Morgunblaðið - 23.10.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 1992
21
Göngnmenn létu skúrirnar ekki aftra sér frá ánægjufegri útiveru og sumir spenntu regnhlífar.
*
Samtökin Iþróttir fyrir alla efna til göngudags
Hátt í 100 þúsund manns tóku þátt
SAMTÖKIN íþróttir fyrir alla áætla að um eitt hundrað þúsund
manns á öllum aldri vítt og breitt um landið hafi tekið þátt í göngu-
deginum sem samtökin gengust fyrir í gær. Dæmi eru um að heilu
fyrirtækin hafi lokað á meðan starfsmennirnir brugðu sér í göngu.
Að sögn Kristjáns Harðarsonar, framkvæmdastjóra íþrótta fyrir
alla, voru um 400 skipulagðar göngur farnar í gær.
Morgunblaðið/Emilía
Markús Örn Antonsson borgarstjóri i hópi yngri borgara á göngu
eftir Tjarnarbakkanum.
Um 200 göngur voru famar á
höfuðborgarsvæðinu og fór Markús
Örn Antonsson-, borgarstjóri og
göngugarpur, fyrir einni þeirra sem
Iagði upp frá Ráðhúsi Reylq'avíkur
um hádegisbilið. Sæmilega viðraði
víðast hvar, en þó hmtu skúrir á
göngumenn í Reykjavík.
Kristján sagði að saumaklúbbar,
kvenfélög, skólar, dagvistarheimili,
eldri borgarar, fyrirtæki og íþrótta-
félög hefðu skipulagt göngur.
Göngurnar voru allt frá 20 mínútna
hádegisgöngum upp í eins til
tveggja tíma göngutúra. í Lækjar-
skóla í Hafnarfirði vom allir, kenn-
arar og starfsfólk jafnt sem nem-
endur, skyldaðir til að ganga. Um
eitt þúsund manns tóku þátt í sér-
stakri Reykjavíkurgöngu og hátt í
200 manns vom í Landsbanka-
göngunni. Póstur og sími var með
göngu sem og Grandi, en fyrirtæk-
inu var lokað í 45 mínútur meðan
á göngunni stóð. Þá voru þrjár
göngur skipulagðar af ATVR.
„Göngudagur er upphaf á
gönguátaki sem Iþróttir fyrir alla
standa fyrir og á að standa yfir í
eitt ár. Markmiðið er að fyrirtækin
stofni í kjölfar þessa dags göngu-
hópa innan fyrirtækjanna. Búið er
að stofna gönguklúbb Miklagarðs
sem hóf göngu sína í Öskjuhlíð-
inni. Eftir helgi kemur út á vegum
Iþrótta fyrir alla Handbók iíkam-
ans. Þar er byijendum ráðlagt hve
langt þeir eigi að ganga og ýmsar
góðar ráðleggingar. Handbókinni
verður dreift á bensínstöðvum
Skeljungs. Veitt verður viðurkenn-
ing til þeirra sem taka þátt í áætl-
uninni," sagði Kristján.
Hann sagði að sagði að ganga
væri keppnisgrein á Ólympíuleik-
unum. Maður sem gengi rösklega
sömu vegalengd og sá er skokkar
brennir sama kaloríufjölda. Gildi
göngunnar væri því ótvírætt.
Borgarspítali
Röntgen-
tæknar aft-
ur til starfa
RÖNTGENTÆKNAR á Borgar-
spítala, sem sagt höfðu upp störf-
um, hafa komist að samkomulagi
við stjórnendur spítalans um að
hefja störf að nýju. Hófu þeir
störf í gær.
Samkomulag náðist um óbreytt
vinnufyrirkomulag og gerður var
ráðningarsamningur milli spítalans
og röntgentækna. Stefnt er að því
að gerð kjarasamnings hefjist nú
þegar og munu ráðningarkjör taka
mið af honum eftir því sem segir í
fréttatilkynningu.
Áhersla verður lögð á hagræð-
ingarverkefni innan röntgendeildar
með aðferðum gæðastjómunar og
munu röntgentæknar verða virkir
þátttakendur í því verkefni.
----»-»-»—.--
Aðalfundur
LS á mánudag
LANDSSAMBAND smábátaeig-
enda heldur aðalfund sinn næst-
komandi mánudag á Hótel Sögu.
Fundurinn hefst klukkan 8 ár-
degis og lýkur síðdegis.
Sjávarútvegsráðherra Þorsteinn
Pálsson árvarpar fundarmenn í
upphafi, en kjörnir fulltrúar eru
alls 50. Búizt er við mörgum
áheyrnarfulltrúum á fundinn.
Helztu mál fundarins verða framtíð
krókaveiðibáta, skerðing á afla-
heimildum aflamarksbáta, verndun
fiskimiðanna og önnur hefðbundin
aðalfundarmál. Formaður Lands-
sambandsins er Arthur Bogason og
framkvæmdastjóri Örn Pálsson.
----» ♦ ♦---
Boris Spasskí
fékk frestun
TUTTUGUSTU og fjórðu skákinni
í einvígi Borisar Spasskís og Bobb-
ys Fischers, sem haldið er í Belgrad,
var frestað í gær að ósk Spasskís,
sem er lasinn. Skákin verður tefld
á laugardag.
Nýtt tilbob í ríkisbréf
mibvikudaginn 28. október
Um er að ræða 6. fl. 1992 í eftirfarandi verðgildum:
Kr. 2.000.000
Kr. 10.000.000
Kr. 50.000.000
Ríkisbréfin eru til 6 mánaða, með gjalddaga
30. apríl 1993. Þessi flokkur verður skráður á
Verðbréfaþingi íslands og er Seðlabanki íslands
viðskiptavaki ríkisbréfanna.
Sala nýrra ríkisbréfa fer fram með þeim hætti
að löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfa-
miðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst
kostur á að gera tilboð í bréfin samkvæmt
tilteknu tilboðsverði. Lágmarkstilboð er
kr. 2.000.000 að nafnvirði.
Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisbréf eru
hvattir til að hafa samband við framangreinda
aðila sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og
veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim
heimilt að bjóða í vegið meðalverð samþykktra
tilboða (meðalávöxtun'vegin með fjárhæð).
Öll tilboð í ríkisbréfin þurfa að hafa borist
Lánasýslu ríkisins miðvikudaginn 28. október fyrir
kl. 14. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar
eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins / Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40.
LÁNASÝSLA RÍKISINS RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40,