg Tríó Reykjavlkur heldur tónleika í Hafnarborg, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar, sunnudaginn 25. október. Tón- leikarnir hefjast klukkan 20.00 og eru þetta aðrir tónleikarnir haust í samvinnu Hafnarborgar og Tríós Reykjavíkur. Auk meðlima tríósins, sem eru Halldór Haraldsson, píanóleikari, Guðný Guðmundsdóttir, fíðluleikari og Gunnar Kvaran, sellóleikari, kemur fram á tónleikunum þekktur bandarískur píanóleikari, Brady Millican. Hann hefur vakið athygli beggja vegna Atlantshafsins fyrir ijölbreytta efnisskrá og litríka túlk- un. Bradi er að koma úr tónleika- ferð um Austur-Evrópu með við- komu á íslandi. A efnisskrá tónleikanna verður Fantasía í f-moll (f|'órhent) eftir Schubert og tvær sónögur eftir Brahms; Sónata í e-moll op. 38 yrir selló og píanó og Sónata í d- moll op. 108 fyrir fiðlu og píanó. Úr PLATANOV: Guðmundur Ólafsson, Ari Matthíasson, Sigrún Edda Björnsdóttir og Pétur Einarsson. Sögur úr sveitiimi Góðvinafundir Tónleikar Kammersveit- arinnar endurteknir HúsfyllirvarátónleikumKammersveitarReykjavíkuríRáðhúsinusíðast- liðið þriðjudagskvöld. Uppselt var löngu áður en tónleikarnir hófust og þurftu einhveijir fráað hverfa. Vegna þessa og fjölda áskorana, verða tónleikarnir endurteknir mánudagskvöldið 26. október, klukkan 20.30 í Ráðhúsinu. Á tón- leikunum koma fram tveir ungir tónlistarmenn, þau Gunnsteinn Ólafsson, hljómsveitarstjóri og Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari. Á efnisskránni eru kafli úr órator- íunni Salomon, eftir Handel, Píanó- konsert í C-dúr, K. 467, eftir Moz- art, Eine kleine Nachtmusik, eftir Mozart og sex þættir úr Vatnasvít- Laugardaginn 24. október frumsýnir Leikfélag Reykjavík- ur á Litla sviði Borgarleikhússins SÖGUR ÚR SVEITINNI, tvö leik- rit eftir Anton Tsjékov í leik- sljórn Kjartans Ragnarssonar. PLATANOV er æskuverk Tsjékovs, skrifað þegar hann er tvítugur stúdent, en VANJA FRÆNDI er samið 1895, þegar höfundur er þrítugur og hefur náð fullum þroska sem skáld. Leikritin eru skyld um margt, en þó ólík. Kjartan steypir þeim í eina leik- sýningu í tveimur hlutum. Sviðs- myndin er að mestu leyti sú sama í báðum og sami tíu manna leikhóp- ur í báðum leikritum. Þessi tilraun var gerð ekki síst til að gefa áhorf- endum kost á að kynnast þessum merka höfundi betur. í fréttatilkynningu segir, að áhorfendur geti kynnst höfundi og list hans á innilegri og nærgöngulli hátt en áður í SÖGUM ÚR SVEIT- INNI. Verkin verða frumsýnd sama dag: PLATANOV kl. 17.00 og VANJA FRÆNDI kl. 20.30. Áhorf- endur eiga þess kost að sjá bæði verkin um helgar á sérstöku tilboðs- verði. Þá verður að sjálfsögðu selt á stakar sýningar. Kjartan Ragnarsson er leikstjóri. Axel Hallkell Jóhannesson gerir leikmynd. Stefanía Adólfsdóttir hannar búninga. Ögmundur Þór Jóhannesson sér um lýsingu. Egill Ólafsson semur tónlist við bæði verkin, en hann er einn af leikhópn- um. Jónas Ingimundarson, píanóleikari verður á ferð um Borgarfjörð á vegum Tónlistarfélags Borgarfjarðar, dagana 26. 