Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992 19 hljómplötum. Hann söng með hljómsveit minni og ég spiiaði með hljómsveit hans. í langri ferð um landið rödduðum við Flickorna-fra Smáland með Stebba Þorleifs á landleguballi á Raufarhöfn og á gamla Röðli stóðum við hlið við hlið og fluttum í fyrsta sinn mörg íslensk lög, sem nú eru alþekkt og næstum orðin þjóðlög. Eftirminnileg er ferð til London til þess að ráða skemmtikrafta fyrir eitt veitingahúsið í bænum. Þá var hann heimsmaðurinn, sem þekkti stórborgina, en ég var að koma þar í fyrsta sinn og starði opinmynntur í allar áttir. Eg held hann hafi fæðst heimsmaður. Hvergi sá ég hann þó jafn kátan og hagvanan og í Kaupmannahöfn, þar sem við eitt sinn hljóðrituðum hljómplötu. Hann þekkti borgina vel, talaði góða dönsku og gekk um eins og hann ætti f borginni hvert bein. Hann var líka mestur hrókur fagnaðar á kvöldin, þegar við hin fengum okkur nokkra bjóra á nokkrum stöðum og kom alltaf með þótt hann væri alger reglu- maður sjálfur.' Svo fórum við einu sinni um Færeyjamar þverar og endilangar með bátum, bílum og flugvélum og skemmtum í þorpum og bæjum. Hann lék á als oddi og alls staðar var eins og hann þekkti fulit af fólki og það þekkti hann. Einnig lágu leiðir saman í Sjálfstæðishús- inu við Austurvöll og einu sinni stóðum við tveir einir uppi á svið- inu í Bæjarbíói í Hafnarfirði og fluttum ákveðið lag úr kvikmynd kvöldsins, með íslenskum texta auðvitað, í upphafi hverrár níusýn- ingar á þessari mjög svo vinsælu mynd, sem ég man ekki lengur hvað heitir, en ítölsk var hún. Leiðir lágu líka oft saman í Austurbæjarbíói, þar sem helstu uppákomur í léttri tónlist fóru fram um langt skeið. Á kabarettum, hljómleikum, kvöldskemmtunum, miðnæturhljómleikum og svo framvegis. Við mættum til leiks og hann hafði oft eitthveiju skemmtilegu að segja frá áður en við gengum fram á sviðið, enda sögumaður góður. Oft var líka rabbað og skipst á skoðunum eftir að spilverki lauk, því að í rauninni var hann næturhrafn og naut sín gjaman vel fram á rauðan morgun. Tíminn leið og við hittumst stöku sinnum yfír kaffibolla. Alltaf var talað um áhugamálið — músik og söng — og við gerðum því gjam- an skóna á þeim stundum, að eina RAFORKAN þarf ekki aðvera staðbundin EB4500X Rafstöðin frá HONDA er hentug fyrir verktaka, við byggingar sumarbústaða og við almennar húsbygg- ingar. Hún gefur frá sér 220V straum. HOIXTDA VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900 hljómplötu í viðbót ættum við eftir að gera saman. Hún skyldi vera með stórri hljómsveit til undirleiks við söng hans. Svo heyrði ég, að hann ætti í baráttu við illvígan sjúkdóm. Við hittumst í vor er leið á samkomu, þegar STEF veitti honum viður- kenningu fyrir áratuga afbragðs flutning á íslenskum lögum — ekki bara tugum laga, heldur hundruð- um. Það var af honum dregið og þegar við féllumst í faðma hvíslaði hann að mér: „Þú átt Iíka hlut í þessu, þið eigið allir hlut í þessu.“ Það var síðasta kveðja hans til mín og annarra hljómlistarmanna, sem með honum léku, að gefa okkur þannig hlut í viðurkenning- unni, sem hann átti svo sannarlega skilið að fá. Ég kem þessum skila- boðum hans hér á framfæri. Haukur Morthens er nú allur og það er vissulega skarð fyrir skildi. Hljómplatan með stóru hljómsveitinni verður aldrei gerð. En margar aðrar hljómplötur vitna um vandað ævistarf. Við Svanhild- ur sendum Ransí, sonunum þrem og öðrum ættingjum samúðar- kveðjur. Ólafur Gaukur. Kveðja frá Jazzvakningn Það er ekki ofsögum sagt að Haukur Morthens