27. og 28. október næstkomandi. Morgunblaðið/Kristinn Nýjar bækur Aðrir leikendur eru: Ari-Matthí- asson, Erla Ruth Harðardóttir, Guð- mundur Ólafsson, Guðrún S. Gísla- dóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Pét- ur Einarsson, Sigrún Edda Björns- dóttir, Theódór Júlíusson og Þröstur Leó Gunnarsson. VANJA er leikinn í nýrri þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur, en PLATANOV í leikgerð Péturs Ein- arssonar eftir þýðingu Árna Berg- manns. I fréttatilkynn- ingu segir að Jónas muni heimsækja grunnskólana að deginum og auk þess halda tvenna kvöldtónleika. Þá fyrri í Hótel Borg- arnesi, þriðjudags- Jónas Ingimund- kvöldið 27. októ- ar8on ber, kl. 20.30. Þá síðari í Loga- landi, miðvikudagskvöldið 28. októ- ber, kl. 21.00. Jónas kallar tónleikana GÓÐ- VINAFUNDI, þar sem tónlistin er aðalatriðið. Með spjalli sínu hyggst hann leiða gesti sína til hlustunar og skilnings á tónlistinni. Efnisskrá- in verður fjölbreytt. Flutt verða verk eftir innlend og erlend tónskáld, yngri sem eldri, þó segja megi að Beethoven sitji í öndvegi þess hóps. Kammersveit Reykjavíkur á æfingu Erhngur Pall Ingvarsson,sem hannaði útlit bókarinnar, Sigurð- ur Svavarsson frá Máli og menningu, Sölvi Sveinsson, sem sat í ritsljórn fyrir samtök móðurmálskennara, og Þorgeir Baldurs- son frá Prentsmiðjunni Odda. H Svört verða sóisetur Bókin, sem er úrval af grænlenskum, samískum, finnskum og norræn- um goðsögnum, kemur samtímis út á fimm tungumálum í sam- vinnu sex norrænna bókaforlaga. Titill bókarinnar Svört verða sólsetur er sóttur í Völuspá, en bókin hefst einmitt á því kvæði og það er birt bæði í sinni fomu mynd og í nútímalegri endursögn Þórarins Eldjárns. Danska skáldkonan Suzanne Brogger endursagði kvæðið fyrir skandin- avísku málin. í fréttatilkynningu segir að Svört verða sólskin sé eftir því sem best sé vitað stærsta fjölþjóðaprent sem íslenskt forlag og prentsmiðja hafi ráðist í - fyrsta upplag verksins er prentað í 22.000 eintökum. Útgefendur bókarinnar eru: Mál og menning, Cappelen í Noretgi, Dlf/Amanda í Dan- mörku, Editum í Finnlandi, Laatusana oy í Finnlandi og Natur och Kultur í Svíþjóð. Bókin er að öllu leyti unnin hér á landi; Mál og menning stýrði verk- inu og Prentsmiðjan Oddi hf. sá um alla prentvinnslu. Verð bókarinnar er 1.290 krónur. I Paródía Kalíbans eftir Ron- ald Krisljánsson. I fréttatilkynn- ingu segir að þetta sé safn 35 smásagna sm höfundur kýs að nefna „sjortara“ og eru háðs- ádeilur á þjóðfé- lagið og mann- inn, sprettilsög- ur, huganir og leiðslusögur í anda dulspek- innar. Útgefandi er Itonald Kristjáns- Bókaútgáfan son Ósíris sf. , 135 blaðsíðna pappírskilja og unnin hjá Prentsmiðju Arna Valde- marssonar. Hönnun á kápu ann- aðist Arnfinn Jensen. Myndir á kápu tók Siguijón Helgi Kristj- ánsson. Verð 1390 krónur. I Markús Árelíus hrökklast að heiman eftir Helga Guð- mundsson. Bókin er framhald af sögunni Markús Árelíus, sem kom út árið 1990. í kynn- ingu segir að nú hafi aðstæður kattarins Mark- úsar Árelíusar breyst svo hann hrökklast að heiman og gerist villiköttur. Útgefandi er Mál og menning, teikningar eru eftir Ólaf Péturs- son , Prentsmiðjan Oddi prent- aði. Verð 980 krónur. Helgi Guðmunds- • • Signrður Orlygsson Myndlist____________ Eiríkur Þorláksson Listamenn þroskast væntan- lega, líkt og flest annað fólk, mest við að takast á við sjálfa sig og þær venjur sem þeir hafa skapað sér í leik og starfi; með því að breyta um viðfangsefni, vinnuaðferðir, efnivið eða um- hverfí komast þeir stundum að nýjum niðurstöðum, sem eiga ef til vill eftir að hafa áhrif á þeirra feril upp frá því. Þetta eru algild sannindi sem koma oft fram í ferli myndlistarmanna, þar sem eitt