hafi verið fremstur íslenskra dægurlaga- söngvara - einskonar Frank Sin- atra íslands - og gladdi sú samlík- ing Hauk, því fáa söngvara dáði hann meira. Margt var þeim sam- eiginlegt, s.s. frábært vald á ball- öðutúlkun og djasstilfinning þótt tónlist þeirra næði sjaldnast inn- fyrir landamæri djassins. Sem ein- staklingar voru þeir næsta ólíkir, því ljúfari mann en Hauk gat varla. Haukur söng með hljómsveit Gunnars Ormslevs á Heimsmóti lýðræðissinnaðrar æsku í Moskvu árið 1957, en þar vann sveitin til gullverðlauna sem djasshljómsveit mótsins. Haukur var einnig fulltrúi íslands á Heimsmótinu í Helsinki árið 1961 og í hljómsveit hans þar léku Guðmundur Steingrímsson, Jón Möller, Sigurbjöm Ingþórsson og Öm Ármannsson og hlutu tveir þeir síðastnefndu gullverðlaun fyr- ir djasssólóa sína. Síðan var haldið til Leningrad þar sem Haukur sló í gegn í sjónvarpsþætti - enda var hann óhemju vinsæll í Sovétríkjun- um og enn má heyra Ó, borg mín borg leikið í útvarpi þar eystra. Hljóðritanir Hauks era fjölmarg- ar og undirleikarar alltaf þeir bestu er völ var á. Nefna má af íslensk- um hið frábæra Röðulstríó Hauks, þar sem Gunnar Reynir Sveinsson, Jón Páll Bjamason og Hjörleifur Bjömsson léku með honum og svo það er hann vann með Dönunum Paul Godske og Jorgen Grauenga- ard. Það var ógleymanlegt að heyra Hauk og Paul Godske að nýju á tónleikum þeim er haldnir vora í Háskólabíói í tilefni sextugs- afmælis Hauks fyrir átta áram. Jazzvakning á Hauki mikið að þakka. Þegar íjárhagur félagsins var sem verstur kom hann fram á styrktartónleikum á Hótel Borg og söng þá m.a. með frænda sínum Bubba Morthens og Megasi. Færri komust að en vildu og Jazzvakning gat siglt áfram á djassins ólgusjón - þetta endurtók Haukur þegar nauðsyn bar til og stórtónleika SJÁ SÍÐU 35 ' / \ \ / I " / N \ \ , \ \ / i \ II | / \ y t \ i AEC . Hausttilb°ð AEG vifta Competence 100 D-w Verð áður 13.431 kr. Tilboð 9.980 kr. stgr. AEG þurrkari Lavatherm 53Ó W Verð áður 84.664 kr. niboð 69.730 kr. stgr. AEG eldavél Competence 500 F-w Verð áður 60.109 kr. Tilboð 49.780 kr. stgr. Gerðu heimilisstörfin auðveld með AEG! Tilboðið gildirtil 1. nóvember 1992. Umboðsmenn um allt land. Umboösmann Reykjavfk og nágrenni: Byggt og búið. Reykjavík BYKO, Hringbraut BYKO, Kópavogi BYKO, Hafnarfiröi Gos, Reykjavfk Hagkaup, Reykjavlk Brúnás innréttingar, Reykjavík Flt, Hafnarfiröi Þorsteinn Bergmann, Reykiavík H.G. Guöjónsson, Reykjavík Rafbúöln, Kópavogi Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi Blómsturvellir, Hellissandi ( Guöni Hallgrimsson, Grundarfiröi Ásubúö, Buöardal VestfirÖir: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfiröi Bjarnabúð, Tálknafiröi Edinborg, Bildudal Verslun Gunnars Sigurössonar, Þingeyri Einar Guöfinnsson, Bolungarvík Straumur, Isafiröi Noröurland: Kf. Steingrimsfjaröar, Hólmavík Kf. V-Hún., Hvammstanga Kf. Húnvetninga, Blönduósi Rafsjá, Sauöárkróki • KEA, Akureyri KEA, Dalvík Bókabúö Rannveigar, Laugum Sel, Mývatnssveit Kf. Þingeyinga, Húsavik Urö, Rautarhöfn Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum Kf. Vopnfiröinga, Vopnafirði Stál, SeyöisfiröT Verslunin Vík, Neskaupstaö Hjalti Siqurösson, Eskifiröi Rafnet Reyöarfirði Kf. Fáskrúosfiröinga, Fáskrúösfiröi KASK, Höfn Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli Mosfell, Hellu Árvirkinn, Selfossi Rás, Þorlákshöfn Brimnes, Vestmannaeyjum Reykjanes: Stapafell, Keflavfk Rafborg, Grindavík BRÆÐURNIR OKMSSON HF Lágmúla 8. Slmi 38820

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.