skeiðið tekur við af öðru, eftir að ákveðin geijun hefur átt sér stað á þroskaferli listamanns- ins. Þetta er nefnt hér í tilefni sýn- ingar Sigurðar Örlygssonar í Gallerí G15 við Skólavörðustíg, sem nú stendur yfír. Sigurður stundaði nám_ í Myndlista- og handíðaskóla íslands í kringum 1970, en sótti sér síðan fram- haldsmenntun í myndlistinni til Kaupmannahafnar og New York. Hann hefur verið ötull við sýn- ingahald, haldið fjölda einkasýn- inga bæði heima og erlendis, og hefur einnig tekið þátt í mörgum merkum samsýningum, nú síðast í Barcelona síðastliðið vor, ásamt tveimur öðrum íslenskum mynd- listarmönnum. Sigurður hefur hin síðari ár fyrst og fremst getið sér orð fyr- ir hin gríðarstóru málverk sín, þar sem menn og hlutir hafa flot- ið um víðáttumikið rými og leit- ast við að skapa áþreifanleg sam- bönd í fletinum. Oftar en ekki hefur þriðja víddin aukið við verkin, þegar listamaðurinn hef- ur smíðað hluti utan á myndirn- ar, sem tilheyra myndskipuninni og bæta því miklu við heildar- myndina. Meðal annars vegna stærðarinnar hafa verk Sigurðar ætíð vakið athygli á sýningum, og sóma sér vel á þeim opinberu stöðum, þar sem þau fá fyllilega notið sín í rúmgóðu umhverfi. Með þennan feril í huga er forvitnilegt að sjá á hvern hátt Sigurður vinnur verk í mun smærri formum fyrir lítinn sýn- ingarsal eins og G15 við Skóla- vörðustíg, þar sem er lágt til lofts og þröngt til veggja, ef svo má segja. Á sýningunni getur að líta alls fímmtán verk, unnin með akrýl og olíu á pappír, en auk þess er m.a. klippimyndum blandað í fletina. í sem skemmstu máli kemur sýningin gestum skemmtilega á óvart. Þessi litlu verk ná ágæt- lega að koma til skila myndsýn listamannsins, og tenging efnis- þátta í fletinum er ef til vill sterk- ari en ella vegna smæðarinnar. Hin mikla vinnsla lita og áferðar sem einkennir grunninn á flest- um stórum verkum Sigurðar er einnig að nokkru til staðar, eink- um í olíuverkunum. Hlutföll eru ljós og vinna vel saman við upp- byggingu myndanna. Form sem eru kunnugleg frá verkum lista- mannsins birtast hér í mörgum verkum, þar sem þau byggja upp ný tengsl og nýjar aðstæður, og bakgrunnurinn er líflegur og íjöl- breyttur sem fyrr. Titlar þeir sem Sigurður velur verkum sínum hafa ákveðnar til- vísanir, bæði í efni myndanna og þá samtíð, sem þau spretta úr. Verk eins og „Fortíðarvandinn“ (nr. 6), „Áætlun“ (nr. 10) og „Fyrirbyggjandi aðgerðir" (nr. 11) vísa þannig til umræðu dags- ins, þótt öll lúti þau innri lögmál- um listaverksins; einkum gengur „Áætlun" vel upp. Þær ímyndir sem brugðið er upp í olíuverkun- um, einkum „Líftaug" (nr. 13) og „Hleðsla“ (nr. 15) eru kunn- uglegar úr verkum Sigurðar, en eru sérlega sterkar í þessum minni flötum, og ná þannig ágæt- lega marki sínu. Þessi sýning sýnir ótvírætt, að myndmál Sigurðar er ekki háð stærðinni, þó hún hafi verið áber- andi þáttur í listsköpun hans undanfarin ár. Það sem stendur uppúr er vinnsla flatarins og tenging þeirra forma og furðu- hluta, sem einkenna myndheim listamannsins; þeir þættir kom- ast fyllilega til skila í minni verk- um eins og hann sýnir hér, og eru það ánægjuleg tíðindi fyrir listunnendur sem hafa notið stóru verkanna til þessa. Sýning Sigurðar Örlygssonar í Gallerí G15 við Skólavörðustíg stendur til laugardagsins 31. október.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.